Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Side 47
55 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 DV ’ Tilvera í messu hjá Sverri Stormsker: Að opna á sér munninn til annars en að geispa „Fyrir það fyrsta þá heitir þessi kristilegi þáttur „í meSSu hjá Stormsker" og er alltaf sunnudög- um, frá kl. 14.00 til 16.00, á,“ segir Sverrir Stormsker þegar hann er spurður um útvarpsþáttinn sem hann stjórnar á Steríó 89,5. „Ég er þarna að messa yfir fólki og messa við fólk og blessa fólk og jarða fólk bara eins og aðrir almennilegir trúlausir prestar." Baunaði á Jón „í fyrsta þættinum var ég með postulann Hannes Hornstein Giss- urarson í munn-söfnuði Davíðs Godsonar. Aldrei þessu vant baunaöi hann á Jón Ólafsson Skífubónda og fannst eitthvað skrýtið að hann væri bara með 30.000 á mánuði en ætti samt allar hinar „frjálsu" útvarpsstöðvar og væri búinn að leggja undir sig all- an skemmtanabransann. Hannes fattar ekki að Jón er bara hagsýnn og verslar alltaf hjá Bónusfeðgum, sem eiga allan matvörubransann, og Bónusfeðgar hagsýnast með því að kaupa af grænmetismafí- unni og ferja vörur sínar á baki Kolkrabbans sem á öll flutninga- Baunaö á báða bóga „Á morgun fæ ég Jón Baldvin og Bryndísi Schram í messu til mín, “ segir Sverrir Stormsker, „en það er fólk sem þorir að opna á sér munn- inn til annars en að geispa. “ og samgöngufyrirtæki landsins. Hérna er nefnilega svo gasalega mikil frjáls samkeppni á öllum sviðum. Hver ætli eigi Samkeppn- isstofnun og Neytendasamtökin sem eru líklegast stærstu svefn- herbergi landsins? Baunaði á Bubba „Hannes baunaði líka mikið á Bubba og sagði að hann væri með einhvers konar rauðgraut í hausn- um og stútfullur af freudískum geðflækjum af því að hafa selt Jóni sál sína. Ég skal ekki segja, en Jón hefði náttúrlega ekki keypt sér sál nema af því hann vantaði sál svo þetta er bara hið besta mál. En kannski ætti Bubbi að gera plötu um sína fyrrverandi sál, sem gæti heitið „Sálin hans Jóns míns“.“ Sverrir segist ekkert hafa á móti Jóni Ólafssyni persónulega. „En mér finnst að Skífan ætti að reyna að venja sig af þeim kæk að reyna sífellt að stela af mér pen- ingum. Manni leiðist það til lengd- ar. Þessa dagana eru þeir t.d. að reyna að ræna af mér 600.000 krónum fyrir plötu sem þeir klúðruðu fyrir mér gjörsamlega. Glætan að maður borgi fyrir mis- tök. Fyrirtæki eiga að beita al- mennilegum vinnubrögðum, ekki bara brögðum." Boxaði Hannes „Næst fékk ég Bubba í messu og hann boxaði Hannes hraustlega, stundum fyrir neðan beltisstað, en Hannes hefur sennUega bara fílað það. Bubbi viðurkenndi reyndar að eitthvað af sálinni hefði líkleg- ast fylgt með í kaupunum þegar Jón verslaði hann, en hann sagði að það væri af og frá að Brynja hefði fylgt með í kaupunum. Jón fékk sem sé ekki tvo fyrir einn. Ég hef mjög gaman af Hannesi og Bubba og er aðdáandi þeirra beggja en þeir eru greinilega ekki miklir aðdáendur hvor annars." Jón Baldvin og Bryndísi Schram í messu „Þar næst fékk ég Ásgeir Hann- es Eiriksson, fyrrverandi þing- mann og pulsusala, og hann var svo góður að leyfa mér að kalla sig „mortherfucker" út allan þáttinn. Mjög faUegt af honum enda kristi- lega þenkjandi maður eins og ég. Á morgun (sunnudaginn 26. ágúst) fæ ég Jón Baldvin og Bryndisi Schram í messu til mín, en það er fólk sem þorir að opna á sér munninn til annars en að geispa eins og allir vita. Ég get lofað því að þetta verður upprífandi þáttur enda er þessi messa mín hugsuð til vakningar og þess vegna er hún á sunnudögum klukkan tvö, þegar fólk er að rísa úr rekkju eft- ir þindarlaust kristilegt menning- arlegt svall." -Kip SccUidtci faw&ci Nú eru síðustu forvöð jyrir áskrifendur DV að tryggja sér ódýra sumar- eða haustferð í sólina meðferðaávísun DV og Sólar. • Málið er einfalt Efþú ert áskrifandi bíður ávísunin þess að þú sækir hana í afgreiðslu DV að Þverholti n. Efþú ert ekki áskrifandi bjóðum við þér að skuldbinda áskrift til a.m.k. 72 mánaða og ávísunin er þín. Verödæmi á mann ívikuferð til Portúgals 21. september m.v. tvfbýli á Santa Eulálía Fullt verð 61.265 kr. Áskrifendur DV greiða 29.125 KR. m.sk. • lágmark 2 í Studio/íbúð PORTUCAL Brottför Bókunarstaða Lengd dvalar Ávísun gildir 31. ágúst 11 sæti laus 3 vikur 75.000 kr. 07. september 14 sæti laus 2 eða 3 vikur 75.000 kr. 21. september laus sæti 1,2 eða 3 vikur 65.000 kr. 28. september 24 sæti laus 1,2 eða 3 vikur 50.000 kr. 05. október örfá sæti laus 1,2 eða 3 vikur 50.000 kr. 12. október laus sæti l eða 2 vikur 50.000 kr. 19. október laus sæti 1 vika 50.000 kr. KÝPUR Brottför Bókunarstaða Lengd dvalar Ávisun gildir 03. september 11 sæti laus 2 vikur 50.000 kr. 17. september laus sæti 2 vikur 75.000 kr. Verðdæmi á mann í vikuferð til Kýpur 17. september m.v. tvíbýli á Estella Fullt verð 98.129 KR. Áskrifendur DV greiða 60.629 kr. m.sk. • Lágmark 2 í Studio/íbúð Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum Sólar, Grensásvegi 22, sími 5450 900. www.sol.is rrov«l ' heitar ferðir!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.