Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Síða 50
62
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
Helgarblað ________________________________________________________________________________________________py
Fox hjálpar til
Leikarinn Michael J. Fox, sem þjá-
ist af Parkinsonsveikinni, aðstoðaði
nýlega Kalíforníuháskóla í San
Francisco við að ýta í gang fjársöfnun,
þar sem takmarkið er að safna 1,4
milljörðum dollara til styrktar lyfla-
rannsóknadeild skólans, en deildin
hefur einmitt einbeitt sér að rann-
sóknum á áðurnefndum sjúkdómi.
„Það var mjög ánægjulegt að að geta
orðið að liði, en veikindin mín hafa
opnað augun mín fyrir mikilvægi
rannsóknarstarfsins," sagði Fox, sem
sjálfur hefur stofnað sjóð til styrktar
'•annsóknum á Parkinsonsveikinni.
Siginkona Fox, leikkonan Tracy PoO-
an, á nú von á þeirra fjórða barni og
á von á sér eftir tvær til þrjár vikur.
Um milljón Bandaríkjamanna þjást í
dag af Parkinsonsveikinni og þar á
meðal eru þau Janet Reno fyrrum rík-
issaksóknari og hnefaleikakappinn
Muhammad Ali.
Lagt á toppinn:
Funerals á ferð um landið
Bandaríski blaðamaðurinn og
poppfræðingurinn Neil Straus, sem
skrifar um tónlist fyrir New York
Times, er staddur hér á landi í
tengslum við tónlistarhátíðina
Airwaves. I grein eftir Straus, sem
er að flnna á heimasíðu New York
Times, heldur hann vart vatni yfir
íslenskri tónlist. Hann gengur svo
langt að halda því fram að ísland sé
vin í eyðimörkinni þar sem listir og
menning ná að blómstra og dafna á
undursamlegan hátt.
Funerals
Straus heillaðist svo af hljóm-
sveitinni Funerals að hann fékk
hana til að fara í stutt tónleikaferða-
lag nú um helgina. Poppfræðingur-
inn ætlar að fara með og segja frá
tónleikunum i New York Times á
næstunni.
Hljómsveitin Funerals er sett
saman úr nokkrum hljómsveitum:
Kanada, Trabant, Ó. Johnson og
grjóni og Apparati.
Viðar Hákon Glslason, bassaleik-
ari í Funerals, segir að þau séu sex
í hljómsveitinni og öll hlakki mikið
til að spila á Krákunni, Kántribæ og
öllum hinum stöðunum vegna þess
að það sé svo gaman að vera í
Funerals. „Við komum aftur í bæ-
inn á sunnudaginn og verðum með
tónleika í Vesturporti á Vesturgötu
um kvöldið og ég reikna með að
fyrrverandi hljómborðsleikar úr
Spashing Pumkins hiti upp fyrir
okkur,“ segir Viðar hróðugur. „Við
hittum hann fyrir stuttu og hann
hélt að það væri á hreinu nema að
hann lenti í einhverju hrikalegu."
Allt á billjón
Þorsteinn Skúlason hjá Thule-út-
gáfunni, sem gefur út Funerals, seg-
ir að hljómsveitin muni spila í
Grundarfirði, á Stokkseyri, Akur-
eyri og víðar. „Straus var nýbúinn
að ferðast með Marilyn Manson í
sjö vikur áður en hann kom hingað
til að fylgjast með Airwaves. Hann
varð yfir sig hrifinn af Funerals og
heldur því fram að hljómsveitin
verði næsta íslenska hittið. Honum
varð einnig mjög tíðrætt um ágæti
hljómsveitarinnar Apparats og taldi
hana reyndar athyglisverðustu
sveitina á Airwaves."
Að sögn Þorsteins bað Straus sér-
staklega um að Funerals færi í tón-
leikaferð svo hann gæti skrifað um
hana. „Við erum búnir að vera á
billjón að redda öllum og hljóm-
sveitin lagði af stað um sexleytið á
fimmtudag."
