Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 10
10
Skoðun
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjori og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
A&stoöarritstjóri: Jðnas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Visir, netútgáfa Frjálsrar fjöimiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Flugið fer til Keflavíkur
Flugvöllurinn í Vatnsmýri er eins mikil tímaskekkja
og flugvöllur væri í Central Park í New York og í Hyde
Park í London. Þjóöir með ábyrgðartilfinningu leyfa ekki
flugvelli í borgarmiðju og enn síður leyfa þær aðflug
beint yfir helztu valdastofnanir þjóðfélagsins.
Allir aðrir hagsmunir og samanburðarreikningar
verða að víkja fyrir þeim hagsmunum, að flugvellir ógni
ekki öryggi fólks að óþörfu og setji ekki gangverkið í
landsstjórninni í hættu. Flugvöllurinn í Vatnsmýri full-
nægir engum skilyrðum og kemur því ekki til álita.
Ráðamenn Reykjavíkur gerðu afdrifarík mistök, þegar
þeir leyfðu samgönguráðuneytinu að endumýja brautir
flugvallarins í Vatnsmýri. Augljóst var, að hinar dýru
framkvæmdir, sem kallaðar voru viðhald, mundu verða
notaðar til að festa þennan fáránlega flugvöll í sessi.
Við verðum bara að vona, að ekki verði nein slys, unz
málið leysist af sjálfu sér og innanlandsflugið flytzt til
Keflavíkurflugvallar. Um það verður ekki tekin nein ís-
lenzk ákvörðun, heldur ákveða bandarísk stjórnvöld einn
góðan veðurdag, að þau tími ekki að reka hann.
Við vitum ekki, hvort það gerist á næsta ári eða eftir
einn áratug. Við getum hins vegar sagt okkur sjálf, að ut-
anríkismál Bandaríkjanna snúast ekki lengur um norð-
urslóðir, heldur um hættuna af hryðjuverkaríkjum í
suðri. Flugherstöð á Miðnesheiði er orðin úrelt.
Þegar Bandaríkjamenn að lokum segja nóg komið,
munu íslenzk stjómvöld reka sig á, að rekstur Keflavík-
urflugvallar í millilandaflugi verður svo dýr, að þau hafa
ekki ráð á þeim lúxus að reka sérstakan flugvöll fyrir
innanlandsflug, hvorki í Vatnsmýri né suður með sjó.
Þá verður innanlandsflugið formálalítið flutt suður á
Keflavíkurflugvöll og reist þar flugstöð fyrir innanlands-
flug. Það verður þá ódýrasti kosturinn í stöðunni og
raunar sá eini, sem kemur til greina, enda verður þá
væntanlega búið að tvöfalda Reykjanesbraut.
Marklausir em útreikningar á vegum Flugmálastjórn-
ar um kostnað við aukna slysahættu á Reykjanesbraut,
enda hafa þeir ekki reiknað fulla slysahættu inn í dæmi
flugvaUarins í Vatnsmýri. Stórslysahætta á tvöfaldri
Reykjanesbraut verður ekki sambærileg við Kvosina.
Hagsmunaaðilar Vatnsmýrar undir forustu Flugmála-
stjórnar hafa ýkt mjög kostnað og óþægindi af flutningi
innanlandsflugs til Keflavíkur. Það mun ekki lengja ferð-
ir innanlands um 102 mínútur, heldur 30 mínútur, ef mið-
að er við raunverulega miðju höfuðborgarsvæðisins.
Frá Smáranum í Kópavogi eru 35 mínútur til Keflavík-
urflugvallar og 15 mínútur til flugvallarins i Vatnsmýri.
Mismunurinn er aðeins 20 mínútur. Við það bætast 5
mínútur i lengdum akstri flugvéla á brautum og 5 mínút-
ur í lengri flugtíma, sem hækkar miðaverð um 2%.
Þetta mun færa einhverja flutninga úr lofti yfir á vegi,
en mun ekki nægja til að draga úr flugi til Akureyrar, Eg-
ilsstaða, ísafjarðar og Vestmannaeyja. Með háum far-
gjöldum er Flugfélag íslands einfært um fækkun ferða,
enda dróst innanlandsflug saman um 6% í fyrra.
