Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Page 26
26 Helgarblað LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 DV Frumskógur í Grafarvogi - talandi kráka, hundar, gullemblur og mávafinkur DV-MYNDIR HARI Hilmar Jónsson krákueígandi „Þaö er meö mikilli eftirsjá sem viö auglýsum hana til sölu en einhverfur sonur okkar þolir hana ekki. “ Paul Simon söngvari Hann sagöist á dögunum sakna Gar- funkels en þó ekki. Paul Simon: Saknar en saknar samt ekki Paul Simon söngvari var einu sinni helmingurinn af afar frægu tvíeyki sem hét Simon og Garfunkel á móti Art Garfunkel. Þetta muna margir rosknir lesendur og einnig að upp úr samstarfi þeirra slitnaði fyrir mörgum árum. Simon hefur síðan átt mjög farsælan einkaferil meðan Gar- funkel hefur vafrað í útjaðri sviðs- ljóssins árum saman og eiginlega aldrei ná athygli fjöldans nema þegar þeir félagar hafa troðið upp saman. Nýlega var Paul Simon tekinn inn í heiðursflokk listamanna á þessu sviði - Hall of Fame. Við það tæki- færi fór hann fögrum orðum um samstarf þeirra félaga og sagðist alltaf hafa saknað Garfunkels og vildi gjarnan að þeir gætu starfað saman á ný og verið í sambandi. Síðan bætti hann við í lokin: „Vertu samt ekkert að flýta þér, Art.“ Umboðsmaður hans sagði að hann hefði verið að gera að gamni sínu en þegar blaðamenn spurðu hann hvort þeir myndu einhvem tímann starfa saman aftur þá hristi hann einfald- lega sitt fræga höfuð og vildi ekki tjá sig neitt um málið. „Það er með töluverðri eftirsjá að við auglýsum hana til sölu en stað- reyndin er sú að einhverfur sonur okkar óttast hljóðin í henni, sér- staklega þegar hún hlær eins og norn.“ Þannig lýsir Hilmar Jónsson, eig- andi annarrar af tveimur talandi krákum á landinu, tilfinningum sín- um vegna yfirvofandi aðskilnaðar við þennan málgefna fugl. Hilmar auglýsti krákuna talandi í smáaug- lýsingum DV og setti upp 160 þús- und krónur sem er áþekkt verð og á hvolpi af fágætu kyni. Þótt ég segi sjálfur frá er það nokkuð metnaðarfullt verkefni fyrir blaðamann að taka viðtal við talandi kráku. Um hvað spyr maður kráku? Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Er þetta rétt? Kannski getur krákan skrafhreifna svarað því. Kannski veitir hún mér ómet- anlega innsýn í samskipti manna og dýra. Mér líður eins og Dagfinni dýralækni og það er samt með hálf- um huga sem ég hringi dyrabjöll- unni í raðhúsi í Grafarvogi og finn lykt sem minnir á gæludýraverslun leggja á móti mér. Lífríki í raðhúsi Sennilega er þetta ekki dæmigert íslenskt úthverfalíf en á þessu heim- ili tekur á móti manni heilt lífríki þar sem maðurinn homo sapiens er efstur en hlekkir lífkeðjunnar eru býsna margir. Þarna er einn bold- angshundur af tegundinni scháfer, tveir silkiterrierar, annar með bleika slaufu á hausnum, og heilt herbergi, fullt af gullemblum og mávafinkum á mismunandi aldri. Síðast en ekki síst er krákan talandi. Þegar mig ber að garði er krákan Máni í úfnu skapi. Vandaðri kló- klippingu er nýlokið og Máni er í uppnámi og uppreisn. Hann flýgur um allt húsið af veikum burðum, því hann er ekki sérlega vel fleygur, og leitar fljótlega skjóls í hundabúr- inu þar sem hann situr og segir ekki bofs. í sérstökum klefa inn af forstof- unni er lítill fuglaklefl þar sem gullemblurnar og mávafinkumar búa. Híbýli þeirra voru áður gestaklósett sem var breytt. Hilmar segir mér að fyrir fáum árum hafi 50 gullemblur verið