Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Síða 43
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 51 JOV Tilvera Með góðan mat fær maður öllu framgengt Valtarar Verð frá 35.500 Allar stærðir EVRÓ Grensásvegl 3 s: 533 1414 - meira að segja fyrirgefningu, þannig að ég dreif mig af stað og útbjó dýrindishlaðborð í miðjum Herjólfsdal Æskan er tíminn eins og einhver sagði og þó hún líði hjá er þó alltaf hægt að ylja sér við minningarnar sem maður á. Minningar um endalausar skemmtanir, vináttu, ástir og annað eins. Það eru eflaust margir sem hafa eignast skemmtilegar minningar eftir síðustu verslunarmannahelgi og Hrund Guðmundsdóttir, sem er mat- gæðingur vikunnar að þessu sinni, er engin undantekning. Það eru ótrúlegir hlutir sem gerast á útihátíðum og þessa vikuna mun Hrund deila með okkur skemmtilegri sögu um þá at- burði sem hún lenti í um síðustu versl- unarmannahelgi. Röð tilviljana „Það má með sanni segja að ég skemmti mér konunglega um síðustu verslunarmannahelgi og í rauninni þá held ég að það verði erfitt að toppa þá helgi því það er mjög ólíklegt að lffið geti orðið skemmtilegra en þá. Það mætti segja að þetta hafi allt saman verið röð tilviljana. í fyrsta lagi ætluð- um ég og vinkona mín, Salka, ekki að fara til Eyja til að byrja með, við ætl- uðum á Eldborg. Það var ekki fyrr en seint á föstudeginum sem við ákváðum að koma okkur til Eyja. Við keyrðum til Selfoss og þar hittum við indælis stráka sem redduðu okkur með sér í vélina til Eyja. Það má segja að það hafi verið mikil heppni að hitta þá því þegar við komum í Heijólfsdal tjölduð- um við við hliðina á þeim og sáu þeir alltaf til þess að við svæfum ekki of lengi. Það mætti segja að að hluta til hafi það verið eins og að vera í þrælk- unarbúðum að vera í Eyjum því að það var algert bann við að sofa of lengi. Ég og vinkona mín brugðum þvi á það ráð á sunnudeginum að fela okkur alger- lega í svefnpokunum svo að það sæi enginn að við værum sofandi. Við vor- uih mjög heppnar að Vaka, grunn- skólavinkona okkar, vakti okkur rétt fyrir brekkusönginn. Vaka hafði verið svo tillitssöm að kaupa kjúklingabita fyrir mig og Sölku svo að við dæjum ekki úr hungri á hátíðinni." Skelfilegur svipur „Af því að kjúklingur er uppáhalds- maturinn hennar Sölku var þetta svona hálfgerð hátíð fyrir hana. Svip- urinn á henni þegar hún beit í kjúklingabitann var skelfilegur og ég er alveg viss um að ég hef séð glitta i eitt lítið tár á augnhvörmum hennar. Kjúklingurinn var sem sagt óætur þannig að við ákváðum að fylla okkur bara af bjór í brekkusöngnum svo við myndum gleyma hungrinu. Þegar líða tók á nóttina voru bæði Salka og Vaka byijaðar að kvarta yflr hungri og neit- uðu báðar að fá sér að borða niðri í dal. Þegar nöldrið í þeim var orðið heldur mikið fyrir partdýr eins og mig stakk ég þær af en um leið og ég fann þær ekki aftur fékk ég mikið sam- viskubit og settist hálfgrátandi í brekk- una í dalnum og aumkaði mig yfír því hve vond ég gæti verið,“ sagði Hrund og glotti er hún rifjaði upp þessar skemmtilegu minningar. Hlaðborö í miðjum Herjólfsdal „Þegar ég var búin með áfengis- birgðimar ákvað ég að fara inn í tjald og ná mér í meiri vistir. Þegar ég kom inn i hlýlega tjaldið