Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Side 16
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
- Elín Elísabet Jóhannsdóttir ræðir um ofvirkni í nýjum skilningi. Ný handbók fyrir foreldra kemur út
í þjóðsögum Jóns Árnasonar
eru sagðar sögur af umskipting-
um. Umskiptingur var álfur og yf-
irleitt vandræðagemsi. Þegar álfar
af einhverjum ástæðum vildu fá
til sín mannaböm var farið með
umskipting og hann var settur í
vögguna í staðinn fyrir ljúft og
blítt mannsbam. Umskiptingur-
inn var heimafólki til armæðu þar
sem hann gólaði hástöfum, mas-
aði í sífellu, hljóp með veggjum,
var með endalaus uppátæki og
hegðaði sér á óskiljanlegan hátt.
Lítið hefur borið á umskiptingum
á íslandi í seinni tíð, en hins veg-
ar hefur meira verið rætt um
sjúkdóm sem hefur fengið heitið
ofvirkni. Á síðastliðnum árum
hafa rannsóknir á þessum sjúk-
dómi aukist til muna og mikið af
lausnum til meðhöndlunar verið
fundnar fram. Þó er víst enn langt
í land með að þetta þjóöfélags-
vandamál verði tekið þeim fóstu
tökum sem æskilegt væri og er
þar um að kenna forgangsröðun
stjórnvalda. Allt of mikið af for-
eldrum bíður eftir meðferð fyrir
börnin sín og á meðan biðin
stendur yfir verða vandamálin
erfiðari og erfiðari viðfangs.
Oft var þörf en nú er
nauðsyn
Elín Elísabet Jóhannsdóttir er
ritstjóri blaðanna Smells og Æsk-
unnar. Hún er einnig kennari og
námsgagnahöfundur. Undanfarið
hefur hún unnið hörðum höndum
að gerð handbókar fyrir foreldra
bama með ofvirkni eða aðra sjúk-
dóma, eins og t.d. þunglyndi og
kvíða. Bókin, sem hefur fengið
heitið Skrefi á undan, er samstarf-
verkefni Bindindis samtakanna
IOGT, Foreldrafélags misþroska
barna og Geðræktar. Efni hennar
og innihald er fengið frá mörgum
fremstu sérfræðingum landsins í
meðferð barna með ýmiss konar
raskanir og er útgáfa hennar
styrkt af Áfengis og vímuvarnar-
ráði, þar sem þessi böm eru mik-
ill áhættuhópur þegar kemur að
misnotkun áfengis og annara
vímuefna. í bókinni geta foreldrar
nálgast á einfaldan og aögengileg-
an hátt, margs konar aðferðir um
hvernig bregðast megi við hegðun
þessara bama og þar með byrgja
brunninn áður en bamið dettur
ofan í hann.
Ofvirk í móðurkviði
Hvað er ofvirkni og hver er
munurinn á ofvirkni og óþekkt?
„Það er gott að þú spyrjir að því
- það er mjög algengt að fólk geri
ekki raunhæfan greinarmun á
þessu og margir foreldrar veigra
sér við tilhugsuninni um að eiga
ofvirkt bam. En mér skilst á þeim
sérfræðingum sem ég hef rætt við
að ofvirkni sé eitthvað sem yfir-
leitt hefst mjög snemma. Sumar
mæður minnast þess jafnvel að
barnið þeirra, sem greindist síðar
með ofvirkni, hafi verið eins og
þeytispjald þegar í móðurkviði.
Þegar það svo kemur í heiminn þá
grætur það oft mikið án sýnilegar
ástæðu og án þess að neitt sé að
því líkamlega - hefur óvenjulega
mikla þörf fyrir umönnun og
snertingu. Þá er náttúrlega mikil-
vægt að foreldrarnir sinni bam-
inu sínu en hugsi ekki: Ég ætla
ekkert að gera neitt dekurbam úr
þér - því það er náttúrlega ekki
hægt að dekra við hvítvoðung!
Elín Elísabet Jóhannsdóttir hefur sett saman handbók fyrir foreldra ofvlrkra barna sem þeir fá gefins.
„Á hverju hausti heldur Eirö, sem er félag sál- og sérfræöinga sem vinna m.a. meö börnum meö ofvirkni, námskeiö fyrir foreidra þessara barna. Við ætlum aö
byrja á því aö afhenda þeim og foreldrafélagi misþroska barna bökina svo aö þau geti dreift henni áfram til þeirra sem á henni þurfa aö halda, og þaö eru
fyrst og fremst foreldrarnir því forvarnarstarfiö byrjar hjá þeim. “
Það verður að taka barnið upp,
hugga það og róa en einnig þá má
strax gera meira í málinu, því fyrr
sem foreldrar leita aðstoðar, því
betra.“
Framkvæma áöur en þau
hugsa
„Ofvirk börn fara strax að
verða áberandi í leikskóla. At-
hyglin beinist mikið að þeim og
foreldrar hinna bamanna fá að
heyra allar „frægðarsögurnar":
setti brunaboðann í gang, braut
rúðu, reif fót, lamdi og barði, datt
úr rólunni, skemmdi þetta eða
hitt. Þessum krílum er um megn
að virka á leikvellinum og þess
vegna er mikilvægt að fuilorðnir
umsjónarmenn barnsins, vinni
með því en ekki gegn því. Þaö á
ekki að skilyrða svona barn til að
vera eitt á leikvelli því þaö getur
það bara ekki. Ofvirk börn þjást
lika i flestum tilvikum af athyglis-
bresti og einnig eru þau mjög
hvatvís. Sú hvatvísi kemur
þannig fram að þau framkvæma
yfirleitt áður en þau hugsa. Óþekk
böm vita hvað þau eru að gera og
geta lært af mistökum sínum á
miklu einfaldari hátt en þau of-
virku. Barn sem er ofvirkt fer
kannski út í frímínútur, lemur
einhvern og ber en virðist ekkert
læra af reynslunni þegar það er
skammað. Það gerir þetta aftur og
aftur af því kveikiþráðurinn
innra með þvi er svo stuttur. Ein-
hver rekur sig í það og barnið
brjálast. Óþekkur krakki lemur
kannski einhvem, er skammaður
og tekinn í gegn og gerir þetta þar
af leiðandi ekki aftur. Hann lærir
af reynslunni af því að hann hefur
þessa innri sjálfstjórn og hæfileik-
ann til að tala sjáifan sig til. Of-
virka barnið getur þetta ekki sök-
um hvatvísi sinnar. Það er eins og
krían sem rétt sest á staurinn í
eitt andartak og svo er hún flogin
aftur."
