Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
Fréttir
DV
Heimild fyrir 20 milljarða ríkisábyrgð vegna deCODE samþykkt:
Einungis þrettán
þingmenn á móti
27 atkvæði með - veiðigjald á aflaheimildir orðið að lögum
Frumvarp um heimild til fjár-
málaráðherra að áhyrgjast allt að
20 milljarða skuldabréfalán
deCODE Genetics var samþykkt
með 27 atkvæðum gegn 13 á Al-
þingi í gær. 12 þingmenn - þar af
þrír stjómarliðar - sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna en 11 voru fjar-
verandi.
Ekki er vafi á að frumvarpið
nýtur stuðnings meirihluta þing-
manna. Engu að síður vekur at-
hygli að það var ekki samþykkt
með atkvæðum meirihluta þing-
heims.
í ljósi víðtækrar andstöðu í þjóð-
félaginu vekur líka athygli að ein-
ungis þrettán þingmenn greiddu
atkvæði gegn málinu. Þetta voru
Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki;
allir þingmenn Vinstri hreyfmgar-
innar - græns framboðs nema
Steingrímur J. Sigfússon sem var
fjarverandi; sex af sautján þing-
mönnum Samfylkingarinnar og
báðir þingmenn Frjálslynda
flokksins.
Stjórnarliðamir þrír sem sátu
hjá voru Þorgerður Katrin Gunn-
arsdóttir, Sjálfstæðisflokki, og Jón-
ína Bjartmarz og Magnús Stefáns-
son, Framsóknarflokki. Auk þeirra
Síðasti þingdagur
Fundum Alþingis var í gær frestaö til septemberioka.
sátu níu þingmenn Samfylkingar-
innar hjá, þeirra á meðal Össur
Skarphéðinsson, formaður flokks-
ins, en hann lýsti stuðningi við
málið þegar það var fyrst kynnt.
Fimm þingmenn Sjálfstæðis-
flokks voru fjarverandi, tveir þing-
menn Framsóknarflokks, tveir
þingmenn Samfylkingar og tveir
þingmenn Vinstri grænna.
Ef þeir sem ekki treystu sér til
að styðja frumvarpið - þeir sem
sátu hjá - hefðu greitt atkvæði
gegn því hefði það engu að síður
verið samþykkt með 27 atkvæðum
gegn 25.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks em alls 38. Ell-
efu þeirra - eða meira en einn af
hverjum fjórum - greiddu ekki at-
kvæði með frumvarpinu; einn var
á móti, þrír sátu hjá og sjö vom
fjarverandi. Fjarverandi sfjómar-
liðar voru sjálfstæðisþingmennim-
ir Árni Mathiesen, Bjöm Bjarna-
son, Lára Margrét Ragnarsdóttir,
Sólveig Pétursdóttir og Tómas Ingi
Olrich og framsóknarþingmenn-
imir Hjálmar Ámason og Ólafur
Örn Haraldsson.
Alþingi samþykkti einnig í gær
framvarp til laga um stjórn fisk-
veiða sem felur í sér að afkomu-
tengt veiðigjald verður lagt á sjáv-
arútveginn. Frumvarpið var sam-
þykkt með 29 atkvæðum gegn 23.
Fundum Alþingis var frestað í
gær til septemberloka. Nokkur
framvörp voru tekin af dagskrá í
fyrrakvöld þegar meiri- og minni-
hluti sömdu um þinglok, þ.á m.
umdeilt frumvarp um að gera lág-
markskunnáttu í íslensku að skil-
yrði fyrir veitingu ríkisborgara-
réttar. -ÓTG
Krœktu
í metsölubók
a broslegu
verði
Adeins 1.490 kr.
lestrar Mci.só'ybttkor Jí bhbwi
mh j | II*\) N 1/» í1 **tt**,r
(Leíðbeinöntíi ótsöíuv
6 vandaðar
metsölubækur í kiljubroti
Z dstarsaga
Hann var kallaður „]»etta“
Leggðu rœkt við sjólfan þig
Eyðimerkurblómið
Artemis Fowl
Konan í köflótta stólnum
1 '
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstígur 7 • Sími 575 5600
Fréttablaðið:
Fréttastjórinn hættir
Pétur Gunnarsson, frétta-
stjóri Fréttablaðsins, mun
láta af störfum þar á næstu
dögum. Hann hefur gert
samning um starfslokin við
útgefendur blaðsins og hyggst
fyrst um sinn sinn vinna sem
sjálfstætt starfandi blaðamað-
ur i ýmsum útgáfu- og kynn-
ingarverkefnum. í samtali við
DV í gærkvöld sagði Pétur að
Pétur
Gunnarsson.
brotthvarfið væri að hans
frumkvæði.
Fyrst um sinn mun Pétur
sinna ýmsum útgáfumálum
fyrir lista framsóknar-
manna og óháðra i Garða-
bæ. „Pétur mun vinna fyrir
okkur að pólítískri mark-
aðssetningu," sagði Einar
Sveinbjörnsson sem skipar
efsta sæti listans. -sbs
Endurskipulagning Eddu - miðlunar:
Allt að 100 milljóna
króna hlutur
~ Björgólfs Guðmundssonar ef áætlanir standast
„Hafin er vinna að áætlun og það á að
vinna hana hratt og vel,“ sagði Halldór
Guðmundsson, forstjóri Eddu - miðlun-
ar & útgáfu, við DV. Eins og greint var
frá í gær hefur náðst samkomulag um
innkomu Björgólfs Guðmundssonar í
fyrirtækið, að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Aðilar hafa skrifað undir
ákveðna verkáætlun þar að lútandi.
