Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Blaðsíða 14
14 Helgarblað LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001 DV Hörð átök í uppsiglingu á hluthafafundi Lyfjaverslunar íslands: Skólabókardæmi um siðleysi í viðskiptum - segir Jón Steinar Gunnlaugsson. Kaupin á Frumafli valda deilum Búast má við hörðum átökum á hluthafafundi Lyfjaverslunar ís- lands sem haldinn verður næstkom- andi þriðjudag. Á dagskrá fundar- ins eru umdeild kaup félagsins á Frumafli ehf. en stjórn félagsins er klofín í málinu. Tveir stjórnar- manna hafa ásamt hópi hluthafa gengið hart fram í að koma í veg fyrir fyrrgreind kaup. Þeir hafa ekki haft árangur sem erflði því kröfu þeirra um lögbann á kaup- samninginn var hafnað fyrir hér- aðsdómi fyrr í vikunni. Minnihlut- inn mun á fundinum bera tillögu undir atkvæði þar sem farið er fram á að kaupsamningi félagsins á öllu hlutafé í Frumafli ehf. verði rift. Að þeirra mati er kaupverðið of hátt og með kaupunum sé stjórn félagsins að hygla einum hluthafa í stað þess að gæta hagsmuna allra hluthafa. Grimur Sæmundsen, stjórnarfor- maður Lyfjaverslunarinnar, hefur hins vegar sagt í fjölmiðlum að samninginn verði að skoða i sam- hengi með nýlegum kaupum félags- ins á A. Karlssyni og Thorarensen Lyfjum. Kaupin á þessum félögum eru að sögn Gríms hluti af framtíð- arsýn Lyfjaverslunarinnnar. Keyptu allt hlutaféð Jóhann Óli Guðmundsson var fyrir hinn umdeilda samning annar stærsti hluthafinn í Lyfjaverslun Is- lands og um leið aðaleigandi Frum- afls. Frumafl er síðan helsti eigandi Öldungs hf. en þar eru íslenskir að- alverktakar einnig hluthafar. Öld- ungur er dótturfyrirtæki Frumafls og hefur með höndum byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis við Sóltún í Reykjavik. Frumafl á engar „eignir" fyrir utan ársgamlan samn- ing Öldungs viö ríkið um rekstur hjúkrunarheimilis. Hann tekur á greiðslu ríkisins á rekstrardaggjöld- um upp á 11.880 krónur og húsnæð- isdaggjald upp á 2.420 krónur á legu- dag fyrir hvert rými. Samtals gæti þar verið um að ræða 1.287.000 króna greiðslu á dag frá ríkinu vegna 90 einstaklinga, eða 469.755.000 krónur á ári miðað við verðlag í ágúst ‘99. Samningur þessi gildir til 25 ára. Þrátt fyrir mótbárur tveggja stjórnarmanna og hóps hluthafa var formlega gengið frá kaupunum á Frumafli á stjórnarfundi þann 20. júní sl. Lyfjaverslunin keypti þá allt hlutafé Frumaíls þrátt fyrir að í minnisblaði stjórnar væri kveðið á um kaup á 44,4% hlut en kauprétt á öðrum hlutum. Jóhann Óli Guð- mundsson, seljandi Frumafls, fékk greitt með hlutabréfum, að nafn- virði 170 milljónir króna, og varð þar með stærsti hluthafi Lyfjaversl- unarinnar, með 35,2% eignarhlut. Aðalsteinn Karlsson var fyrir kaup- in á Frumafli stærsti hluthafi fé- lagsins, með 10,77% hlut en er nú næststærstur. Gilt samkomulag? Minnisblað og yfirlýsing stjórnar frá því í janúar hefur verið undirrót deilnanna innan Lyfjaverslunarinn- ar. Meirihluti stjórnar heldur því fram að minnisblaðið og yfirlýsing- in sé bindandi samkomulag og kveð- ur þá sem hafa siðan þá reynt að hindra kaupin vera að svíkja sam- komulag. Tveir stjórnarmanna halda því hins vegar fram að minn- isblaðið hafi aldrei verið annað og meira en innanhússplagg þar sem menn gáfu yfirlýsingu um vilja sinn til kaupa á Frumafli - en ekki á hvaða verði sem er, eins og einn hluthafi orðaði það. Harðar deilur eru innan Lyfjaverslunar um kaupin á Frumafii ViIhjálmur Bjamason, formaöur Fétags fjárfesta, heldur því fram í Viöskiptablaöinu aö tjón hvers hinna smæstu hlut- hafa veröi aö lágmarki um 200 þúsund krónur ef samningurinn viö Frumafl verður samþykktur. Jón Steinar Grímur Gunnlaugsson. Sæmundsen. Aöalsteinn Lárus Blöndal. Karlsson. ila liggur fyrir. Það eru skýr fyrir- mæli um það í lögum. Menn verða að meta hvort þetta er það siðferði sem eigi að ríkja í þeim hlutafélög- um sem almenningur er að kaupa hluti 1 á almennum markaði. Það rýrir það traust á þeim mönnum sem hafa valist til forystu í þessu al- menningshlutafélagi. Vonandi eru aðrir meira trausts verðir annars staðar," segir Jón Steinar. Grímur Sæmundsen hefur í bréfi til hluthafa sagt að það sé ekki hægt að hnekkja þessu máli á hluthafafund- inum, sem eru ummæli sem koma mér á óvart, því fundurinn er hald- inn til þess að okkar beiðni að ógilda samninginn. Það er undar- legt ef ekki á að fjalla um málefni sem er tilefni fundarins.