Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
Fréttir
DV
Fimm milljarðar í auknar tekjur til ríkis og sveitarfélaga:
Brunabótamatið ónot
hæfur mælikvarði
- verður að breyta reglum íbúðalánasjóðs, segir Vilhjálmur Egilsson
„Brunabótamatið er ónot-
hæfur grundvöllur fyrir
veðhæfi eigna í fasteigna-
viðskiptum. Þaö var almenn
samstaða um það í nefnd-
inni að breyta þurfí þessum
grundvelli. Fjármálaráö-
herra hefur verið að skoða
hvort hækka beri viðmið í
80% af brunabótamati en ég jóhanna
tel það ekki ganga upp. Siguröardóttir.
Miklu nær væri að miða
lánshæfi við íbúðarverð en þó
I heildaráhrif endurskoöunar kaupa. Viö þessu þarf aö
I á fasteigna- og brunabóta- bregðast með því að breyta
I mati. Til fundarins var boð- reglum íbúðalánasjóðs og
1 ið fulltrúum ráðuneyta, síðan lögum þannig að klárt
1 íbúðalánasjóðs, tryggingafé- sé að brunabótamatið sé j m
I laga og fasteignamarkaðar- ekki lengur inni þegar veð-
I ins. hæfni er metin,“ sagði Vil-
Vilhjálmur Egilsson, for- hjálmur. Hbr' jM
maður nefndarinnar, tekur W, ÆW
þannig aö lánið verði ekki hærra
en brunabótamatið," sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir alþingismað-
ur aö loknum fundi efnahags- og
viöskiptanefndar i gær.
Efni fundarins var m.a. að meta
brunabótamatið sé óhentug-
ur mælikvarði á veðhæfi
vegna íbúðarkaupa. „Að mínu viti
endurspeglar fasteignamatið nú
betur fasteignaverð húsa og ég tel
að brunabótamatið uppfylli betur
það hlutverk sem því er ætlað. Það
er hins vegar ónothæfur mæli-
kvarði á veðhæfi vegna íbúðar-
Auknar skatttekjur voru
einnig til umræðu á fundin-
um. Ljóst þykir að ríkið mun hafa
þrjá milljarða í auknar tekjum af
eignasköttum, stimpilgjöldum og
erfðafjárskatti. Auk þess munu
vaxtatekjur fólks dragast saman.
Hækkun fasteignagjalda hjá sveit-
arfélögum þýðir um tvo milljarða í
Vilhjálmur
Egilsson.
kassann ef beitt verður
óbreyttum álagningarstofni.
„Það var samstaða um
það I nefndinni að það væri
óeðlilegt að ríki og sveitar-
félög tækju til sin þessar
auknu tekjur því það var
ekki tilgangur lagasetning-
arinnar árið 1999,“ sagði Jó-
hanna. Vilhjálmur sagði
brýnt að skattmálin yrðu
skoðuð og tryggt að skatt-
tekjur rikis og sveitarfélaga breyt-
ist ekki sjálfkrafa vegna matsins.
„Skattahækkanir taka ekki gildi á
þessu ári og því er tími til að
bregðast við. Það munum við
gera,“ sagði Vilhjálmur Egilsson.
-aþ
Farþegi á skemmtiferðaskipi:
Týndist í
Almanna-
gjá
- gífurleg leit í gærkvöld
Þyrla Landhelgisgæslunnar og
fjölmennt lið björgunarsveitar-
manna var sent til Þingvalla á ní-
unda tímanum í gærkvöld til leitar
að öldruðum manni sem þar týnd-
ist. Um var að ræða 74 ára gamlan
farþega af skemmtiferðaskipi sem
liggur við festar í Reykjavíkurhöfn.
Maðurinn var í rútuferð til Þing-
valla og sást síðast á gangi meðal
ferðafélaga sinna í Almannagjá.
Allt í einu var hann horfmn, félög-
um sínum til mikillar furðu, sem
hófu strax leit án árangurs. Að því
fullreyndu var kallað eftir aðstoð
sem fyrr greinir.
Þegar síðast fréttist sveimaði
þyrla Gæslunnar yfir Almannagjá
og nágrenni og björgunarsveitar-
menn dreifðu sér skipulega um
svæðiö. Maðurinn var ófundinn
þegar DV fór í prentun á tíunda
tímanum í gærkvöld. -EIR
Síöasti dagurinn
Opinberri heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, til Færeyja lýkur í kvöld.
