Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Side 4
4 Fréttir Skiptar skoðanir um umhverfisáhrif stóriðju á Austfjörðum: Reyðarfjörður óheppilegur - hvorki iðnaðarráðherra né umhverfisráðherra vilja tjá sig Á miðnætti rann út frestur til að skila umsögnum til Skipulagsstofn- unar vegna mats á umhverfisárhrif- um álvers í Reyðarfirði. Flestir sem skilað höfðu áliti í gærmorgun voru jákvæðir út í framkvæmdina en mjög neikvæð sjónarmið finnast einnig og leggst Náttúruvernd ríkis- ins einkum gegn henni. Eins og DV hefur greint frá telur NR að mikil mengun muni hljótast af álverinu sem ógni lífríki. Kringumstæður séu óheppilegar í Reyðarfirði, stað- setningin sé slæm fyrir stóriðju. Þar er m.a. horft á loftmengun sem verði langt fyrir ofan viðmiðunar- mörk. Innlent fréttaljós Björn Þorláksson blaðamaður Vönduð vinna Gunnar Guðni Tómasson, verk- fræðingur hjá VST, sem séð hefur um mikla vinnu fyrir Reyðarál, vill ekki svara athugasemdum NR í fjöl- miðlum að svo stöddu. Hann segir að Reyðarál eigi eftir að svara þessu formlega til Skipulagsstofnunar og fyrst að því loknu telji hann rétt að tjá sig. Almennt segir Gunnar hins vegar að hann geti verið sammála því að Reyöarfjörður sé ekki heppilegasti staður landsins undir stóriðju með tilliti til loftdreifingar. T.d. væri Reykjanesið betra í því tilliti en það breyti þvi ekki að niðurstaða mats- ins sýni að loftslagsstraumar séu þannig í Reyðarfirði að mengun verði innan viðmiðunarmarka. Hann telur að vinna við gerð um- hverfismatsins hafi verið vönduð í hvívetna og bendir á að flestir þeirra sem skilað hafi umsögn séu jákvæðir gagnvart framkvæmdinni. Afar viðamiklar mælingar hafi ver- ið gerðar sem sýni að þarna sé hægt að reisa stóriðju. Kemur ekki á óvart Náttúruvernd ríkisins hafði í fyrri umsögn talið að hámarks af- kastagesta álversins væri 120 þús- und tonn en svo kann að fara að þama rísi 420 þúsund tonna ver ásamt rafskautaverksmiðju. Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Bakslag Náttúruvernd ríkisins telur að mikil mengun muni hljótast af álveri við Reyðarfjörð. Kringumstæður séu óheppilegar í Reyðarfirði, staðsetningin sé slæm fyrir stóriðju. Innfellda myndin er tölvumynd af fyrírhuguðu álveri. . Halldór Valgeröur Asgrímsson. Sverrisdóttir. vinstri grænna, segir að álit NR komi sér ekki á óvart. „Nei, þeir sem skoðuðu gögn sem tengdust byggingu mun minna álvers á sin- um tíma töldu að þá væri þegar far- ið fram á ystu nöf vegna náttúrlegra aðstæðna í Reyðarfirði. Menn eru að tala um 420.000 tonna álver og matið gengur út frá því. Ég held að það geti ekki komið neinum á óvart að svona risaálver í þröngum firði hljóti að vera mjög krítískt. Þá er ég að tala um loftmengunina og álagið á vistkerfið," segir Steingrímur. Hryllileg skoðun Halldórs Umræðan um stóriðjuframkvæmd- ir á Austurlandi hefur ekki síst litast af byggðasjónarmiðum og meintri efnahagsþörf. Þannig setti Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins, þetta tvennt í öndvegi í Siv Steingrímur