Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 43
51
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV Tilvera
Linda Dögg Hlööversdóttir:
Þó held ég aö sælkerar elns og ég ættu að vera fegnir því að hafa ekki alltaf fastan kvöldmat, það gæti orðið ansi
dýrt, aö ég tali nú ekki um tímann sem færi í föndrið. “
Nágrannabragur í
Stúdentagörðunum
- og matarboðin á öllum hæðum
Grillaðar
lambasneiðar
með skinku og
goudaosti
Þetta er lambakjötsréttur eins
og þeir vilja hafa það í Austur-
löndum fjær.
Fyrir fjóra.
800 g lambalærisvöðvi
100 g skinka í sneiðum
100 g goudaostur, i sneiðum
salt og pipar
4 stk. rauðlaukur
4 stk. stórar bökunarkartöflur
1 1/2 dl ólífuolía
3 msk. hunang
50 g smjör
Austurlensk kryddósa
4 msk. sojasósa
2 msk. sítrónusafi
2 stk. grænn chilipipar, saxaður
og kjarnhreinsaður
3 stk. hvítlauksrif (marin)
2 msk. sesamolía
Blandið öllu saman og berið fram
kalt með kjötinu.
Skerið lambavöðvana í 2 sm
þykkar sneiðar, kryddið með ný-
möluðum pipar, penslið með olíu.
Saltið kjötið eftir smekk. Grillið í
4-5 mínútur á hvorri hlið. Þegar
sneiðarnar eru hæfilega steiktar er
skinkusneið lögð ofan á hvert kjöt-
stykki og ostur ofan á skinkuna, líkt
og gert er við hamborgara.
Snyrtið laukinn lltillega, kryddið
með salti, hunangi og smjöri og
pakkið inn í álpappír (hverjum lauk
fyrir sig) og leggið á grillið í 4-5
mínútur.
Skerið kartöflurnar í 1/2 sm
þykkar sneiðar, kryddið með salti
og pipar, penslið með olíu og leggið
á grillið með lambasneiðunum í 4-5
mínútur.
Meðlæti
Austurlensk kryddsósa, grillaður
laukur og griUaðar kartöUusneiðar.
Píta með buffi
Ódýrt, létt og fljótlegt
Fyrir fjóra
800 g ungnautahakk
8 stk. pítubrauð
2 stk. tómatar, skornir í sneiðar
1/2 stk. jöklasalat, saxað
1/4 stk. agúrka, skorin í sneiðar
2 1/2 dl pítusósa
1/2 tsk. oregano, þurrkað
11/2 tsk. McCormick
BroUed Steak
Seasoning salt
Hakkið er kryddað með
kryddsaltinu og mótaö í 8 buff, þau
síðan griUuð í 8-10 mínútur og snú-
ið eftir þörfum. Pítubrauðið griUað í
stutta stund, síðan er buffinu og
öllu grænmetinu komið fyrir í
brauðinu. Pítusósu sprautað í að
lokum og oregano stráð yfir.
Meðlæti
Tómat- og agúrkusneiðar.
Það er Linda Dögg Hlöðversdóttir
sáUræðinemi sem er matgæðingur
vikunnar að þessu sinni. Hún segir
að sér fmnist mjög gaman að elda,
og þó hún kannski standi ekki yfir
pottunum aUa daga vikunnar þá
reyni hún að elda eins oft og tími
gefst. „Það er bara einhvern veginn
þannig að þegar maður býr einn þá
er það ekki inni í dagskránni að
elda. Þó held ég að sælkerar eins og
ég ættu að vera fegnir því að hafa
ekki aUtaf fastan kvöldmat, það
gæti orðið ansi dýrt, aö ég tali nú
ekki um tímann sem færi í fóndriö,"
segir Linda sem býr í Stúdentagörð-
unum og það er svolítiU „Nágranna-
bragur" á þeim bæjunum.
En er ekki hægt að slá tvær flug-
ur í einu höggi og elda bara hrein-
lega með nágrannunum?
„Jú, það vUl svo skemmtUega til
að ég er í matarklúbbi og við eldum
saman einu sinni í viku, þessi
klúbbur samanstendur af um tutt-
ugu manns sem eru allt nágrannar
minir. Reglan er sú að þrir eldi sam-
an fyrir aUa og þetta hefur heppnast
alveg frábærlega. Nema kannski
einu sinni, þá þurfti það auðvitað að
vera minn hópur.
