Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Side 42
50
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
Tilvera
DV
Gert út á ferðamenn
Matreiðslan í Café Óperu hefur
batnað, en verðið hefur hækkað
meira. Fyrir verðlag Hótel Holts fær
maður mat í gæðaflokki Hótel Borg-
ar. Þótt mér finnist sjálfum hálfhrá
stórlúða ágætis matur,
er ég ekki viss
um, að fólk,
sem ekki hef-
ur sérpantað
slíka mat-
reiðslu, sætti
sig almennt
við niðurstöð-
una. Þar á ofan er
staðurinn groddalega innréttaður
með berum borðplötum og daufri
loftræstingu, sem losar ekki tóbaks-
fnykinn. Mér sýnist staðurinn vera
ætlaður ferðamönnum, sem vitað
er, að koma aldrei aftur. Hörpuskel
með hvítu svartrótarmauki var eigi
að síður ágætis matur.
(Café Ópera, Lækjargötu 2, sími
552 9499)
Groddalega eldaö
Ég mundi ekki sakna A. Hansen í
Hafnarfirði, ef hann væri lagður
niður. Samt er húsnæðið að mörgu
leyti notalegt, enda með því elzta,
sem þekkist hér á landi. Þjónustan
var af því tagi, sem spurði, hvort ég
"ætlaði að skrifa um staðinn". Mat-
reiðslan reyndist tæpast vera fram-
bærileg. Þið verðið þó að vara ykk-
ur á fiskinum, sem kemur upp úr
frysti og er settur í örbylgjuofn.
Beðið var um léttsteikt lambakjöt,
en það kom grásteikt á borð með
ofelduðum
l sveppum og
l ógeðfelldri
i hveitisósu
I án gráð-
! osts-
1 bragðsins,
sem boðað
’ haföi verið.
Tvíreykt
sauðafillet með
daufri piparrótarsósu var hins veg-
ar ágætur matur.
(A. Hansen, Vesturgötu 4, Hafnar-
flrði, sími 565 1130)
Endalausar tortillur
Amigos er ódýr matstaður með
yfirbragði bjórkrár, en eigi að síður
með góðri loftræstingu á reyklausa
svæðinu og þjónustu á plani hefð-
bundinna veitingahúsa. Þetta er
fjölskylduvænn Tex-Mex, sem þýð-
ir, að hér er Texas-matreiðsla, sem
byggir á tortillu-grunni frá Mexikó.
Salöt voru að mestu úr gömlu og
brúnu jöklasalati. Úthafsrækjan var
vafin beikoni, svo að úr varð hreint
beikonbragð. Hins
vegar var
gaman að ,tdl
Santa Fe
Klettasalat
Klettasalat er einær jurt af krossblómaætt. Það
á rætur sínar í Miðjarðarhafslöndunum og
vitað er að Rómverjar hinir fornu lögðu sér
| það til munns. Það var talið kynörvandi
11 og oft var það ræktað nálægt styttum af
| frjósemisguðinum Príapusi. Af skiljan-
W legum ástæðum var hins vegar bannað að
' rækta það í klausturgörðum. Klettasalat
hefur lengi verið vinsælt hjá ítölum og þaðan
hefur hróður þess borist norðar til ann-
arra Evrópulanda. Hér á íslandi er
nýlega farið að rækta klettasalat
en fjörukál sem hér vex við strendur
landsins er fjarskyldur ættingi þess.
Salatið er bragðmikið, keimurinn af því minnir á
pipar og hnetur og því er það ágætis kryddjurt.
og léttelduðu
kjúklingi
upp úr lime-
kryddlegi
góðri baunakássu
grænmeti. Skynsamlegast er hér að
velja úr endalausum útgáfum af
tortillum.
(Amigos, Tryggvag. 8, s. 511 1333)
Fundinn fókus
Eins árs hringferð minni um
fimmtíu veitingahús höfuðborgar-
svæðisins lauk á miövikudaginn á
Asíu, þar sem ánægjulegt var að
finna, að staðurinn hefur fundið sér
kínverskan fókus í stað þess að
reyna að spanna alla Asíu. Mat-
reiðslan hefur batnað töluvert, þótt
hún jafnist ekki á við Kínahúsið,
auk þess sem verðið
hefur hækkað
hlutfallslega.
Svínakjöt á
pinnum var
gott sem
fyrr, en
lamb í
lauksósu
var ekki eins
meyrt og lofað
var á matseðli.
(Asía, Laugav. 10,
sími 562 6210)
Jónas Kristjánsson
Keimurinn gefur
krydd á diskinn
Það er einkum notað sem
meðlæti með mat og þá
gjarnan með öðru
. bragðminna græn-
i meti. Einnig er
það ágætt í pasta-
og hrísgrjónarétti, súpur og sósur. Erlend nöfn á
klettasalati eru rocket, rucola og arugula.
íntemolnr
* %: p.
J '*K ” j
„Það sem gerir klettasalat spenn-
andi er að jurtin hefur afar ljúffengt
bragð sem bætir upp bragðleysi
hinna hefðbundnu grænu salatteg-
unda. Því nota ég það eins og krydd
á salatdiskinn minn,“ segir Sigfríð,
forstjóri Pottagaldra. Hún segir
klettasalat líka gefa léttu hráefni
gott bragð, eins og kjúklingabring-
um eða rækjum á pönnu með
hvítvínsslettu, salti og hvítum pip-
ar.
