Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
I>V
Fréttir
13
Byrjað að byggja Kon-
ungsverslunarhúsið
DV, SKAGAFIRDI:____________________
A vegum Vesturfarasetursins á
Hofsósi er byrjað á nýrri byggingu
sem er svokaÚaö Konungsverslun-
arhús. Þama verður um að ræða
sams konar hús og var á Hofsósi
þegar konungsverslun var þar á sín-
um tíma. Það hús brann árið 1907
en það sem nú er í byggingu verður
eins og var stuðst við gamlar ljós-
myndir þegar það var teiknað.
Að sögn Valgeirs Þorvaldssonar,
framkvæmdastjóra Vesturfaraset-
ursins, er húsið allt úr timbri og í
svipuðum byggingarstíl og önnur
gömul hús frá þessum tíma,
þ.e.tvær hæðir og sú efri með bröttu
og miklu risi. Áætlað er að húsinu
verði lokað fyrir haustið og unnið í
því í vetur og það verði tekið í notk-
un næsta vor. Það er ætlað til sýn-
inga og segist Valgeir vonast til að
þar verði í framtíðinni verslunar-
minjasafn. Hofsós eigi sér langa og
merka sögu sem verslunarstaður
þar sem Konungsverslunin stóð
lengi vel traustum fótum. Þess má
geta að Konungsverslunarhúsið er
reist í samvinnu við aðila í Norður-
Dakota í Bandaríkjunum og verður
fyrsta sýning í húsinu að verulegu
leyti þaðan. Er Árni Páll Jóhanns-
son sýningahönnuður að undirbúa
hana. -ÖÞ
-~——
DV-MYND ÖRN ÞÖRARINSSON
Byggja konungsverslunarhús
Frá vinstri: smiöirnir Hjálmar Jóhannesson og Ágúst Stefánsson ásamt Jóni Magnússyni verkfræöingi viö húsgrunn-
inn, fjær sést í Frændgarö sem opnaöur var fyrir einu ári.
Reykjavík styrkir
listina á Djúpavogi
- Langabúð komin í sama horf og safn Ríkarðs
DV-MYND JÚLÍA IMSUND
Dætur listamannsins
Tvíburasysturnar Ólöf og Ásdís Ríkarösdætur, dætur listamannsins, ásamt
forseta íslands og fleiri í Ríkarössafni á dögunum.
Gisting í Súgandafiröi
Frá opnun Veg-gistingar Suöureyri.
Gistiheimiliö
Veg-gisting
opnað
DV, SUDUREYRI:
A dögunum var gistiheimilið Veg-
gisting á Suðureyri opnað formlega.
Að sögn Elíasar Guðmundssonar, eins
aðstandanda gistiheimilisins, er stefn-
an sú að bjóða upp á gistingu og þjón-
ustu á fyrsta flokks gistiheimili. Eru
húsakynnin hin veglegustu og hús-
búnaður bæði smekklegur og vandað-
ur. Gistiheimilið Veg-gisting býður
upp á níu gistirými í fjórum herbergj-
um til að byrja með. Hefur allmikið
þegar verið bókað og líst aðstandend-
um vél á komandi sumar í ferða-
mannaþjónustunni.
-VH
Sundlaug Dalvíkur:
Nýir ráspallar
Settir hafa verfið upp nýir ráspall-
ar við Sundlaug Dalvíkur. Sundkapp-
inn góðkunni, Örn Arnarson, mætti á
svæðið af því tilefni og vígði pallana
formlega ásamt félögum í sundfélag-
inu Rán á Dalvík. Pallarnir eru keypt-
ir fyrir fé sem Jóhann G. Sigurðsson
safnaði og færði sveitarfélaginu að
gjöf og ætlaði það til nota við bygg-
ingu á nýrri sundlaug.
Jóhann G. Sigurösson fæddist 13.
september árið 1900 en lést 1990. Hann
var mikill sundáhugamaður og tíður
gestur í gömlu sundlauginni á Dalvík.
Hann sagði frá því í viðtali að árið
sem hann varð 85 ára hefði hann far-
ið 95 sinnum í sund.
Sem fyrir segir safnaði Jóhann fé
og færði sveitarfélaginu að gjöf, til
byggingar á nýrri sundlaug. Og nú
hefur þeim fjármunum sem Jóhann
safnaði loks verið varið til kaupa á
ráspöllum, baksundsflöggum og
þjófstartslínu. -hiá
DV, DJUPAVOGI:____________________
Langabúð á Djúpavogi hlaut nýlega
600 þúsund króna styrk frá Menning-
arsjóði Reykjavíkurborgar og skal
nota styrkinn til að gera heimasíðu á
Netið um safn Ríkarðs Jónssonar.
Ríkarðssafnið í Löngubúð hefur verið
stækkað og fleiri munum og styttum
bætt í það. Vinnustofa Ríkarðs hefur
nú verið sett í það horf sem hún var á
Grundarstígnum og í salnum voru
settar upp gifsmyndir, allar af konum.