flutt- ar til landsins en 39 þeirra hafi drepist í sóttkví. Hans gullemblur, sem skipta tugum, eru afkomendur þeirra ellefu sem eftir lifðu. „Þær eru erfiðar í ræktun en ég hef stjórn á hitastigi, rakastigi og ljósi og get þannig gabbað þær til að verpa. Þær hugsa ekki vel um ung- ana og þess vegna er ég með máva- finkurnar því þær eru i hlutverki barnfóstra." Hinar fögru og fágætu gullemblur Hilmar hefur í nokkur ár fengist viö aö rækta gullemblur sem eru afar litskrúöugir fuglar en erfiöir í ræktun. Krákan þegir Krákan Máni, sem heitir reyndar Greater Hill Mynah á frummálinu, segir ekkert við þessu. Hann er fúll og afundinn eins og smábarn, enda aðeins ársgamall, en krákur geta orðið nokkurra áratuga gamlar. Margir muna eftir krákunni Mar- gréti sem sat i Eden í Hveragerði og æpti að ferðamönnum. Hún lést fyr- ir aldur fram en Bragi 1 Eden hefur sýnt því áhuga að kaupa Mána. Hilmar segir að Máni geti hermt eftir hlátri allrar fjölskyldunnar, kallað eftir mat, sagt halló og nafn- ið sitt hátt og skýrt og hermt eftir símum og algengum heimilistækj- um. Allt þetta er gott og blessað en Máni er eins og hver önnur popp- stjarna. Hann talar ekki við blaða- menn. Það er alveg sama þótt ég skriði á gólfinu og gefi frá mér ýmis hljóð sem ég tel sennilegt að hann þekki. No comment. Hilmar segist hafa fengist við gæludýrahald frá barnsaldri og fisk- ar, fuglar og hundar af ótal tegund- um hafa verið í hans eigu gegnum tíðina. „Þetta gefur mér óskaplega mikið og hefur t.d. hjálpað mér mikið til þess að kljást við þunglyndi sem hefur þjáð mig árum saman. Fugl- arnir og hundarnir halda mér heil- brigðum." -PÁÁ Flengdu mig, elskan Ragnheiður Eiríksdóttir skrifar um kynlíf Vinur minn hafði samband við mig í vikunni og var mikið niðri fyrir. Hann heimtaði bráðafund á hljóðlátu kaffihúsi í miðborginni og var allur mjög dularfullur til augnanna þegar ég mætti á svæðið. Neglur hans voru nagaðar upp í kviku og fyrstu 10 mín- úturnar drakk hann latteiið og talaði um veður og pólitík. Það var nokkuð ljóst að maðurinn átti erfitt með að koma sér að málinu. Loksins gerðist það svo. Hann sagði mér að hann væri nýlega farinn að hitta stelpu og væri orðinn yfir meðallagi hrifinn eftir mánaðarsamband. „Hún er æðis- lega klár og skemmtileg stelpa, að vísu 10 árum yngri, en ég finn ekkert fyrir því.“ Vitaskuld samgladdist ég manninum og sturtaði yfir hann hæfilegum skammti hamingjuóska. Svo hélt hann áfram og tjáöi mér að hún væri farin að biðja um hluti í kynlífinu sem hann kynni bara ekk- ert á; „hún vill að ég bindi sig og flengi og eitthvað þannig og ég hef aldrei gert neitt svoleiðis," sagði hann með örvæntingarblik í augum. Það kom í ljós að þessar óskir stúlkunnar voru farnar að valda hon- um miklum kviða því hann vildi ekki ljóstra upp fáfræði sinni á sviðinu, verandi þetta eldri en hún. Engu að síður fannst honum mjög spennandi að gera tilraunir með bindingar og flengingar en vegna þess að samband- ið var enn þá á sýndarmennskustig- inu (aðeins mánaðargamalt og sem allra fæstir gallar hlutaðeigandi af- hjúpaðir enn þá) þótti honum mikil- vægt að mæta til leiks með einhver tromp, eða i það minnsta mannsspil á hendi. Af minni sérstöku góð- eins líklegt að sóknarpresturinn eða bamaskólakennarinn í litla bæjar- félaginu séu eftir vinnu í smávalda- leikjum eða með þvottaklemmur á pungnum í sæluþrungnum sársauka- leikjum. Maður veit nefnilega