Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Qupperneq 50
58 _________LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 Tilvera i>v lí fiö Með vífið í lúkunum í k völd hefjast aö nýju sýningar I Borgarleikhúsinu á gamanleiknum vinsæla Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney sem frumsýnt var s.l. vor. í leikritinu kynnumst við leigubílstjóranum Jóni Jónssyni, sem er ósköp venjulegur meðal- Jón. Eiginkonur hans tvær hafa enga hugmynd hvor um aðra þar til snurða hleypur á þráðinn. Leikarar í verkinu eru í hópi vinsælustu gamanleikara þjóðarinnar. Það eru þau Steinn Ármann Magnússon, Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Júlíus Brjánsson, Halldór Gylfason, Gunnar Hansson og Ámi Pétur Guðjónsson. Klassík LOK LISTASUMARS A AKUREYRI I tilefni af lokum Listasumars á Akur- eyri býður Minjasafniö í bænum til t kvöldvöku í kvöld milli klukkan 22 og 24. í tilkynningu stendur eftirtal- in klausa sem segir allt um havaríið: "Minjasafnsgarðurinn verður Ijósum prýddur en í stað ávaxta á greinum trjánna hanga þar Ijóð sem gestir geta lesið upphátt hverjir fýrir aðra eða í hljóði, allt eftir því hvað hugur- inn girnist." Maöur fær bókstaflega vatn í munninn... Leikhús______________________ HEDWIG Leikritið Hedwlg verður sýnt í kvöld í Loftkastalanum kl. 20.30. Opnanir GÚÐNI HARÐARSON I GALLER I FOLD I dag klukkan 15 opnar Guöni Haröarson málverkasýningu f baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarár- - stíg 14-16. Sýninguna nefnir lista- maðurinn íhugun en á henni eru um 20 verk unnin með akrýllitum á striga. Opið er daglega frá 10-18, laugardaga frá 10-17 og sunnudaga frá 14-17 en sýningin stendur til 9. september. ARS BALTICA j LISTASAFNI KÓPA- VOGS Listasafn Kópavogs tekur á móti fólki opnum örmum í dag klukkan 16 því þá verður opnuð sýn- ingin Ars Baltica - List frá Eystra- saltsiöndunum. Á sýningunni eru tæplega 50 listaverk frá ríkislista- söfnum í Eistlandi, Lettlandi og Lit- háen. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá 11-15 og stendur til 9. september. Fundir______________________ RÁÓSTÉFNÁ Ráðstefna um NJáls sögu verður haldin í félagsheimilinu Hvoll, Hvolsvelli, um helgina og hefst klukkan 10 1 dag. Fullt af fólki hefur skráð sig til þátttöku en erindi flytja meöal annarra Arthúr Björgvln Bollason, Helga Kress, Jón Bööv- arsson og Pétur Gunnarsson. Að sjálfsögöu veröur farið á Njáluslóöir undir leiðsögn heimamanna. Karla- kór og einsongvarar syngja Ijóða- flokk um efni Njálu og margt fleira. Nánar um dagskrána á heimasíð- unni: www.nordals.hi.is. Hagyrðmgamót LANDSMOT HAGYROINGA Tólfta landsmót hagyröinga og hollvina stökunnar verður haldið á sumar- hótelinu á Hvanneyri í dag. Mótið hefst með sameiginlegu borðhaldi klukkan 21, húsið opnað klukkan 20. Stökur, Ijóö, söngur, óbundiö mál og fleira. Allir velkomnir. Sjá nánar: Lífið eftlr vinnu á Vísi.is Dómsdagur „4 þeim degi mun mannkyn koma í flokkum til þess aö skoöa verk sín. Hver sem gert hefur agnar ögn afgóöu verki, fær aö sjá þaö, og hver sem gert hefur agnar ögn af illu verki, fær einnig aö sjá þaö. “ Brœdur munu berjast og aö bönum verða, munu systrungar sifjum spilla, hart er í heimi, hórdómur mikill, skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir, vindöld, vargöld, áöur veröld steypist mun engi maöur öórum þyrma Ymur hiö aldna tré en jötunn losnar, skelfur Yggdrasils askur standandi. Surtur fer sunnan meó sviga lœvi, skín af sverði sól valtiva. Grjótbjörg gnata en gífur rata, troöa halir helveg en himinn klofnar. Sól tér sortna, sígur fold í mar, hverfa af himni Upp mun rísa öðru - heimsendir í nánd sinni Einhverjir höfðu orð á, að helgi- dómurinn væri prýddur fógrum stein- um og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: „Þér horfið á þetta, en þeir dagar munu koma, að hér stendur ekki eftir steinn yfir steini, er eigi sé niður brot- inn.