Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 49
57
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001
2>V
Tilvera
Afmælisbörn
Sean Connery 71 árs
Aðalsmaðurinn Sean Connery á
afmæli í dag og er 71 árs. Sean Conn-
ery sló í gegn sem hinn fullkomni
njósnari hennar hátignar, James
Bond. Hann er þó ekki Breti eins og
007 þvi hann fæddist nefnilega í Ed-
inborg í Skotlandi. Sean Connery
lætur engan bilbug á sér finna þó
hann sé kominn á áttræðisaldur og
heillar konurnar enn með útliti
sínu. Hann tók einmitt þátt í keppn-
inni Herra heimur árið 1953.
Macauleay Culkin er 21 árs í dag.
Drengurinn sem skiiinn var eftir al-
einn heima, Macauiay Culkin, er 21 árs
í dag. Hann fæddist í New York og ólst
upp með fimm systkinum sem öll hafa
lagt leiklistina fyrir sig. Culkin var vin-
sæl bamastjarna og lék meðal annars i
myndum á borð við My Girl og The
Good Son. Hann hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá leikstjórunum í
Hollywood að undanfórnu en hefur í
staðinn verið að reyna fyrir sér á leik-
sviðinu.
Gildir fyrir sunnudaginn 26. ágúst og mánudaginn 27. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. fehr.l:
Spá sunnudagsins
Gerðu þér far um að
vanda hvert verk sem þú
tekur þér fyrir hendur.
Það mun borga sig þó að síðar verði.
Einhver spenna ríkir í loftinu.
Ekki er allt sem sýnist. Þú þarft
að hafa fyrir því að meta hvaða
boð eru þess virði að taka þeim.
Happatölur þínar eru 1, 12 og 24.
Hrúturinn (21. mars-19. aprih:
iKBi
Eitthvað liggur í loftinu
sem þú áttar þig ekki al-
veg á. Verið getur að þú
haflr ekki fengið allar þær fréttir sem
þú þarft til að átta þig á málunum.
Ef alilr standa saman er auðvelt
að fást við þau verkefni sem leysa
þarf. Þér finnst einhver vera að
svíkjast um.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
/j** Allt virðist ganga þér i
mj/ haginn um þessar
mundir og vegna þess
gæti gætt öfimdar í þinn garð. Þú
getur ekkert að þvi gert.
Fjölskyldan stendur þétt saman
og skipuleggur framtíðina. Félags-
lífið tekur líka sinn toli og þú hef-
ur í nógu að snúast.
Liónlð (23. iúli- 22. áeúst):
i Þú lendir í mikilli sam-
keppni og þarft á allri
þinni einbeitingu að
halda. Þú hefur ekki minni mögu-
leika en þeir sem þú ert að keppa við.
Spá manudagsins:
Láttu sem ekkert sé þó að einhver
sé ekki eins og hann á að sér að
vera. Það á sínar orsakir og
skýrist áður en kvöldar.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Gamansemi liggur í
ioftinu og andrúmsloft-
r / ið er léttara en það hef-
ur verið lengi. Nýr starfskraftur á
vinnustað þínum hefur góð áhrif.
Þér bjóðast skemmtileg tækifæri
varðandi félagslífið. Þú ættir að
taka þér meiri tíma til að íhuga
breytingar.
BogamaðUf (22. nðv.-21. des.l:
rnmsmmm
Fréttir sem þú færð
koma róti á huga þinn.
Vinur þinn reynist þér
betri en enginn við að leysa úr
vanda sem upp kemur í kvöld.
Þú þarft að sýna lipurð í samskipt-
um við félaga þinn, annars er hætt
við að upp úr sjóði. Eitthvað óvænt
gerist seinni hluta dagsins.
FÍSkarnjf (19. febr.-20. marsl:
Spá sunnudagsins
• Þú ættir að gæta hófs í
mat og drykk, þér
hættir til að fara of
geyst í þeim efnum. Fjármálin
þarfiiast aðgæslu.
Hætta er á ágreiningi milli ástvina
en hann ætti að vera fremur auðvelt
að leysa ef vilji er fyrir hendi. Sýndu
þolinmæði við þá sem yngri eru.
Nautið (20. apríl-20. maí.):
Spa sunnudagsins
Þér finnst þú hafa mikið
að gera og ert meö mörg
járn í eldinum. Með
betra skipulagi gætir þú átt fleiri frí-
stundir fyrir þig og fjölskylduna.
Gerðu eins og þér fmnst réttast i
ákveðnu máli fremur en að fara eftir
því sem kunningjar þínir benda þér á.
Þú veist best um hvað máhö snýst.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
Spa sunnudagslns
| Þú verður fyrir ein-
hverju happi á næst-
unni og munu margir
samgleðjast þér innilega. Þú hug-
ar að búferlaflutningum.
Von er á einhveijum breytingiun
á næstunni. Þær snerta mál sem
lengi hefur verið í biðstöðu. Fé-
lagslífið er margbreytilegt.