Ólöf og Ásdís, dætur Ríkarðs,
dvöldu nokkra daga á Djúpavogi í
sumar og fylgdust með uppsetningu
og frágangi á þeirri viðbót sem safn-
inu hefur borist, og það verk sá Már
Guðlaugsson um, en Ríkaröur var
langafi hans.
„I risi Löngubúðar er nú mikið safn
gamalla muna úr héraðinu en ekki er
búið að ganga endanlega frá því og eft-
ir er að merkja hlutina en safnið er
opið og vekur mikla athygli hjá út-
lendingunum," segir Sigríður Björns-
dóttir, umsjónarmaöur Löngubúðar.
Kaffihús er í Löngubúð, þar sem
hægt er að fá nýlagað ilmandi kaffi og
te ásamt heimabökuðu brauði, og
einnig er hægt að fá þar súpu og
PV. DALVlK:
Sláttur er hafinn í Svarfaðardal
og varð Friðrik Þórarinsson, bóndi
á Grund, fyrstur til að slá á þessu
sumri og fleiri munu vera í starthol-
unum. Friðrik Þórarinsson sagði að
hann hefði ekki ætlað sér að byrja
strax en neyðst til þess þar sem þau
stykki sem hann væri búinn að slá
væru löðrandi í túnmýtli sem gadd-
aði i sig grasið. Sér hefði verið ráð-
lagt að slá stykkin og bera á þau aft-
ur því þá dræpist maurinn og hugs-
anlegt væri að fá sæmilega upp-
skeru í seinni slætti.
brauð. Sigríður segir að mun fleiri
hafi komið á safniö núna í júni en í
fyrra og mikið sé um að fólk komi aft-
ur og aftur til að skoða Ríkarðssafn,
enda sé safnið oröið stórt og margt
þar að sjá.
Bjarni Guðleifsson hjá RALA
sagðist vita um nokkur dæmi á
þessu sumri þar sem túnmýtillinn
hefði gert usla; í Svarfaðardal,
Húnavatnssýslum og reyndar víðar
á Norðurlandi. Hann segir að þetta
vandamál sé einkum bundið við
norðanvert ísland en sé einnig
þekkt í Norður-Noregi og á Græn-
landi.
Bjarni segir að það sé mjög mis-
munandi eftir árum hversu virkur
túnmýtillinn sé og fari að nokkru
eftir veðurfari sl. sumars, vetrar og
vors. Hann kemur einkum fram í
Við hliðina á Ríkarðssafni er Ey-
steinsstofa, það er uppsett skrifstofa
Eysteins Jónssonar ráðherra með
þeim búnaði sem í skrifstofu hans
var, en hann var, eins og Ríkarður,
frá Djúpavogi. -JI
nýlegum túnum þar sem vallarfox-
gras er ríkjandi og getur rýrt upp-
skeruna verulega. Túnmýtillinn er
einkum virkur fyrst á vorin og fram
undir lok júní, þá hverfur hann en
kemur siðan aftur í ágústlok. Ef
þessarar óværu verður vart
snemma sumars er best að úða tún-
in en sé komið sæmilegt gras er
bændum ráðlagt að slá. Túnmýtill-
inn forðast sól en á nóttunni og í
skýjuðu veðri er hægt að greina
hann með berum augum og það eru
kjöraðstæður til að úða.
-hiá
Slegið í kapp við túnmýtlana
- mauraplága rýrir uppskeruna verulega
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno GLX, 4 d.,
bsk.Skr. 7/98, ek. 28 þús.
Verð kr. 990 þús.
uki Grand Vitara V-6,
bsk.Skr. 6/99, ek. 44 þús.
Verð kr. 2090 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d.,
bsk.Skr. 4/00, ek. 20 þús.
Verð kr. 1650 þús.
MMC Carisma GDI, 4 d.,
ssk.Skr. 7/99, ek. 15 þús.
Verð kr. 1390 þús.
Subaru Impreza GL 2,0,
4WDSkr. 7/96, ek. 71 þús.
Verð kr. 1020 þús.
Isuzu Crew Cab DLX,
4WDSkr. 5/91, ek. 164 þús.
Verð kr. 550 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.Skr.
5/97, ek. 115 þús. Verð kr. 990
þús.
Mazda 323F, 5 d., ssk.Skr. 12/99,
ek. 21 þús. Verð kr. 1370 þús.
Ford Focus 1,6, 5 d., bsk.Skr. 3/00,
ek. 11 þús. Verð kr. 1390 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100
Suzuki Baleno GL, 3 d.,
ssk.Skr. 6/99, ek. 15 þús.
Verð kr. 995 þús.
Suzuki Jimny JLX, 3 d., ssk.
Skr. 7/99, ek. 20 þús.
Verð kr. 1220 þús.
Hyundai Accent GLSi,
ssk.Skr. 3/99, ek. 20 þús.
Verð kr. 840 þús.