Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
I>V
Helgarblað
Kerfið
er á
stöðug-
um
flótta
- Jón Ólafur Skarphéðinsson segir frá
sonarmissi og baráttunni fyrir
sannleikanum um Skerjafjarðarflugslysið
„í okkar baráttu fyrir aö hið
sanna og rétta um flugslysið í
Skerjafirði verði leitt í ljós hefur
aldrei verið þrýst á okkur um að
hætta baráttunni, þvert á móti.
Hins vegar hafa viðbrögð kerfis-
ins ekki verið uppörvandi. Kerfið,
með örfáum undantekningum,
hefur verið á stöðugum flótta und-
an staðreyndum málsins og því að
sannleikurinn verði leiddur í ljós.
Ég hef það á tilfmningunni að
hvarvetna í kerfinu sé verið að
reyna að setja lok á pottinn."
„Hvítþvottur meö sterkrl
klórblöndu*
Þetta segir Jón Ólafur Skarp-
héðinsson, faðir Jóns Barkar
Jónssonar, sem lést þann 16. júní
sl. af völdum flugslyssins í Skerja-
firði um verslunarmannahelgina í
fyrra. Jón Börkur lést síðastur
þeirra sem lentu í þessu slysi en
sex manns voru í flugvélinni.
Flugslysanefnd hefur fyrir nokkru
skilað skýrslu um orsakir slyssins
en Jón Ólafur og fleiri hafa gagn-
rýnt harðlega þá rannsókn.
í sl. viku kom svo úttekt frá Al-
þjóðaflugmálastofnuninni þar sem
segir að eðlilega hafí verið staðið
að rannsókn slyssins. Jón Ólafur
gefur ekki mikiö fyrir þá úttekt,
segir hana vera pantaðan „hvít-
þvott með sterkri klórblöndu",
eins og hann kemst að orði.
Beiöni Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra til Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar um áður-
nefnda úttekt hafi verið þannig
sett fram að niðurstaðan hafi
varla getað orðið önnur. Fyrst og
fremst hafi beiðnin snúist um að
kannaðar yrðu starfsaðstæður
Flugslysanefndar en hins vegar
hafi ekki verið farið ofan í
saumana á Skerjafjarðarslysinu
rétt eins og brýn nauðsyn væri á.
Til þess hafi hinir erlendu skoð-
unarmenn ekki haft umboð. Allt
beri þetta glöggan vitnisburð um
flótta kerfisins undan staðreynd-
um málsins.
Skelfilegt ástand
„Þetta er búin að vera mikil lífs-
reynsla," sagði Jón Ólafur þegar
hann settist niður með blaða-
manni DV á skrifstofu sinni í
Læknagarði Háskóla íslands. Jón
Ólafur er prófessor í lífeðlisfræði,
sem hann segir að hafi vissulega
gefið sér vissa innsýn í þá óskap-
legu baráttu sem sonur hans háði
allt þar til yfir lauk. Jón Börkur
dvaldist lengstum á Landsspítal-
anum í Fossvogi og var þar í
MYNDIR E.ÓL.
Faölrlnn
„Ég vissi fljótlega að ástand Jóns Barkar væri alvarlegt en gaf ekki upp vonina og vonaöi aö hann kæmist út úr
þessu nokkurn veginn óskaddaöur. Síöar uröu staöreyndir Ijósar og baráttan viö ástand hans fór aö snúast um einn
dag í einu - og stundum skemmri tíma," segir Jón Ólafur Skarphéöinsson meöal annars hér í viötalinu.
höndum frábærs starfsfólks, segir
faðir hans. „Ég vissi fljótlega að
ástand Jóns Barkar væri alvarlegt
en gaf ekki upp vonina og vonaði
að hann kæmist út úr þessu
nokkurn veginn óskaddaður. Síð-
ar urðu staðreyndir ljósar og bar-
áttan við ástand hans fór að snú-
ast um einn dag í einu - og stund-
um skemmri tíma.“
Jón Börkur hlaut í raun lítil sjá-
anleg meiðsl í slysinu. „Hann
hlaut hins vegar mjög þungt höf-
uðhögg, áreiðanlega þegar vélin
skall í sjóinn. Ástand Jóns Barkar
var í rauninni skelfilegt. Hann gat
ekkert tjáð sig og lítið sem ekkert
hreyft sig viljastýrt. Þá fékk hann
tíð spennu- eða spasmaköst sem
fólu í sér gífurlega líkamlega
áreynslu og þá rennsvitnaði hann.
Ég fór til dæmis oftast til hans
seinnipartinn og sat hjá honum
fram yfir miðnætti. Eftir þann
tíma fór ég stundum heim með
þrjá umganga af fotum sem hann
hafði rennbleytt af svita við
áreynsluna," segir Jón Ólafur.
Vlnlr velttu mlkinn stuftn-
Ing
Flugslysið í Skerjafirði varð
þann 7. ágúst í fyrra. Jón Ólafur
og Hólmfríður Jónsdóttir, eigin-
kona hans, voru, ásamt dætrum
sínum tveimur, stödd fyrir austan
fjall og ætluðu á Selfoss að sækja
Jón Börk og Sturlu vin hans á Sel-
ORFA SKREF
SEM GERA
SÓLBAÐIÐ
NOTALEGRA:
1. Röltu niður á strönd með bakpokann 2. Taktu koddann upp úr bakpokanum, 3. Dragðu handklæðið upp úr bakpokanum
á bakinu. blástu hann upp og lokaöu fyrir loftgatið. og snúðu honum á rönguna.