Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Blaðsíða 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
DV
Færeysku lögþingskosningarnar:
Ovissa og vonbrigði
meðal Færeyinga
- að mati Hjálmars Árnasonar þingmanns
Stjórnarflokkamir í Færeyjum,
Fólkaflokkurinn, Þjóðveldisflokkur-
inn og Sjálfstjómarflokkurinn, hafa
ekki lengur meirihluta í færeyska
landsþinginu eftir lögþingskosning-
amar 30. apríl sl. Spumingunni um
sjálfstæði frá Dönum var ekki svar-
að og ríkir mikil óánægja eða von-
brigði í Færeyjum með að niður-
staða kosninganna skyldi ekki taka
af allan vafa hjá Færeyingum í þeim
efnum.
Nokkrir íslenskir þingmenn, sem
sæti eiga í íslandsdeild Vest-nor-
ræna þingmannasambandsins, vora
inntir álits á niðurstöðu kosning-
anna í Færeyjum.
Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæð-
isflokki, formaður Islandsdeildarinnar,
segir að úrslitin sýni að á næstu árum
verði mjög litil breyting í færeyskum
stjómmálum. Færeyingar muni hægt og
bítandi taka yflr ýmsa málaflokka frá
Dönum en þeir muni aldrei fara alla leið
í sjálfstæðisbaráttunni. Kosningar sýni
að sú þróun hugnist ekki færeysku þjóð-
inni heldur vilji hún fara varlega, enda
fengu aðskilnaðarsinnar ekki eins mik-
ið fylgi og þeir væntu.
Pattstaða
Hjálmar Ámason, þingmaður
Framsóknarflokks, er staddur í
Færeyjum. Hann segir þetta bestu
úrslit sem hægt hafl verið að fá -
fylkingamar hnífjafnar. Hins vegar
ríki mikil óvissa og vonbrigði í Fær-
eyjum þar sem úrslitin taki ekki af
skarið um það hvort skilja eigi á
næstunni algjörlega við Dani.
Hjálmar telur að stjómarmyndun
muni taka næstu daga, jafnvel vik-
ur, og ekki víst að fráfarandi stjóm-
arflokkar muni taka inn Miðflokk-
inn, sem fékk einn þingmann, Jenis
av Rana, þar sem það tryggi aðeins
eins sætis meirihluta sem gæti orð-
ið erfltt þar sem lögþingsins bíði
mörg og erflð úrlausnarefni. Hjálm-
ar segir að það kæmi ekki á óvart
þótt þetta lögþing sæti tiltölulega
stutt og að kosið yrði að nýju í Fær-
eyjum tiltölulega fljótt.
Svanfríður Jónasdóttir, Samfylk-
ingunni, segir úrslitin áhugaverð -
hún hafi búist við því að sjálfstæð-
issinnar hefðu meiri hljómgrann en
rauni beri vitni. Úrslitin þýði patt-
stöðu í færeyskum stjórnmálum.
Svanfríður telur að framvinda mála
sé nokkuð í höndum Hogna Hoydal
og það sé að sumu leyti eðlilegt að
flokkur hans, Þjóöarflokkurinn, fái
Umboðið til stjórnarmyndunar.
Svanfríður telur það hins vega far-
sælla fyrir Færeyinga að Jafnaðar-
mannaflokkur Johannesar Eides-
gaards komi inn í stjómina með
Þjóðveldisflokki og Fólkaflokki An-
finns Kallsbergs, núverandi lög-
manns - það hægi á sjálfstæðisbar-
áttunni sem sé farsælt fyrir Færey-
inga. Sigurvegari kosninganna,
Sambandsflokkurinn, verði þá
áfram í stjórnarandstöðu.
Stór ákvörðun
Kjartan Ólafsson, Sjálfstæðis-
flokki, segir að úrslitin í Færeyjum
hafi komið á óvart. Það sé stór
ákvörðun fyrir Færeyinga að stefna
að sjálfstæði og þau skref. hafi þeir
ekki viljað taka nú óhikað. Rann-
sóknir og olíuleit á færeyska land-
grunninu sé skammt á veg komið og
líklega vilji Færeyingar fyrst sjá
hverju það skili i færeyska þjóðar-
búið, ef það skilar þá einhverju.
Færeyska þjóðarsálin hafi því
ákveðið að bíða að sinni. -GG
Sjá fréttaijós bls. 12.
TAL 4ra ára:
Afslættir og
afmælishátíö
í tilefni af fjögurra ára afmæli
TALs verða kostaboð á þjónustu fé-
lagsins um helgina. Kostar í dag,
laugardag, og á sunnudag aðeins
eina krónu á mínútu að hringja
milli tveggja TALsíma og senda
SMS-skilaboð. Þá verður vegleg af-
mælisveisla félagsins haldin í
Smáralind og Kringlunni í dag.
