Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Blaðsíða 35
LAUCARDAGUR -4. MAÍ 2002
Helqarblact DV
35
b
Jóhann Jónsson í
Ostabúðinni sker niður
fagra tómata. Hann leggur
mikla áherslu á að notaðir
séu góðir tómatar í rétti
með mozzarcllaosti.
Basilikulaufin eru sett heil
eða gróft skorin á réttinn.
Jóhann segir að þetta salat
rnegi gera í ýmsurn
útfærsluin, til dæmis með
sólþurrkuðum tómötum,
ýmsum ferskum
krj’ddjurtura eða eins og
hugmyndaflugið leyfir.
Jóhann leggur lokahönd
á réttinn. Hann segir að
mikilvægt sé að ofhlaða
ekki salatið heldur leyfa
einfaldleikanum að njóta
sín.
Ríkulegt Alsace-hvítvín
og Chianti Classico
- er val Guðrúnar Erlu Gunnarsdóttur
GUÐRÚN ERLA GUNNARSDÓTTIR hjá Austur-
bakka velur vínin með matnum í opnunni að
þessu sinni. Hún hafði strax orð á því að mörg
hvítvín hentuðu vel með ostum og réttum þar sem
ostur væri uppistaðan. Það væri útbreiddur mis-
skilningur að með slikum réttum ætti aðeins að
drekka rauðvín. það er því við hæfi að nefna fyrst
hvítvinið sem Guðrún Erla valdi, franskt hvítvín
frá Alsace, Rene Muré Pinot Gris. Þrúgan gefur af
sér fínlega ávaxtaangan og vínið er mjög ríkulegt
með mikla dýpt þar sem ávextirnir njóta sín til
fulls. Mjög gott jafnvægi er í sýru og ferskleika
vínsins. Þetta er talsvert kröftugt vín með löngu
eftirbragði. Skógarilmurinn í víninu passar full-
komnlega með tómötunum. Rene Muré Pinot Gris
passar að öðru leyti vel með fiski, pastaréttum og
salötum. Þá er einnig tilvalið að prófa þetta vin
með Port Salut ög Dala Yrju með hunangi. Rene
Muré Pinot Gris kostar 1570 krónur í verslunum
ÁTVR.
Auðvitað fara rauðvín vel með því sem Jóhann
í Ostabúðinni er að gera hér til hliöar. Og þá verð-
ur ítalskt rauðvín fyrir valinu, Chianti Classico.
Guðrún Erla segir þetta frábært Chianti sem unn-
ið hefur til verðlauna og fengið góðar einkunnir í
erlendum tímaritum. Chianti Classico er blanda af
tveimur þrúgutegundum Sangiovese (93%), sem
er helsta þrúgan í Tuscany, og Canaiolo (7%).
Chianti Classico er fallega rúbínrautt að lit,
með mikla fyllingu og nokkuð þurrt. Það ilmar
af dökkum berjum eins og hindberjum.
plómum og þurrkuðum ávöxtum. Krydd
kemur vel fram í munni ásamt þroskuð-
um brómberjum, plömum og léttu tann-
in. Vínið er látið eldast á hefðbundnum
eikartunnum í 18 mánuði. Chianti
Classico kostar 1290 krónur í verslunum
ÁTVR.
Vegna þess að hér er bæði hvítt vín og
rautt er rétt að minna lesendur á að hafa
hvítvínið ekki of kælt og rauðvínið heldur
ekki of heitt en vínskríbentar hafa oftsinnis
talað um að íslendingar klikkuðu gjarnan á
þessum atriöum. Hvítvínið hér að ofan ætti
að vera 7-8 gráða heitt en rauðvínið 15-16
gráða heitt.
Vonandi geðjast lesendum að því sem við
höfum hér fram að færa. Það er um að gera
að spreyta sig á matargerðinni en
mozzarellaostur eins og hér á síðunni er nýj-
ung fyrir marga.
Umsj'ón
Haukur Lárus
Hauksson