J. Friöleifsdóttir. Sigfússon. tengslum við mikilvægi stóriðju í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum Alþingis í vor. Steingrímur telur að þarna sé formaður Framsóknar á villigötum. „Það er ömurleg umræða að stilla dæminu þannig upp að þetta sé byggðamál og ef menn vilji ekki stóriðju þá verði þeir að koma með eitthvað annað. Stóriðjuframkvæmd- ir af þessari stærðargráðu geta aldrei og verða aldrei innlegg í umræðu um byggðamál. Stóriðjur munu aldrei leysa neinn heildarvanda atvinnu- eða byggðamáia." Steingrímur segir að stóriðjur hafi aðeins svæðisbundin áhrif en það sé „absúrd" að halda þeim fram sem al- mennum aðgerðum á sviði byggða- mála.Framsóknarflokkurinn hefur hins vegar lagt afar ríka áherslu á stóriðjumálin en Steingrímur fer hörðum orðum um sýn Halldórs Ás- grímssonar í þeim efnum. „Hann er með svo hryllilega uppstillingu - það sem ég kalla álnauðhyggjuna. Það merkir að okkur séu allar bjargir bannaðar ef við fáum ekki stóriðjur. Hann sá hvergi glætu í annarri at- vinnuuppbyggingu og maður fyllist skelfingu ef það hugarfar er ráðandi hjá landsfeðrunum." Vantar valkost DV náði tali af iðnaðarráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, í gær en hún sagðist ekki vilja tjá sig um skoðun NR. Siv Friðleifsdóttir seg- ist af stjórnsýslulegum ástæðum ekki geta tjáð sig um málið. Hægt sé að kæra umhverfismat til æðra stjórnvalds sem er hennar eigin ráðuneyti og með því að tjá sig um athugasemdir NR nú væri hún kom- in út fyrir ramma ráðuneytisins. Enginn stjórnarþingmaður sem DV ræddi við vildi tjá sig um málið á þessu stigi. Hins vegar komu þau sjónarmið fram að það væri hlut- verk Náttúruverndar ríkisins að draga fram allt sem gæti nýst nátt- úrunni sem best en umhverflsmat væri margþætt og flókið ferli sem tæki til margra annarra hluta. Ekk- ert hefði komið fram sem leyst gæti stóriðjuáform af hólmi og sá væri höfuðpunkturinn. LAUGARDAGUR 7..JÚLÍ x> Sláturhúsum fækkar: Goði kaupir ekki lambakjöt Goði kemur ekki til með að kaupa lambakjöt af bændum þegar sauð- fjársláturtíð hefst i haust. Eins og áður hefur verið getið í DV fækkar sláturhúsum félagsins um helmingj úr átta í fjögur. Ekki verður slátrað á Breiðdalsvík, Búðardal, Þykkva- bæ og Hólmavík auk þess sem líkur eru á að ekki verði slátrað i stórt gripasláturhúsinu á Hellu. Mikil óá- nægja ríkir í Dölunum með þá ákvörðun að leggja niður starfsemi sláturhússins i Búðardal, en húsið hefur verið mikilvægt atvinnulífi staðarins því um tíundi hver íbúi starfar þar yfir sláturtíðina. Kristinn Þór Geirsson, fram- kvæmdastjóri Goða, telur það vera of mikla áhættu fyrir fyrirtækið að kaupa kjötið. Mikil óvissa ríkir um sölu á kjötinu í dag. -GG Bíllinn niður í skurð Tveir menn um tvítugt veltu bíl niður í skurð á veginum við golfvöll- inn á Akureyri í fyrrakvöld. Bílinn höfðu þeir nýlega keypt á 5 þúsund krónur en hann var óskráður og núm- erslaus. Mennina sakaði ekki. Þrjú minni háttar óhöpp urðu í um- dæmi Akureyrarlögreglu í gær, eitt á Öxnadalsheiði en tvö innanbæjar en meiðsli voru ekki alvarleg. Þá var nokkuð þung umferð í bænum, enda þúsundir aðkomumanna á Akureyri mættar til bæjarins vegna tveggja knattspyrnumóta. -gk Mikil skerðing Sturlaugur Haraldsson, sölustjóri HB, á bryggluspjalli. 