Skoðanakannanir hafa leitt í ljós, að flutningur innan-
landsflugs til Keflavíkur mun ekki breyta ferðaháttum
tveggja þriðju hluta þjóðarinnar. Og með aukinni notkun
þyrlna í sjúkraflugi mun ekki lengur verða þörf á flug-
velli i nágrenni hátæknisjúkrahúsa höfuðborgarinnar.
Fyrr eða síðar mun heimspólitíkin kasta Keflavíkur-
flugvelli í fang okkar. Þá tekur ákvörðunin sig sjálf og
innanlandsflugið verður formálalítið flutt þangað.
______ Jónas Kristjánsson
Minni og „gleymskacc
Enn á ný er minningin um of-
sóknir nasista á stríðsárunum i
brennidepli. Komið hafa fram ásak-
anir og málsókn á hendur banda-
ríska stórfyrirtækinu IBM: í nýrri
bók er því haldið fram að það hafi
átt þátt í helforinni með því að sjá
Þjóðverjum fyrir reiknivél sem hafi
auðveldað flokkun fórnarlamba og
flýtt fyrir því ferli sem leiddi til út-
rýmingarherferðarinnar. Lengi hef-
ur verið vitað að bandarískir bank-
ar og fyrirtæki áttu í fjárhagstengsl-
um viö nasistastjórnina. Og það er
kominn tími til að gefa þessum Atl-
antshafstengslum meiri gaum.
En það er fullkomlega ástæðu-
laust draga þá ályktun að beint or-
sakasamhengi sé milli reiknivélar
IBM og „afkastagetu" Þjóðverja í of-
sóknum sínum. Þeir þurftu ekkert á
henni að halda. Öllum gyðingum
var t.d. gert að láta vita af sér, auk
þess sem nasistar gátu stuðst við
nákvæmar íbúaskrár úr gyðinga-
hverfum. Og það eru fleiri hliðar á
þessu máli. Forsenda samkomulags
sem þýska ríkisstjórnin og ýmis
stórfyrirtæki gerðu í fyrra um að
greiða 1,2 milljónum manna skaða-
bætur - þeim sem voru í nauðung-
ar- og þrælavinnu á dögum Þriðja
ríkisins - var sú að allar málsóknir
á hendur þessum aðilum í Banda-
ríkjunum yrðu látnar niður falla.
Það er því kaldhæðnislegt að upp-
ljóstranir um óbeina þátttöku IBM í
ofsóknarherferð nasista geti tafið
þessar greiðslur, enda má gera ráð
fyrir því að um 10-15% sem eiga
rétt á bótagreiðslum deyi á þessu
ári.
Gagnrýni á „helfarariðnað"
Á sama tíma og þessar ásakanir
koma fram er bandaríski stjórn-
málafræðingurinn Norman Finkel-
stein í Evrópu að kynna þýska þýð-
ingu á bók sinni Helfarariðnaðin-
um. Hún kom út í fyrra og vakti
strax hörð viðbrögð: Þar ræðst
hann á samtök gyðinga í Bandaríkj-
unum fyrir að hafa helförina að fé-
þúfu. Finkelstein, sem er gyðingur,
gerir skýran greinarmun á útrým-
ingarherferð nasista gegn gyðingum
og öðrum og hugtakinu „helför-
inni“. í hans augum er hið síðar-
nefnda hugmyndafræðilegt vopn til
réttlætingar stefnu ísraelsmanna
með því að draga upp fórnarlamba-
ímynd af gyðingum.
í raun hafi bandarískir gyðingar
ekki hugsað mikið um fyrirbærið
fyrr en Bandaríkin og ísrael mynd-
uðu með sér bandalag í kalda stríð-
inu eftir sex daga stríðið árið 1967
og Yom Kippur-stríðið árið 1973. Nú
beiti gyðingasamtök þessu vopni til
fjárkúgunar (svissneskir bankar;
þýsk stórfyrirtæki). Það má gagn-
rýna Finkelstein fyrir smættar-
hyggju - fyrir að leggja of mikla
Sögulegt minni um grimmdarverk Þjóðverja í seinni heimsstyrjöld er farið
að taka á sig æ pólitískari mynd í samtímaumræðu. Málið snýst ekki að-
eins um skaðabætur handa fórnarlömbum, heldur einnig um sekt fýrirtækja
og banka beggja vegna Atlantshafsins og túlkun stjórnvalda á þjóðarmorð-
um. Bandaríski stjórnmálafræðingurinn Norman Finkelstein hefur í nýlegri
bók gagnrýnt harðlega það sem hann nefnir helfarariðnað, en viðbrögðin í
Þýskalandi hafa verið neikvæð. Á myndinni sést Michael Hausfeld
lögmaður ræða um mál sem fórnarlömb helfararinnar sækja gegn IBM.