Uppi varð fótur og fit
Málið er að við vorum að elda fyr-
ir þennan 20 manna friða hóp og
stóð til að elda kjúkling eins og
hann gerist bestur. Gestimir höfðu
komið sér fyrir til að setjast að
snæðingi og aUt var komið á borðið
nema kjúklingurinn. Þegar ég svo
opna ofninn fékk ég algjört sjokk.
Kjúklingarnir voru hráir sökum
þess hve ofninn var lélegur. Við þre-
menningamir vorum ekki tilbúin
að viðurkenna þessi mistök okkar
og sögðum að það yrði örlítU seink-
un. Það varð uppi fótur og fit í eld-
húsinu og við tókum kjúklingana út
úr ofninum og við tók að hlaupa á
miUi annarra nágranna með
kjúklingana í leit að örbylgjuofnum.
Kjúklingarnir voru semsagt komnir
í nokkrar íbúðir og við hlaupandi á
milli hæða og íbúða að athuga
hvernig matreiðslan gengi hjá ná-
grönnunum sem voru komnir á kaf
í eldamennskuna. Auðvitað komst
þetta upp því þetta tók lengri tíma
en við var að búast.
En hér ætla ég að gefa upp mína
uppáhaldsuppskrift sem er að ein-
staklega góðum kjúklingarétti," seg-
ir Linda að lokum.
Balsamickjúklingur
meö hvítlauks-kuskús
Fyrir 4
4 kjúklingabringur
1/3 bolli balsamic-edik
1/2 bolli kjúklingasoð
2 msk. sykur
1 hvítlauksrif, marið
11/2 boUi kúskús
2 1/4 boUi heitt kjúklingasoð
60 g smjör
4 hvítlauksrif, skorin i sneiðar
2 tsk. fersk timian
Aðferð - marinering:
Kjúklingabringumar lagðar á
grunnan disk. Balsamic-ediki,
kjúklingasoði ásamt sykri og hvít-
lauksrifinu heUt yfir. Marinerað í
10 mínútur á hvorri hlið.
Aðferð - marinering:
Heitu kjúklingasoðinu er heUt
yfir kúskúsið. HeUt í skál og plast-
filma sett yfir. Látið standa í 5 mín-
útur þar til aUt vatnið er farið.
Panna hituð á miðlungshita og
hvítlaukurinn og timianið steikt
upp úr smjöri í 3 mínútur. Kúskús-
inu er bætt á pönnuna og hrært í 2
mínútur.
Nykaup
Þar semferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Aðferð - kjúkUngur:
Forhitið pönnu á miðlungshita og
kjúklingabringurnar settar á og
steiktar í 3-4 mínútur á hvorri hlið.
Marineringin er sett á pönnuna og
eldað i 1 mínútur á hvorri hlið eða
þar til marineringin hefur stiknað.
Borið fram með fersku salati.
Kjötsúpa
sælkerans
Fyrir 6
2 dósir CampbeUs-kjötseyði
(consommé)
8 dl vatn
5 súputeningar (Maggi)
50 g hveiti
50 g smjörlíki
2 dl rjómi
1 gulrót
2 msk. gróft söxuð seUerírót
2 belgbaunir
1 lítiU vorlaukur
100 g meyrt nautakjöt
BrauðkoUur -r'
450 g hveiti
1 bréf þurrger
1 tsk. salt
2 1/2 dl volgt vatn
1 dl matarolía
Setjið kjötseyðið í pott ásamt vatn-
inu og súputeningunum, bakið upp við
smjörl&inu og hveitinu. Látið sjóða
við vægan hita í fimm mínútur, fleytið
froðuna ofan af og bætið síðan rjóman-
um út í. Skerið gulrætur, belgbaunir
og vorlauk í fina strimla og bætið í
ásamt seUerírót. Skerið hrátt kjötið í t
fina strimla (3-5 mm) og setjið í súp-
una um leið og hún er borin fram.
Brauökollur
Blandið öUum þurrefnum saman.
Leysið gerið upp i volgu vatni (37° C)
og heUið saman við þurrefnin ásamt
matarolíunni. Hnoðið vandlega. Deigið
er síðan hvUt undir dúk í 10-15 mínút-
ur áður en það er hnoðað á ný, mótað
í boUur (eða eina lengju) og sett á bök-
unarplötu. Látið hefast við stofuhita í
hálfan annan tíma. Sett í 200° C heitan
ofn og bakað i 10-15 mínútur.