Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Page 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
ÐV
Colin Powell
Deiluaöilar í Palestínu skilja ekki
hvað Powell meinti.
Ruglingur eftir
brottför Powells
Árangur Mið-Austurlandaferðar
Colins Powells, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, var vilyrði Israela
og Palestínumanna fyrir sjö daga
„ró“. Powell átti aðskilda fundi með
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, og Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra ísraels. Á fundinum var
fallist á að deiluaðilar héldu rólega
viku, viku þagnar, áður en 6 mán-
aða langt kælingartímabil gæti haf-
ist.
Strax eftir brottför Powells lentu-
deiluaðilar í vandræðum með að
skilgreina samkomulagið. Palest-
inumenn vildu að 7 daga róin hæfist
þegar í gær en ísraelar sögðu að
skærur fyrr um daginn útilokuðu
það. Auk þess eru menn ekki á eitt
sáttir um hvað ró Powells merki.
Opnir fyrir breyt-
ingum á ABM
Rússar eru opnir fyrir breyting-
um á ABM-samningnum frá 1972,
sem bannar bandarískt eldflauga-
varnarkerfi. Herfshöfðinginn Leon-
id Ivashov, sem stjórnar alþjóðlegri
samvinnu rússneska hersins, segir
Bandaríkjamenn vera á góðri leið
með að eyðileggja samsamninginn.
Hann segir að ef ABM verði afnum-
inn með öllu sé voðinn vís.
Framundan væri þá óstöðugleiki og
óvissa í hermálum í heiminum.
Þetta er i fyrsta skiptið sem svo
hátt settur embættismaður í Rúss-
landi bendir á möguleikann á því að
breyta samkomulaginu. Bandaríkja-
menn vilja losna undan því til að
koma sér upp eldflaugavarnarkerfi.
Dlck Cheney
Bandaríski varaforsetinn er meö of
hraöan hjartslátt.
Varaforsetinn
fær gangráð
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, tilkynnti í gær að hann
myndi fá sér gangráð.
Hann sagðist munu ganga undir
rannsóknir í dag sem myndu að öllum
líkindum leiða til ígræðslu gangráðs-
ins. „Ég lít á þetta sem tryggingu. Það
kann að vera að gangráðurinn nýtist
mér aldrei,“ segir Cheney, sem hefur
fengið 4 hjartaáföll frá árinu 1978, það
sfðasta í nóvember. Cheney er með of
hraðan hjartslátt sem setur hann í
áhættuhóp hjartasjúkdóma. Hann seg-
ir ástand sitt ekki hamla sér frá
vinnu.
Loftbelgir yfir Spáni
Alþjóölegir flugíþróttaleikar eru haldnir á Suöur-Sþáni um þessar mundir. Mótiö hefur dregiö tit sín um 5000
flugiþróttamenn alls staöar aö úr heiminum.
Styrkjum rignir
yfir Júgóslavíu
Forsætisráðherra Júgóslavíu,
Zoran Zizic, sagði af sér í kjölfar
framsals Slobodans Milosevic, fyrr-
verandi forseta, í hendur Stríðs-
glæpadómstólnum í Haag í gær.
Flokkur Zizic er harður andstæð-
ingur framsalsins og vildi að fyrst
yrði réttað yfir Milosevic í heima-
landinu. Mikil óvissa hefur skapast
um samstarf 18 flokka aö stjórn
Júgóslavíu. Ef ekki tekst að samein-
ast um einn eftirmann Zizic úr
þeirra röðum mun stjórnin falla.
Framsalið hefur hins vegar haft
jákvæðar hliðar fyrir efnahagslíf
Júgóslavíu. Einungis nokkrum
klukkustundum eftir framsal Milos-
evic hófst alþjóöleg styrkjaráðstefna
um uppbyggingu hinnar stríðs-
hrjáðu Júgóslavíu í Brussel.
Júgóslavíuyfirvöld hafa beðið um
rúmlega 130 milljarða króna i styrki
til að byggja upp landið eftir 13 ára
slælega efnahagsstjórn Milosevic.
Evrópusambandslönd, Bandaríkin
Alþjóðabankinn og Japan gerðu gott
betur og ákváðu að styrkja
Zoran Zizic
Sagöi af sér sem forsætisráöherra
Júgóslavíu vegna framsals Slobod-
ans Milosevic.
Júgóslavíu um 131 milljarð króna.
Ekki er vanþörf á aðstoð enda er
verðbólgan í landinu 150 prósent og
50 prósent vinnuaflsins eru atvinnu-
laus.
Bandaríkin höfðu áður gefið í
skyn að ef Milosevic hefði ekki ver-
ið framseldur til striðsglæpadóm-
stólsins fyrir styrkjaráðstefnuna
myndi litið verða úr fjárstyrk af
þeirra hálfu. Timasetningin á fram-
sali forsetans fyrrverandi og sú
staðreynd að stjórnvöld Júgóslavíu
hunsuðu úrskurð stjórnlagadóm-
stóls landsins gefur til kynna ásetn-
ing þeirra að fá styrki til uppbygg-
ingar landsins.
Miroljub Labus, aðstoðarforsætis-
ráðherra Júgóslavíu, var ánægður
með góð viðbrögð á styrkjaráðstefn-
unni. Hann sagði landið vera á
hraðri leið inn í Evrópu. Auk þess
lýsti hann því yfir að Júgóslavfa
væri loksins komin aftur inn í sam-
félag þjóðanna, bæði stjórnmálalega
og efnahagslega.
