Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Qupperneq 56
Tilvera
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
I>V
íslandsmót skákfélaga - fyrri hluti:
Það neikvæða og jákvæða
við erlenda keppendur
íslandsmót skákfélaga fór fram í
Eyjum um síðustu helgi og varð að
sjálfsögðu sögulegt. Það byrjaði með
að þoka í Reykjavík og á Akureyri
fór að hrella skákmenn sem til Eyja
vildu fara þannig að aðeins þeir
sem voru forsjálir og tóku Herjólf á
hádegi voru komnir á vel réttum
tima en mótið átti að hefjast kl. 20 á
föstudagskvöldið. Eftir mikið japl,
fum, fuður og ófærð I lofti komu
hinir svo flestir með seinni ferð
Herjólfs um kl. 22 og þá var hægt að
hefja taflmennsku eftir mótmæla-
fundi og tilheyrandi skoðanaskipti.
Vart þarf að taka fram að mótshald-
ið var Heimaeyjarmönnum til mik-
ils sóma. Ef hann Kári hefði ekki
sett smástrik í reikninginn hefðu
flestir brosað út að eyrum.
Undanfarin ár hefur baráttan um
íslandsbikarinn staðið á milli Tafl-
félags Reykjavíkur og Taflfélagsins
Hellis. Síðast þegar annað félag
vann titilinn var 1992. Það var Tafl-
félag Garðabæjar og að sjálfsögðu
var ég í því liði. Taflfélag Reykjavík-
ur vann í fyrra og var ég einnig í
þvi liði. Menn héldu að sú yrði
einnig raunin í ár, að þessi félög
myndu berjast í „bróðerni“ um titil-
inn. En nú er öldin önnur - ég og
fleiri á mínum aldri ekki eins víö-
sýnir og uppreisnargjarnir og 1968!
Jóhann Þórir Jónsson er því miður
allur en maður kemur í manns stað.
Hrafn Jökulsson er einlægur skáká-
hugamaður og vill veg skákarinnar
sem mestan. Sama má segja um
hinn nýja forseta SÍ, Hrannar Björn
Arnarsson. Og þeir félagar eru að
gera góða hluti. Við erum nokkrir
sem mótmælum stundum; stundum
er það aldurinn og skortur á víð-
sýni, stundum höfum við þó, gömlu
strákamir í Taflfélaginu, rétt fyrir
okkur. En þeir eru þó með nýjar og
skemmtilegar hugmyndir.
I ár mætti Hrafn með sex erlenda
stórmeistara: allir sómamenn ög
gamlir og góðir kunningjar nema
hann Luke McShane frá Stóra-Bret-
landi, ungur efnispiltur og gaman
að tala við hann og föður hans sem
kom með til fulltingis. Þessir ágætu
menn tefla fyrir Hrókinn og ég verð
að segja eins og er að ég sé jákvæðu
hlutina við þetta og auðvitað þá nei-
kvæðu líka. Heimurinn er að breyt-
ast á nýju árþúsundi og verður mað-
ur ekki að reyna að skilgreina hlut-
ina eftir því? Ef menn geta ekki
safnað liði innanlands til að vinna
titilinn verða þeir að leita út fyrir
landsteinana og kaupa lið fyrir of
fjár. Ekkert bannar það en heldur
finnst mér þetta hégómlegt! Þarna
skrifaði hinn neikvæði Sævar
Bjarnason. Hins vegar verður að
líta á það að alltaf er fengur að fá er-
lenda sterka stórmeistara í heim-
sókn. Það auðgar skáklistina, við
losnum við að tefla við sömu góðu
félagana ár eftir ár og þaö vekur
meiri athygli á keppninni. Islands-
mót skákfélaga kom í Ríkissjón-
varpinu. Það hefur ekki gerst að
neinu marki í áratugi og í raun
erum við að reyna að koma okkar
göfugu skáklist á framfæri og fá
fleiri til að uppgötva hinn skemmti-
lega skákheim.