okkar datt mér í hug að það væri nú snjallræði að elda fyrir Sölku svo hún gæti fengið sér að borða þegar hún kæmi til baka. Salka hafði minnst á það að hún ætlaði að kaupa einhvem mat og ef til vill grill áður en við færam á útihátíðina. Ég læddist því í töskuna hennar og mér til mikillar undrunar hafði hún keypt allt sem til þurfti til þess að grilla góðan mat. Þetta kom mér mikið á óvart því yfirleitt er hún vinkona mín frekar óskipulögð í sambandi við svona hluti. Ég fann einnota grill og allan pakkann, hún hafði meira að segja keypt for- kryddaðar lærisneiðar og tilbúna sósu sem þurfti einungis að hita. Ég bað einhvem strák sem ég sá að hjálpa mér að kynda undir grillinu (ég hafði aldrei grillað áður) og svo hófst elda- mennskan. Ég tók stórt teppi sem hún hafði tekið með og lagði yfir grasblett- inn og lagði plastdiska og hnífapör við hliðina. Allt saman heppnaðist þetta ótrúlega vel og mér tókst meira að segja að hita sósuna með þvi að hella henni í eina bjórdósina og setja á grillið. Þetta var orðið rosalega flott hjá mér og það era ekki til orð sem geta lýst því hversu ánægð ég var þeg- ar ég sá fyrir mér svipinn á hungraðu vinkonu minni þegar hún sæi að henn- ar biði hlaðborð. Ég ákvað að athuga hvort það væri ekki eitthvað fleira til i töskunni hennar og mér til ómældrar ánægju fann ég einnig salat, súkkulaðikex og ýmislegt fleira. Ég raðaði þessu öllu á teppið og undirbjó mig undir það að hringja í Sölku.“ „Þegar Salka svaraði loks i síman- um sínum virkaði hún frekar þreytt. Ég sagði henni að drífa sig upp í tjald til mín því hennar biði óvænt veisla. Hún muldraði eitthvað sem átti aö vera já og ég hélt áfram að laga kræs- ingamar og gat ekki setið á mér og smakkaði þvi kjötið og það var vægast sagt guðdómlegt. Ég var þó orðin frek- ar óþolinmóð þvi vinkona mín hafði tekið sér ailmikinn tíma í að koma þannig að ég ákvað að hringja í hana og athuga hvemig staðan væri,“ sagði Hrund. Forðuðum okkur „Salka virkaði enn þá jafnþreytt þegar ég hringdi aftur í hana og sagði henni að koma sér inn i tjald. Mér til mikillar undrunar sagðist hún vera inni í tjaldinu okkar og væri búin að koma sér mjög vel fyrir. Hún sagði að það væri meira að segja einhver búinn að borða kjúklingabitana okkar sem lágu fyrir framan tjaldið okkar. En ef Salka var í tjaldinu, hvar var ég þá?! Ég lýsti staðsetningunni fyrir Sölku og hún kom til min til þess að hjálpa mér því ég var búin að setja allt dótið mitt út um allt í tjaldinu þannig að ég gat ekki beint hlaupið í burtu. Þegar hún kom auga á matinn mætti segja að hún hafi bókstaflega slefað yfir honum. Hún leit á mig bænaraugum og sagði að við gætum ekki skilið þennan mat eftir, það hefði jú einhver annar borð- að kjúklingabitana okkar og ef til vill væri það sama manneskjan. Við sett- um salatið, gosið, ávaxtasafann, sós- una, kjötið, diskana, glösin og allt það sniðuga, sem ég hafði fundið, í teppið og forðuðum okkur í burtu! Þegar við vorum komnar í tjaldið okkar komum við okkur vel fyrir og byrjuðum að borða veislufóngin því ekki gátum við borðað hann fyrir utan ef við yrðum svo óheppnar að hitta eiganda kjöts- ins.