ídag mun forsetinn og fylgdarliö hans skoöa stærstu lundabyggö í Færeyjum, söguslóö-
ir I Mykinesi auk þess aö heimsækja Listasafniö i Þðrshöfn. í kvöld veröur stiginn fær-
eyskur dans undir sönglögum á kvöldvöku I Sandavogi. Aö svo búnu veröur haldið heim
á leið eftir vel heppnaöa heimsókn. Hér sjást forsetinn, Dorrit og Anfinn Kallsberg, lög-
maður Færeyja, og eiginkona hans I góöa veörinu I Færeyjum I gær.
Ingvar og Einar ótrauðir áfram:
Ætla upp með Eldborg
Einar Bárðarson og Ingvar Þórð-
arson hafa ekki gefið áætlanir sínar
um risaútihátið við Eldborg 1
Hnappadal um verslunarmanna-
helgina upp á bátinn. Á dögunum
virtist fokið i flest skjól og frá því
greint að Eldborgarhátíðin hefði
verið blásin af - eða svo gott sem.
Einar og Ingvar eru sem kunnugt er
landsþekktir athafnamenn í afþrey-
ingariðnaðinum.
„Nú hafa aðstæður breyst og við
höldum áfram og stefnum að því að
halda hátiðina," segir Einar Bárðar-
son sem vinnur nú aö því að gera
samninga við Stuðmenn, Skíta-
Blásin af
■ og þó ekki.
móral og fleiri
hljómsveitir um
að skemmta á há-
tíðinni. Einnig
standa yfir samn-
ingaviðræður við
erlendar hljóm-
sveitir en yfir
þeim viðræðum
hvílir leynd.
„Sem stendur
erum við í samn-
ingaviðræðum við
björgunarsveitir í
nágrenni Eldborg-
ar og sýslumann-
inn í Stykkishólmi sem ganga út á
að tryggja öryggi gesta á hátíðinni,"
segir Einar sem ásamt Ingvari Þórð-
arsyni er staðráðinn í að láta gaml-
an draum um útihátíð allra lands-
manna við Eldborg rætast.
- Hvers vegna Eldborg?
„Eldborg er fallegt og skógi vaxið
svæði þar sem maður fær kraftinn
úr Snæfellsjökli beint í æð. Þá er
ekki minna um vert að Hvalfjarðar-
göngin gera það að verkum að
svæðið er nú ekki nema í klukku-
stundar fjarlægð frá höfuðborg-
inni,“ segir Einar Bárðarson.
-EIR
Helgi Pétursson.
Helgi Pé til
Orkuveitunnar
„Ég get staðfest
að Helgi sótti um
og er einn þeirra
sem koma sterk-
lega til greina,“
sagði Alfreð Þor-
steinsson, stjórn-
arformaður Orku-
veitu Reykjavík-
ur, um brotthvarf
Helga Pétursson-
ar úr borgarstjórn. Helgi hefur sótt
um nýtt starf í nýsköpun - hag- og
gæðadeild Orkuveitunnar ásamt 30
öðrum. Að sögn Alfreðs voru fjórir
umsækjendur taldir hæfastir og verð-
ur ráðið í stöðuna eftir helgi. Sam-
kvæmt öðrum heimildum er frágeng-
ið að Helgi hreppi hnossið og hverfi
þar með úr stjórnmálum. -EIR
Verkfall þroskaþjálfa:
Veröld fólksins
er brotin
- segir trúnaðarmaður
Verkfall þroskaþjálfa, sem starfa hjá
ríkinu, sem hófst á miðnætti fimmtu-
dags, hefúr nú þegar haft töluverð
óþægindi í fór með sér fyrir fullorðið
fatlað fólk sem ekki fær dagþjónustu.
Sáttafundur í deilunni hefur ekki ver-
ið boðaður fyrr en á mánudag.
„Áhrifm eru mikilf á líf þroskahefts
og fatlaðs fólks,“ segir Hrefna Haralds-
dóttir, foreldraráðgafi hjá Þroskahjálp
og trúnaðarmaður fatlaðra í Reykja-
vik. „Verkfallið hefur áhrif á heimili
þessa fólks og mjög stór hópur er inni
á sambýlunum án þess að hafa neitt
við að vera. Fullorðið þroskaheft fólk
þarf ekki síður á rútínunni að halda en
bömin. Óvissan er þeim mjög erfið,“
segir Hrefna. „Á sambýlunum skerðist
þjónustan mikið. Ég sé satt best að
segja ekki hvemig þetta fyrirkomulag
á að geta gengið. Fólk er óömggt og því
líður einfaldlega illa. Þessir einstak-
lingar hafa lært inn á ákveðið lífsform.