aldrei! Gullnu reglurnar í öllum leikjum sem snúast á ein- hvern hátt um vald og losta er mikil- vægt að hafa þrjú grunnatriði í huga. Reyndar hef ég alltaf haldið því fram að þessi þrjú grunnatriði skuli hafa að leiðarljósi í öllum kynferðislegum samskiptum en hjá þeim sem stunda BDSM hefur verið lögð sérstök áhersla á þessi atriði og er það auð- vitað því fólki til mikils sóma. í fyrsta lagi er það ÖRYGGI, að fyllsta öryggis sé gætt til að koma í veg fyr- ir andlegt eða líkamlegt tjón þátttak- enda. í bindileikjum er til að mynda mjög mikilvægt að binda ekki svo fast að blóðrás til líkamshluta rofni, að minnsta kosti ekki lengur en nokkrar mínútur, og aldrei skal binda neitt um háls. Það er líka mik- ilvægt að sá sem er í böndum sé ekki skilinn eftir einn og að alltaf sé ljóst hvernig á að losa viðkomandi. Annað atriðið er MEÐVITUND, að þátttak- endur séu með fulla meðvitund og geri sér grein fyrir því sem er að ger- ast eða á að gerast. Það er til dæmis ekki góð hugmynd að láta flengja sig dauðadrukkinn eða binda sig í hassvimu. Áfengi og önnur vímuefni skerða dómgreindina og það kann ekki góðri lukku að stýra þegar verið er að leika sér á þennan hátt. Þriðja atriðið er SAMÞYKKI, að hver sá sem tekur þátt í leiknum sé algjörlega samþykkur því sem á að fara fram og að mörk hvers og eins séu virt til hins ýtrasta. Þess vegna er nauðsyn- legt að leikfélagarnir ræði saman áður en leikurinn hefst og komi sér saman um það sem má og má ekki. Traustið er algjör grundvöllur þess að hægt sé að gefa sig nautnum og losta á vald í svona aðstæðum. Fyrir vin minn er til dæmis mikilvægt að vita hvort stúlkan vill fá skell á rass- inn af og til vegna þess að í algleymi lostans er sársaukinn sætur og ef svo er vill hún þá fá kraftmikla sveiflu i höggið eða bara dálítið klapp. Það gæti líka verið að hún væri á höttun- um eftir hlutverkaleik og væri frekar til í að leika óþekka skólastelpu sem á skilið smárefsingu. Flenging er nefnilega alls ekki það sama og fleng- ing og þess vegna borgar sig að ræða málin aðeins fyrir fram, þó svo að það kunni að vera eitthvaö vand- ræðalegt í fyrstu. Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa ítarefni um BDSM-kynlíf bendi ég á vef BDSM á íslandi, www.bdsm.is (já, það er til félag sem í eru meira að segja 50 manns og það heldur árshá- tíð sína einmitt í kvöld) og vefsíðuna www.sexuality.org/bdsm.html. Svo segi ég bara góða skemmtun í kvöld! sem mætti flokka sem BDSM-leiki án þess nokkum tíma að gera sér grein fyrir því eða vilja viðurkenna það. Það er nefnilega útbreiddur misskiln- ingur að þeir sem stunda BDSM-kyn- líf séu með áhuga á öllu sem til þess getur talist og fái enga örvun nema handjárn eða leðurgrímur eða latexgallar eða svipur eða kertavax eða þvottaklemmur séu með í leikn- um. Þetta er ekkert afbrotafólk sem fer út í bakarí á mótorhjólum í leður- göllum með kynfærakeðjur og rennilásagrimur. Ónei, það er alveg mennsku lofaði ég vini mínum að helga laugardagspistilinn bindingum og flengingum sem eru tvö ágætis krydd úr kynlífskryddskápnum. BDSM Bindingar og flengingar eru hluti af því sem kallast BDSM-kynlíf. Skammstöfunin stendur fyrir Bindi- og drottnunarleiki, sadó- og ma- sókistaleiki og munalosta. Það er heill hellingur af ósköp venjulegu fólki í Reykjavík, á Isaflrði og Hvols- velli sem stundar ýmsa kynlífsíeiki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.