Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Síða 30
30
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
DV
Helgarblað
Sharon Lapatka leitaði ástar á Netinu:
Leiddist í
hagkvæmnis-
hjónabandinu
Sharon Lapatka var 40 ára og
engin fegurðardís. Hún var yfir
100 kíló, með aflitað hár og kinn-
amar á henni löfðu niður á háls.
Hún lifði í tilbreytingalausu
hjónabandi með véltæknifræð-
ingnum Victor Lapatka í svefn-
bænum Hamstead í Marylandríki
i Bandaríkjunum.
En Sharon Lapatka lifði jafn-
framt leynilegu lífi í ástarleit. Þeg-
ar eiginmaður hennar var í vinn-
unni sat hún klukkustundum
saman við tölvuna sína og stofn-
aði til kynna á Netinu við ein-
mana menn um alla Ameríku sem
þyrsti í samband. Hún vissi að
þeir myndu aldrei kynnast henni
nánar þannig að hún gat þóst vera
einhver aðlaðandi persóna sem
mennirnir þráðu.
Á nokkrum árum hafði hún bú-
ið til fjölda persóna sem hún þótt-
ist vera. Stundum var hún
Melissa hin tælandi og stundum
Clarissa hin fagra sem leiddist í
hjónabandi sínu með milljónera
frá Flórída og vildi heldur vera
með mönnum undir 25 ára aldri.
Þessi ímyndaða tilvera, sem að-
eins nokkrum nánum vinum
Sharon var kunnugt um, var dap-
urleg en skaðlaus. Sharon greindi
aldrei frá því hver hún var í raun
og veru. Hún sagði heldur ekki frá
því hvar hún byggi. Og aðdáendur
hennar voru fullánægðir með
nærveru hennar á vefsíðum og í
tölvupósti.
Tilkynnti um hvarf eigin-
konunnar
En í október 1996 tilkynnti hún
manninum sínum að hún ætlaði
til Georgiu þar sem hún hygðist
dvelja í nokkra daga hjá vinum
sínum. Nokkrum dögum seinna
hringdi Victor til Georgiu. Honum
var tjáð að Sharon hefði ekki kom-
ið þangað og jafnframt að það
hefði ekki verið ráðgert.
Þann 20. október tilkynnti Vict-
or um hvarf eiginkonu sinnar.
Lögreglan komst fljótlega að leyni-
legu lífi Sharon á Netinu.
Tölvan hennar var rannsökuð
og á harða diskinum fundu sér-
fræðingar þúsundir netfanga. Þau
gáfu til kynna að Sharon hefði
verið kona sem þyrsti í ást og aö
hún hefði leitað hennar á Netinu.
Sharon hafði augsýnilega varið
heilu dögunum í samtöl við karla
á Netinu. Samtölin snerust ein-
göngu kynlíf og rómantík.
Grunaði fljótt hver söku-
dólgurinn væri
Lögreglan komst fljótt að því að
eftir ágúst 1996 hafði áhugi Shar-
on Lapatka eingöngu beinst að
manni sem gekk undir nafninu
Slowhand. Þaö var auðvelt að
rekja slóð hans. Slowhand var 45
ára gamall forritari, Robert Glass,
sem bjó í gömlum húsvagni í
skógi nálægt Lenoir í Norður-Kar-
ólínu. Allir í bænum vissu að
hann var af gamalli ætt sem hafði
mátt muna fífil sinn fegurri.
Eftir að hafa farið í gegnum yf-
ir þúsund tölvubréf frá Sharon
Sharon
Stofnaöi til kynna á Netinu við ein-
mana menn þegar eiginmaöurinn
var í vinnunni.
komst lögreglan að þeirri niður-
stöðu að hún hefði sannfært sjálfa
sig um að hún væri ástfangin af
Slowhand og hygðist ná persónu-
legu sambandi við hann.
„Rannsóknin gekk eins og í
sögu. Þetta blasti allt við. Menn
grunaði fljótt hver sökudólgurinn
væri, hvar vettvangur glæpsins
væri og svo vissu menn með
hvaða lest fórnarlambið hafði far-
ið í sína hinstu ferð,“ greindi lög-
reglumaðurinn Barry Leese frá
siðar.
Þann 24. október hélt Leese til
lögreglunnar i Lenoir í Norður-
Karólínu. Lögreglan vissi hver Ro-
bert Glass var og að hann byggi í
húsvagni. Lögreglan greindi frá
því að húsvagninn væri í skógi
sem hefði áður verið i eigu fjöl-
skyldu Glass.