Taflfélag Reykjavíkur er efst eins
og er - tókst að leggja vini vora og
hræður, höfuðóvininn Helli. í vor
gerum við upp við útlendingaher-
sveitina Hrókinn. Mér er til efs að
Hannes Hlífar Stefánsson
Hefur tök á Ivan Sokolof. Hefur fimm vinnlnga gegn einum samanlagt í skák-
um sem þeir hafa teflt.
þá verði í því liði nokkur maður,
búsettur á Islandi, hvað þá kunni
hið ástkæra, ylhýra, en hjá okkur í
skákinni er nóg að kunna að tefla
því við erum allir af sama meiði
sprottnir.
Lítum nú á það sem málið snýst
um. Fyrst mátar Hannes Hlífar sem,
ásamt Jóhanni Hjartarsyni, er sómi
okkar, sverð og skjöldur, Ivan
Sokolov sem er stigahærri en nokk-
ur íslenskur skákmaður hefur
nokkurn tíma orðið. En þeir bíta
hraustlega frá sér enn þá og fleiri á
leiðinni. Jákvætt, já, jákvætt mál.
Eftir skák þeirra félaga á fimmtu-
dagskvöldið í Ráðhúsinu er staðan á
milli Hannesar og Ivans 5-1 Hann-
esi í vil. Ivan Sokolov hefur nálægt
2700 stigum. Hannes hefur alla
burði til að rjúfa þann múr á næsta
ári, fyrstur íslendinga.
Hvítt: Hannes Hllfar Stefánsson
Svart: Ivan Sokolov
Spánski leikurinn (Berlínarmúrinn)
Vestmannaeyjum (2), 20.10. 2001
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 RfB
Berlínarafbrigðið svokallaða. í 3.
umferð á minningarmóti Jóhanns
Þóris Jónssonar, en 4. umferð fer
einmitt fram í dag, kl. 17, í Ráðhúsi
Reykjavíkur, lék Ivan 3. Bc5 og
skákinni lauk með jafntefli þrátt
fyrir frumkvæði Hannesar lengi vel.
4. 0-0 Rxe4 5. d4 Rd6 6. Bxc6 dxc6
7. dxe5 Rf5 8. Dxd8+ Kxd8 9. Rc3
h6 10. Hdl+ Ke8 Það er ekki á
hverjum degi sem íslenskur skák-
maður tekur tvo af fremstu skák-
mönnum heims í kennslustund.
Kasparov rembdist eins og rjúpan
við staurinn í London í fyrra við að
finna rétta leikaðferð í þessu af-
brigði. Hannes hefur teflt þetta áður
svona, í Egyptalandi, og Kaspi
hermdi eftir honum á skákmóti í
Wijk aan Zee fyrr á árinu og lagði
þá Kramnik loksins í þessu afbrigði,
Berlínarmúrnum svokallaða, og
þóttu það mikO tíðindi. Fáir vissu
þó að Kaspi hafði gengið í smiðju til
Hannesar og grunar mig að Ivan
Sokolov hafi ekki vitað það!? 11. b3!
Be6 12. Bb2 a5 13. a4 Hd8 14. Re2
Hxdl+ 15. Hxdl Bd5 16. Rel g5
17. Rc3 Be6 18. Re4 Be7 19. Rf3
KfB.
Svartur teflir greinilega til jafn-
teflis en Hannes er eins og fiskur í
vatni hér og slær á alla tilburði til
mótspils. 20. Rf6 c5 21. g4 Rg7 22.
h3 Bc8 23. Rd2 Re6 24. Rc4! b6.
Allar þessar tilfæringar eru aðeins
fyrir lengra komna að botna í! Aðal-
atriðið er að svarta staðan veikist
hægt og rólega af illvígum sjúkdómi
og siðan er bara að hirða afrakstur-
inn. Hann Hannes Hlífar, okkar, á
ekki langt eftir í allra fremstu röð!
25. Re3 Bxf6 26. exf6 h5 27. Rd5
hxg4 28. hxg4 Bb7 29. Be5! Rf4.
Þessi aumkunarverði leikur er
nauðsynlegur til að koma í veg fyr-
ir að svörtu peðin falli. Það hlut-
skipti svarts bíður þá aðeins lengur.