Kofi Annan endur-
kjörinn til fimm ára
Ghanamaðurinn Kofi Atta Annan
var endurkjörinn aðalritari Samein-
uðu þjóðanna tU fimm ára í gær.
Engin andstaða var á meðal fulltrúa
189 þjóða í allsherjarþingi SÞ. Ör-
yggisráð SÞ hafði þá þegar lýst yfir
stuðningi við endurkjör hans með
dynjandi lófataki á miðvikudag. í
Öryggisráðinu hafa fimm þjóðir
neitunarvald, Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Kína og Rússland. Ann-
an hefur ekki kallað upp á sig óvUd
neinna þessara þjóða, en andstaöa
Bandaríkjamanna varð forvera
hans, Boutros Boutros-Gali, fjötur
um fór.
Endurkjör Annans er óvenjulegt
að því leyti að með því verður Afr-
íkubúi aðalritari í 15 ár samfeUt.
Vaninn er að hver heimsálfa fái að-
eins 10 ár. Af því tilefni hafa nokk-
ur ríki í Suðaustur-Asíu kvrrtað
Kofi Atta Annan
Nýtur mikilla vinsælda sem aöalritari
SÞ. Hann er kvæntur sænskri lista-
konu og er oröinn 63 ára gamall.
undan því að fá ekki sinn fuUtrúa í
stöðuna.
Annan er úr fjölskyldu kaup-
manna í Vestur-Afríkuríkinu
Ghana. Hann menntaði sig í Banda-
ríkjunum og er kvæntur sænskri
listakonu.
Afrikumaöurinn hefur gert stríð-
ið við alnæmisvána að sínu helsta
baráttumáli, enda er sjúkdómurinn
helsta böl heimaálfu hans. Hann er
talsmaður alþjóðavæðingar og vill
að markaðir verði opnaðir fyrir vör-
um frá þróunarlöndum.
Fyrstu árin í embætti þurfti Ann-
an að beina kröftum sínum að
Bandaríkjamönnum, sem hafa neit-
að að borga gríðarlegar skuldir sín-
ar til SÞ. Það hefur enn ekki tekist.
Sjálfur segist Annan tala máli
þeirra sem ekki geti talað fyrir sig
sjálfir.
Nýjar viöræöur á N-írlandi
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, heitir því að
koma á nýjum við-
ræðum um Norður-
írland eftir helgi.
Líklegt er að staðan
verði nokkuð
breytt, þar sem
David Trimble, leiðtogi mótmæl-
enda og fyrsti ráðherra Norður-ír-
lands, hyggst segja af sér á sunnu-
dag.
Hermenn yfirheyrðir
Lögreglan á Okinawa-eyju í Jap-
an yfirheyrði i gær bandaríska her-
menn í tengslum við nauðgmi á jap-
anskri konu. Á sama tíma er
Koizumi forsætisráðherra í opin-
berri heimsókn í Bandaríkjunum.
Fjöldagröf við Belgrad
Serbneskir réttarlæknar rann-
saka nú líkamsleifar 36 almennra
borgara sem fundust á lögreglu-
svæði nærri Belgrad. Talið er að um
Kosovo-Albana sé að ræða. 9 lík-
anna voru af börnum.
18 dauðir eftir snákabit
Það sem af er júnímánuði hafa 18
Nepalar látist af völdum snákabita.
Fjöldi þeirra eykst til muna í
monsún-rigningunum sem nú
standa yfir.
Arroyo vill hjálp
Gloria Arroyo,
forseti Filippseyja,
biður Bandaríkin
um hjálp í barátt-
unni gegn mús-
límskum skærulið-
um. Hún vill fá nýja
tækni Bandaríkja-
manna til að fylgj-
ast með skæruliðunum.
Barist um fána
5 slösuðust í slagsmálum í Puerto
Rico í gær eftir að bandaríska fán-
anum hafði verið flaggað við kirkju
í óleyfi. Kirkjan tileinkar sig barátt-
unni gegn heræfmgum bandariska
sjóhersins við Puerto Rico.
3000 hermenn á G8-fundi
Silvio Berlu-
sconi, forsætisráð-
herra Italíu, lætur
kalla út 3000 her-
menn sem tryggja
eiga öryggi á fundi
átta helstu iðnrikja
heims í Genúa í
næsta mánuði.
Fljúgi ekki yfir Líbanon
ísraelar hafa gefið Sameinuðu
þjóðunum loforð um að þeir muni
ekki fljúga herþotum sínum yfir Lí-
banon lengur. Þetta er í fyrsta skipt-
ið sem ísraelar lofa þessu, en þeir
drógu heri sína frá Suður-Líbanon
fyrir ári síðan.
Dýr aðdragandi aftöku
Réttarhöldin yfir sprengjumann-
inum Timothy McVeigh kostuðu
bandaríska skattgreiðendur um 140
milljónir íslenskar krónur.
Marxistar hyggjast ræna
Skæruliðar marxista i Kólumbíu
hyggjast standa fyrir mannránum á
þingmönnum, dómurum og öðrum
embættismönnum. Þeir slepptu
hundruðum lögreglumanna úr haldi
í vikunni en virðast þó engan
bilbug láta á sér finna.