Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 15
15 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001 X>y__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Stormasamt hjónaband? John Thaw, öðru nafni Morse. Hann hefur greinst meö krabba- mein og berst fyrir lífi sínu. Slúðurblöðin gefa hjónabandi Madonnu og Guy Richie ekki mörg ár enda hafa sögur um ósætti í hjónabandinu þegar birst. Sagt er að Guy finnist erfitt að vera kvæntur stórstjörnunni þar sem hún sé hreint ekki auð- veld í sambúð. Einnig er sagt aö hjónin rífist ákaft vegna mál- verks eftir Fridu Kahlo sem er uppi við á heimili þeirra. Sagt er að Guy hafi andstyggð á málverk- inu sem sýnir konu fæða barn og því er einnig haldið fram að dótt- ur Madonnu, Lourdes, sé illa við málverkiö. Madonna mun eitt sinn hafa sagt að hún gæti aldrei vingast við þann sem líkaði ekki málverkiö. Blaðafulltrúi Madonnu harðneitar öllum þess- um sögum og segir þær tilbúning illgjarnra slúðurblaðamanna. „Þau eru mjög hamingjusöm hjón,“ segir blaðafulltrúinn. Madonna og Guy Slúðurblöö segja hjónaband þeirra vera aö renna út í sandinn. Thaw berst við krabbamein John Thaw er einn besti sjón- varpsleikari í heimi. Einna þekkt- astur er hann fyrir leik sinn sem Morse lögreglufulltrúi sem lést reyndar á skjánum fyrir ekki ýkja löngu og varð mörgum harmdauði. Thaw fæddist í Manchester og átti illa æsku. Móðir hans yfirgaf hann og bróður hans þegar Thaw var sex ára. Hún vildi njóta lífsins og seinna gerðist hún kráareigandi. Thaw var alinn upp af föður sínum sem var vörubílstjóri. Thaw lýsir foður sínum sem umhyggjusömum og ástrikum en hefur sem fæst orð um móður sína. Thaw var afar slak- ur námsmaður en fann mikla ánægju í leik i skólaleikritum og faðir hans hvatti hann til að leggja fyrir sig leiklist. Árangurinn hefur verið framúrskarandi. Nú berst John Thaw, sem er 59 ára, við krabbamein í vélinda og nýtur umhyggju seinni eiginkonu sinnar, Sheilu Hancock, sem hann hefur verið giftur í tuttugu og sjö ár. Thaw á dóttur af fyrra hjóna- bandi, dóttur með Sheilu og stjúp- dóttur. Hann hefur sagt að hann vilji eiga son: „Ég get ekki vanist húsi fullu af konum.“ Sagt er að margt sé líkt með Morse og Thaw, báðir fámálir einfarar. Linda Gray, fyrrum Sue Ellen Hún ték i Pikusögum á sviöi og ætlar nú aö leikstýra kvikmynd. Hvað varð af Sue Ellen? Linda Gray varð heimsfræg eft- ir leik sinn sem Sue Ellen i Dallas en hvarf svo að mestu úr sviðsljósinu. Nú er hún sextug, fráskilin og á tvö börn og eitt barnabarn. Linda segir Sue Ellen hafa verið athyglisveröustu kven- persónu sápuópera níunda ára- tugarins, þar sem hún hefði barist við vondan eiginmann fyr- ir tilverurétti sínum. Linda er þessa dagana að und- irbúa kvikmynd sem hún ætlar sjálf að leikstýra og jafnvel leika aðalhlutverkið í. Hún hefur ný- lokið leik í Píkusögum í Atlanta við mjög góðar viðtökur. Linda segist ekki óttast aldur- inn en segir bandarískt þjóðfélag heltekið af æskudýrkun. „Slíkt skapar gerviþrýsting,“ segir hún. Hún heldur sér í formi með lík- amsrækt, jóga og gönguferðum. andi Sleen -þegar þú vilt aofta vel Amerískar dýnur frá Serta og Sealy. Scandi Sleep boxdýnur frá Norðurlöndunum HÚSGAGNAHÖLLfN Bíldshöfða 20, 110 Reykjavik s. 510 8000, www.husgagnahallin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.