Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Síða 26
26
Helgarblað
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
I>V
Margslungin og
harmræn
dragdrottning
- segir Björgvin Franz Gíslason sem fer með
aðalhlutverkiö í Hedwig, glamúrsöngleik sumarsins
„Söguþráður líkur þeim sem er í
söngleiknum Hedwig held ég að af-
skaplega víða megi finna. Eða erum
við ekki alltaf að leita eftir hinum
helmingnum af okkur, ástinni sem all-
ir þrá,“ segir Björgvin Franz Gíslason
leikari. Á fimmtudagskvöld var frum-
sýnd í Loftkastala Leikfélags íslands
glamúrrokksöngleikurinn Hedwig,
þar sem segir frá samnefndri persónu.
Björgvin Franz fer með það hlut-
verk i sýningunni, sem hefur farið
sigurfór víða um heiminn að undan-
fórnu, svo sem í Bandaríkjunum og
Bretlandi.
Með sólópróf yfir Atiands-
hafið
„Ég vil hvorki skilgreina þetta sem
leikrit eða söngleik. Mér fynnst
glamrokksýning eiga ágætlega við“
segir Björgvin, þar sem hann situr
með blaðamanni og segir undan og
ofan af þessari sýningu. Björgvin út-
skrifaðist frá leiklistardeild Listahá-
skóla Islands fyrir um mánuði síðan
og kveðst í raun strax hafa dottið í
lukkupottinn með því að fá þetta hlut-
verk. „Það er ótrúleg reynsla að glíma
við þetta verkefni, að takast á við risa-
hlutverk í svona söngleik þar sem ég
syng flest lögin sjálfur og það lög af
ýmsum toga. Ég er mjög þakklátur
fyrir þetta tækifæri og það traust sem
mér er sýnt með því að taka þetta að
mér. Þetta er eins og flugmaöur sem
er nýkominn með sólóprófiö fái að
fljúga yfir Atlandshafið með fullt af
farþegum."
í söngleiknum Hedwig segir frá
samefndri persónu, kynlausri veru,
sem fæddist sem karlmaður í Austur-
Berlín á sjöunda áratugnum. Til að
komast yfir múrinn illræmda og í hið
vestræna frelsi ákvað hann að giftast
bandarískum hermanni. Sá galli var
hinsvegar á gjöf Njarðar að þá þurfti
Hedwig að gangast undir kynskiptiað-
gerð. Aðgerðin mislukkaðist og eftir
hana eru æxlunarfærin heldur óásjá-
leg og eftir stendur lítið eitt af holdi -
ein reið rest - þannig að Hedwig verð-
ur í raun hvorukyns. Síðan flytja þau
hjónin til Bandaríkjanna, Hedwig og
hinn ameríski bandaríski hermaöur.
Þau skilja og ári síðar fellur Berlínar-
múrinn. Þá sér Hedwig hvernig þetta
brölt hans hefur verið til lítils þegar
allt kemur til alls. „... en Hedwig seg-
ir frá þessum frekar sorglegu atburð-
um á broslega-kaldhæðinn hátt,“ seg-
ir Björgvin.
Afar ýkt dragdrottning
„Þetta gerist á tónleikum hjá Hed-
wig og Reiðu restinni þar sem hún fer
að segja sögu sína. Hedvig kemur
áhorfendum fyrir sjónir sem afar ýkt
dragdrottning til að byrja með, þegar
líða tekur á verkið kemur í ljós marg-
brotin, harmræn manneskja" segir
Björgvin, sem vill þó forðast að segja
söguna alla í stuttu blaðaviðtali.
Væntanlegir áhorfendur verði að upp-
lifa spenninginn sem leikhúsferð eigi
að fylgja.
Með hitt aðalhlutverkið í sýning-
unni fer Ragnhildur Gísladóttir, þar
sem hún leikur rótara í hljómsveit
Hedwig. „Þetta eru mjög óvenjuleg
skipti í þessu, það að Ragga leiki
karlamann og sé ekki í frontinum í
svona leiksýningu," segir Björgvin.
„Tónlistin í sýningunni er mjög
mögnuð, spannar alla flóruna, allt frá
ballöðum upp í pönk,“ segir Björgvin.
Hljómsveitina Reiðu restina skipa val-
inkunnir tónlistarmenn; þeir Karl 01-
geirsson, Jón Ólafsson, Birgir Bald-
ursson, Guðni Fransson,. Stefán Már
Magnússon og Pétur Þór Benedikts-
son sem allir fara með ákveðin hlut-
verk í leiksýningu þessari.
