Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
f->V
Fréttir
Iðnaðarráðherra segir súrálsmenn einkum líta til Húsavíkur en ekki Suðurnesja:
Göng undir Vaölaheiði
nánast nauðsynleg
- kallar á gríðarlega orku - mikill úrgangur myndi falla til
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.01 2147
Sólarupprás á morgun 04.47
Siödegisflóð 24.56
Árdegisflóð á morgun 00.56
04.32
04.29
04.29
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir að for-
ráðamenn rússnesk-íslenska félags-
ins Atlantsáls einblíni á Húsavík
sem framtíðarstaðsetningu fyrir
súrálsverksmiðju. Keilisnes hefur
einnig verið orðað undir súrálsstór-
iðjuna en Valgerður segir að menn
horfi einkum til Þingeyjarsýslu
vegna háþrýstisvæðisins þar.
„Þetta er dálítið stórt mál og við
höfum enn ekki kynnt okkur nægi-
lega vel hvernig það fellur að ís-
lenskum atvinnuháttum og um-
hverfismálum. Við erum sannfærð
um að það sé mikil orka á Þeista-
reykjasvæöinu en það á eftir að
rannsaka þetta miklu betur. Stærö-
irnar í þessu máli eru
þannig að það þarf um 5
milljónir tonna af gufu til
að knýja svona stóriðju en
til samanburðar nýtir Kísil-
verksmiðjan 250.000 tonn,“
sagði iðnaðarráðherra í
samtali við DV á Akureyri í
gær.
Valgerður segist styðja
uppbyggingu verksmiðj-
unnar fyrir norðan og segir
að gífurlegur íjöldi starfsmanna
muni fá vinnu við fyrirtækið ef það
verður að veruleika. Jafnvel yrði
spum eftir störfum of mikil til að
nágrennið gæti sinnt því og í því
ljósi m.a. gerist spurningin um göng
undir Vaðlaheiði áleitin.
„Göng koma strax upp í
hugann þegar þetta dæmi
er skoðað. Ég nefndi það
fyrst fyrir fjórum árum að
þau væru augljóslega hag-
kvæmur kostur og allt sem
hefur gerst síðan staðfestir
það. Ef farið yrði í þessa
stórframkvæmd sýnist
manni augljóst að göngin
yrðu skoðuð í mikilli al-
vöru,“ segir ráðherra.
Mikill úrgangur
Súrálshugmyndin kviknaði I
fyrrahaust og tengist störfum At-
Valgerður
Sverrisdóttir.
Adrenalín gegn rasisma
Adrenalínferö gegn rasisma var farin í
gær á vegum KFUM&K, Laugarneskirkju,
Nýbúadeildar Austurbæjarskóla og fé-
lagsmiöstöðvarinnar Þróttheima. Alls
fóru um 30 unglingar í ævintýraferð en í
hópnum eru „nýbúar" og „síbúar
Markmiö feröarinnar er aö gefa nýjum ís-
lendingum tækifæri til aö kynnast ung-
lingamenningunni og auka víösýni upp-
runalegra íslendinga. Margir lögöu hönd
á plóg til að hægt væri aö fara í þessa
ferö en hárgreiöslustofan Scala hélt
meðal annars sérstakan fjáröftunardag
fyrir ungmennin.
Vinsælu námskeiðin hjá Jónínu Ben halda áfram á
Grand Hóteli, á þriðjudögum í maf milli 17:00 og 19:00
• Konur læra aö setja sér raunhæf
markmið og vinna úr vandamálum
sem upp koma.
• Konur læra að biðja um ábyrgð og
njóta þess að hafa hana.
• Konur læra að þær sjálfar ráða ferðinni.
• Þetta eru námskeið þar sem konurnar
hlæja og skemmta sér saman en taka
um leið á þeim vandamálum sem þær
upplifa í leitinni að jafnræði.
Innifalið er einn mánuður f Gullstöð Planet Pulse og bókin Dömufrí. Veíttur er afsláttur fýrir hópa
og fyrirtæki. Sérstök gjafabréf á fýrírtesturínn fást hjá Gullstöðvum Planet Pulse.
Verð fýrir námskeiði er 9.500 kr.-
Grand Hótel býður þátttakendum á námskeiðinu sérstakt tilboð á kvöldverði. Uppl. í síma 568 9000
Upplýsingar og skráning í sfma 5881700 miUi kL 9:00 og 16:00 og jonina@planetpulse.is
Cg|2 ,
HÓTEL
REYKJAVÍK
vinnuþróunarfélags Eyjaíjarðar.
Rússamir hittu iðnaðarráðherra að
máli á Hótel KEA i kjölfarið og sið-
an hefur Atlantsál verið stofnað
með 500 mUljóna króna hlutafé og
milligöngu Fjárfestingarstofunnar.
Vegna þeirrar miklu vinnu sem
fram undan er verður verksmiðjan
ekki að veruleika fyrr á næstu miss-
erum, að mati ráðherra.