Þá býður TAL nú upp á nýja þjón-
ustu, það er að viðskiptavinir geta
hringt fritt í eitt númer eða með
helmingsafslætti tvö númer. í frétt
frá fyrirtækinu segir að þetta sé
þjónusta sem sé kjörin fyrir þá við-
skiptavini sem vilji vera í góðu sam-
bandi við vini sína. Er hún nefnd
TALvinir. Þá mun aðeins kosta tíu
krónur á mínútu að hringja í önnur
númer hjá TALi.
Önnur sú þjónusta sem TAL mun
bjóða upp á er að pörum býðst að
greiða símreikninga sína saman
með greiðslukorti. Það gefur helm-
ingsafslátt af mánaðargjaldi annars
númersins - og er það viðbót við
það kostaboð að geta talað frítt sín í
millum.
-sbs
DV-MYND HILMAR PÓR
Rjótt flýgur flsklsagan
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrít Moussaieff skemmta sér hér yfir fiskisögum vestfirsks sjómanns sem greinilega
haföi mikió aó segja forsetanum. Fundum þremenninganna bar saman í Perlunni í gær þegar oþnuö var sýningin Perí-
an Vestfiröir en þar kynna Vestfiröingar þær margvíslegu vörur og þjónustu sem þeir hafa upp á aö bjóöa. Sýningin
veröur opin alla helgina.
Breiðholtsmálið:
Engar frekari
upplýsingar
Lögreglan mun ekki veita frekari
upplýsingar varðandi mál litlu
stúlkunnar sem lést með voveifleg-
um hætti í heimahúsi i Breiðholti í
Reykjavik fyrir réttri viku meðan á
rannsókn þess stendur. Að sögn
Harðar Jóhannssonar yfirlögreglu-
þjóns hefur þessi ákvörðun verið
tekin af tiflitssemi við ættingja og
aðstandendur í þessu viðkvæma
máli.
Móðir stúlkunnar, sem granuð er
um að vera völd að láti dóttur sinn-
ar, situr í gæsluvarðhaldi til 7. júní
nk. Hún dvelur á réttargeðdeildinni
á Sogni þar sem hún mun sæta geð-
rannsókn á vistunartímanum. -JSS
Reykjaneshryggur:
Sjómaður sóttur
Vamarliðið á Keflavíkurflugvelli
sendi síðdegis í gær tvær þyrlur úr
sinu liöi, auk eldsneytisvélar, til að
sækja alvarlega veikan sjómann í fær-
eyska togarann Enniberg. Hann var
þá staddur við úthafskarfaveiðar um
200 sjómílur suðvestur af Reykjanesi.
Þyrlumar fóru i loftið um klukkan
16.30 og komu inn til lendingar um
klukkan 20 í gærkvöld.
Vamarliðsþyrlumar voru sendar
þar sem þyrlur Landhelgisgæslunnar
eru úr leik þessa dagana. Sú stærri,
TF-LÍF, er í skoðun og verður ekki til-
búin aftur fyrr en 18. maí. TF-SIF hef-
ur verið biluð síðustu daga en þess er
hins vegar vænst að hún verði komin
í gagnið seinnipartinn í dag. -sbs
Þýsk barnaverndaryfirvöld:
Fleiri vilja senda
unglinga hingað
Bamavemdaryfirvöld í Þýskalandi
sýna mikinn áhuga á að koma fleiri
unglingum til endurhæfingar hér á
landi heldur en nú er. Eins og DV
greindi frá í gær sendir þýsk bama-
vemdarstofnun unglinga á þrjá bæi í
Skagafirði til dvalar. Um er að ræða
unglinga sem lent hafa utangarðs vegna
slæmra heimilisaðstæðna og, eða
óreglu. Með því móti að senda þá hing-
að er reynt að koma fótunum undir þá á
nýjan leik í nýju umhverfi. Nú hefur
önnur þýsk bamavemdarstofhun farið
þess á leit við Bamavemdarstofu að fá
að senda unglinga á sveitabæi hér til
endurhæfingar. Það erindi er til með-
ferðar hjá Bamavemdarstofu.
Anní Haugen hjá Bamavemdarstofu
sagði að þessi samskipti islenskra og
þýskra bamavemdaryfirvalda hefðu
hafist formlega árið 1999. Tildrögin
hefðu verið þau að bóndasonur úr
Skagafirði réð sig til vinnu í Þýska-
landi. Hann hefði komið þessum tengsl-
um á 1996 og þau síðan komist i fastan
farveg í gegnum bamavemdarstofu.
Bamavemdarstofnunin þýska, Mart-
einswerk, sendir hingað unglinga á
aldrinum 15-18 ára. Á annan tug dvelja
nú á þeim þremur bæjum í Skagaflrði
sem em í samstarfinu. -JSS