“ En þeir spurðu hann: „Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að það sé að koma fram?“ Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: „það er ég!“ og „tíminn er í nánd!“ Fylgið þeim ekki. En þegar þér spyrjið um hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara, en endirinn kemur ekki samstundis.“ Síðan sagði hann við þá: „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum, en ógnir og tákn mikil á himni.“ Upphaf og endalok Alla tíð hefur mikið verið spáð í upphaf og endalok heimsins. Kenning- ar kirkjunnar um að upphafið væri aö finna í Edengarðinum og ábúendum hans, Adam og Evu, hafa vikið fyrir kenningum um þróun mannsins frá frændum okkar öpunum. Endalokin eru ekki tímasett en einhverjir telja þó að þau séu á næsta leiti. Margir hafa skilið orð Nostradamusar að endalokin séu í kringum ár- þúsundamótin. Endalokin og árþúsundamótin voru lengi i það óábyrgri fjarlægð að hægt var að tala hátt um þau. Síðan skreið ártalið yfir 2000 en ekk- ert gerðist. Táknin eru fyrir hendi. Jarðskjálftar um allan heim, flóð, fellibyljir og kjarn- orkuslys; hungur hefur lengi verið viðvarandi vandamál; stríð geisa; Ebólaveiran, eyðni og undirliggjandi ógn af berkl- um. Opinberun Jóhannesar Fræg er sagan af Babels- turnsuppákomunni. Mennimir byggðu svo magnaðan turn að Guð sá sig tilneyddan til að leggja hann í rúst þar sem tak- mark mannanna var að bygg- ingin næði til himins. Guð refsaði mönnunum einnig með því að tvístra þeim um alla jörðina og rugla tungumál þeirra. Líking turnsins við Netið er kannski ekki fjarri lagi nema hvað Netið er mun óræðara og viðameira og þar með líkara Guði og hans ríki en turninn. Guð er reiður núna. Orð Krists sem vitnað er til hér á undan eru færð til bókar í þremur guðspjöllum. í Hebrea- bréfinu segir og: Gœtiö þess, aö þér hafnió ekki þeim sem talar. Þeir, sem höfnuöu þeim er gaf guðlega bendingu á jörðu, komust ekki undan. Miklu síóur mun- um vér undan komast, ef vér gjörumst fráhverfir honum, erguðlega bendingu gefurfrá himnum. Raust hans lét jörð- ina bifast fyrrum. En nú hefur hann lofaö: „Enn einu sinni mun ég hrœra jöróina og ekki hana eina, heldur og himininn.“ Oróin: „Enn einu sinni“, sýna, að það, sem bifast, er skapað og hverfur, til þess að það standi stöðugt, sem eigi bifast. Þar sem vér því fáum ríki, sem ekki getur bifast, skulum vér þakka það og þjóna Guði, svo sem hon- um þóknast, með lotingu og ótta. Því aó vor Guð er eyöandi eldur. ■ ■■ og sólin varð svört Jarðskjálftar eru greinilega merki um reiði Guðs og miðað við þær frétt- ir sem færðar eru heim í stofu af ábúðarmiklum fréttamönnum skyldi maður ætla að Guð væri ekkert of hress með okkur. Ólafur Sigurðsson og Árni Snævarr hafa hins vegar ekki enn komið fram með Biblíuna og mælt með því að áhorfendur rifji upp boðskapinn enda yrði starf frétta- mannsins ekki svipur hjá sjón. Eftir því sem ég best veit er mjög sjaldgæft að vitnað sé í Opinberun Jó- Vargöld Bræöur munu berjast og að bönum veröa, munu systrungar sifjum spilla, hart er í heimi, hórdómur mikill... hannesar við messur. Jóhannes