30. Bxf4 gxf4 31. f3 Hh3 32. Hd3
Kg8 33. Kg2 Hg3+ 34. Kf2 Bxd5
35. Hxd5 Hh3.
Hvítur leikur og vinnur! 36.
Hg5+! Kh7 36. -Kf8 tapar strax eftir
37. Hh5 og peðsendataflið er gjörtap-
að. 36. Kh8 er aðeins gálgafrestur,
37. Ke2! Hh2+ 38. Kd3 Hf2 39.
Hg7! Og hvítur verður á undan að
ná drottningu eða máta, hvíti kóng-
urinn skundar á vettvang, eða sam-
stæð frípeð hvíts renna upp! Og að
lokum 36. Kh8 37. Ke2! Hh2+ 38. Kd3
Hh6 39. Hf5! Og vinnur létt! Sá á
kvölina sem á völina. 37.Hg7+ Kh8
38. Hxf7 Hh2+ 39. Kgl Hxc2 40.
g5 1-0.
Skák þessi þótti einna æsilegust á
íslandsmóti skákfélaga í Eyjum.
Gamall vinur minn, sem ég dró úr
Flugleiðavél 1978, er nú einn af liðs-
mönnum Hróksins og heitir Nick de
Firmian stórmeistari. Nick hefur
ævinlega verið mér þakklátur fyrir
að fá að sjá fegurð landsins að sum-
arlagi í fríi nokkra daga. Hann hef-
ur verið íslandsvinur æ síðan og
notar hvert tækifæri til að komast
til íslands en hefur því miður að-
eins í þetta eina skipti, 1978, komið
að sumarlagi.
Hann hreifst mjög af fegurð Vest-
mannaeyja og viH endilega komast
þangað með konu og börn í frí í
framtíðinni. Nick sagði um þessa
skák að hann vonaðist til að það
yröum við, íslendingar, sem gerðum
út um málin á Islandsmóti skákfé-
laga en ekki þeir málaliðarnir. Nick
býr í kóngsins Kaupinhavn og á
danska konu.
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Bragi Þorflnnsson
Nlmzo-indversk vöm.
Vestmannaeyjum (4), 21.10. 2001
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Rf3 c5 5. g3 b6 6. Bg2 Bb7 7. 0-0
Bxc3 8. bxc3 d6 9. d5 0-0 Karl Þor-
steins hefði án efa getað orðið stór-
meistari, hann var nálægt því á sín-
um tíma. En á besta aldri, rétt fyrir
þrítugt, dró hann sig að mestu frá
skákiðkun - fór að starfa í sínu fagi,
viðskiptafræði. Hann lagði danska
stórmeistarann Henrik Danielsen í
Eyjum og hefur litlu gleymt. En hér
á hann í höggi við ákveðinn ungan
mann sem stefnir til meiri metorða
í skákinni og er meira en 15 árum
yngri. Bragi Þorfinnsson er ekkert
lamb að leika við! 10. Rh4 e5 11. e4
Ba6 12. De2 He8 13. Bh3 Rbd7 14.
Bg5 Bc8 15. a4 h6 16. Bd2 Rh7.
Þetta eru allt mjög skáklega séð
„menntaðir" leikir og ljóst að pilt-
arnir kunna ýmislegt fyrir sér! 17.
Ha2 Rg5 18. Bg2 Rf6 19. f3 Bd7 20.
Hfal Hb8 21. Be3 Dc8 22. Dd2 Da6
23. Bxg5 hxg5 24. Dxg5 Dxc4 25.
Dd2.
Sannkölluð baráttuskák og und-
ir kraumar mikil spenna. Flestir
stórmeistarar hefðu verið full-
sæmdir af taflmennskunni. Nú er
boginn spenntur hjá báðum - eins
gott að þeir geigi ekki! 25. - Da6
26. Bfl c4 27. Rg2 Hbc8 28. Re3
Hc5 29. Hb2 b5 30. Hb4 Hec8 31.
