Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
DV
Fréttir
Rafveitutillaga Herdísar sprengdi meirihlutann í Skagafirði:
Framsókn vill ræða
við Skagafjarðarlista
Davíð og öryrkjar
Davíö Oddsson
forsætisráðherra
segir með ólíkind-
um að Öryrkja-
bandalagið láti ekki
66% hækkun stræt-
isvagnafargjalda ör-
yrkja til sín taka.
Talsmaður öryrkja
visar ummælum Davíðs á bug sem
bulli.
- vonbrigði hjá sjálfstæðismönnum
Meirihluti Sjálfstæðisílokks og
Framsóknar í sveitarstjórn Sveitar-
félagsins Skagafjarðar sprakk í gær-
morgun þegar gengið var til at-
kvæða í byggðarráði um hvaða leið-
ir skyldi fara varðandi framtíð
orkufyrirtækjanna í sveitarfélag-
inu. í brennidepli hefur verið að
sameina Rafveitu Sauðárkróks og
Hita- og vatnsveitu Skagafiarðar í
eitt fyrirtæki og hafa skýrslur verk-
fræðings og endurskoðanda sýnt að
sú leið gæti reynst hagkvæm.
Þeir tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks sem sæti eiga í byggðarráði
vildu afdráttarlaust fara þessa leið.
Greiddu þeir atkvæði á móti tillögu
tveggja fulltrúa Framsóknarflokks í
ráðinu um að fresta ákvörðun í mál-
inu og skoða möguleika á sölu raf-
veitunnar, m.a. vegna þeirra breyt-
inga sem nú eru að verða á raforku-
markaði. Fulltrúi Skagafjarðarlista
i byggðarráði studdi þessu tillögu
framsóknarmanna. Þar með hafði
nýr meirihluti í sveitar-
stjórn myndast og hefur
Framsóknarflokkurinn nú
óskað eftir því að formlegar
meirihlutaviðræður hefjist
á næstu dögum.
Óvænt útspil Herdísar
„Vegna þeirra breytinga
sem eru að verða á raforku-
lögum þótti mér rétt að
leggja til að fresta öllum
ákvörðunum í þessu máli
fram til 1. nóvember. Fram
til þess tíma gætum við skoðað
hvort rétt væri að selja rafveituna.
Ég tel að hún gæti raunar orðið
mjög góð söluvara og gefið talsvert
mikla peninga inn í sveitarsjóð. Við
gætum skilið hita- og vatnsveitu eft-
ir og rekið hana áfram sjálf en losað
um talsvert af eigin fé hennar inn í
sveitarsjóð. Allur er varinn góður
nú þegar er að harðna á dalnum í
efnahagsmálum og verðbólga að
aukast,“ segir Herdís Sæ-
mundardóttir.
í samtali við DV í gær
sagði Gísli Gunnarsson,
oddviti Sjálfstæðisflokks í
sveitarstjóm, að á síðustu
misserum, eða allt frá því
sveitarfélögin í Skagarfirði
voru sameinuð í eitt, hefði
framtíðarskipan orkumála í
sveitarfélaginu verið mjög
til umfjöllunar. I janúar sl.
hefði verið samþykkt í
sveitarstjórn með öllum
greiddum atkvæðum að fara sam-
einingarleiðina. Eftir þessari sam-
þykkt hefði verið unnið siðan. Á
fimmtudagskvöld hefði Herdís Sæ-
mundardóttir síðan tilkynnt sér að
hún ætlaði að bera áðurnefnda til-
lögu um að fresta ákvörðun um
sameiningu veitnanna - og að
kanna möguleika á sölu rafveitu.
„Það kom mér á óvart því ég vissi
ekki annað en stefnan í þessu máli
hefði verið mörkuð," sagði Gísli
Gunnarsson. „Hingað til höfum við
alltaf náð lendingu í málum í þessu
meirihlutasamstarfi þannig að þessi
niðurstaða nú veldur mér vonbrigð-
um.“
Skagafjarðarlistinn fundar
í sveitarstjórn Skagafjarðar á
Sjálfstæðisflokkurinn fimm full-
trúa, Framsóknarflokkurinn fjóra
og Skagafjarðarlistinn tvo. Skv.
heimildum DV koma liðsmenn
Skagafjarðarlistans saman til fund-
ar í dag þar sem tekin verður af-
staða til óskar Framsóknarflokks
um meirihlutaviðræður. „Ég hef
ekki miklar áhyggjur af því að við
náum ekki saman, meginmálið er
þó að skuldir sveitarfélagsins sem
eru samanlagt rúmir tveir milljarð-
ar þurfa að lækka. Þess vegna lagði
ég þessa tiliögu fram sem nú hefur
sprengt meirihlutann," segir Herdís
Sæmundardóttir. -sbs.
Herdís
Sæmundardóttir:
Fannst rétt að
fresta ákvöröun.
DV-MYND GK
Meöal keppnisliða á „Pollamóti" Þórs er hið síunga lið úr Mývatnssveit
- sem ber þaö viröulega nafn „Bjartar vonir vakna". Þar er hver snillingurinn
viö hliö annars en myndin er tekin þegar Mývetningar voru aö hefja fyrsta leik
sinn í gærmorgun.
