Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 13
13 LAUGARDAGUR 17. FEB'RÚAR 2001 DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Æi, bíttu í þig - sagði Anna Líf Önnu Nicole Smith er enginn dans á rósum þessa dagana. Eftir stutt en árangursríkt samband hennar við Howards Marshall hefur skipting arfs- ins milli hennar og sona karlsins ver- ið mikið hitamál. Synirnir eru sem kunnugt er ekki ýkja ánægðir með Önnu Nicole og telja hana hafa mis- notað húsbónda sinn sem var nokkrum áratugum eldri en hún. Þeir segja Önnu Nicole einungis hafa verið í sambandinu fyrir peningana. Nú hefur Anna Nicole dregist inn í baráttu bræðranna Howards yngri og Pierce Marshall en Howard hefur far- ið í mál við Pierce til þess að fá stærri hluta af arfinum. Anna tók afstöðu með Howard og hefur verið leidd í vitnastúku vegna málsins. Auðvitað lætur Anna Nicole ekki sitt eftir liggja enda annáluð baráttu- kona. Hún sakar Pierce um að hafa reynt að bana föður sínum með því að kæfa hann. Fullyrðingar hennar hafa ekki hitt í mark hjá dómaranum sem hefur sett mjög ofan i við' hana fyrir óábyrgt tal. Dómarinn hefur látið þurrka út sögu hennar um að gamli maðurinn hafi kafnað þegar hann var að borða kjúklingasúpu. Pierce hafi ekki viljað viðurkenna að gamli mað- urinn þyrfti aðstoð, vildi ekki lífgun- araðgerðir og því fór sem fór. Og allir urðu ríkir - bara misríkir. Lögmaður Pierce brást ókvæða við ásökunum hennar og spurði hana hvort hún hefði verið á leiklistarnám- skeiði. Því svaraði Anna Nicole: „Æi, bíttu í þig.“ Hver á að ráða? Elizabeth Hurley og Matthew Perry leika saman í nýrri mynd sem verið er að taka upp í Dallas. Myndin heitir Servicing Sara og leikur Liz að sjálf- sögðu Söru. Það að vera í titli mynd- arinnar gefur henni að sjálfsögðu nokkurt forskot á Matthew. Mikið hefur verið gert úr meintu sambandi Liz og Matthews. Þau eiga að vera mjög náin og æfa sig einstak- lega vel fyrir allar tökur og skiptast þá oft á að láta hótelherbergi sín und- ir æfingar. Hvort þessar sögusagnir eru réttar er erfitt að segja um en ljóst er að Jamie Tarses sem hefur verið kærasta Matthew með hléum siðustu árin tekur enga áhættu. Hún hefur að sögn þeirra sem til þekkja eytt stórfé í flugferðir milli Los Angeles og Dallas þar sem hún vill vera sem mest til að hafa auga með þeim skötuhjú- um. Sumir vilja meina að þrátt fyrir sögusagnir þá sé lítt kært með þeim Liz og Matthew. í raun séu þau frekar hunds- og kattarleg. Bæði vilja þau vera aðalstjörnurnar á svæðinu og vill Liz stöðugt fá stærri og stærri glæsibifreiðar til að rúnta með sig um svæðið. Matthew er ekki mikið fyrir að rúnta þannig að hann hefur ákveð- ið að fá athyglina út á að vilja breyta öllum línum sem hann á að fara með í myndinni. Samkeppnin um stærsta egóið er því í fullum gangi í DaOas. Og við fáum að fylgjast með því á næstu vikum hvernig fer. Líkast til mun Liz þó vinna. Er Sharon óþolandi? Sharon Stone hefur verið aðalper- sónan í fjörugri sápuóperu sem skrif- ar sig algjörlega sjálf. Sápuóperan er havaríið í kringum framhald myndar- innar Basic Instinct en eins og kunn- ugt er hafa aðstandendur myndarinn- ar gengið í gegnum nokkrar hremm- ingar vegna myndarinnar. Erfiðlega hefur gengið að fá leikstjóra til að stýra gerð myndarinnar og nú síðast gekk David Cronenberg út úr starf- inu. Sagt er að hann og Sharon Stone hafi verið algjörlega á öndverðum meiði varðandi alla framkvæmd myndarinnar og samstarfi þeirra hafi lokið með miklum sprengjugný. Shar- on segir ekkert hafa komið upp á og hún og David séu enn góðir vinir. Fyrir fáum vikum hætti Kurt Russell við að taka þátt í gerð mynd- arinnar og leika á móti Sharon. Hann var þá sá fjórði sem hafnaði mynd- inni. Áður höfðu Michael Douglas, sem lék í fyrri myndinni, Russell Crowe og Robert Downey Jr. látið myndina lönd og leið. Nú virðist þó vera að birta til í ver- búðum Basic Instinct 2 fólksins. Sagt er að John McTiernan sé tilbúinn til að taka myndina að sér og hann hafi fundið nýjan leikara á móti Sharon Stone. Sá er ekki mjög þekktur enn sem komið er en hann hefur fengið glimrandi gagnrýni fyrir leik sinn í myndinni Thirteen Days sem er nýjasta mynd Kevins Costner. Nafn leikarans er Bruce Greenwood. Talsmenn Greenwood segja að ef myndin komist á skrið muni hann leika í henni. Eftir allt sem gengið hef- ur á í kringum myndina þá er þetta eina ef ansi stórt. jLJjjiEirbLskllfiDLjrjfjfi 2001 . \ - t Knt A 52.860. „. .nnniv 21ullorðna og2born ■J40 ániannm.v. 2i« -11 érai2v.ku. *toaiin m.v. ? 'b# kt~ . InnHalið: Flug. gisting á Skala 0q allir llugvallarskattar. 4 I i _ ^WrlluoZZT^Ptndora JOnkS i V/SA W -: ''ýý:v ■'íÍfc flrlH * Marmaris “ í fyrsta sinn frá íslandi, beint leiguflug til Marmaris Krít " hótel Antonis, Skala og fleiri góðir gististaðir. Benidorm “ glænýtt hótel í hjarta Benidorm. Blönduós Borgames ísafjörður Sauðarkrókur Akuroyri Egilsstaðir SeHoss Vestmannaeyjar Keflavik Crindavík S: 452 4168 S. 437 1040 S: 456 5111 S: 453 6262 S: 585 4200 S: 471 2000 S: 482 1666 S: 481 1450 S: 585 4250 S: 426 8060 Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasniára 15 • 200 Kópavogur Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is Bókað og staðfest samtími?.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.