Lögreglan hélt þangað í þeirri
von að finna Sharon Lapatka. Hún
fannst ekki. Húsvagninn var hins-
vegar á sínum stað, læstur. Nýtek-
in gröf var í um 50 metra fjarlægð
frá húsvagninum. Um tveimur
klukkustundum höfðu menn graf-
ið upp lík Sharon. Hún hafði ver-
ið kyrkt með reipi sem lá við gröf-
ina.
Robert Glass var handtekinn í
vinnunni. Þegar lögreglan kom
var hann einmitt að fara yfir
tölvukerfi lögreglustöðvarinnar.
Hann viðurkenndi að hafa orðið
Sharon að bana en fullyrti að um
óhapp hefði orðið þegar þau
rifust.
Heltekin af kynlífsórum
„Ég bað hana aldrei um að
koma hingað," hélt hann fram.
„En hún heimtaði það. Hún var
heltekin af kynlífsórum sínum.
Hún var hér i þrjá daga. Þá gafst
ég upp. Glass sagði enn fremur að
það hafði liðið nokkur tími áður
en hann gerði sér grein fyrir að
konan væri látin. Þá hefði hann
verið gripinn ótta og þess vegna
hefði hann grafið hana í rusla-
haugnum sínum.
„Þeir fáu vinir sem
Sharon átti greindu
lögreglunni frá því að
hún hefði verið ákaf-
lega einmana og bæld
vegna allra aukakíló-
anna sem hún burð-
aðist með. Þess
vegna leitaði hún á
náðir ókunnugra að-
dáenda á Netinu."
Þeir fáu vinir sem Sharon átti
greindu lögreglunni frá þvi að
hún hefði verið ákaflega einmana
óg bæld vegna allra aukakílóanna
sem hún burðaðist með. Þess
vegna leitaði hún á náðir ókunn-
ugra aðdáenda á Netinu.
Eingöngu hagkvæmnis-
hjónaband
Victor Lapatka viðurkenndi að
hjónaband hans og Sharon, sem
staðið hafði í 15 ár, hefði í raun
verið orðið algert hagkvæmnis-
Auðvelt verkefni
Rannsókn lögreglumannsins Barrys Leeses gekk eins og í sögu.
Robert Glass
Forritarinn var venjulega ákaflega hæglátur og vingjarntegur maöur. Enginn
skildi hvernig hann haföi getaö látiö konu hafa áhrif á sig.
Fundarstaðurinn
Lík Sharon Lapatka haföi veriö grafiö í ruslahaug í um 50 km fjarlægð frá
húsvagni moröingjans.
hjónaband í lokin. „Ég aflaði
tekna og hún eldaði matinn,“
sagði hann. Honum var kunnugt
um raunveruleikaflótta hennar
inn á Netið. Honum þótti það þó
skaðlaus skemmtun. Hann hafði
verið ánægður með að hún skyldi
hafa fundið eitthvað til að fást við.
Robert Glass vildi ekki viður-
kenna að hafa myrt Sharon. Hann
játaði þó fyrir lögreglunni að
hann hefði beðið hana um að eyða
öllu rafrænu bréfasambandi
þeirra. En þar sem hann var
tölvusérfræðingur hlaut hann að
hafa vitað að lögreglan gat fundið
öll gögnin og að þau myndu fyrr
eða síðar leiða til hans.
Flýði æpandi þegar kona
nalgaöist
í janúar 1998 var Glass fundinn
sekur um morð af yfirlögðu ráði.
Hans bíður nú flókið lagaferli
vegna fullyrðinga saksóknara um
formgalla við réttarhöldin. Á með-
an velta vinir hans og fjölskylda í
Lenoir því fyrir sér hvernig hæg-
látur og vingjarnlegur maður eins
og Robert Glass hafi getað lent í
slíku máli.
„Ég skil ekki það sem gerðist.
Sharon Lapatka hlýtur að hafa
haft seiðandi áhrif á hann. Robert
hafði alltaf flúið æpandi þegar
kona nálgaðist hann,“ segir bróðir
hans, Jonathan Glass.
Dómarinn, Charles McManus,
sem felldi dóminn yfir Robert
Glass, sagði: „Netið hefur sætt
ákæru ásamt þér. Við skulum
vona að það sem kom fyrir þig
vari við þeim mörgu hættum sem
liggja í leyni í rafrænu einskis-
mannslandi milli draums og veru-
leika.“
Refsing eiginmanns
Marion Winkler vildi skilja við manninn sinn