Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 22
22
Helgarblað
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
r>v
Hugmyndaríkt morð:
Kívíávöxtur
var morðvopnið
Á mánudagsmorgni var hringt í
morðdeild rannsóknarlögreglunnar
í Orlando í Florida. Fyrir svörum
varð John Linnet rannsóknarlög-
reglumaöur og hlustaði á furðufrétt
sem honum var sögð rétt si svona í
símann. Konurödd sagði honum frá
morði sem framið var í Arizona.
Konan játaði að hún væri sjálf
morðinginn. Hún bauð lögreglu-
manninum að heimsækja sig og
ræða málin. Linnet áleit í fyrstu að
um einhvers konar gabb eða hrekk
væri að ræða en ákvað samt að líta
nánar á málið.
Konan í símanum hafði gefið upp
nafn konunnar sem hún sagðist
hafa myrt. Fyrsta verk Linnets
rannsóknarlögreglumanns var að
hafa samband við lögregluyfirvöld í
því lögsagnarumdæmi í Arisona þar
sem morðið átti að hafa verið
framið. Þar kannaðist enginn við að
hafa fengið morðmál til rannsóknar
sem tengdist nafni konunnar sem
gefið var upp. Hins vegar var stað-
fest að hin látna hafði dáið í um-
dæminu. En þar sem ekkert benti til
að glæpur hefði verið framinn var
engin ástæða til að fara í saumana á
dánarorsökinni.
Krufning talin óþörf
Linnet vildi samt sem áður leita
af sér allan grun um aö glæpur hafi
verið faminn og hafði aftur sam-
band við lögreglu í Arizona og fékk
staðfest að dánarvottorð hafði verið
gefið út. Engir áverkar voru sýnleg-
ir á líkinu og ekki þótti ástæða til
að reyna endurlífgun þar sem kon-
an var greinilega látin þegar að var
Sérstæð sakamál
komið. Að öðru leyti voru engin
ummmerki sem bentu til að andlát
konunnar hafi ekki borið að með
eðlilegum hætti.
Barnabam látnu konunnar var
kallað til og gaf hann upp nafnið á
lækninum sem annast hafði gömlu
konuna. Sá læknir hafði gefíð út
dánarvottorðið og engar ástæður
séð til að líkið yrði krufið og dánar-
orsökin athugðuð nánar þar sem
sjúklingur hans hafði þjáðst af
hjartabilun og var hjartastopp talin
dánarorsökin. Þar sem læknirinn sá
engin ummerki þess að glæpur
hefði verið framinn var óþarfi að
kalla til lögreglu.
Christine Black kæföi ömmu sína
með kívíávexti
Öruggt er aö aldrei hefði komist upp
um ódæöiö nema v'egna pess að
samviskan kvaldi morðingjann sem
hringdi í lögregluna og játaöi.
Fimm árum eftir
ódæði sitt sagði sam-
viska morðingjans,
sem var kona, til sín
og hún gaf sig fram
við lögreglu og ját-
aði. En raunverulega
hafði konan framið
hið fullkomna morð
með óvenjulegum
hætti. Lík hinnar
myrtu var grafið upp
og kom þá hið sanna
í ljós. Það liggur nú
aftur í gröf sinni og
morðinginn afplánar
dóm sinn í fangelsi.
Ég myrti hana
Málið var nú orðið þvælið og
sagðist Linnet rannsóknarlögreglu-
maður ekki skilja hvað konunni í
símanum kom til að játa á sig morð
í Arizona þar sem hún bjó sjálf í Or-
lando í Florida og er um þver
Bandaríkin að fara á milli þeirra
staða.
Rannóknarlögreglumenn ákáðu
nú að heimsækja símakonuna og
leita nánari frétta. Hún heitir
Christine Blac og var 35 ára að aldri
þegar hér var komið sögu. Konan
hafði mergjaða sögu að segja.
Látna konan í Arizona var amma
hennar, Helen Gerstung að nafni, og
varð 88 ára gömul. Og staðfestingin
á fyrsta símtalinu kom strax: „ Ég
myrti hana,“ viðurkenndi Christine
frammi fyrir rannsóknarlögreglu-
mönnunum.
Enn var hringt í sama lögsagnar-
umdæmið í Arizona og gefnar upp-
lýsingar um játningu Christine og
skýrt frá því að þær væru allar til á
segulbandsupptöku.