Ekki foreldrunum aft
kenna
„Ástæðan fyrir því að ofvirk
böm leiðast oft auðveldlega út í
neyslu og misnotkun á vímuefn-
um og áfengi er margþætt og jafn
einfold og hún er flókin. Þaö fer
oft saman með ofvirkninni að
bamið er kvíðið og þunglynt. Of-
virk börn hafa oft þurft að sitja
undir því alla ævi að vera gagn-
rýnd og skömmuð. Fólk sem það
þekkir og ókunnugir eru að setja
sig í sérfræðingsstöðu og segja
baminu að gera svona og gera
hinsegin. Umhverfíð sendir bam-
inu stöðug skilaboð um að það sé
erfitt og óþekkt og svo koll af
kolli. Það er með öðrum orðum
alltaf verið að brjóta barnið niður.
Þau fá kannski tíu sinnum
skammir á móti einu sinni hrós, á
meðan það sem þau þurfa einna
helst er mikið hrós. Það þarf að
efla þeirra sterku hliðar og hrósa
þeim fyrir hluti sem virðast smá-
vægilegir, eins og t.d. að hengja
upp úlpuna sína. Það þarf mark-
vissara uppeldi en þau börn sem
ekki þjást af þessum sjúkdómi.
Foreldrar ofvirkra barna þurfa
líka að átta sig á því að „óþekkt
barnsins" er ekki þeim að kenna
vegna þess að barnið fæddist
svona. Þetta er mjög mikilvægt at-
riði. En þrátt fyrir að geta ekki
breytt því að barnið sé ofvirkt
geta foreldramir hins vegar gert
ýmislegt tii að hjálpa baminu svo
að því liði betur. Það er ekki hægt
að gera kraftaverk á einum degi,
en með langtímamarkmiðum er
hægt að ná stórkostlegum fram-
förum sé rétt haldið á spilunum."
Lífift komift í hnút
Elín heldur áfram: „í Skrefi á
undan er m.a. bent á ákveðna
lausnarmeðferð fyrir foreldra.
Hvemig þau að kvöldi geta sest
niður, hvílt sig og reynt að sjá sig
í jákvæðum samskiptum við börn-
in sín. Þetta er aðferö sem hvetur
foreldrana til þess að sjá líf sitt
með baminu fyrir sér ef allt væri
öðruvísi og vandamálin tekin
burtu. Þeim er bent á að taka sér
penna og blað í hönd og skrifa nið-
ur þessi atriði. Listinn er oft eitt-
hvað á þessa leið: Ef vandamálið
væri horfið, hvemig litu þá eðli-
leg samskipti min við hann/hana
út? Ég gæti farið út í búð með hon-
um/henni, við gætum farið í
heimsóknir án vandræða o.s.frv.
Listinn er oft langur og á honum
eru ótal upptalningar um hluti
sem foreldrar barna sem ekki eru
ofvirk búa við sem sjálfsagðan
hlut. En þegar foreldrar framkalla
þessar myndir í höfðinu þá virkar
það alveg ótrúlega vel, af því
þama er hugsuninni beint í nýjan
farveg. Hjá þessum bömum og for-
eldrum þeirra er lífið yfirleitt
komið í einn allsherjar spennu-
hnút. Foreldrarnir eru algerlega
háðir skapferli bamsins og eru
reiðir og ergilegir þar sem líf
þeirra snýst í einu og öllu um
barnið. Þeir eru með sektarkennd,
en gera sér ekki fyllilega grein
fyrir því að vandamálið er ekki
þeim að kenna.“
Öskraft á börnin
„Böm sem eru óþekk eru það
oft vegna þess að það er ákveðið
ósamræmi í uppeldinu. Svo getur
fólk átt sitt skap og allir hafa leyfi
til að hafa sína persónugerð, þaö
eru ekki allir veikir og það er ekki
alltaf eitthvað að. Sumar fjölskyld-
ur eru t.d. bara hvatvísari en aðr-
ar og hafa kannski alltaf verið
það, kynslóð fram af kynslóð. En
ef barn leggst mjög illa í félaga-
hópinn þá er undantekningarlaust
eitthvað að. Ef enginn vill bjóða
því í afmæli og það er haft út und-
an og svona. Það er alveg greini-
legt merki um að það verði að
kanna málið nánar og taka ein-
hvem veginn á því. Óþekk börn
verða ekki ítrekað fyrir svona
höfnun þvi þau eru ekki endilega
Helgarblað
DV
Voru umskiptingarn-
ir ofvirk börn?