Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Side 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
x>v
Umferðarráð í startholunum vegna mikillar umferðarhelgar:
Islendingar meira a
heimaslóðum en áður
13.000 sumarhús og 6.000 tjald-
vagnar og fellihýsi eru á skrá og fer
íjölgandi. íslendingar munu í sumar
skoða land sitt í meira mæli en
nokkru sinni fyrr, að mati þeirra
sem gerst þekkja.
Island er orðið mun samkeppnis-
hæfara í verði í samanburði við
ferðir á sólarstrendur Suður-Evr-
ópu vegna gengishækkunar. Þessa
helgi er búist við mikilli umferð á
þjóðvegum landsins og talað um
eina af allra stærstu umferðarhelg-
um landsins, þó ekki muni hún
skáka verslunarmannahelginni.
Júlímánuður er einnig langvinsæl-
asti sumarfrísmánuðurinn og marg-
ir landsmanna hefja fríið einmitt
um þessa helgi. Til viðbótar þessu
má minna á að á árinu 2000 urðu er-
lendir ferðamenn hér um 300 þús-
und talsins, hafði fjölgað um 100
þúsund frá árinu 1997 og búast má
við enn fleiri erlendum ferðamönn-
um á þessu ári og það þrátt fyrir
barlóm um að öll þjónusta hérlend-
is sé allt of dýr. Hún er hins vegar
að aukast og t.d. er á tjaldsvæðinu á
Höfn boðið upp á rafmagnstengla
fyrir húsbila, sítengingu við Inter-
netið, fullkomna hreinlætisaðstöðu
og þvottavélar og þurrkara. Fólk
sem hefur verið iengi á ferðinni og
hvergi komist í tölvupóst tekur
þessari þjónustu fagnandi.
Aukningin ein á þessu þriggja
ára tímabili nemur meira en öllum
fjölda erlendra gesta sem komu hér
sumariðl997. Gjaldeyristekjur af
þessum gestum urðu um 8 milljörð-
um meiri árið
2000 en 1997. Þá
hefur orðið mik-
il aukning á inn-
lenda markaðn-
um og ef litið er
þar til áranna
1996 til 1999 er
aukningin 21% í
fjölda gistinátta
innlenda mark-
aðarins. Þessu
til viðbótar er
mikil aukning í
sumarhúsaeign íslendinga sem og
tjaldvagna- og fellihýsaeign.
Gistingin aftan í
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir það ljóst að samkvæmt upplýs-
ingum ferðaskrifstofanna munu ís-
lendingar fara minna til sólarlanda
í ár en í fyrra og margir hafi hætt
við sólarlandaferðir vegna þess að
þær hafa verið að hækka í verði.
Því megi búast við auknum straumi
Islendinga um landið og fyrsta stóra
helgin sé þá væntanlega þessi helgi.
Innlendi markaðurinn sé að því
leyti mjög sérstæður að hann ákveð-
ur sig ekki nema með mjög stuttum
fyrirvara og stærsti áhrifavaldur-
inn í því er veðrið. Ákvörðun um
hvert verði stefnt er kannski ekki
tekin fyrr en síðdegis á fostudegi
eða á laugardagsmorgni þegar búið
er að pakka ferðadótinu í bílinn.
„Það er tilfinning okkar og þeirra
sem vinna t.d. á upplýsingamiö-
stöðvum að áhuginn á því að ferðast
innanlands sé meiri en áður. Það er
t.d. meira spurt um áhugaverða
staöi og einnig staöi sem ekki hafa
verið svo mikið í umræðunni. Það
má heldur ekki gleyma því að um
allar helgar er gífurlegur flutningur
á fólki þvers og kruss um landið
vegna ýmissa íþróttaviöburöa, ætt-
armóta o.fL. Þegar skoðaðar eru
gistináttatalningar og bókanir á
gististöðum þá eru þær í vaxandi
Umferðarhelgar
Umferöarráö er í startholunum vegna mikillar umferöarhelgar og er þegar komiö í mikiö samstarf viö lögregluna um fræöstu og löggæslu.