var góður stilisti en textarnir hans ekki til þess fallnir að peppa upp mann- skapinn og skapa stemningu. Iron Maiden vakti áhuga minn á þessum hluta Biblíunnar sem ólgar af orð- kynngi og gerir heimsendi virkilega spennandi. Og ég sá, er lambið lauk upp sjötta innsiglinu. Og mikill landskjálfti varó, og sólin varð svört sem hœrusekkur, og allt tunglió varó sem blóð. Og stjörnur himinsins hröpuðu niður á jörð- ina eins og þegar fíkju- tré, skekið af storm- vindi, fellir haustaldin sín. Og himinninn sviptist burt eins og þegar bókfell vefst saman, og hvert fjall og ey fœrðist úr stað sínum. Og konungar jaróarinnar og höfðingjarnir og her- foringjarnir og auómennirnir, mektar- mennirnir og hver þrœll og þegn fólu sig í hellum og í hömrum fjalla. Og þeir segja við fjöllin og hamrana: „Hrynjið yfir oss og felió oss fyrir ásjónu hans, sem í hásœtinu situr, og fyrir reiói lambsins; því að kominn er dagurinn, hinn mikli dagur reiói þeirra, og hver mun geta staö- ist?“ Skekin jörð í Kóraninum Kristni er ekki ein trúar- bragða um jarðskjálftaspá- dóma. 99. þáttur Kóransins heitir Landskjálftinn og segir sú opinberun í Mekku frá á eftirfarandi hátt: í nafni Allah hins milda og miskunnsama. Þegar jörðin er skekin sem ákafast, þegar jörðin varpar frá sér þunga sínum, og menn spyrja: „Hvað mun þetta tákna?" - á þeim degi mun hún boða tíó- indi sín, því það hefur Herra þinn sett henni fyrir. Á þeim degi mun mannkyn koma í flokkum til þess að skoóa verk sín. Hver sem gert hefur agn- ar ögn af góðu verki, fœr að sjá það, og hver sem gert hef- ur agnar ögn af illu verki, fœr einnig aó sjá þaó. Ragnarök Þeir forfeður okkar sem í árum og ættliðum eru tengd- ari okkur eru af norskum ættum. Þeirra trúarbrögð gerðu ráð fyrir heimsendi á svipaðan hátt og kristni. í magnaðasta texta sem orðið hefur til á íslenskri tungu er sagt frá heimsslitum. Er þar að sjálfsögðu átt við Völuspá. heióar stjörnur. Geisar eimi vió aldurnara, leikur hár hiti við himin sjálfan. Ekki eru lætin í náttúrunni minni hér en hjá Jóhannesi en stíllinn gjörólíkur. í línunni „troða halir helveg en himinn klofnar“ gæti verið átt við gatið á ósónlag- inu. Ekki er öli nótt úti enn þótt sú mynd heimsins sem við höfum af honum líði undir lok. Önnur og betri veröld mun verða til - fyrir rétta fólkið. Það er nefnilega ekki sama hverrar trúar þú ert þegar kem- ur að heimsendi. Kristin heimsslita- trú segir að kristnir muni ganga inn í eilífa hamingju himnaríkis og önnur trúarbrögð lofa fylgjendum sínum einnig fæði, húsnæði og góðu atlæti. Áðumefndur Jóhannes segir svo í Op- inberun sinni: Og ég sá nýjan himin og nýja jöró, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörö voru horfin og hafió er ekki fram- ar til. Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga nióur af himni frá Guöi, búna sem brúöi, er skartar fyrir manni sínum. Og ég heyrði mikla raust frá hásætinu, er sagói: „Sjá, tjaldbúö Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guó þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauóinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl erfram- ar til. Hið fyrra er farið. Þessu er likt farið fyrir þá sem að- hyllast norræn goð. Sér hún upp koma öóru sinni jörö úr œgi iðjagrœna. Falla fossar, flýgur örn yfir, sá er á fjalli fiska veiðir. Sal sér hún standa sólu fegra, gulli þaktan, á Gimlé. Þar skulu dyggvar dróttir byggja og um aldurdaga yndis njóta. Lifið heil. -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.