Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
19
I>V
Davíð Oddsson Sjón
Á Móeiöarhvoli. í Inghóli Svavars.
hann dvalist mikið á Eyrarbakka
við gerð skáldsögu sem á að koma
út fyrir næstu jól. Sjón segist á
Eyrarbakka kappkosta að vera
Sunnlendingur. Versla í kaupfé-
laginu þar á staðnum, kaupa í
matinn vörur frá sunnlenskum
framleiðendum og lesa um helstu
tíðindi í héraösblöðum.
Fleiri andans menn dveljast
einnig á Suðurlandi. Á sl. ári
keypti stórforstjórinn Ólafur Jó-
hann Ólafsson, í félagi við fleiri,
jörðina Götu í Hrunamanna-
hreppi. Þar standa nú yfir fram-
kvæmdir og ljóst er af þeim að
þarna eigi að verða sannkallaður
sælureitur. Gísli Sigurösson, list-
málari og fv. Lesbókarstjóri Mogg-
Bjarni Þórarinn Eidjárn
Daníelsson Skáldiö í Gull-
Kaffihús í Hólm- bringu.
inum. .
ans, situr löngum á óðali feðra
sinna í Úthlíð í Biskupstungum og
að Laugarvatni situr Ólafur Örn
Haraldsson þingmaður og skrifar
Pólsögur.
Breiðafjörður heiliar
Breiðafjaröarsvæöið heillar
einnig marga listamenn en þar
voru forðum helstu menningarset-
ur þjóðarinnar og helgir dómar.
Nýlega hafa Bjarni Daníelsson,
stjórnandi íslensku óperunnar, og
félagi hans, Björn Árnason, for-
maður Félags íslenskra hljómlist-
armanna, opnað kafFihús í Stykk-
ishólmi. Á Kjarláksvöllum á Fells-
strönd í Dölum er sumarsetur
Helga Þorgils myndlistarmanns
Friðjónssonar.
Breiðafjarðareyjar hafa einnig
verið vinsælar meðal listamanna.
Sigurjón Sig- Randver Þorláks-
hvatsson son
Annes og eyjar. Skíöastaöir á
Skaga.
í Flatey eiga til dæmis hús Atli
Heimir Sveinsson tónskáld og
Guðmundur Páll Ólafsson, ljós-
myndari og rithöfundur. Einnig
hefur aukist áhugi manna fyrir að
festa kaup á heilu eyjunum. Björk
Guðmundsdóttur söngkonu fýsti
um skeið aö kaupa Elliðaey á
Breiðafirði en ekkert varð úr
þeim kaupum. Annar listamaður
varð þó heppnari í eyjakaupum,
Sigurjón Sighvatsson kvikmynda-
framleiðandi, sem hreppti Arney.
Sú eyja liggur út af Skógarströnd
og þar á Sigurjón jörð og aöra til
á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þá
hefur Sigurjón, í félagi við Sigurð
Gísla Pálmason kaupsýslumann,
nýlega fest kaup á húseignum á
Eiðum á Héraði. Sjálfur á Sigur-
jón svo heilan fjörð fyrir austan,
Hellisfjörð, sem er skammt frá
Norðfirði.
Félagi Davíðs Oddssonar úr Út-
varp Matthildi, Þórarinn Eldjárn,
leitar uppruna síns á hverju
sumri og heldur norður í land og
situr þar við skriftir. Gullbringa í
Svarfaðardal var gamalt kot sem
tilheyrði höfuðbólinu Tjörn, þar
sem Kristján Eldjárn, forseti Is-
lands, faðir Þórarins, var fæddur
og uppalinn. Gamla húsið í Gull-
bringu, sem byggt var árið 1912,
var í eigu Kristjáns en þar á eftir-
lifandi fjölskylda hans sér nú
sælureit. „Ég fer norður í sumar
og ætla ég að vera þar í bygginga-
framkvæmdum,“ segir Þórarinn
sem ætlar með Ingólfi bróður sín-
um að stækka húsiö í Gullbringu.
En þótt hamarinn og sögin verði
helstu verkfæri Þórarins í sumar
verður fartölvan ekki langt und-
an. Skáld þarf alltaf að geta sest
niður og skrif-
að. Væntanleg
er frá hendi
Þórarins í haust
ljóðbók „ ... fyr-
ir börn og
barnalegt fólk,“
eins og hann
sjálfur kemst að
orði. „Ég er að
mestu búinn að
koma henni frá
mér en vel má
vera að ég
breyti einhverju
ef ég fæ nýjar hugljómanir," segir
Þórarinn sem telur gott fyrir lista-
menn eins og raunar alla aðra að
geta reglulega skipt um umhverfi.
Ekki endilega að fara út á land
heldur eitthvað þangað sem fólk
hristir upp í sjálfu sér.
Úr Svarfaðardalnum sést síðan
út í Hrísey þar sem Árni Tryggva-
son leikari rær til fiskjar á hverju
sumri og á sunnanverðri eynni er
Kristófershús, þar sem Ingólfur
Margeirsson hefur mörg sumrin
setið við ævisagnaskrif.
Edda Helörún
Bachman
Kaupir í Bjarnar-
firöi.
Sumarsetur leikaranna
Leikarar landsins hafa einnig
margir hverjir komið sér upp sumar-
setrum úti á landi þar sem þeir sitja
löngum. Þarna má nefna þá Jóhann
Sigurðarson og Sigurð Sigurjónsson
sem veiða mikið í Hörðudalsá í Döl-
um, enda leigutakar árinnar. Félagi
Sigurðar úr Spaugstofunni, Randver
Þorláksson, er síðan talsvert á sumri
hverju á jörðinni Skíðastöðum á
Skaga sem er skammt norður af
Sauðárkróki. Jöröina á Randver við
sjötta mann. „Við höfum átt þessa
jörð í ellefu ár, eignuðumst hana
löngu áður en það varð að einhverri
mannadellu að kaupa sér jarðir," seg-
ir Randver, sem segir að á Skíðastöð-
um kappkosti menn að slappa af og
„vera til“ eins og hann kemst að orði.
Fleiri leikarar hafa einnig átt
sér verustað úti á landi þangað
sem þeir leita til að hlaða batterí-
in fyrir störf á leiksviðinu sem oft
eru átakamikil. Á Þurá i Ölfusi er
sumarsetur Gunnars Eyjólfsson-
ar, Edda Heiðrún Backman hefur
nýlega keypt jörð í Bjarnarfirði á
Ströndum, Gísli Alfreðsson og
Bessi Bjamason eiga sér sumar-
hús austur við Þingvallavatn og í
Borgarfirði er sumarhöll sjálfs
Þjóðleikhússtjórans, Stefáns Bald-
urssonar.
-sbs
jg^Smáauglýsingar
sölutilkynningar
og afsöl
DV
550 5000
Meö 10 raða seðli í Lottóinu* færðu miða sem gefur þér möguleika á
að komast í dagsferð með fjölskylduna til Kaupmannahafnar- í Tívolí!
Á hverjum laugardegi í sumar verður Tívolífarmiði dreginn út í beinni
útsendingu á Stöð 2, Sýn og Rúv. Hver miði gildir fyrir f/óra!
Taktu tíu raðir og komdu með til Köben - í Tívolí!
"Gildir einnig fyrir Víkingalottó.
AUK 700-1-824 sia.is