Fólk er aö finna sjálft sig
Sýningunni um Hedwig var fagnað
með dúndrandi lófataki þegar hún var
frumsýnd sL fimmudagskvöld. Hún
verður á fjölunum í allt sumar og er
Björgvin Franz bjartsýnn á góða að-
sókn. „Það geta sjálfsagt margir sam-
samað sig þeim söguþræði sem við
sjáum í Hedwig, þótt ég voni að leit
fólks eftir fórunaut sé yfirleitt ekki
jafn harmræn og þarna greinir frá. En
sagan er góð og spennandi og það er
því sjálfsagt ekki að ástæðulausu sem
þessi saga hefur farið sigurför um
heiminn, fyrir því er sjálfsagt sú
ástæða að fólk er að finna sjálft sig
með einhverju móti.“ -sbs.
DV-MYND HARl
I gervi Hedwlgs
„Þaö geta sjálfsagt margir samsamaö sig þeim söguþræöi sem viö sjáum í
Hedwig, þótt ég voni aö leit fótks eftir förunaut sé yfirleitt ekki jafn harmræn
og þarna greinir frá," segir Björgvin Franz hér í viötalinu.
Kynlíf
Strákasæla
Ragnheiður
Eiríksdóttir
skrifar
um kyniíf
Jæja, þá er loksins komið að þvi að
sinna karlpeningnum eitthvað. Þó að
þessar elskur eigi hug minn og hjarta
verð ég að játa að upp á síðkastið hef
ég alls ekki nógu oft helgað skikann
holdlegu nautnum þess helmings
mannkyns sem ég tilheyri ekki. Eftir
ávítur og gagnrýni strákanna í hverf-
inu finn ég mig því knúna til að snúa
blaðinu algjörlega við og tilkynni hér
með að pistill dagsins inniheldur, eft-
ir þessa málsgrein, einungis upplýs-
ingar um það hvernig hægt er að
veita karlmanni limlægan unað með
munni og höndum.
Handavlnna 101
Hafðu slatta af sleipiefni eða olíu
við höndina (mundu að latex smokkar
og olia eiga ekki skap saman, einu
smokkarnir sem fara ekki í klessu við
að snerta olíu eru úr polyurethani
eins og Avanti smokkurinn frá Durex
og kvensmokkurinn Femidom), það er
miklu skemmtilegra að gæla við hold-
ið harða en undurmjúka ef snertingin
er laus viö óþarfa núning og hártog.
Reyndar dugar munnvatn oft ágæt-
lega en það fer þó allt eftir dagsform-
inu hvort munnurinn framleiðir nóg.
Láttu hann liggja á bakinu og komdu
þér vel fyrir milli fóta hans.
Það er ágætt að sitja með fætur dá-
lítið sundur og krækja þeim undir
læri hans. Byrjaðu á að strjúka á hon-
um lærin innanverö, strjúktu svo
höndum upp á kviðinn, niður lend-
arnar, upp með nárunum og staldraðu
við þar sem hann gefur frá sér
sælustunur. Byrjaðu á að mynda
hring með þumli og vísifingri eða
löngutöng (eða bæði vísifingri og
löngutöng) annarrar handar, utan um
skaftið á tippinu. Hafðu takiö frekar
þétt, þeim líkar það betur. Færðu
fingrahringinn þétt en rólega upp og
niður skaftið og notaðu hina höndina
á meðan til aö gæla við punginn.
Pungurinn er afskaplega kynnæmur
og fellur vel í mjúkan lófa. Æstu hann
upp á þennan hátt og ekki gleyma að
segja honum hvað hann er mjúkur,
yndislegur og æsandi. Það er líka
skemmtilegt að lýsa því jafnóðum sem
þú gerir við hann. „Nú gæli ég við
punginn og held áfram að nudda harð-
an liminn, mmm“ - eða gefa honum
hugmynd um það sem koma skal:
„Rétt bráðum ætla ég að fá að bragða
aðeins á þér og leika við kónginn með
tungunni." Svona lýsingar munu ef-
laust æra hvaða freðþorsk sem er.
Snúningsbragðið
Gerðu tvo hringi utan um liminn í
þetta skiptið og notaðu til þess fingur
beggja handa (sjá lýsingu í handa-
vinnu 101). Haltu þétt um skaftið og
byrjaðu svo rólega að snúa hringjun-
um um það, öðrum réttsælis en hin-
um rangsælis. Láttu hringina fara
upp og niður um leið og þú snýrð
þeim um skaftið. Þetta handbragð
skyldi ekki nota nema að nóg sé til af
sleipiefni eða olíu. Ef því er beitt án
efna er eins víst að það framkalli
hryllingsöskur og angistarvein þegar
holdið er undið í tvær áttir og hárin
flækjast með.