Þau fara í vinnuna, koma heim, sinna
tómstundum og svo framvegis. Þau
hafa mikla þörf fyrir að vita hvemig
dagamir eiga að ganga fyrir sig, í því
er fólgið mikið öryggi. Verkfallið riðl-
ar þessu öllu.“ -þor
Blaöíö í dag
Spilltur
njósnaforingi
með James
Bond-takta
Erlent fréttaljós
Örtröð á
vegunum
Innlent fréttaljós
Hringleikahús
Errós
DV fylgír
listamónnum
Voru
umskiptingar
ofvirkir
Elín Elísabet
Jóhannsdóttir
Fann ekki
golfvöllinn
Frakkland
Formúla 1
Tímaspursmál
hvenær sýður
upp úr
DV meðal nýbúa
Þúsundir í Þórsmörk
Búist er við hátt í 2000 manns í
Þórsmörk um helgina. Að sögn
skálavarðar í Langadal hefur verk-
fræðideild háskólans pantað öll þau
500 tjaldstæði sem í boði eru.
Bankaspá
Landsbankinn spáir 0,66% hækk-
un á vísitölu neysluverðs milli júní
og júlí. Gangi spáin eftir verður
vísitala neysluverðs, miðað við
verðlag í júníbyrjun, 214,0 og mun
vísitalan hafa hækkað um 6,9% síð-
ustu 12 mánuði.
Ritt og hlýrinn
Ritt Bjerregaard, sjávarútvegs- og
matvælaráðherra Dana, kom í
heimsókn til Neskaupstaðar í
þokunni í gær. Ráðherrann skoðaði
hlýraeldið, sem nú er hafið í Nes-
kaupstað, og fannst greinilega tals-
vert til koma sem og samfylgdar-
mönnum hennar.
Áttí að fá kvóta
Sjávarútvegsráðuneytinu var
ekki heimilt að synja Jóni Krist-
jánssyni fiskifræðingi um leyfi til
fiskirannsókna fyrir utan kvóta að
mati umboðsmanns Alþingis. Jón
ætlaði sér í stórfelldar rannsóknir
en gat ekki vegna kvótaleysis.
Strætóstjóri
Ásgeir Eiríksson, fjármálastjóri
hjá Reykjalundi í Mosfellsbæ, hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Strætó bs. sem er nýtt sameinað fyr-
irtæki um almenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu. Ásgeir er son-
ur Eiríks Ásgeirssonar sem var for-
stjóri SVR til margra ára.
Prófessor lagður nlður
Háskóli íslands
hefur ákveðið að
leggja niður prófess-
orsstöðu í slysalækn-
ingum og getur
Gunnar Þór Jónsson,
fyrrum yfirlæknir,
því ekki tekið við
henni aftur eftir upp-
sögn sem dæmd hefur verið ólögleg
bæði í héraðsdómi og Hæstarétti.
Gunnar Þór og Amþrúður Karlsdóttir,
eiginkona hans, héldu blaðamanna-
fund vegna málsins í gær.
Kaupþing til Finnlands
Kaupþing hefur undirritað viljayf-
irlýsingu um sameiningu við finnskt
verðbréfafyrirtæki: Sofi Financial
Services Group. Þetta er liður í þeirri
stefnu Kaupþings að sækja inn á
Norðurlandamarkað þar sem félagið
hyggst hasla sér völl.
Nýtt útvarp
Ný útvarpsstöð, Ljósvakinn á FM
93,9, hóf starfsemi sína í gær á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Markmið stöðvarinn-
ar er að taka þátt í viðburðum á
svæðinu, flytja fréttir og bjóða upp á
fréttatengda þætti. Kjörorð stöðvar-
innar er: „StOltu, hlustaðu, njóttu".
Röntgen hækkar
í gær voru kynntar hækkanir á
gjaldskrá fyrir röntgenþjónustu og
þjónustu sérfræðilækna um næstu
mánaðamót. Hlutur ríkis í kostnað-
inum verður dreginn saman um 300
milljónir á ári en hlutur sjúklinga
aukinn að sama skapi.
-EIR/Elma/GG