Fastur liöur frá því í maí
„Það var í byrjun maí í vor sem
ég uppgötvaði klettasalatið," segir
Sigfríð og verður afar andleg. „Fullt
tungl í maí ár hvert er eitt kröftug-
asta tungl ársins. Þá fara andlegir
pílagrímar á Vesak-hátíðina, í lík-
ama eða huga þar sem Kristur og
Búdda stiga eins langt niður til
mannkynsins og hægt er, þvi til
blessunar. Vesak-hátíðin er haldin i
fögrum dal í Himalaya-fjöllum og í
ár ætlaði ég meðvitað á hátiðina í
huganum. Þá var eins og mér væri
stýrt í líkamlega hreinsun með lita-
dýrð náttúrunnar á diskinum í
hvert mál og eimuðu vatni, jurtate
og hugleiðslu dag hvern.“ Eftir tíu
daga grænmetisföstu kveðst Sigfrið
hafa farið að bæta ýmsu á salat-
diskinn til að þyngjast og fá prótein
í kroppinn en klettasalatið hafi ver-
ið fastur liður á diskinum æ síðan.
Salat Sigfríöar
Eggaldin- og kúrbítsneiðar
(zucchini) eru steiktar í ólífuolíu,
kryddað með nýrri kryddblöndu
sem er að koma á markaðinn frá
Pottagöldrum og heitir töfrakrydd.
Töfrakryddið er svona eins konar
t „season all“ með lágnatríum salti
Ijkog cheddar-osti. Einnig má nota
mm eðalkrydd Pottagaldra sem er
■ einnig „season all“ meö lágnatri-
V um salti. Síðan kemur:
W túnfiskur í
vatni
ýmsar /
hnetur,
s.s. pec-
an-hnet-
ur, furu-
hnetur
eða
Litadýrð náttúrunnar nýtur sín vel á
salatdisknum hjá Sigríöi
Salat-dress-
ing:
Olía og
vinegar frá
Paul Newm-
val-
hnetu-
kjarnar
íssalat úr
potti eða
seasar-sal-
at úr poka
klettasalat
avocado-sneiðar
(lárperusneiðar)
paprika í hvaða lit sem er
agúrka
baby-spínat
tómatar (stundum)
bónda-brie
Klettasalat
frá
Lambhaga
an
eða græn
ólífuolía og bals-
amic edik eftir
smekk.
íssalatinu eða seas-
ar-salatinu er
raðað fyrst á
diskinn, túnfiskur-
inn settur í eitt
hornið, steikt
eggaldin og kúr-
bitur í annað og
niðurskorinn bónda-brie
í það þriðja. Papriku-
og agúrkusneiðar settar í
miðju og lárperurnar þar
ofan á. Þá koma hnetumar
og að lokum klettasalatið, svona
eins og „sykur“ ofan á allt saman.
Það gerir réttinn ákaflega bragð-
mikinn og fallegan. Saiatdressingin
fer svo yfir allt. Diskurinn verður
enn gimilegri ef búnti af saltstöng-
um er stungið í salatið.
-Gun.
Gott í hádeginu
Beikon úr einum meðalstórum
pakka er steikt, kælt og skorið
niður í bita. Hálft búnt af jökla-
salati er rifið niður og eitt
knippi af klettasalati saxað
gróft. Lítill laukur, einn tómat-
ur og dágóður biti af agúrku
skorið í sneiðar. Pínulítið af
chilidufti er stráð á fjórar
ristaðar brauðsneiðar og þær
eru síðan skornar í teninga.
Beikonið og salatið sett á diska.
Brauðteningimum dreift þar
ofan á og sósu hellt yfir.
Sósa
Tvær matskeiðar af ólívuolíu
og 1 matskeið af vatni blandað
saman. Þar út í er bætt 1 teskeið
af frönsku sinnepi og 1 fínt söx-
uðu hvítlauksrifi.
Eplasalat
Þrjú græn epli eru afhýdd og
skorin í litla bita. Hálf meðal-
stór sellerírót, hálf piparrót og
þrjár gulrætur eru afhýddar og
rifnar niður á rifjárni. Lítill
hnefi af klettasalati er saxað.
Þessu er öllu blandað saman í
skál. 100 grömm af valhnetum
eru ristuð á pönnu og söxuð.
Þeim er blandað út í salatið. Síð-
an er sósan búin til úr þremur
desilítrum af ab-mjólk sem búið
er að hella í kaffifilter og látin
standa í 1 klukkustund. Einni
teskeið af góðu sinnepi er hrært
út í hana og bragðbætt með
nokkrum saltkornum.
Sósan er hrærð og bætt var-
lega út í salatið.
ítalskar brauð-
sneiðar
ítalir borða oft ristaðar brauð-
sneiðar með tómötum og hvít-
lauk. Slíkur réttur er kaUaður
Bruschetta. Hér er slíkur
réttur með aðeins
fieiri bragðtegund-
um.
Fjórar sneiðar
af hvítu brauði
eru ristaðar.
Þrír tómatar
eru skornir í
Utla bita, tveir
desiUtrar af
klettasalati eru
skornir smátt og
þrjú hvítlauksrif eru
pressuð. Þetta er hrært
saman ásamt einni matskeið af
óUvuoUu, einni teskeið af belg-
piparmauki og hnifsoddi af salti.
Blöndunni dreift á sneiðamar,
þær skomar í bita og basiUku-
blöð lögð ofan á.
Köld Klettasal-
atssósa
Ein dós af sýrðum rjóma og
þrjár matskeiðar af mayonnesi
er hrært vel saman. Tveimur
desiUtmm af söxuðum klettasal-
atsblöðum er bætt út í. Kryddað
með smá salti og að síðustu er
þremur matskeiðum af furu-
hnetum hrært saman viö. Þessi
sósa er mjög góð með griUuðum
kjúklingi, rækjum eða grænmet-
issalati.