Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001
E* V
Tilvera
i
59
Af heimsmeisturum
í desember er áætlaö að halda
stórmót í henni Moskvu í tilefni þess
að þá verða liðin 90 ár frá fæðingu
Mikhaíls Botvinniks, fyrrverandi
heimsmeistara, en hann er látinn.
Þeir Kasparov, Kramnik og Karpov
verða líklega með og er ætlunin að
þeir tefli 4 skáka einvígi hver við
annan. Verðlaunaféð mun nema um
600.000 dollurum svo eftir töluverðu
er að slægjast. Það skrýtna er að mót
þetta rekst á heimsmeistarakeppni
FIDE. í raun og veru er þetta þó ekki
skrýtið því að skákmenn eru ekki
miklar félagsverur. Því betri sem
þeir eru því undarlegri eru þeir fé-
lagslega. Þetta er mín skoðun og
fleiri eru á sama máli; þetta er nokk-
urs konar þumalputtaregla. Ég er á
þeirri skoðun að „K 3“ séu ekki
miklar félagsverur, enda eru þeir í
félaginu vegna sameiginlegra hags-
muna. Það hefði verið gaman að sjá
Anand þarna en ekki er víst að hann
hefði vUjað vera með. En mót með 3
keppendum þýðir að einn hvílir
meðan 2 tefla. En þau eru sem sagt
sameinuð, „K-in 3“, enda hafa allir
þrír verið á tindinum og vita að það
er kalt á toppnum. En að varna öðr-
um leið er leiðinlegt til afspurnar.
Karpov er t.d. á niðurleið mikilli en
þeir fjandvinir hans rétta honum
spotta svo hann geti verið með í
minningarmóti um látinn heims-
meistara. En svo eru 2 aðrir fyrrver-
andi heimsmeistarar á lífí, Vassili
Smyslov og Robert Fischer. Viktor
Kortsnoj og David Bronstein hafa
verið nálægt titlinum en þeir eru
kannski of auðveldir viðureignar í
dag?
Ég var að hlusta á viðtal við
Bobby Fischer, reyndar 2 ára gamalt,
við filippseyska útvarpsstöð. Það var
um aðaláhugamál Bobbys, alheims-
samsæri gyðinga (?). En hann talaði
um að hann vildi tala við íslenskan
fjölmiðil og endurtók það nokkrum
sinnum. Það þarf að fá góðan skák-
mann sem þekkir sögu Fischers vel
til að spjalla við kappann svo að við-
talið fari ekki út í dellu sem enginn
nennir að hlusta á: ég býð mig fram.
Fischer tók það sérstaklega fram að
hann tæki ekkert fyrir viðtalið. Við-
tölin eru á Netinu, slóðin er
http://queen.chessclub.com/philche
ss/bobby.htm. Menn geta allavega
heyrt í meistaranum og lært nokkur
ný vesturheimsk orðatiltæki, m.a.
eitt skondið, „Jewnited States of
America". Og þar er netfang, leyni-
netfang, sem tekur við pósti til Ro-
berts James (Fischers). Það er eigin-
lega ekki hægt að hjálpa fréttahauk-
um og aðdáendum hins 58 ára gamla
heimsmeistara.
Tap og jafntefli í 7. umferð
á HM í Aþenu.
Stefán Kristjánsson gerði jafntefli
við þýska alþjóðameistarann
Dimitrí Bunzmann (2509) í 7. um-
ferð Heimsmeistaramóts ungmenna
sem fram fer í Aþenu í Grikklandi.
Stefán hefur 4 vinninga og er í
23.-29. sæti. Bragi Þorfinnsson tap-
aði fyrir norska skákmanninum
Daniel Hersvik (2241) og hefur 3
vinninga og er í 55.-69. sæti.
Tap gegn Sviss, 4-6, í 1. um-
ferð Guðmundar Arasonar-móts-
ins
íslenska unglingaliðið tapaði 4-6 í
fyrstu umferð á Guðmundar Ara-
sonar-mótinu sem nú fer fram í Olt-
en í Sviss. Mótið er keppni á milli
unglinga frá íslandi og Sviss. Davíð
Kjartansson, Guðjón Heiðar Val-
garðsson og Guðmundur Kjartans-
son sigruðu í sínum viðureignum.
Björn ívar Karlsson og Aldís Rún
Lárusdóttir gerðu jafntefli.
Tvær kóngs-indverskar skákir
En lítum á handbragð jafnaldra
Karpovs, Jan Timman. Hann tefldi
þessa skák á móti týndra skák-
sveina í Amsterdam um daginn.
Ekkert markvert gerðist alla skák-
ina í sjálfu sér fyrr en andstæðing-
ur hans bjó til svikamyllu handa
sjálfum sér og varð að lúta í gras.
Hvítt: Jan Timman (2597)
Svart: Boris Avrukh (2598)
Kóngs-indversk vörn
Lost Boys Open Amsterdam
Niðurlöndum (7), 17.08. 2001
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. d4 0-0 6. Be2 e5 7. d5 a5 8. Bg5
h6 9. Bh4 Ra6 10. Rd2 De8 11. Bf6
BfB 12. Bg4 Bg4 13. Dg4 Rb4 14. 0-0
Rc2 15. Hadl Rd4 16. Rf3 h5 17. Dg3
Rf3 18. Df3 Bg5
Margir stöðubaráttuskákmenn væru
ánægðir með hvítu stöðuna. En það er
vandi að brjóta upp svörtu stöðuna. 19.
Rb5 Dd7 20. De2 h4 21. h3 Kg7
Það á ekki að skipta upp á drottning-
um hér? Ég myndi leika 22. b3 og
stefna að a3 og b4 og c5 og svo framveg-
is. En það er kannski hægara sagt en
gert! 22. Dg4 Dg4 23. hg4 Hfc8 24.