“ Dularfullur þjófur „Seinna um daginn heyrði ég strák- ana í tjaldinu við hliðina á okkur kvarta undan því að kjötið sem vinur þeirra hafði tekið með sér væri horfið. Það kom þeim þó á óvart að það hafði enginn stolið neinu áfengi, bara mat! Ég varð hálfvandræðaleg og kunni ekki við að segja viðkomandi að það væri bara átvaglið ég sern hefði borðað Allar stærðir og gerðir. Tæknilega fullkomnir með eða án þjöppumælikerfis BOMRG Sími 594 6000 Eldað fyrir Sölku „Ég fann einnota grill og allan pakkann, Salka haföi meira að segja keypt forkryddaöar lærisneiöar og tilbúna sósu sem þurfti ein- ungis aö hita, “ segir Hrund Guðmundsdóttir. Rjómasósa 4 eggjarauður 1 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-ten- ingur) 300 g smjör, bráðið 1 dl rjómi Snöggsteikið humarinn í vel heitri olíu, bragðbætið með salti og nýmöluð- um pipar. Setjið til hliðar og haldið heitu. Bætið smjöri á pönnuna og steikið saxaða portobello-sveppi og steinselju. Skiptið á diska ásamt humr- inum. Pískið saman vatn og eggjarauðu og penslið smjördeigið. Skerið deigið í litla bita og bakið við 180°C í 10 mínút- ur. Raðið síðan á diska í kringum humarinn og sveppina. Skerið blaðlaukinn í strimla og djúpsteikið. Setjið á smjörpappír eða servíettur og látið dijúpa af. Saltið. Leggið yfir humar og sveppi þegar bor- ið er fram. Rjómasósa Þeytið eggjahvíturnar og blandið sykri rólega saman við ásamt salti og ediki. Þeytið vel þar til sykurinn er al- veg horfmn. Blandið salthnetum sam- an við með sleikju, smyijið á pappír tvo botna og bakið við 130°C í 60 mín. Þeytið rjóma og sykur ásamt vaniiiu- dropum, blandið 3/4 af rúsínunum saman við með sleikju og setjið á miili botnanna. Hitið rjómann að suðu og heliið yfir saxað súkkulaðið, hrærið þar til aliir kekkir eru famir, hellið yfir efri botn- inn og setjið smávegis af rúsínum ofan kjötið með bestu lyst, en ég bjóst ekki við þvi að hann yrði mjög ánægður, þó svo að ég myndi bjóða honum upp á leifamar eða hamborgara í matartjald- inu. En við vinkonumar höfðum oft hugsað út í það hver það var sem borð- aði kjúklingabitana fyrir framan tjald- ið okkar. Þeir vora nefnilega búnir að liggja úti alla nóttina og höfðu alls ekki fengið góða meðferð. Ég vona a.m.k. að viðkomandi hafi ekki orðið veikur eft- ir að hafa borðað þá,“ sagði Hrund að lokum. -Saga Humar meö portobello-sveppum Fyrir 4 400 g humar, skelflettur 200 g portobello-sveppir 6 msk. steinselja 1/2 dl ólífuolía til steikingar 50 g smjör til steikingar 80-100 g smjördeig 1 eggjarauða 1 dl vatn 100 g blaðlaukur djúpsteikingarolía Pískið saman eggjarauður og kjúklingasoð yfir hita þar til eggja- rauðumar verða eins og léttþeyttur rjómi. Bætið þá bráðnu smjöri saman við og loks þeyttum ijóma. Berið fram með humrinum. Toblerone-marens Mjög góð, þægileg og frekar einfóld. Botnar 3 eggjahvítur 220 g sykur 1/4 tsk. salt 1/2 tsk. edik 200 g salthnetur Rjómakrem 3 dl rjómi 1 tsk. sykur 1 tsk. vanilludropar 400 g Toblerone Súkkulaöi 1/4 dl ijómi 150 g rjómasúkkulaði á kremið til skrauts. Látið standa í kæli í ca 3 tíma. Ef frysta á tertuna er best að sleppa hjúpnum og setja hann á þegar hún er borin fram. Swift 1,3 6LS • Ný aflmikil vél Meðaleyðsla 5,6 I Hk 1.080.000.- cra/ — SUZUKÍ BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.