Unnur Olafs-
dóttir, veður-
fræðfngur á
Veðurstofunnl.
Tryggvi Guö-
mundsson, for-
stööumaöur
Eddu-hótela.
Haukur Garö-
arsson, feröa-
málafrömuöur á
Blönduósi.
Oli H. Þóröar-
son, fram-
kvæmdastjóri
Umferðarráðs.
mæli farnar að segja okkur minna
en þær gerðu áður vegna þess að
það eru um 13.000 sumarbústaðir í
landinu sem hefur verið gífurleg
aukning í og svo er einnig ótrúleg
aukning í því að vera með gisting-
una aftan í sér en í dag eru skráðir
um 6.000 tjaldvagnar og hjólhýsi. ís-
lendingar hafa því yfir að ráða nær
20.000 gististöðum fyrir utan hótel
og gistiheimili. Þvi er stöðugt erfíð-
ara að mæla umfang innlenda
markaðarins en það er að verða að-
alferðamáti íslendinga að hafa gist-
inguna hangandi aftan í,“ segir
Magnús Oddsson.
inrnsk
Geir A. Guðsteinsson
blaðamaður
Tryggvi Guðmundsson, forstöðu-
maður Eddu-hótelanna, segir að viö-
ast sé vel bókað um þessa helgi og
áberandi stór hlutur íslendinga en
enn sé pláss á sumum hótelum
norðanlands og austan. íslendingar
séu alltaf mjög seinir að ákveða sig
en það sé greinileg uppsveifla þessa
dagana en til þessa hafi verið minni
aðsókn á Eddu-hótelin en á sama
tíma í fyrra. íslendingar séu auk
þess ekki að feröast mikið fyrr en
júlí sé kominn á dagatalið.
íslendingar betur undirbúnir
en áður
Haukur Garðarsson, ferðamála-
fulltrúi Austur-Húnavatnssýslu,
segir að allar líkur séu á því að mik-
il umferð verði á svæðinu um helg-
ina og þetta verði örugglega ein af
stærstu umferðarhelgunum og
einnig hafi stórhækkun ferða er-
lendis vegna gengisfalls þau áhrif
að fleiri skoði náttúruperlur eigin
lands á þessu sumri. Stór huti
þeirra sem um Húnavatnssýslur
fara eiga þar mjög stutt stans, t.d. á
leið norður í Eyjafjörð eða Þingeyj-
arsýslur. Haukur segir að vaxandi
fjöldi manns sé farinn að nýta sér
ýmsa afþreyingu sem þar er í boöi,
s.s. sela- og fuglaskoðunarferðir sem
taka um 2 tíma. Haukur segir það
áberandi að íslendingar fari nú bet-
ur undirbúnir til ferðalaga um land-
ið en áður, kynni sér hvað er í boði
en þjóti ekki bara af stað út í bláinn.
íslendingar eru farnir að nýta betur
afþreyingar sem eru í boði, hættir
að brenna hringinn og komast yfir
sem mest og segir Haukur að þeir
hafl hreinlega ekki tímt því á árum
áður að njóta afþreyinga. Þetta sé
jákvæð þróun.
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-
Landsýn hefur nokkuð sérhæft sig í
ferðum innanlands fyrir útlendinga.
Þessi helgi verður þó ekkert stærri
en aðrar helgar en annars vegar er
um ferð hringinn í kringum landið
að ræða sem tekur 8 til 9 daga og
hins vegar styttri ferðir, s.s. að Gull-
fossi og Geysi, og hvataferðir í t.d. 4
daga sem beinast m.a. að Gullfossi
og Geysi og ferð á Langjökul, meiri
ævintýraferðir. íslendingar eru
ekki tilbúnir til að greiða það verð
sem svona ferðir kosta, ferðast frek-
ar á eigin vegum eða með rútum frá
BSÍ. Árið 2000 var mjög gott ár, mik-
ið um ráðstefnur sem útlendingar
sóttu, minna er um slíkt í ár en það
stefnir í aukningu árið 2002.