Hd3 Kf8 25. g3 hg3 26. fg3 Ke7 27.
Kg2 c6 28. dc6 Hc6 29. b3 a4 30. Hdf3
Hf8 31. Rc3 ab3 32. ab3 Ke6 33. Rd5
Bd8 34. Hal Bg5 35. Hf2 Hb8 36. Ha7
Bd8 37. Ha4 Ha6 38. Hfa2 Ha4 39.
Ha4 Kd7 40. b4 Kc6 41. Ha2 Bg5 42.
Hf2 Hf8 43. Kf3 Hh8 44. Kg2 Hh7 45.
Hf3 Hg7 46. Ha3 Hg8 47. Ha7 Hb8 48.
Kf3 Bd8 49. Ke2 Bg5 50. Kd3 Bd8 51.
Kc3
Næsti leikur svarts er sjálfsmorð,
„harakiri" 51. „Bg5 heldur stöðulegu
jafnvægi. En heppnin fylgir þeim
sterka? Nei, svona er skákin! 51. - Bb6
52. b5 Kc5 53. Rf6 1-0.
Loek van Wely er ungur og sigraði á
mótinu til heiðurs týndu skákstrákun-
um. Hér sjáum við vandað handbragð
frá honum:
Hvltt: Loek van Wely (2695)
Svart: Alexei Shchekachev (2546)
Kóngs-indversk vörn.
Lost Boys Open
Amsterdam NED (7), 17.08. 2001
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. f4 c5. Þetta afbrigði er kallað
flögurra peða árásin í kóngs-ind-
verskri vörn. Bragi Þorflnnsson og
bróðir hans, Björn, hafa hafið afbrigði
þetta til vegs og virðingar hér heima
og ekki síst erlendis. 6. d5 0-0 7. Rf3
b5. Nú mætti kalla þetta Benkö-bragð
eða Volgu-bragð eins og Rússar segja.
8. cb5 a6 9. a4 Bb7 10. Bd3 ab5 11.
Bb5 Ra6 12. 0-0 Rc7 13. Bc4 Ba6 14.
Rd2 Dc8 15. Ha3 Rd7 16. De2 Rb6
Nokkuð venjuleg uppstilling hjá
báðum. Svartur á að forðast uppskipti
í þessari stöðu en gerir það ekki. Verð-
ur það hans banabiti. 17. Ba6 Da6 18.
Da6 Ra6 19. a5 Rd7 20. Rc4 Rb4 21.
g4 Hfb8 22. Kg2 Ha7 23. Hb3 Hab7
24. Kf3 Bd4 25. g5 Ra6 26. Hb7 Hb7
27. Ke2 Hb4 28. Kd3 Hb8 29. Bd2 f5
30. gf6 Bf6 31. Hal Rb4 32. Ke2 Ra6
Hvita staöan er góð og peð að auki
þýðir að aðeins er tímaspursmál
hvenær höggið fellur. 33. Ra4 Bg7 34.
Rab6 Rf6 35. e5 Re8 36. Bc3 Hd8 37.
Kf3 Rec7 38. ed6 ed6 39. Hel Rb5 40.
Bg7 Kg7 41. He7 Kh8 42. Kg4 Rd4 43.
Re3 Rb4 44. Kg5 Kg8
Jæja, ég læt ykkur þetta eftir í bili!
45:-Rg4 1-0.--------------
Afmælishátíð
Hellis fer
fram í dag
Taflfélagið Hellir var stofnað 27.
júnf 1991. Félagið átti því 10 ára af-
mæli í sumar og hyggst halda upp á
það 25. ágúst. Afmælismót Hellis
verður haldið í nýju húsnæði félags-
ins, Álfabakka 14a, sem er aðeins
steinsnar frá fyrra húsnæði.
Nýja húsnæðið er einnig í Mjódd
og er sami inngangur og hjá SPRON
og hefur félagið aðstöðu á þriðju
hæð. Mótið hefst kl. 14.00 og eru góð
verðlaun í boði.
5|íi2./október
KSerferð fyrir
I.GARD korthafa
Fararstjori:
Einar Thoroddsen
Komdu með í sólríka vikuferð þar sem
dvalið verður á hinu glæsilega Paraiso
de Albufeira íbúðahóteli. Einar leiðir
þátttakendur um spennandi heima
portúgalskrar vínframleiðslu og hópurinn eyðir heilum
degi í vínhéraðinu fagra, Alentejo. Nægur tími fyrir sól,
sjó og verslunarferðir.
Fullt verð 62.900 kr.
t
Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensðsvegi 22 • Sfml 5450 900 • www.sol.is
^^Smáauglýsingar
byssur, feröalög, feröaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiöimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, likamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaöur... tómstundir
Skoðaðu smáuglýsingarnar á vfsir.li
550 5000
ÞÆR ERU KOMNAR AFTUR - OG SAMA ÓTRÚLEGA VERÐIÐ!!!
Bátakerra 5,2 m.
Verðkr. 115.600,
fleiri gerðir
Stærð 122x244 cm, burðargeta 480 kg,
12“ dekk, m/sturtu og samanbrjótanleg.
Verð kr. 48.800 ósamsett
Skoðið Únralið á www.goddi.is Kerrameð
mótorhjólastand,
stór. Verð kr. 61.100
fleiri gerðir.
Kerra með bátastand.
Verð kr. 40.900
GODDI
Auðbrekku 19 • sfmi 544-5550,
fax 544-5551 • veffang: goddi.is
netfang: goddi@goddi.is