-Kip
Hljómsveitin Funerals
Viöar Hákon Gíslason bassaleik-
ari, Lára Sveinsdóttir, söngvari og
harmónikuleikari, Þorvaldur Grön-
dal hljómborðsleikari, Ó. Johnson
gítarleikari og Ragnar Kjartansson
söngvari rétt áöur en lagt var af
stað.
Trésmiðja Heimis Guðmundssonar heftir undanfarin
ár haft í smíðum stórglæsileg sumarhús/heilsárshús
á viðráðanlegu verði. Húsin henta mjög vel hvort sem
er fyrir einstaklinga eða starfsmannafclög og fást í
hinum ýtnsu stærðum.
Allar nánari upplvsingar fást í s: 892 3742
eða á www.tresmidjan.is
Stundum líkt
við Bardot
Franska glæsipian
Laetitia Casta, sem lék í
myndinni um Ástrík gall-
vaska, fæddi á dögunum
stúlkubarn sem hún á með
sínum kærasta, ljósmynd-
aranum og myndbandaleik-
stjóranum Stephane Sedna-
oui. Laetitia, sem þykir
undurfógur, hefur undan-
farið búið í New York, þar
sem hún hefur stundað
sýningarstörf, en hefur ný-
lega fest kaup á íbúð í mið-
borg London. „Ég vil frek-
ar búa i London en París,
því þar get ég farið i bæ-
inn án þess að þekkjast, en í París er
ég betur þekkt og verð frekar fyrir
ónæði,“ sagði Laetitia.
Laetitia, sem er 23 ára og fædd og
uppalin á Korsíku, var uppgötvuð þeg-
Laetitia Casta
Ofurfyrirsætan Laetitia
Casta, sem þykir líkjast
Brigitte Bardot, eignaö-
ist barn í síöustu viku.
ar hún var 15 ára í bað-
strandarferð með foreldr-
um sínum og hefur siðan
verið ein vinsælasta sýn-
ingarstúlka Madisons fyrir-
tækisins. Hún hefur nú
ákveðið að leggja sýningar-
störfin á hilluna og snúa
sér alfarið að leiklistinni,
en þar þykur hún einnig
sæmilega liðtæk. Eftir Ást-
ríksmyndina, árið 1999,
hefur hún fengist við nokk-
ur hlutverk, m.a. í mynd-
inni „Savage Souls“ þar
sem hún lék á móti John
Malkovich, en til þessa hef-
ur frammistaða hennar þótt misjöfn
og hefur henni stundum verið líkt við
sjálfa Brigitte Bardot, sem fór lengra á
útlitinu en leikhæfileikunum.
Pavarotti sýknaður af
skattsvikaákærum
Stórtenórinn Luciano Pavarotti
var á föstudaginn sýknaður af öll-
um ákærum um skattsvik, sem að
sögn hans sjálfs hafði nær lagt líf
hans í rúst. Skattayfirvöld á Ítalíu
höfðu ákært Pavarotti fyrir að
skjóta undan sköttum á árunum
1989 til 1995, sem hann hefði átt að
greiöa í heimahéraði sínu, Modena.
Pavarotti hélt þvi aftur á móti fram
að honum bæri ekki að greiða
skatta í Modena, þar sem hann ætti
lögheimili í Monte Carlo, þekktu frí-
ríki þeirra ríku sem komast vilja
hjá þvi að greiða of mikla skatta.
„Ég er enginn skattsvikari," sagði
Pavarotti. „Ég hef alltaf greitt það
sem mér ber.“
Pavarotti, sem ekki var viðstadd-
ur dómsuppkvaðninguna, sagðist
ánægður með niðurstöðuna og sagð-
ist ekki hafa búist við öðru en sýkn-
un, en að öðrum kosti hefði hann
átt yfir höfði sér allt að þriggja ára
fangelsi. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem hann stendur í málaferlum
Luciano Pavarotti
Pavarotti var sýknaöur af ákæru
ítalskra skattayfírvalda.
vegna skattamála, því árið 1999 var
hann dæmdur til að greiða ítalska
ríkinu 4,6 milljónir dollara og í
fyrra sættist hann á að greiða 11
milljónir dollara í skatta og sektir.