Mevlan 123. áeúst-22. sept.l:
Spá sunnudagsins
Viðskipti leika í hönd-
'lfcunum á þér og núna er
* ' sannarlega rétti tím-
inn til að ganga frá samningum í
þeim efhum.
Eitthvað óvanalega skemmtilegt ger-
ist í dag og þú átt eftir að hiæja
meira en þú hefur gert lengi. Sérstak-
lega verður kvöldið skemmtilegt.
Sporðdrekl 124. okt.-21. nóv.l:
Spa sunnudagsins
Nú er vor í lofti og þá
|fæðast gjaman nýjar
hugmyndir. Þú hugar
að ferðalagi og hlakkar greinilega
mikið til.
Þú færð óvænt hugboð og liklegt er
að það verði þér til heilla að fara eft-
ir þvi. Gamali vinur sem þú hefur
ekki séð lengi skýtur upp kollinum.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Gefðu þér tíma fyrir fjöl-
skylduna, hún þarfnast
þín. Togað er í þig frá
ýmsum stöðum en það er ekki hægt
að vera á nema einum stað í einu.
Spa manudagsins:
Þú verður fyrir einhverjum von-
brigðum með ástvin þinn í ákveðnu
máii. Hér gætu hreinskilnislegar
viðræður komið að gagni.
Kvenfélagskonur gefa heilbrigðisstofnuninni.
Gáfu lækningatæki fyrir 3 milljónir
DV. SIGLUFIRÐI:
I kaffisamsæti á Heilbrigðisstofn-
un Siglufjarðar fyrir skömmu var
tiikynnt um og afhentar gjafir frá
Kvenfélagi sjúkrahússins. Þarna
var um að ræða margvísleg tæki,
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON.
Fimm af stjórnarkonum Kvenfélags sjúkrahússins
Frá vinstri Magðalena Hallsdóttir formaöur, Svala Bjarnadóttir, Halldóra Jóns-
dóttir, Björk J. Hallgrímsson og Björg Friöriksdóttir. Brynja Stefánsdóttir og
Guöbjörg Friöriksdóttir voru fjarverandi.
bæði til lækninga og einnig sjón-
varps- og hljómflutningstæki, alls
nærri þriggja milljóna króna virði.
Lét fráfarandi framkvæmdastjóri
heilbrigöisstofnunarinnar svo um
mælt að hann vissi ekki hvernig
stofnunin færi að ef Kvenfélagsins
nyti ekki við því stofnunin hefði lít-
ið fjármagn til tækjakaupa.
Magðalena Hallsdóttir, formaður
kvenfélagsins, sagði fréttaritara að
helstu fjáröflunarleiðir félagsins
væru sala á fermingar- og heilla-
óskaskeytum. Einnig væru haldin
bingókvöld og nyti félagið sérstakr-
ar velvildar fyrirtækja í bænum
sem alltaf gæfu hluta af verðlaunun-
um sem um væri spilað. Við þetta
tækifæri var Þórarni Gunnarssyni,
fráfarandi framkvæmdastjóra,
þökkuð góð störf við stofnunina og
eftirmaður hans, Konráð Baldvins-
son, jafnframt boðinn velkominn til
starfa. -ÖÞ
Light Nights:
Draugar, forynjur
og kynjaverur
Síðustu sýningar á
Light Nights í Iðnó á
þessu sumri eru nk.
sunnudags- og mánudags-
kvöld. Á sýningunum,
sem hefjast klukkan 20.30,
eru 14 atriði sem byggð
eru á islensku efni, flutt á
ensku að undanskildum
íslenskum þjóðlagatext-
um. Draugar, forynjur og
margs konar kynjaverur
koma við sögu. Síðari
hluti sýningarinnar fjall-
ar að stærstum hluta um
víkinga. Skyggnur eru
sýndar á milli atriða, sam-
tengdar leikhljóðum, tón-
list og tali. Kristín G.
Magnús leikkona fer með
öll hlutverk í sýningunni
að undanskildum ónafn-
greindum draugum sem
birtast í Djáknanum á
Myrká. Hægt er að panta
sælkerakvöldverð á sama
stað fyrir þá sem vilja.
Djákninn á Myrká
Kristín M. Magnús leikkona og Halldór Snorrason í hlut-
verki Djáknans.
Með yfírburði á þýskum markaði
almftí
Nú fæst hinn geysivinsæli
umhverfisvæni og lyktarlausi
ofnahreinsir frá Dr. Beckmann
einnig í verslunum 11*11
Tilboðí 11-11
Meö hverjum brúsa af ofnahreinsi
fylgir einn blettabani á meðan
birgðir endast.
AítiveTGel
Ov«nfci0flB«r
Athugið!
Dr. Beckmann
ofnahreinsirinn
er líka frábær
á útigrillið
ÁSVÍK EHF