Halldór sagði að áfram yrði unnið að
spamaði þeim hjá fyrirtækinu sem
kynntur hefði verið á síðustu mánuð-
um. Þær aðgerðir gengju út á endur-
skipulagningu og íjármögnun félagsins.
I yfirlýsingu um innkomu Björgólfs í
fyrirtækið segir m.a. að stefiit sé að
verulegri eignaraðild hans. Þegar end-
urskipulagningunni verði lokið verði
v é-Jt :
haldinn hluthafafundur og skýrt nánar
frá niðurstöðum í kjölfar hans. Ekki er
getið um hve stór eignarhlutur Björgólfs
verði ef áætlunin gengur upp, en sam-
kvæmt upplýsingum DV getur hann
orðið allt að 100 milljónum króna. Hall-
dór kvaðst ekki vilja tjá sig um þann
þátt samkomulagsins.
Spurður um framtíð hins gróna fyrir-
tækis Máls og menningar sagði Halldór
að það væri eignarhaldsfélag sem ætti
sem stæði meirihlutann í Eddu. Það
væri að aðili að samkomulaginu. Þau
forlög sem aðild ættu að Eddu myndu
starfa áfram. Auk Máls og menningar
eiga Ólafur Ragnarsson og fjölskylda,
svo og íslandsbanki, auk smærri hlut-
hafa, hlut i fyrirtækinu. -JSS
Hfi Flókin staða í Færeyjum Erlent fréttaljós
Davíð of einráður Stelngrímur Hermannsson
Bækur
skipta máli
íslendingur
siglir í strand
Gunnar Marel
Eggertsson
Umkringdur
óvinum
Eggert
Haukdal
Fegurstu
byggingar
borgarinnar
Skoöanakönnun
34 ■■ - Meiriháttar í
bræðslu
Mozzarella
Bankinn græðir
Hagnaður Búnað-
arbanka íslands hf.
á fyrstu þremur
mánuðum ársins
var 1.036 milljónir
króna fyrir skatta.
Arðsemi eigin fiár
var 36% fyrir
skatta. Rekstrará-
ætlun bankans fyrir árið 2002 gerir
ráð fyrir 2,5 milljarða króna hagn-
aði á árinu. Bankastjóri Búnaðar-
bankans er Ámi Tómasson.
Friðsæld í Eyjum
Það skortir deilmnál í bæj-
arpólítíkinni i Vestmannaeyjum, að
því er fram kemur í Eyjafréttum.
Þrír framboðslistar koma fram og
er í blaðinu vakin athygli á því, til
marks um friðsældina í bæj-
arpólítíkinni, að enginn hafi enn á
þessu ári séð sig knúinn til að
skrifa viðhorfsgreinar um hana.
Kolmunnaafli góður
Búið er að landa tæplega 13.600
tonnum af kolmunna það sem af er
vertíð. í tilkynningu frá Samtökum
fiskvinnslustöðva kemur fram að
Ingunn AK. og Faxi RE hafi landað
samtals rúmlega 3.000 tonnum og
færeyska skipið Christian i Grótin-
um um 1.960 tonnum.
Sjúkrahús fær styrk
Gamla sjúkrahúsið á ísafirði fær
hæsta styrk sem úthlutað er úr
Húsafriðunarsjóði i ár, sjö milljónir
króna. Alls voru veittir 157 styrkir,
að upphæð rúmlega 31 milljón
króna. Önnur hús sem fengu háa
styrki í ár era Syðstabæjarhús i
Hrísey, Reykholtskirkja í Borgar-
firði og Austurstræti 20 í Reykjavík.
Safna handa langveikum
Rúmlega 80 nemendur i 10. bekk
Réttarholtsskóla munu á næstu dög-
um fara í sjálfboðavinnu til að safna
fyrir Umhyggju, félagi til stuönings
langveikum bömum. Þeir verða á
ferðinni í 24 fyrirtækjum og stofn-
unum, svo sem Blómavali, Eimskip,
Grímsbæ, Landspítalanum og Olís.
Samið um leiguflug
Flugleiðir - leiguflug hf. og Flug-
félagið Atlanta hf. hafa gert hvort
sinn samninginn til 18 mánaða við
dóminíska flugfélagið Aeromar Air-
lines um að hvort félag leggi
dóminíska flugfélaginu til eina flug-
vél á tímabilinu. Vélamar annast
daglegt flug á milli borga í
Dóminíska lýðveldinu og New York.
Hæstiréttur staðfestir
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð héraðsdóms um aö hafna
kröfu Skeljungs og Olís um að Sam-
keppnisstofnun eyði öllum tölvu-
skjölum sem hald var lagt á við hús-
leit hjá olíufélögunum í desember.
Félögin tvö höíðu einnig krafist við-
urkenningar á því að stofnuninni
væri óheimilt að opna skjölin.
Þorfinnur óhræddur
Þorfinnur
Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs, segist í
RÚV ekki óttast út-
tekt Ríkisendur-
skoðunar. Formað-
ur sjóðstjómar, Vil-
hjálmur Egilsson,
að stjómin fengi
til að
vildi nýlega
menntamálaráðuneytið
áminna Þorfinn fyrir ófullnægjandi
reikningsskil. Ekki var hljómgrunn-
ur fyrir því í stjóm. -sbs