Da2 Db6 32. axb5 Hxb5. Hér
héldum við strákarnir í Taflfélag-
inu að Bragi væri að snúa á Karl.
En Karl Þorsteins ólst upp i TR og
vann sína glæstustu sigra undir
merkjum þess félags. Svo hann var
sýnd veiði en ekki gefin! 33. Dxa7!
Hxb4 34. cxb4 Dxb4 35. Da5 Db2
36. Da3 Dd4 37. Hdl Db6 38. Kg2
c3! 39. Rc4 Hxc4?! Tímahrakið,
spennan og adrenalíniö flóði! Nú
fara undarlegir hlutir að gerast.
Best var sennilega 39. c2! 40. Hcl
Dd4 41. Hxc2 Rxe4 með mjög tví-
sýnu tafli þar sem svartur virðist
standa örlítið betur. En ungu
mennirnir eru óhræddir við að
fórna og víst er fórnin djúp!! 40.
Bxc4 De3 41. Dcl.
Karl er gamalreyndur skákmað-
ur og sér ábyggilega eftir því að
hafa ekki fengið sér kaffibolla eða
te og róað hugann. Þá hefði hann
sennilega ekki leikið 41. Dcl held-
ur 41. Da8+ Kh7 42. Da2 Bg4! 43.
Hfl Rxe4! 44. fxg4 Rd2 45. Dc2+ e4
46. Bg5 og hvítur er líklega með
unnið?! Staðan er full af öðrum
möguleikum en við fyrstu athugun
virðist hvítur standa betur! En nú
fær Bragi ótrúlegt tækifæri! 41. -
Bh3+ ??!! Snilldin verður stund-
um til fyrir misskilning. Bragi
hélt að hann væri að vinna og það
hélt Karl líka! Eftir hinn gerða
leik held ég að Karl hafi unna
stöðu. Hjálpi mér allir heilagir,
ekkert er víst í heimi hér. Hér á
Bragi snilldarvinningsleik hefði
hann fengið sér nokkra sopa i við-
bót af kaffinu, sem hann var þó
búinn að ná sér í, hefði hann án
efa komið auga á hann! 41. Rg4!!
Athugum fyrst 42. Dc2. En Þröstur
Þórhallsson stórmeistari var fljót-
ur að sjá við því, 42. Ba4!! og hvit-
ur getur gefið með þokkalegri
samvisku! 43. Dxa4 DÍ2+ 44. Kh3
Dxh2 45. Kxg4 g6! Og hvítur verð-
ur mát i 5. leik eins og lesendur
geta skemmt sér við að flnna! 42.
Kxh3 Dxf3.
Enn er smátaugatitringur í
gangi og Karl sér möguleikann Rh5
fylgt af Rf4+ og hvíta staðan hryn-
ur. En hann á björgunarleik! 43.
Hel Rh5 44. Be2 Rf4+ 45. Dxf4 og
vinnur! Mér er öllum lokið! 43. Hfl
Dg4+ 44. Kg2 Dxe4+ 45. Hf3 Dxc4
46. Dxc3 De2+?! Betra var 46. Da2+
47. Khl Dxd5 með þokkalegum
vinningsmöguleikum fyrir Braga.
47. Hf2 O-l. Hér fékk Bragi sér
kafflsopa með skjálfandi höndum.
Það tekur á aö tefla. Karl uppgötv-
aði strax að Bragi var aðeins að
njóta augnabliksins, eftir 47. Dxf2+
48. Kxf2 Re4+ er öllu lokið. Hann
gafst því upp saddur lífdaga eins
og sagt var hér í eina tíð! Eftir 47.
Kgl er erfltt að sjá vinning fyrir
svartan, 47. - Dxd5 48. Dc8+ Kh7 49.
Dh3+ með þráskák. Og erfitt að
bæta svörtu stöðuna. Karl hélt að
hann gæti teflt tO vinnings með 47.
Kh3 en líklega hefur hann ekki séð
47. - Re4 sem vinnur! T.d. 48. Dc8+
Kh7 49 Df5 Kh6! Já, það er ekkert
lát á ævintýrunum í Eyjum.