Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 22
22 Helgarblað LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 DV Broshýr nauðgari - ungir piltar voru fórnarlömb hans Bruno Presta brosti sínu glaölega brosi þegar hann geröi nágrönnum sínum smágreiöa og líka þegar hann nauögaöi piltum á grimmilegan hátt. Hann var öfuguggi af lökustu teg- und. Mannrán, nauögun og mis- þyrmingar voru þeir leikir sem hann skemmti sér við Hann hafði fallegt bros, eða svo sögðu allir sem umgengust hann. Þegar hann hló birti yfir andlitinu og hann var ófeiminn að sýna allan skjannahvítan tanngarðinn sem virtist ná eyrna á milli. Nágrann- arnir í Wattle Grove, sem er rólegt úthverfi í Sydney, gátu ávallt leitað til hans þegar aðstoðar var þörf. Hann verslaði fyrir þá, hjálpaði til i garðinum og ef aðstoð þurfti við þakviðgerðir var hann mættur. Það eina sem hann gerði nágönnunum ekki til hæfis var að hann bauð þeim ekki heim til sín í kaffl. Það var ekki vegna þess að ungi maðurinn, 28 ára gamall, kærði sig ekki um félagsskap. Síður en svo, en hann vildi helst aðeins umgangast unga drengi inni á heimili sínu. Hann faldi sjúklegan huga sinn á bak við brosið mikla sem nágrann- arnir dáðust að. Hann var öfuguggi af lökustu tegund. Mannrán, nauðg- un og misþyrmingar voru þeir leik- ir sem hann skemmti sér við. Hann hóf árásir sínar í marsmán- uði 1996 og lét ekki af ofbeldisfullri hegðun sinni fyrr en hann var handtekinn í nóvember 1999. Illræmd nauðgunarlyf Á þessu tímabili ók Bruno Presta um götur í vestanverðri borginni í leit að varnarlausum fómarlömbum til að fara með í hús sitt. Hann ógnaði fórnarlömbunum með byssu um hábjartan dag er hann réðst að drengjunum þar sem þeir voru á gangi eða biðu á stoppi- stöðvum strætisvagna. Pétur var einn pUtanna sem rænt var á þennan hátt. Hann var 15 ára þegar árásin á hann var gerð. Kona fann hann skjálfandi og viti sínu fjær undir bekk í almennings- garði. Hún gat komist að hvar hann bjó og ók honum heim. Þegar þang- að var komið, komst Pétur ekki út úr bílnum af eigin rammleik. Hann var nær meðvitundarlaus eftir að hafa verið neyddur tU að taka inn Rohypnol, sem Ulmenni nota til að gefa fólki svo það veiti ekki mót- spyrnu þegar því er nauðgað. Móðir piltsins hélt að hann væri drukkinn þegar komið var með hann heim í þessu ástandi og ávítaði hann fyrir áfengisneyslu. En maður hennar tók eftir að sonur þeirra tautaði eitt- hvað um byssu og lyf. Hræðileg nótt Farið var með Pétur á sjúkrahús þar sem hlúð var að honum og þeg- ar áhrif lyfsins dvínuðu gat hann skýrt frá því að þegar hann var á gangi á leið heim frá vini sínum, stakk maður byssu fyrir brjóstið og skipaði honum inn í bíl. Eftir hálf- tíma akstur var komið að húsi þar sem Pétur var neyddur inn í svefn- herbergið og bundinn við rúmið með sterku límbandi. Hann mundi eftir að hafa legið á rúminu og reynt að fylgjast með tónlist sem barst úr útvarpstæki til að halda sér vakandi. En eftir að hafa verið neyddur til að taka inn fimm töflur af nauðgunarlyfinu Þeir voru barðir með leð- urbelti og smánaðir á ótrúlegasta hátt. En sjúklegar tilhneigingar urðu ofbeldismanninum að falli. Partur af öfug- uggahœttinum var að Bruno Presta tók athafn- ir sínar upp á mynd- band til að hann gœti skemmt sér síðar við að endurlifa þær. sveif hann inn í meðvitundarleysi og kvaðst lítið muna frá nóttinni, nema að hann hafi vaknað öðru hvoru við að vera laminn með leðuról. Pétur sagðist ekki geta munað eft- ir að sér hafi verið nauðgað og læknar staðfestu að hann bæri ekki menjar um slíkt á líkama sínum. Minnisleysi Síðar, eftir að Bruno Presta var handtekinn, ræddi Rachel Fawcett rannsóknarlögreglumaður við fjöl- skyldur þeirra unglinga sem urðu fyrir barðinu á nauðgaranum. Móð- ir Péturs spurði hvers vegna sonur hennar hefði verið svo heppinn að sleppa betur en hinir þar sem hon- um var ekki nauðgað, aðeins mis- þyrmt. Lögreglumaðurinn sneri sér að Pétri og sagði að honum heföi verið nauðgað alveg eins og öllum hinum fórnarlömbunum. Pilturinn náfóln- aði og skjálfti sótti að honum. Hann hóf að öskra og gráta þegar það rann upp