Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 53
6] LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 DV Tilvera Undankeppni MASTERCARD-mótsins 2001: Sveit Þriggja Frakka sló nokk- urra ára gamalt met Undankeppni Islandsmótsins í bridge fór fram um sl. helgi og tóku 40 sveitir víðs vegar af landinu þátt. Tíu sveitir komust áfram í úrslita- keppnina sem spiluð verður í páska- vikunni. Það er erfitt að spá og sérstaklega um framtíðina, eins og karlinn sagði, en mér tókst þokkalega upp í síðasta þætti. Allar sveitirnar utan ein, sem ég spáði sæti í úrslitum, komust áfram. Úr A-riðli komust sveitir Þriggja Frakka og LA-Café áfram og náði sú fyrrnefnda þeim frábæra árangri að skora 174 stig af 175 mögulegum, sem er eðli málsins samkvæmt landsmet. Úr B-riðli komust áfram sveitir Skeljungs og Jacqui McGreal, úr C-riðli Ferða- skrifstofa Vesturlands og Trygg- ingamiðstöðin, úr D-riðli SUBARU- sveitin og sveit Boga Sigurbjörns- sonar og að lokum úr E-riðli sveitir SPRON og Herðis. Þar með spila þrjár utanbæjarsveitir í úrslitunum sem ekki hefur gerst lengi. Fróðlegt verður að sjá hvernig þeim vegnar. Við skulum skoða eitt skemmti- legt spil frá undankeppninni, sem kom fyrir milli sveita Þriggja Frakka og ESJU kjötv. V/0 * D987643 * ÁK9 * Á76 A ♦ 2 * 3 * K1094 * KDG8754 ♦ ÁK5 » 86542 ♦ G853 ♦ 9 V DG107 * D2 * Á10632 N V A S * GIO Með Björgvin Þorsteinsson og Guðmund Eiríksson i n-s en bræð- urna Hrólf og Odd Hjaltason í a-v gengu sagnir á þessa leið: Vestur Norður Austur Suöur 1 * 3 lauf 3 ♦ pass 4* dobl 4* 5* 5« 6* pass pass 6 » pass pass pass Nokkuð hörð slemma en ekkert grandar henni nema tígultía eða nía. Norður valdi að spila út hjarta- þristi, lítið úr blindum, tían frá suðri og Oddur drap á ásinn. Hann spilaði nú spaða á ás, trompaði lauf og síðan spaða á kóng. Þá kom hjarta, gosinn og kóngur. Síðan kom hjartanía og þegar suður drap á drottningu var spilið unnið. Glðggir lesendur munu benda á að gefi suður hjartað fríist ekki hjartaslagirnir í blindum. Það sama er upp á teningnum ef suður sting- ur ekki í milli þegar hjarta er spilað öðru sinni. Þá er aðeins eftir að spila tígulás og meiri tígli. Suður fær slaginn á drottningu og verður að spila í tvöfalda eyðu. Þá hverfur tígultapslagurinn. Skemmtilegt spil! Á hinu borðinu sátu n-s Steinar Jónsson og Jónas P. Erlingsson en a-v Anna ívarsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir. Nú var meiri stígandi í sögnunum : Vestur Norður Austur Suður 1 * 4 lauf 4 * 5 lauf 6 spaðar pass pass pass Steinar spilaði út laufkóng sem vestur trompaði. Ef hjartað er 3-2 þá er ekkert vandamál og vestur tók tvisvar tromp og þrisvar hjarta. Jónas drap þriðja hjartað og varð nú að hreyfa tígulinn. Hann spilaði litlu frá drottningu og Steinar fékk slaginn á kónginn. Hann spilaði meiri tígli, lítið úr blindum og þeg- ar drottningin kom slapp vestur einn niður. Smáauglýsingar bílar, bátar, jjeppar, húsbflar, sendibílar, pallbíiar, hópferöabílar, fornbílar, kerrur, fjórhjól, mótorhjól, hjólhýsi, vélsleöar, varahlutir, viögeröir, flug, lyftarar, tjaldvagnar, vörubíiar...bílar og farartæki [SKoðaðu smáuglýsingarnar á VlSir.lS 550 5000 Hafðu eWd áhyggjuf...hér er ekki sjðr i 400 kitómerta fjarlægð, asninn þirm. ' Þegar þú sérð óvinina koma áttu að kveikja einu sinnl ei þeir koma landleiðina en tvisvar ef þeir koma sjðieíðina. 8íddu aðeins við! En þú lætur mig bara fá einn lampa. * r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.