Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Page 31
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
ÐV
Helgarblað
31
Julia Roberts
Henni er svo illa viö Eric bróöur sinn aö enginn má nefna nafn hans i
hennar áheyrn.
Julia Roberts:
Bannað að
nefna Eric
Frægar og valdamiklar konur
hafa löngum verið þekktar fyrir
ýmsa dynti og sérvisku. Það er ekki
að ástæðulausu að talað er um
drottningarviðtöl þegar þekktir
stjórnmálamenn vaða elginn án
mótmæla. Það má ekki mótmæla
drottningunni.
Skemmtilegt dæmi um slíka hegð-
un má sjá í fari leikkonunnar
frægu, Juliu Roberts. Julia náði
þeim langþráða áfanga á dögunum
að fá óskarsverðlaun fyrir besta
kvenhlutverk sem er um það bil
mesti heiður sem leikkonum getur
hlotnást.
Fröken Julia bauð öilum vinum
og velunnurum til hófs af þessu til-
efni og til hinnar eiginlegu afhend-
ingar en þar voru þó ekki allir vel-
komnir. Sá sem er einna efstur á
listanum yfir óvelkomnar persónur
er leikarinn Eric Roberts sem er
bróðir Juliu. Enginn veit hvers
vegna þeim semur svona illa en
óvild Juliu hefur náð þeim hita að
hún nefnir bróður sinn aldrei á
nafn. Enginn af þeim sem umgengst
hana fær leyfi til þess að nefna nafn
hans og verði starfsmanni það á að
nefna Eric í eyru hennar hátignar
er sá hinn sami umsvifalaust rek-
inn úr starfi. Þetta er þekkt fyrir-
bæri í sögum af kóngum og drottn-
ingum í gegnum aldirnar. Hin róm-
aða hjartadrottning í sögunni af
Lísu í Undralandi lét hálshöggva
alla sem voru henni á móti skapi.
flytur í nýtt húsnæði að
Suðurhrauni 3, Garðabæ.
Vegna aukinna verkefna
vantar okkur bókbíndara,
aðstoðarfólk í bókband og prentun.
Einnig vantar starfsmann til að sjá
um mötuneyti.
Boðið er uppá góða vinnuaðstöðu í nýju
glæsiiegu húsnæði.
Upplýsingar veitir: Kjartan Kjartansson i síma 550 5986
Hátíðlegur
í bragði
'D'í'mon )m
h
tL. """ íSSáÉ&j 1 ' fli
wt S
-v- tfl
iPegar íslenskt ostunnn er kominn d ostahakkann,
þegar hann kórónar matargerðina — brœddur eða djúpsteiktur
— eða er einfaldlega settur beint í munninn — þá er hátíð!
íslenskir ostar - hreinasta afbragð
HVlTA HÚSIÐ / SlA