“ Óljóst um atkvæði Jóhann Óli Guðmundsson er stærsti hluthafi Lyfjaversluninnar, eftir söluna á Frumafli, og á 35,12% hlut. Ekki er ljóst hvort Jóhann Óli getur i skjóli eignarhluta síns greitt atkvæði um tillögu á fundinum sem varðar hann sjálfan. „Ef einhver fundarstjóri ætlar að úrskurða honum atkvæðisrétt um tillöguna, þá er það hreinasta of- beldi. Það er alveg ljóst að Jóhann Óli getur ekki tekið þátt í atkvæða- greiðslu um tillögu sem varðar hann sjálfan," segir Jón Steinar og vísar í lokamálsgrein 88. greinar hlutafélagalaga þar sem segir að hluthafa sjálfum sé óheimilt að, eða sem umboðsmanni fyrir aðra, að taka þátt í atkvæðagreiðslu á hlut- hafafundi um málssókn gegn hon- um sjálfum eða um ábyrgð hans gagnvart félaginu. „Ég veit ekki hver verður fundarstjóri en von- andi verður leitað eftir samkomu- lagi gagnaðila um það hver stýrir fundinum. Menn hljóta að vera til- búnir að samþykkja að það sé hlut- laus aðili, t.d. ekki lögmaður Lyfja- verslunarinnar, heldur til dæmis einhver frá Verðbréfaþingi,“ segir Jón Steinar og bætir við að sér muni ekííi koma á óvart að eigi eftir að koma til valdbeitingar varðandi fundarstjórnina. Klofin stjórn og yfirvofandi átök hluthafa í Lyfjaverslun íslands Þrátt fyrir mótbárur tveggja stjórnarmanna og hóps hluthafa var formlega gengiö frá kaupunum á Frumafli á stjórnarfundi þann 20. júní sl. Lögfræðingar voru kallaðir til til að skera úr um lögmæti minnis- blaðsins og hefur meirihlutinn und- ir höndum álit Magnúsar Thorodd- sen hrl. Hann kemst að þeirri niður- stöðu að kominn hafi verið á bind- andi kaupsamningur með minnis- blaðinu og yfirlýsingunni frá því í janúar. Öndverða niðurstöðu er að finna i álitsgerð Hreins Loftssonar hrl. sem hann gerði fyrir fjóra af fimm stjórnarmönnum síðustu stjórnar. Vart boðleg vara Hluthafar í Lyfjaverslun íslands eru rúmlega 800 og Ðestir eiga litinn hlut. Algengasti hlutur einstaklinga er kr. 186.567 eða 0,03% eignarhlut- ur. Að undanförnu hefur gengi bréfa í félaginu verið í kringum 5,2. Vilhjálmur Bjamason, formaður Félags fjárfesta, heldur þvi fram í Arndís Þorgeirsdóttir og Geir A. Guðsteinsson blaöamenn Viðskiptablaöinu að tjón hvers hinna smæstu hluthafa verði að lág- marki um 200 þúsund krónur ef samningurinn við Frumafl verður samþykktur. Jafnvel geti orðið um altjón því hlutabréf i Lyíjaverslun íslands verði vart boðleg vara á markaði ef viðskiptasiðferði þessa gjörnings muni ráða ríkjum í starf- semi Lyfjaverslunarinnar. „Samningurinn um Frumafl er skólabókardæmi um siðleysi í ís- lensku viðskiptalífi að mati þeirra manna sem að þessu máli hafa kom- ið enda hefur stór hluthafi í félag- inu fengið að ráða meirihluta stjórnarmanna og er að eiga við- skipti við félagið um eign sína sem er metin á um einn milljarð króna, en þar er næstum allt verðmætið, ófjárhagsleg verðmæti, eitthvað „goodwill," hugargerð um það sem eigi að gerast í framtíðinni. Þetta er gert áður en þessum samningum er ráðið til lykta og mat hlutlausra að- Titringur fyrir fund Augljóst er að mikils titrings gæt- ir meðal margra hluthafa fyrir fund- inn á þriðjudag. Lárus Blöndal, lög- maður og stjórnarmaður, segir að töluvert sé um það að boðin hafi verið fram umboð frá smærri hlut- höfum, en þó án greiðslu, til þess að reyna að hnekkja þessum áformum, og hann telur að sterk undiralda sé í þá átt. „Mönnum er ekki heimilt að taka afstöðu til málssóknar gegn sér, og það getur varla vafist fyrir fundar- stjóra, hver svo sem hann verður. Hluthafar með Margeir Péturs- son i fararbroddi sendu á dögun- um frá sér yfirlýsingu þar sem þeir hvetja alla hluthafa til að mæta til fundarins og eða láta öðr- um hluthöfum umboö í té. í yfir- lýsingunni segjast þeir munu beita sér fyrir því að samningur Lyfja- verslunarinnar og Jóhanns Óla um hlutabréf í Frumafli verði ógiltur eða honum rift. Þeir telja samninginn á engan hátt þjóna hagsmunum Lyfjaverslunar ís- lands og staðið hafi verið með óeölilegum hætti að gerð hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.