Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Síða 29
37 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001 MYNDIR BRIAN SWEENEY Atvinnuskytta líklegri kenning „Mér finnst kenning verjendanna mun líklegri en þeir telja að samtök Serba hafí ráðiö atvinnuskyttu til að myrða Jill Dando í hefndarskyni skömmu eftir að Nató lét sprengju falla á sjónvarpsstöð þeirra í Belgrad, “ segir Gísli Guöjónsson um morðið á sjónvarpskonunni Jill Dando en hún féll fyrir byssuskoti þann 26. apríl 1999. bandi við. Dómari hafnaði ekki beiðni ríkissaksóknara um aö hún kæmi í vitnastúkuna. Serbnesk leyniskytta Spurningin sem fjölmiðlar í Bretlandi velta fyrir sér núna er hvort réttarkerfið geti forsvarað að dæma mann eins og George sekan fyrir jafnalvarlegan glæp á jafnvafasömum forsendum og hér um ræðir. Sönnunargögnin eru veik, engin játning liggur fyrir, engin vitni hafa gefið sig fram sem sáu verknaðinn og ekki hefur verið hægt að rökstyðja hver til- gangur George með slíku morði gæti hafa verið. Verjendur Georges hafa bent á þetta en lögfræðingar ríkissak- sóknara telja víst að rétti maður- inn hafi verið dæmdur. Þeir telja að óbeinar sannanir sem þeir hafi lagt fram séu sterkar og að skot- púðrið sem fannst í frakkavasa Georges styrki þær verulega. Aðr- ir hafa bent á að skotpúðrið fannst í frakka George rúmu ári eftir að morðið var framið og eftir að frakkinn hafði verið í herbergi lögreglu þar sem skotvopn eru geymd og legið þar ofan á skyrtu lögreglumanns. „Morðið á Jill Dando var vel skipulagt og úthugsað. Það er erfítt að átta sig á því hvernig lítið greindur og heilaskemmdur mað- ur, sem á í erfiðleikum með aö skipuleggja sig og er seinn í hreyf- ingum, hefur framkvæmt jafnút- hugsað morð og þetta. Það er um- hugsunarefni að hann hafi komist óséður af vettvangi og þagað yfir glæpnum í yfir tvö ár núna. Mér finnst kenning verjendanna mun líklegri en þeir telja að samtök Serba hafi ráðið atvinnuskyttu til að myrða Jill Dando í hefndar- skyni skömmu eftir að Nató lét sprengju falla á sjónvarpsstöð \ þeirra í Belgrad. Verjendur Geor- ge hafa ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar og það veröur fróð- legt að fylgjast með þróun þessa máls þar.“ Anna Hildur Hildibrandsdóttir býr í London og er að skrifa bók um Gísla Guöjónsson sem kemur út hjá Máli og menningu nú í %, haust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.