Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
Fréttir
Hugmyndir Samfylkingar krafa um meiri opinbera forsjá:
Krampakennd endur-
reisn gamla kerfisins
- segir Pétur H. Blöndal og telur opinber afskipti hafa drepiö markaöinn
„Pétur H. Blöndal alþingismaður
segir að með hugmyndum Samfylk-
ingarinnar um lausn á vanda leigu-
markaðarins, sem lagðar voru fram
á þingi á fimmtudag, vilji menn með
krampakenndum hætti endurreisa
gamla kerfiö.
„Ég held að reynslan af því leigu-
fyrirkomulagi sem við vorum að
kveðja hafi ekki verið góð. Ég tel
það miklu skynsamlegra að búa til
almennan leigumarkaö með því að
skoða við hvers konar umhverfi
þeir búa sem leigja út frá sér.
Einnig hvemig á því stendur að það
vill enginn leigja út frá sér. Þá
vakna t.d. spurningar um hvort
leigan sé of lág, hvort skattlagning-
in sé of mikil og hvort verið geti að
fasteignagjöldin drepi þennan
markað. Hvað er það sem veldur því
meðal annars að flutningsmenn
þessa fnunvarps eru sjáifir ekki til-
búnir til að fjárfesta í eignum til að
leigja út?
Þetta eru atriði sem ég tel frekar
þörf á að skoða heldur en að gera
kröfu um meiri opinbera forsjá á
þessum markaði. Það er einmitt op-
DV-MYND GYLFl GUÐJÓNSSON
Varaði sig
ekki á
ísregninu
ísregn gerði á Suðvesturlandi í
gær en það er tiltölulega sjaldgæfur
viðburður. Þarna er um að ræða
rigningu sem verður að hörðum ís
þegar hún lendir til dæmis á bíl-
rúðu eða yfirborði vega enda frost
við jörð. Þá verður launhált og
hálka getur orðið gífurleg án þess
að hún sjáist berum augum. Þessi
bíll á Vesturlandsvegi við Suður-
landsveg fór flatt í ísrigningunni og
svo fór um marga aðra, einnig gang-
andi fólk.Lögregla varaði ákaft við
þessari hálkumyndun strax um
morguninn. -GG
Jólapakkinn kom til baka:
Tveggja mánaða
skinka lyktaði
vægast sagt illa
DV. HORNAFIRDI:
Jólapakki, sem Eiríkur Þorvalds-
son í Færeyjum sendi til foreldra
sinna á Hornafirði 17. desember,
kom til baka 21. febrúar. Pakkinn
var sendur í flugpósti og meðal ann-
ars vamings var í honum lítill
skinkubiti, reyktur og soðinn, í loft-
tæmdum umbúðum og vel merktur.
Þegar pakkinn kom ekki til skila
fyrir jól og ekki fyrir áramót var
reynt að leita hann uppi og fengust
margvísleg svör. Um síöir fékkst
það upp að pakkinn heföi verið
stöðvaður í tolli vegna ólögmæts
innflutnings. Vildi tollurinn fá að
vita hvað gera ætti viö skinkuna,
þ.e hvort taka ætti hana úr pakkan-
um og senda svo pakkann til mót-
takanda og bað Eiríkur um að svo
yrði gert.
Ekki leystist málið með þessum
aðgerðum því fjórum vikum seinna
barst Eiríki bréf á frönsku þar sem
beðið var um skriflegt leyfi fyrir því
að skinkan væri tekin úr pakkan-
um. Það leyfi var undirritað og sent
strax til baka.
Þann 21. febrúar kom svo jóla-
pakkinn til baka með öllu sem sent
var og var skinkan vægast sagt illa
lyktandi eftir rúmlega tveggja mán-
aða ferðalag. -JI
F e r m i n g
FermingartUboð
20% afsláttur af
U)kum,pífulökum,
dýnuhtífum, koddum
og NASA heilsukoddum
Ný amerísk dýnustærð Emo 120x200
aðeins í Marco
Happdrœtti
Tttboðsveri á
dýman m/sUUgmul
Tbgundir Bállct Captivation Malibu
'IVvin 97x190 cra 37.050,- 52.250,- 43.700,-
TVvin XL 97x203 cm 38.950,- 56.050,- 46.550,-
Full 135x190 cm 45.600,- 65.550,- 54.150,-
Full XL 135x203 cm 47.500,- 68.400,- 56.050,-
Euro 120x200 cm 54.150,-
Rúmteppi í úrvali
Nöfn þeirra sem
kaupa rúmdýnur til
fermingargjafa í
mars til maí fara í
lukkupottinn. Dregið verður
28. inaí n.k. Vinningur er:
Hvúdarstóll frá
Action Lane aö
verðniceti kr. 39.900
Oiiid
laitgani. kL 11 -
Virka tlas.n kl. 9
Mörkinni 4 • 108 Reykjavík
Smti: 533 3500 • Fax: 533 3510 • wivn.tuaiTO.is
styðjum
bakið
Pétur H.
Blöndal.
Jóhanna
Siguröardóttir.
inbera leigan sem hefur drepið
leigumarkaðinn. Menn geta ekki
keppt við niðurgreidda leigu sem
veitt er á alls konar forsendum.
