Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Síða 3
Verið velkomin á Nesjavelli Nesjavallavirkjun er nú orðin stærsta gufuaflsvirkjun landsins. Af því tilefni býður Orkuveitan þér í heimsókn til Nesjavalla sunnudaginn 8. júlí. Komdu í skoðunarferð um stöðvarhúsið, sjáðu risavaxnar vélasamstæður virkj- unarinnar og kynnstu ógnarafli jarðorkunnar og fegurð náttúrunnar í návígi. Boðið verður upp á rjúkandi kaffi og meðlæti í Nesbúð. Opið verður frá kl. 10.00 til 17.00. Rútuferðir verða frá húsi Orkuveitunnar við Suðurlandsbraut 34, fyrir þá sem vilja, kl. 12.30 og 14.00, til baka frá Nesjavöllum kl. 15.00 og 16.30. Merktar gönguleiðir eru á svæðinu fyrir þá sem áhuga hafa á skemmtilegri gönguferð í fagurri náttúru Nesja- valla. Fræðslustígurinn er ein af þessum leiðum. í tilefni dagsins hefur verið gert sérstakt leiðarkort af stígnum en á honum eru upplýsingaskilti um staðinn og merkilega jarðsögu svæðisins. Reykjavíkur Stækkun úr 60 megavöttum í 90 Jarðhitinn er einhver mikilvægasta náttúruauðlind landsins. Jarðhitasvæðið á Nesjavöllum er hluti af háhitasvæði Hengilsins sem er með þeim öflugustu á landinu. Orkuveitan hefur nú stigið stórt skref til að mæta síaukinni raforkuþörf landsins en Nesjavallavirkjun afkastar nú 90 MWh. "Tll að setja þá stærð í samhengi má benda á að gamla Elliðaárvirkjunin framleiðir 3,2 MWh. Orkuþörf höfuðborgarinnar allrar er hins vegar 155 MWh. Stækkun virkjunarinnar hefur ekki í för með sér myndun eða stækkun á uppistöðulónum. Nesjavallavirkjun er umhverfisvæn gufuaflsvirkjun. Stækkun hennar er merkur áfangi sem gerir hana þá stærstu á landinu í dag. Upplýsingar um dagskrá í Elliöaárdal í sumar eru á www.or.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.