Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 Helgarblað DV Konstantín Hauksson rifjar upp líf og dauða Laufeyjar Stefánsdóttur: Dauðinn á Grund - umönnun stórlega ábótavant, gamalmenni svæfð með töflum, óböðuð vikum saman og unglingar og mállausir útlendingar eiga að annast þau. Laufey A. Stefánsdóttir var heilsuhraust. Hún fceddist á Eskifirði í júlí- mánuði 1910 og ólst þar upp en hleypti heimdrag- anum og hélt til Reykja- vikur tvítug að aldri. Laufey lifði langa œvi, giftist tvisvar og átti þrjú börn og bjó í eigin hús- nœði við Vífilsgötu ein síns liðs í 27 ár eftir að hún varð ekkja. Hún var einþykk og þrjósk og líkt og margir af hennar kynslóð vildi hún ekki láta hafa neitt fyrir sér. Hún fékk þó heimilishjálp tvisvar í viku síðustu tvö árin en annaðist sjálf sín íjármál. Börn og barnabörn heimsóttu hana og hjálpuðu henni með það sem upp á vantaði. Laufey var andlega vel ern og til hinsta dags hélt hún full- um andlegum kröftum. Laufey lést á Landspitalanum við Hringbraut 3. desember sl. en þá hafði hún verið vistmaður á Elliheimilinu Grund um 15 mán- aða skeið. Aðstandendur hennar kröfðust rannsóknar á kringum- stæðum sem leiddu til dauða henn- ar og héldu því fram að hjúkrun og umönnun á Grund hefði verið verulega áfátt. Þau sendu formlegt erindi til heilbrigðisráðherra sem sendi erindi þeirra áfram til land- læknis. Embætti landlæknis rann- sakaði málavöxtu og komst að þeirri niðurstöðu að mun færri hjúkrunarfræðingar starfa á Grund en sambærilegum stofnun- um og kvöldið sem Laufey dó var hjúkrunardeildin sem hún lá á enn verr mönnuð en venjulega. Elliheimilið Grund nýtti sér ekki andmælarétt sinn við erindi íjöl- skyldu Laufeyjar. Vildi ekki vera innan um gamait fólk „Laufey var að mörgu leyti ein- stök kona,“ sagði Konstantín Hauksson, tengdasonur hennar, í samtali við DV en hann hefur ver- ið í forsvari fyrir fjölskylduna. „Það sem hélt henni gangandi upp á eigin spýtur var að hún gat verið hún sjáíf og staðið á eigin fótum. Síðan veiktist hún í lung- um og var lögð inn á Landspítal- ann árið 1999. Við vorum búin að berjast fyrir öldrunarmati á henni en hún vildi það alls ekki og taldi sig ekkert erindi eiga innan um gamalt fólk. Það varð samt að samkomulagi að hún færi á Grund þar sem hvergi var pláss á öðrum stofnun- um.“ Laufey var í fyrstu vistuð á deild sem heitir A-1 á Grund og er fyrir fólk sem er nokkurn veginn rólfært enn. Þar fékk hún sitt eig- ið herbergi og allt virtist leika í lyndi. En þá fóru ýmis vandamál aö skjóta upp kollinum. „Hún fékk aldrei neina þjón- ustu. Hún hafði t.d. varla orku til að ganga fram í matsal og það var henni svo erfitt að hún hafði ekki matarlyst. Við báðum um að henni yrði ekið í hjólastól fram í matsal en það var alltaf sama svarið. Það var enginn mannskapur til þess að gera neitt.“ Fljótlega veiktist Laufey aftur í lungum og var send á sjúkrahús og náði fljótt sæmilegum bata og var þá aftur send á Grund. Konstantín Hauksson og Guðný Garðarsdóttir syrgja móður Guðnýjar sem dó á Grund í desember. „Það er staöreynd að það vargengiö um deildina klukkan sjö á kvöldin og stungið svefntöflum upp í gamla fólkið til að /áía það sofa til morguns. Þaö átti að stinga svona upp í Laufeyju en hún neitaði því. Það kom fyrir að konan mín fór upp á Grund til þess að baða gömlu konuna þegar hún hafði ekki verið öööuð í hálfan mánuö. “ „Það sótti alltaf í sama farið þeg- ar hún kom aftur. Seinast ákváðu yfirvöld á Grund að setja hana upp á næstu hæð á sjúkradeild. Við héldum að það væri til bráða- birgða en okkur var samt skipað að rýma herbergið hennar daginn eftir. Það tók okkur síðan mánuð að fá það í gegn að hún fengi að hafa eitthvaö af sinum munum hjá sér,“ segir Konstantín. Flutt á „dauöadeild" Laufey var nú mun verr komin en áður þar sem hún var á deild með mörgum öðrum sjúklingum sem allir voru út úr heiminum vegna ellihrömunar og sjúkdóma og hún var því algerlega einangr- uð, enda kallaði hún deildina sína „dauðadeildina". „Hún komst ekki fram nema með aðstoð og þá sjaldan hún fékkst þá gleymdist hún kannski einhvers staðar. Henni fannst hún alltaf vera baggi á starfsfólkinu sem hafði svo mikið á sinni könnu." Laufey kvartaði mikið undan einangrun og fjölskyldan skiptist á um að heimsækja hana og sitja hjá henni en áhyggjur þeirra jukust stöðugt. „Svo kom ég einu sinni í heimsókn og þá sat Laufey ein úti Elliheimiliö Grund / greinargerð landlæknis um dauða Laufeyjar segir: „Ljóst er að mönnun, einkum hvað varðar hjúkrunarfræðinga, er mun minni á Grund en þeim hjúkrunardeildum sem teknar voru til viðmiðunar. Þá brá svo við að umrætt kvöld var enn þunnskipaðri vakt en vant er og enginn heilþrigðisstarfsmaður á vakt á deildinni. “ „Það er staðreynd að það var gengið um deildina klukkan sjö á kvöldin og stungið svefntöflum upp í gamla fólkið til að láta það sofa til morguns. Það átti að stinga svona upp í Laufeyju en hún neitaði því. Það kom fyrir að konan mín fór upp á Grund til þess að baða gömlu konuna þegar hún hafði ekki verið böðuð í hálfan mánuð. Þá hringdi hún grátandi og fannst hún vera svo óhrein. Það var alveg sama þótt við kvörtuðum undan þessu, svarið var alltaf það sama: Við höfum engan mannskap. “ í horni og grét eins og bam. Henni leiddist. Þetta rann mér til rifja og í kjölfariö fékk ég viðtal við Helgu Gísladóttur forstjóra, dóttur Gísla sem stofnaði Grund. Það verður að segjast eins og er að okkur lenti hressilega saman og þakið hefur sjálfsagt lyfst eitthvað í mestu rokunum. Það sem ég vildi var að hún yrði færð til svo hún gæti verið innan um fólk sem væri svipað ástatt fyr- ir svo hún gæti haft einhvern félagsskap. Það var ekki við það komandi. Síðan var kallaður saman fjöl- skyldufundur með læknunum þar sem átti að ræða málin og þar fékkst það í gegn að hún fengi að hafa einn skenk, lítið sjónvarp og nokkrar myndir við rúmið sitt, eitthvað sem minnti hana á sitt fyrra líf.“ Ekkert bað í tvær vikur Konstantín segir að hjúkrunar- deildin á Grund standi engan veg- inn undir nafni sem stofnun þar sem umönnun fer fram heldur sé

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.