Það má kannski segja að einka-
leigumarkaðurinn á íslandi hafi
ekki borið sitt barr eftir það sem á
undan er gengið á opinberum leigu-
markaði. Það er samt ljóst að íbúðir
vantar á þennan markað, svo
greinilegt er að eitthvað er að.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maöur Samfylkingarinnar, sagði al-
gjört neyðarástand ríkjandi á leigu-
markaði og nærri 2000 manns á
biðlistum. Hugmyndir Samfylking-
arinnar ganga út á að þegar í stað
verði ríkisvaldinu, í samráði við
sveitarfélög, verkalýðshreyfinguna,
félagasamtök og lífeyrissjóði, falið
að ráðast í sameiginlegt átak með
það að markmiði að leysa vandann
á húsaleigumarkaðnum. Jóhanna
og telur að átakið kosti 4-6 millj-
arða á fjórum árum og ríkið greiði
85%. Þeim verði hrundið af stað eigi
síðar en 1. júlí í sumar og heimild
veitt á 95% láni til sveitarfélaga og
félagasamtaka og annarra aðila sem
hafa það að markmiði að koma á fót
leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjör-
um fyrir láglaunafólk. Stofnað verði
til sérstaks lánaflokks við íbúða-
lánasjóð. Vaxtaendurgreiðslur
og/eða stofnstyrkir, svo og húsa-
leigubætur, tryggi að leigukjör fari
ekki yfir 6% af stofnverði ibúðar.
Stimpilgjöld falli niður hjá fram-
kvæmdaaðilum leiguíbúða og kann-
aðir verði möguleikar á afslætti af
gatnagerðargjöldum. Skattlagning á
húsaleigubótum verði felld niður og
rýmkuð skilyrði til að fá húsaleigu-
bætur. Gert er ráð fyrir að ríkissjóð-
ur greiði 85% þess framlags sem til
þarf til að ná ofangreindu markmiði
og sveitarfélögin 15%. -HKr.
Sandkorn
<wwm*m***f-- uu.oiun,
Höröur Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.is
Flott langtímaplott!
Sagan segir að
framboð Sivjar
Friðleifsdóttur í
embætti ritara
Framsóknarflokks-
ins sé lang-
tímaplott sem ætt-
að sé úr smiðju
eiginmanns Sivj-
ar, Þorsteins
Húnbogasonar. Plottið er bráð-
snjallt þar sem fullvíst þyki að
náin samvinna verði á milli henn-
ar og varaformannsframbjóðand-
ans, Guðna Ágústssonar, í kom-
andi slag á landsþingi. Með því að
styðja Guðna í varaformannsstól
skapi Siv sér mjög vænlega stöðu
þegar að því komi að Guðni flytjist
upp um sæti og í stól formanns
Framsóknarflokksins. Þá veröi Siv
nánast sjálfkjörinn varaformaður
og þá auövitað formaður i fram-
haldi af því...
Valgerður pirruð
Mikill pirringur
er innan Fram-
sóknarffokksins
eftir ráöningu
Árna Tómasson-
ar, sonar Tómas-
ar Árnasonar,
fyrrum ráðherra,
í bankastjóra- j
stöðu Búnaðar-
banka við hlið Sólons Sigurðsson-
ar. Valgerður Sverrisdóttir var
með á prjónunum að ráða Eirík S.
Jóhannsson, kaupfélagsstjóra
KEA, sem bankastjóra. Þá hann
einan í stað bankastjóranna
þriggja, Sólons, Stefáns Pálssonar
og Jóns Adólfs Guðjónssonar.
Valgerði varð ekki kápan úr því
klæðinu og víst að hún er snarpill
vegna stuðnings Halldórs Ás-
grímssonar við ráöningu Árna.
Spyrja menn um næsta leik Val-
gerðar og hvort hún hætti þá við
að styðja Jónínu Bjartmarz, vænt-
anlegan kandidat Halldórs í emb-
ætti varaformanns flokksins...
Ormur í skinnin
Óhapp i sútunar-
verksmiðju
Skinnaiðnaðar á
Akureyri á dögun-
um komst í fréttir
enda eyðilögðust
I þar 290 íslensk
hreindýraskinn. í
framhaldinu var
varpað fram ýms-
um hugmyndum til að bjarga mál-
um, m.a. að flytja inn hreindýra-
skinn frá Grænlandi til vinnslu.
Haraldur Sigurjónsson, efnafræð-
ingur verksmiðjunnar, sagði slíkt
ekki hægt vegna þess að græn-
lensku skinnin væru öll skemmd
vegna ásóknar flugu í hreindýrin á
Grænlandi. Nýjustu fréttir um
nýráðningu framkvæmdastjóra
verksmiðjunnar þykja verulega
skondnar í þessu sambandi. Þó ekki
væri hægt að vinna ormétin græn-
lensk skinn þá mun ormur samt fá
að iða í skinninu á Akureyri. Þar er
um aö ræða nýja framkvæmdastjór-
ann sem heitir Ormarr Örlygs-
í bóli bjarnar
Samtök ís
lenskra hugbúnað-
arframleiðenda
(SÍH) hafa sent
stjómvöldum
harðorð mótmæli
vegna nýrrar
reglugerðar um
innheimtu höf-
undarréttargjalda
og álagningar gjalds á geisladiska,
segulbönd og geislabrennara. Hafa
SÍH menn meira að segja vaðið rak-
leitt inn á teppi Bjöms Bjarnason-
ar í menntamálaráöuneytinu.
Munu SÍH-menn hafa skellt þar á
borð eigin hugmyndum um breyt-
ingar á reglugerðinni. Þykir mönn-
um skondið að sá ráðherra sem
fyrstur uppgötvaði mátt Internets-
ins og hinnar nýju upplýsingabylt-
ingar hafi þannig látið taka sig á
beinið og það í sjálfu bóli bjarnar...