ingarfundinn í Þýskalandi í síðustu
viku bendir allt til þess að Finkel-
stein eigi ekki náðuga daga fyrir
höndum. Þar fór allt í háa loft og
fundurinn leystist nánast upp.
Umræða á villigötum
Síðustu tvo áratugi hefur vest-
rænn menningariðnaður verið
gagntekinn af minningunni um hel-
fórina. Sá pólitíski tvískinnungur
sem einkennir samtímarumræðu
um hana birtist helst í tilraunum til
að minnast hennar með táknrænum
hætti: Helfararsafnið í Washington
og væntanlegt minnismerki í miðri
Berlín eru dæmi þess. Hins vegar
hefur engin áhersla verið lögð á að
reisa slík minnismerki fyrir önnur
fómarlömb „þjóðarmorðs“ eins og
frumbyggja Norður-Ameríku,
Armena eða sígauna. Því hefur ver-
ið haldið fram að helforina hafi ver-
ið einstakt og óútskýranlegt fyrir-
bæri, en með slíkri túlkun er verið
að draga fórnarlömb i dilka sem er
gjörsamlega óverjandi. Á undan-
förnum vikum hefur þessi umræða
snúist uppi í farsa. Eftir að frönsk
stjórnvöld lýstu yfir því að
fjöldamorð Tyrkja á Armenum árið
1915 flokkuðust undir þjóðarmorð
hétu borgaryfirvöld í Ankara því að
reisa minnismerki um þá 500 þús-
und Alsírsbúa sem létu lifið í ný-
lendustríðinu við Frakka á árunum
1954-1962. Með öðrum orðum er far-
ið að nota sögulegt minni um
fjöldamorð sem kaldrifjað tæki í
stjórnmálabaráttu samtímans. Það
gerir lítið úr öllum fórnarlömbum
ofsókna og gildir þá einu hvort það
eru Alsírsbúar, Armenar, sígaunar,
eða gyðingar.
áherslu samantekin ráð pólitískra
valdahópa í Bandaríkjunum og ísra-
el. Gyðingar voru heldur í engri að-
stöðu til að gera mikið úr minning-
unni um útrýmingarherferðina eftir
seinni heimsstyrjöld. Hann hefði
einnig getað lagt meiri áherslu á
áhrif Eichmann-réttarhaldanna í
Jerúsalem árið 1961 á sögulegt
minni bandarískra gyðinga um hel-
förina. Þá tókst ísraelsmönnum í
fyrsta sinn að aðgreina grimmdar-
verk Þjóðverja gegn gyðingum frá
almennum glæpum þeirra gegn öðr-
um þjóðum og minnihlutahópum.
Hins vegar á hörð gagnrýni hans á
hugmyndir um að greiða afkomend-
Valur
Ingimundarson
stjórnmála-
sagnfrædingur
um fórnarlambanna skaðabætur
eða nota hluta fjárins til að styrkja
starfsemi gyðingasamtaka fullkom-
inn rétt á sér.
Ekki þarf að koma á óvart að
þýsk viðbrögð við bók Finkelsteins
hafa verið neikvæð. Þjóðverjar ótt-
ast, að hún muni vekja upp andúö á
gyðingum og verði vatn á myllu
hægri öfgaöfla (enda þótt Finkel-
stein sé harður vinstrimaður). Og
þeir eru ekki enn reiðubúnir að
gagnrýna stefnu ísraelsstjórnar
vegna fortiðarvanda síns. Pólitiskur
fórnarkostnaður yrði einfaldlega of
hár. Og ef marka má fyrsta kynn-
mm