Frumlegt morðvopn
Helen Gerstung var grafin í Elm-
hurst í Illinois, sem er norðarlega 1
Mið-Vesturrríkjunum, en þaðan var
hún og þar var heimili hennar
lengstum og var nú málið orðið í
hæsta máta víðfermt. Þar sem rann-
sóknin náði til þriggja ríkja um
Bandaríkin þver og endilöng þurfti
að ganga frá mörgum skýrslum til
að fá leyfi til að grafa líkið af Helen
upp til nánari skoðunar.
Samtímis því að rannsókn var
haldið áfram í Arizona voru gögn
send til morðdeilarinnar í Orlando
þar sem Linnet og aðstoðarmenn
hans voru á fullri ferð að sannreyna
játningu Christine Black og fékk
ríkissaksóknari Florida gögnin í
hendur.
Segulbandið með játningunni var
spilað aftur og aftur en það var eina
sönnunargagnið sem enn var komið
fram í málinu. Faðir Christine var
viðstaddur þegar hún var tekin til
yfirheyrslu.
Án nokkurs hiks játaði Christine
á sig glæpinn sem annars var full-
kominn. „Ég notaði plastpoka og
teppi.“ Faðir hennar sat stjarfur og
harmi sleginn þegar dóttir hans
skýrði lögreglumönnunum frá því
að öldruð móðir hans hafði verið
kæfð.
“Ég tróð kivi upp í hana,“ sagði
Christinie þegar hún skýrði frá
verknaði sínum án þess að séð yrði
að minningin hefði minnstu áhrif á
hana.
Þeir sem önnuðust yfirheyrsluna
báðu Christine að skýra frá at-
Kista myrtu konunnar tekin úr grófinni í lllinois, en hún var myrt i Arizona
Þaö var ekki fyrr en líkiö var krufið aö sönnun fékkst fyrir aö þarna haföi veriö framið hiö fullkomna morö.
John Linnet, rannsóknarlögreglumaður í Orlando
Var í fyrstu vantrúaður þegar ókunn kona hringdi í hann og játaöi
á sig morö sem hún kvaðst hafa framiö i Arizona sem er í þúsunda km
fjariægö. Hann hóf þó rannsókn sem endaöi meö því aö
upp komst um hiö „fullkomna morö“.
Ríkissaksóknari Flórída
Lawson Lamar, hafði samstarf viö rannsóknartögregtumenn þæöi í Ftórída og
Arizona til aö réttlætinu yröi fullnægt.
burðarásinni þegar hún myrti
ömmu sina. „Hún var sofandi þegar
ég kom inn í svefnherbergið með
plastpoka, teppi og kívíávöxt. Ég
setti pokann yfir höfuð hennar og
hún vaknaði og streittist á móti þeg-
ar ég tróð kívíávextinum upp í hana
og niður í kok. Svo hélt ég um nef
hennar og munn þar til hún kafn-
aði.“
Leyfi fékkst til að grafa lík Helen
Gerstung upp. Var það krufið og
rannskað með tilliti til þess að
dauða hennar haföi ekki borið að
með þeim hætti sem dánarvottorðið
frá Arizona hljóðaði upp á.
Krufningin leiddi i ljós að leifar
af kivi voru í hálsi líksins og fleira
kom í ljós sem sannaði að Ijótur
verknaður hafði verð framinn.
Christine Black var handtekin og
ákærð fyrir morð að yfirlögðu ráði.
Nú var eftir að framselja hana til
Arizona þar sem glæpurinn hafði
verið framinn.
Eftir nokkurra mánaða mála-
flækjur var Christine Black send til
Arizona þar sem ráttarhöld yfir
henni hófust í apríl 1999.
Rannsóknarlögreglumaður frá
Orlando var viðstaddur réttarhöld-
in. Hjá honum kom fram að
Christine hafði verið spurð hvers
QBSEBK
vegna hún hefði myrt ömmu sína á
svo kaldrifjaðan hátt. „Af reiði," var
eina svarið sem fékkst um ástæðu
morðsins.
Cristine Black var fundin sek um
morð af fyrstu gráðu, eins og það er
kallað í Ameríku, en það þýðir
morð að yfirlögðu ráði án þess að
neinar málsbætur finnist. Hún var
dæmt til 25 ára fangelsisvistar, lífs-
tíðarfangelsins. Hún afplánar dóm-
inn í fangelsi i Arizona þar sem hún
framdi glæpinn.
Vandamál forríku frúarinnar
Hvers vegna leitaði hún á subbulegustu krár borgar-
innar og umgengst þar úrköst þjóðfélagsins?