Munnurinn mjúki
Tippi eru flest ívið lengri en leiðin
frá vörum að koki þannig að í flestum
tilfellum tekst þeim sem veitir munn-
gælur ekki að taka það neitt voðalega
djúpt í munninn. Að vísu er hægt að
þjálfa sig upp í að hreinlega kyngja
tippinu og taka það eitthvað lengst
ofan í vélinda en það er flestu eðlilegu
fólki um megn. Það hlýtur samt að
vera ansi gott að láta kyngja á sér
tippinu ... Hvað um það; til að falsa
þessa tilfinningu er best að halda
handavinnunni áfram á neðri hluta
tippisins en leyfa munninum að sjá
um efri partinn. Notaðu tunguna til
að erta kónginn; prófaðu að láta efri
og neðri hlið tungunnar skiptast á,
gefðu haftinu milli forhúðar og kóngs
sérstakan gaum og láttu tungubrodd-
inn fara allan hringinn meðfram
brúninni á kónginum. Áður en þú tek-
ur hann í munninn skaltu prófa að
sleikja hann endilangan, með þéttri
stroku alveg frá pungi og upp að gat-
inu á toppnum. Þegar þú tekur hann
upp í þig skaltu bleyta varirnar vel,
halda þeim frekar þétt saman og leyfa
honum að þrýstast rólega inn. Mundu
að nota hendina sem er á neðri part-
inum sem stoppara. Notaðu varir og
tungu til að gæla við hann á meðan þú
hefur hann uppi í þér og ekki búa til
lofttæmi með því að sjúga of mikið.
A5 kyngja eða ekki
Þetta er voðalega mikið atriði fyrir
marga karlmenn og sumir eru algjör-
lega með það á heilanum að það verði
nú að kyngja til aö „blódjobb" sé al-
mennilegt. Vinur minn í Danmörku
er með límmiða á bílnum sínum með
orðunum „Nice people swallow", það
lýsir þessu ágætlega. Hvað svo sem
þessu líður skaltu aldrei kyngja ef þú
vilt það ekki. Vissulega finnst sumum
æsandi og skemmtilegt að gera það en
það eru líka heilmargir sem kunna
því illa. Fyrir þá er mikilvægt að
biðja þiggjandann að gefa sér merki
þegar sáðlátið nálgast. Það hlýtur að
vera frekar glatað að sjá ógeðsgrettu
framan í ástkonunni/elskhuganum
þegar fullnægingarsælan stendur sem
hæst.
Ef þú vilt alls ekki fá sæði upp í þig
getur verið mjög æsandi fyrir hann og
þig að sjá það slettast á líkamann, s.s.
bringu, háls, kvið eða kinn. Hafðu svo
handklæði eða blautþurrkur í grennd-
inni ef þú vilt ekki nota afurðina sem
boddílósjon. Ef þér hins vegar þykir í
lagi að fá það í munninn en vilt síður
kyngja skaltu hafa bréfþurrkur eða
hrákadall í seilingu svo að þú þurfir
ekki aö hlaupa með fullan munninn
fram á klósett. Það er fátt minna sexí
en elskhugi/ástkona sem hleypur
fram þremur sekúndum eftir fullnæg-
ingu til aö skyrpa eða þvo af sér ást-
arsafana.
Heitt og kalt og stlngandi
Prófaðu að bryðja Ismola rétt áður
en þú byrjar að veita honum munn-
gælur. Kannski er betra að vara hann
viö fyrst nema að þú sért í virkilegu
prakkaraskapi, þá skaltu binda hann
fyrst! Heitir drykkir eins og te eða
kakó og stingandi drykkir eins og
kampavín eða koníak geta líka fram-
kallað kraftmiklar kyneldingar ef
drukknir eru skömmu fyrir atlotin. I
raun má notast við flest sem framkall-
ar hressilega eöa ertandi tilfinningu í
munninum. Látið þó kryddskápinn al-
veg vera því þó bragðlaukarnir séu
kannski vanir karríi og chili er ekki
víst að limnum lyndi við þau.
Ragnheidur Eiríksdóttir er hjúkrun-
arfrœóingur og kynlífstœknir