Hugmyndin er aö flytja inn báxít
frá námum í Gíneu, jarðveg sem er
lýst sem rauðbrúnni eðju og er ljóst
að gríðarlegur úrgangur mun falla
til. Þannig verður aðeins um eitt
tonn af súráli til úr hverjum fjórum
tonnum af jarðvegi. -BÞ
Hæstiréttur:
Refsing þyngd
Hæstiréttur hefur dæmt leigubíl-
stjóra um fertugt í eins og háifs árs fang-
elsi fyrir kynferðisafbrot gegn rúmlega
þrítugri konu sem var farþegi í bíl hans.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í
leyfisleysi ruðst inn í íbúð konunnar
þar sem hann síðan átti við hana mök á
meðan hún lá ölvuð í rúmi sinu og gat
sér engar bjargir veitt sökum þess.
Leigubílstjórinn viðurkenndi að hafa
verið í íbúðinni og að hafa átt kynferð-
ismök við konuna en sagði hana hafa
átt frumkvæðið.
Dómurinn lagði ekki trúnað á fram-
burð mannsms en notaðist við fram-
burð tveggja vina konunnar sem höfðu
aðstoðað hana við að komast til síns
hebna og lagt hana í rúm sitt en síðan
látið umræddan leigubílstjóra aka sér
heim. Að því loknu sneri hann svo aft-
ur til konunnar með áðurgremdum af-
leiðingum. Miðað við ástand konunnar
þótti Hæstarétti ótrúlegt að hún hefði
vaknað, hleypt bílstjóranum inn og upp-
hafið ástaratíot eins og leigubílstjórinn
hélt fram. Hins vegar þótti sannað að
hann hefði í leyfisleysi ruðst iim í íbúð-
ina, lagst ofan á konuna og notfært sér
ástand hennar.
Maðurinn var dæmdur til að greiða
konunni 700.000 krónur í skaðabætur
auk alls sakarkostnaðar, tæpar 600.000
krónur. Aö auki var maðurinn dæmdur
í eins og hálfs árs fangelsi en rétturinn
þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
frá í desember um hálft ár. -áb
Snjóflóðahætta í
byrjun sumars
Á fímmtudaginn slotaði loks snjó-
komu og leiðmdaveðri sem þá hafði
staðið samfleytt i heila viku nyrst á
Tröllaskaganum. Mikmn snjó hefur sett
niður í Siglufirði, Ólafsfirði og Fljótum.
Þannig taldi bóndbm á Þrasastöðum i
Fljótum að þar væri 60-80 cm jafnfailbm
snjór en áður var þar sáralítill snjór
enda hefur tiðarfar verið hagstætt síðari
hluta vetrar, emkum í april.
Mikill snjómokstur hefur verið á
Siglufjarðarvegi meðan óveðurskaflinn
stóð enda veður á köflum mjög vont.
Þannig tókst að mestu að halda vegin-
um færum nema í nokkrar klukku-
shmdir þegar hann var hafður lokaður
vegna snjóflóðahættu. Þegar veðrinu
slotaði var hafist handa við mokstur á
vegum í Fljótum en þar þurfti að ryðja
alla vegi og nokkrar hebnreiðar og
lauk því verki ekki fyrr en síödegis á
fóstudag. -ÖÞ
Frosl í nótt
Suðaustan 10-15 m/s og rignbig eða
súld sunnanlands og einnig á
Vestfjörðum en annars skýjað að
mestu og þurrt að mestu. Hiti 2-9
stig en viða vægt frost í nótt.
Rigning og skúrir
Suðaustlæg átt, 5-8 m/s, og víða
dálítil rigning eða skúrir en skýjað
og þurrt á Norðurlandi. Hiti 2 til 7
stig.
Mánudagur
til 8°
Vindur:
8-13 ms
Þriðjudagur
tií 9°
Vindun
8-13 m/s
Miðvikudagur
Hitl 3°
tii 9°
vtnaun
5-15 "V*
Suöaustanátt, Suölæg átt og
skýjaö meö vætusamt,
rignlngu og súld einkum sunnan
um land altt. tli en fremur mllt
veöur.
Afram frekar
suölægar áttir
meö tilheyrandi
vætu um mest-
allt land.
t f
t
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnnlngsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stlnnlngskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
'Jiiíisl'íi JfL liL J
AKUREYRI skýjaö 2
BERGSSTAÐIR skýjaö 2
B0LUNGARVÍK léttskýjaö 0
EGILSSTAÐIR skýjað 1
KIRKJUBÆJARKL. alskýjað 4
KEFLAVÍK léttskýjaö 2
RAUFARHÖFN skýjaö 3
REYKJAVÍK léttskýjaö 8
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 3
BERGEN rigning 8
HELSINKI léttskýjað 17
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 11
ÓSLÓ skýjaö 9
STOKKHÓLMUR rigning 12
ÞÓRSHÖFN skýjaö 5
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 7
ALGARVE
AMSTERDAM skýjað 11
BARCELONA súld 10
BERLÍN skýjaö 13
CHICAGO alskýjað 9
DUBLIN hálfskýjaö 12
HALIFAX rigning 5
FRANKFURT skýjaö 11
HAMBORG rigning 10
JAN MAYEN él -2
LONDON léttskýjaö 8
LÚXEMBORG skýjaö 8
MALLORCA rigning 15
MONTREAL 4
NARSSARSSUAQ skýjaö 5
NEW YORK skýjaö 4
ORLANDO heiöskírt 26
PARÍS léttskýjað 12
VÍN hálfskýjaö 18
WASHINGTON léttskýjaö 15
WINNIPEG hálfskýjaö 1