Þáttur skemmtiferðaskipanna
hefur verið að aukast ár frá ári. Á
fóstudag voru t.d. þrjú skemmti-
ferðaskip á Pollinum á Akureyri og
einn stærsti dagur ferðaþjónustunn-
ar þar. Farþegar voru um 3.000 tals-
ins og 1.440 manns í áhöfn. Til þess
að flytja allan þennan skara þurfti
40 rútur en um 1.700 manns hélt í
skoðunarferðir um Akureyri og
austur í Mývatnssveit, að Goðafossi
og í Laufás. Ekki eru allar rútur á
svæðinu falar þar sem um 25 þeirra
eru í áætlanaferðum og hópferðum
og því þurfti að fá bifreiðar og
ensku- og þýskumælandi leiðsögu-
menn úr nágrannabyggðum og af
höfuðborgarsvæðinu.
Uggur vegna síöasta sumars
Umferðarráð er í startholunum
vegna mikillar umferðarhelgar og
er þegar komið í mikið samstarf við
lögregluna um fræðslu og löggæslu
en Umferðarráð gerir ráð fyrir að
helgin 7. til 8. júlí verði enn meiri
ferðahelgi þó fyrsta helgin í júlí hafi
alltaf verið mjög mikil umferðar-
helgi. Vakt verður í útvarpi. Lög-
reglan hefur smám saman verið að
styrkja sumarstarfið og er mjög
meðvituö um hvað fram undan er,
að sögn Óla H. Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Umferðarráðs.
„Uggur er í brjósti margra vegna
síðasta sumars og við erum að
reyna að koma þessu í betra horf.
En aðalatriðið er að við gerum ekk-
ert einir. og sér, það eru ökumenn-
irnir sem hafa þetta í höndum sér í
bókstaflegri merkingu. Það er mis-
jafn sauður i mörgu fé hjá þeim
ökumönnum sem eru með tjaldvagn
eða fellihýsi hangandi aftan í bíln-
um en við beittum okkur fyrir því
að hámarkshraði þessara ökutækja
var aukinn úr 70 i 80 km/klst. vegna
þess að það var of mikið ósamræmi
milli hraða þeirra og hinnar al-
mennu umferðar og þeir urðu oft
varasamir „lestarstjórar". Þegar
umferð er mikil geta þeir ekki alltaf
hleypt fram úr en þeim ber að gera
það skilyrðislaust strax og þess er
kostur. Það er yfirleitt bíll nr. 2 og 3
sem myndar bílalestina en framúr-
akstur er með því hættulegasta á
vegunum," segir Óli H. Þórðarson.
Lokað í Heröubreiðarlindir
og Oskju
Um hálendiö er aðeins fært um
Kjöl og um Uxahryggi og Kaldadal
norður í Miðfjörð, síðamefnda leið-
in þó aðeins jeppum. Um Syðri-
Fjallabaksleið er aðeins fært jepp-
um en enn þá er Sprengisandsleið
lokuð og hálendið þar austur af,
þannig að enn um sinn er lokað inn
í Herðubreiðarlindir og Öskju. Há-
lendisvegir eru þó almennt fyrr að
komast í sumarfært ástand en í
fyrra en sunnan til var minni snjór
en í fyrra en í meðallagi norðan til.
Um helgina verður hæglátt veður,
að sögn Unnar Ólafsdóttur, veður-
fræðings á Veöurstofunni. Á sunnu-
dag má búast við rigningu með suð-
urströndinni en engin krassandi
lægð er við landið en ein lítil fer fyr-
ir sunnan land. Hiti verður 8 til 15
stig, hlýjast inn til landsins en sól-
dýrkendur geta helst átt von á sól á
Norðurlandi og fyrir vestan en svalt
verður í öðrum landshlutum. -GG