Akureyri:
Þúsundir í knattspyrnu
Reikna má með að hátt í 5 þúsund
manns gisti Akureyri um helgina
vegna tveggja knattspyrnumóta sem
þar standa yfir og var leikin knatt-
spyrna í blíðviðri á Akureyri í gær
frá morgni og fram á kvöld. Á KA-
svæðinu er hið árlega ESSÓ-mót fyrir
5. flokk pilta sem eru framtíðarknatt-
spyrnumenn landsins og þar eru þátt-
takendur um þúsund talsins. Þeim
fylgir mikill fjöldi foreldra og farar-
stjóra. Á Þórsvelli er „Pollamót" Þórs
en þar sprikla knattspyrnumenn for-
tíðarinnar sem sumir hverjir voru
upp á sitt besta upp úr miðri síðustu
öld. Þar eru keppendur einnig um
þúsund talsins og er mjög mikið um
að knattspyrnusnillingarnir hafi fjöl-
skyldur sinar með. Eru myndarlegar
tjaldborgir á svæði Þórs. -gk
Verslunarmannahelgin:
Útihátíð haldin í Eldborg
Útihátíð veröur haldin í Eldborg
í Hnappadal á Mýrum um verslun-
armannahelgina. Þar verður rjóm-
inn af hljómsveitum landsins, nýj-
um, nýlegum og gömlum. Sýslu-
maður hefur fengið í hendur sam-
þykki landeigenda, umsögn heil-
brigðisfulltrúans og umsögn sveit-
arstjórans og er því allt til reiðu að
halda tónlistarveislu i rúmlega
klukkutímafjarlægð frá Reykjavík.
„Eldborg er gróðursælt og veður-
sælt svæði og vel í sveit sett, um-
vafið orku og frumkrafti Snæfells-
jökuls," segir Einar Báröarson,
einn aðstandenda Eldborgarhátíð-
arinnar, sem segir þetta verða frið-
sæla og skemmtilega tónleika.
Búið er að ráða Stuðmenn,
Skítamóral, Ný danska og Greifana
til að leika og auk þess Sóldögg,
Buttercup og írafár og spánnýjar
hljómsveitir, í svörtum fötum og
Út-rás, en auk þess gamlar og góð-
ar eins og Lúdó og Stefán og Geir-
fuglana.
DV-MYND GVA
Loðnu landaö víða um land
Mikiö magn af loönu er komiö víöa um land, á Noröurlandi, Austurlandi, Vest-
fjöröum, á Suöurnesjum og víöar. Myndin var tekin þegar veriö var aö landa
800 tonnum af loönu í Bolungarvík.
Blaðið í dag
Andarnir eru
staðreynd
þrátt fyrir
yfirlýsingar
stjómvalda
Dulræn fyrirbrigöi í
Kína
Balkanskagi í
lausu lofti
Erlent fréttaljós
Dansandi
hljómsveitar-
stjóri
\ Jónas Sen skrifar
Ásakanir um
siðleysi
Innlent fréttaljós
M. Benz,
þægilegur
akstursbíll
DV-Bilar
Listamenn út
á land
Fóstbræöur slgra
Dulrúnir ungu
kynslóðarinnar
SMS-skilaboö
Foreldrar sameinast
Foreldrar Áslaugar Óladóttur, Ás-
laugar Perlu Kristjánsdóttur og Ein-
ars Arnar Birgis, þriggja ung-
menna, sem fallið hafa fyrir morð-
ingjahendi undanfarið ár, ætla að
bindast samtökum um að berjast
gegn vægum dómum í manndráps-
málum.
Reynt og reynt
Óformlegum sáttaviðræðum í
deilu þroskaþjálfa og ríkisins, sem
staðið hafa yfir, verður haldið
áfram i dag, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá þroskaþjálf-
um.
Pitsa á Hraunið
Fangi í gæsluvarðhaldi má út-
vega sér sjálfur fæði samkvæmt
dómi Hæstaréttar.
Sektaður um 30 milljónir
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
dæmt 44 ára fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Vesturskipa á Pat-
reksfirði í 10 mánaða fangelsi og 30
milljóna króna sekt fyrir skattsvik.
Niöur fyrir 9 dollara
Gengi hlutabréfa
í deCODE sveiflað-
ist nokkuð í gær. I
gærkvöldi var stað-
an þannig að gengið
hafði lækkað um
5,97% og var gengið
þá 8,97 dollarar á
hlut.
Örn stækkar
Eagle Investments Holding SA,
sem er félag í eigu Arnar Andrés-
sonar, stjórnarmanns í Lyfjaverslun
Islands, hefur keypt hlutabréf í fé-
laginu að nafnverði 1.340.000 króna
á genginu 5,33. Örn á nú 26,5 millj-
ónir króna að nafnverði í Lyfja-
versluninni.
Farbann
Hæstiréttur hefur staðfest far-
bann yfir manni sem bíður dóms
vegna líkamsárásar í janúar. Mann-
inum er bannað að fara úr landi þar
til dómur fellur en ekki lengur en til
15. október.
Dalvískir kjúklingar
Á milli 12 og 13 þúsund kjúkling-
ar eru aö skríða úr eggjunum hjá
íslandsfugli á Dalvík. Þetta eru
fyrstu ungar fyrirtækisins úr eggj-
unum sem var verpt á Árskógs-
strönd en þeim er ungað út á Dal-
vík.
Syngja Blöndalsljóð
Haldnir verða
tónleikar í Hótel
Egilsbúð á sunnu-
dagskvöldið og
Laugaborg í Eyja-
fjarðarsveit á
mánudagskvöld þar
sem Sólrún Braga-
dóttir söngkona og
ýmsir þekktir tónlistarmenn flytja
lög eftir Atla Heimi Sveinsson tón-
skáld við ljóð íslenskra þjóðskálda,
þar á meðal Halldórs Blöndals, for-
seta Alþingis. Hvorirtveggju tón-
leikarnir hefjast kl. 20.30 og í upp-
hafi þeirra mun skáldið Halldór
flytja stutt ávarp.
-EIR/sbs