400t skeröing á þorski hjá HB Á næstu vertíð verður þorskkvót- inn skorinn niður um 30 þúsund tonn og segir Sturlaugur Haraldsson, sölu- stjóri hjá HB hf„ að skerðingin nemi rúmum 400 tonnum af þorski fyrir fyrirtækið. „Hins vegar fáum við á móti aukn- ingu í karfa og sild sem vegur skerð- inguna upp að einhverju leyti. Auk þessa virðist verð á fiskimjöli og lýsi vera á uppleið þessa dagana sem mun hafa jákvæð áhrif á reksturinn," sagði Sturlaugur. -DVÓ Veöriö í kvöld Sólargangur og sjávarföJI REYKJAVIK AKUREYRI mmssm wfíMiíSi v,-,-5) \ r % itr-, 'i ./VO) iai- nik, V.V8Á ÍW" 4 4 4 ur\ lv.5) Hlýtt norðaustanlands Skúrir eöa rigning vestan og sunnan til. Hætt við síðdegisskúrum noröaustanlands. Hiti 8 til 18 stig, en um og yfir 20 stig í innsveitum norðaustanlands. Sólarlag í kvöld 23.46 00.13 Sólarupprás á morgun 03.07 02.17 Síödegisflóö Árdegisflóð á morgun 19.29 07.46 24.02 12.19 SkýringM á veöurtáknum KviNDATT 10 V- HITI X -10“ > VINDSTYRKUR ! awtnim i wkl'mdu f HBOSKlRT %> LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ o ALSKVJAO ‘av RIGNING SKÚRIR ct«:t SLYDDA SNJÓKOMA hf ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞÖKA . . %4 ■ . < L ' Httt 10 -18 stlg Hlýlast é Nofturlandt TM 'fmzm:Mnuu Ferðahelgi brostin á Ökumenn eru beðnir aö sýna aðgæslu og varúð á vegunum svo allir eigi ánægjulega daga. Upplýsingar um ástand vega er aö finna á heimasíöu vegagerðar www.vegir.is Súld eða rigning sunnanlands Suðaustlæg átt og víöa súld eða rigning sunnanlands en þurrt að mestu norðaustan til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðurlandi. Manudagur Vindur: /-r'' 5-8 m/s Hiti 7° til 12° Nor&austlæg átt, 5-8 m/s og vi&a dálítll rlgnlng í fyrstu en styttir smám saman upp su&vestanlands. Heldur kölnandl ve&ur. Þriðjudagui Vindur: C Hiti 6” til 11° »V» Norðlæg átt, víða dálitll væta og fremur kalt i ve&rl. Veðrið M.12 AKUREYRI skýjað 17 BERGSSTAÐIR úrkoma í gr. 14 BOLUNGARVÍK skýjað 10 EGILSSTAÐIR 19 KIRKJUBÆJARKL. skúr 12 KEFLAVÍK súld 11 RAUFARHÖFN skýjað 12 REYKJAVÍK skúr á síð. klst 12 STÓRHÖFÐI súld 10 BERGEN hálfskýjað 20 HELSINKI léttskýjað 27 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 26 ÓSLÓ léttskýjaö 26 STOKKHÓLMUR 29 ÞÓRSHÖFN þokuruðningur 11 ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 18 ALGARVE skýjað 20 AMSTERDAM skýjaö 26 BARCELONA mistur 25 BERLÍN léttskýjað 30 CHICAGO hálfskýjaö 15 DUBLIN skýjað 19 HAUFAX þoka 13 FRANKFURT léttskýjaö 29 HAMBORG léttskýjaö 29 JAN MAYEN þoka 5 LONDON mistur 22 LÚXEMBORG léttskýjaö 26 MALLORCA léttskýjaö 28 MONTREAL léttskýjaö 11 NARSSARSSUAQ léttskýjaö 8 NEW YORK léttskýjaö 18 ORLANDO alskýjaö 24 PARÍS skýjaö 25 VÍN léttskýjaö 28 WASHINGTON heiöskírt 18 WINNIPEG 17 T7TTTW

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.