fyrir honum hvað Bruno Prestu hafði gert. Ef til vill var hann heppinn að muna ekki hvað gerðist nóttina sem hann var ofurseldur illmenninu. Aðrir unglingar voru ekki svo heppnir. Utan líkamans Daniel var 17 ára þegar honum var rænt í tæplega kilómetra fjar- lægð frá heimili sinu. Hann man allt sem gerðist eftir það. Hann man eftir hvemig byssuhlaupi var stung- ið í munn hans, þegar migið var yfir hann þar sem hann lá bundinn í rúmi Drengurinn lýsti þessu eins og hann hefði yfirgefið líkamann og verið áhorfandi að því hvernig farið var með hann. Hann gat ekki lýst atburðum eins og hann hefði sjálfur verið þátttakandi og fómarlamb. En þann þjáðist samt og var í langvar- andi meðferð til að reyna að jafna sig á þeim misgjörðum sem honum voru sýndar. Daniel á erfitt með að starfa hjá vinnuveitanda sem heimtar að vera ávarpaður herra. En þegar hann lá bundinn og var nauðgað heimtaði Bruno Presta að vera kallaður herra. Annars varð Daniel að þola barsmíðar. Grimmilegar aðfarir Nauðgarinn starfaði sem öryggis- vörður og var oft á næturvöktum. Það gerði honum kleift að flækjast um á daginn í leit að piltum til að misþyrma og nauðga. Hann var hvergi á sakaskrá og vegna vin- gjarnlegrar og jafnvel heillandi framkomu féll lengi vel enginn grunur á að hann ástundaði glæp- samlega fúlmennsku. Þess ber líka að gæta að fómarlömb hans voru yf- irleitt svo illa farin vegna lyfjagjaf- ar að þau gátu ekki munað með neinni vissu hvert farið var með þau og hvernig pyntarinn leit út. En árásimar urðu sifellt grimmi- legri og stóðu nauðganir og pynting- ar yfir í allt að níu klukkustundir. Fórnarlömbin máttu þola óheyri- lega niðurlægingu. Bundið var fyrir augu þeirra og voru strákarnir neyddir til að eiga mök við óþokk- ann með aðferðum samkyn- hneigðra. Þeir voru barðir með leðurbelti og smánaðir á ótrúlegasta hátt. En sjúklegar tilhneigingar urðu ofbeld- ismanninum að falli. Partur af öf- uguggahættinum var að Bruno Presta tók athafnir sínar upp á myndband til að hann gæti skemmt sér síðar við að endurlifa þær. Pottþétt sönnunargögn Að því kom að vegfarandi sá hvar meðvitundarlítill piltur var dreginn út úr bil og farið með hann inn í hús. Lögreglunni var gert viðvart og þegar ráðist var til inngöngu, 14. nóvember 1999, fundust myndbands- upptökur af því þegar fimm piltum var nauðgað og þeir pyntaðir. Á böndunum sást hvernig drengirnir æptu af sársauka og báðu sér miskunnar. En því meira sem þeir báðu sér griða þeim mun grimmilegri uröu aðfarirnar. Allir bera þeir þess merki á líkamanum að hafa verið pyntaðir. Ör eftir sígarettuglóð og barsmíðar með leðurólum eru til sönnunar um níð- ingsverkin. Nokkrum drengjanna tilkynnti nauðgarinn að hann ætlaði að drepa þá og stakk byssuhlaupi í munn eins þeirra á meðan hann athafnaði sig á sinn sjúklega hátt. Öðrum hót- aði hann að skella undan honum og lét smella í skærum við eyra hans til að leggja áherslu á að honum væri alvara. Daginn sem Bruno Presta var handtekinn sagði móðir Péturs að þungu fargi væri létt af fjölskyld- unni. Áður vissu þau ekkert hver ódæðismaðurinn var og bjuggust jafnvel við að rekast á hann hvar og hvenær sem var þða að hann kæmi óboðinn í heimsókn. Dómurínn Bruno Presta var ákærður og dæmdur fyrir 26 sakarefni: mann- rán, nauðganir og misþyrmingar. í júni árið 2000 var dómur kveðinn upp og hljóöaði hann upp á ótíma- setta dvöl í öryggisgæslu á hæli fyr- ir geðveika glæpamenn en þar verð- ur hann að dvelja í að minnsta kosti 20 ár til að byrja með. En hryllingurinn fylgir drengjun- um sem uröu fórnarlömb nauðgar- ans. Móðir Péturs segir að karl- mennskuímynd hans sé illa særð og að hann fáist ekki til að viður- kenna, jafnvel ekki fyrir sjálfum sér, hvað kom fyrir. Hann fer ein- fórum og hefur misst sambandið við gamla vini. Allir piltamir bera sár, ekki að- eins á líkamanum heldur einnig á sálinni, og þeir verða aldrei hinir sömu og áður en illmennið rændi þeim og nauðgaði. Hús nauðgarans. Þangað fór hann með fórnarlömb sín og hélt þeim nauðugum og hálfmeðvitundarlausum í allt að níu klukkustundir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.