Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Page 8
Utlönd
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
I>V
UTBOÐ
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
stækkun og endurgerð lóðar við leikskólann
Dvergastein, Seljavegi 12. Um er að ræða stækkun á lóð
og frágang í kringum viðbyggingu ásamt ýmsum endurbó-
tum á lóð.
Helstu magntölur eru:
Heildarstærð lóðar, endurgerð:
Malarfylling
Hellulögn
Gras
Malbikun
Útiplöntun
Útipallar
Uppsetning leiktækja
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: 10. maí 2002, kl. 10.30 á sama stað.
FAS 46/2
2.500 m2
330 m3
130 m2
500 m2
370 m2
300 m2
80 m2
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
gerð malbikaðra gangstíga víðs vegar í borginni. Verkið
nefnist: Gangstígar 2002 - Útboð II.
Helstu magntölur eru:
Flatarmál gangstíga: u.þ.b. 6.000 m2
Ræktun: u.þ.b. 16.000 m2
Lokaskiladagur verksins er 15. sept. 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 7. maí
2002, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 16. maí 2002, kl. 11.30 á sama stað.
GAT 48/2
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
eftirfarandi verk: Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2002 -
útboð 1.
Helstu magntölur eru:
Útlögn yfirlagna og afréttinga: 60.100 m2
Malbik: 6.1001.
Lokaskiladagur verksins er 15. sept. 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar eftir kl. 9.00. 7. maí
2002. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 14. maí 2002, kl. 11.00 á sama stað.
GAT 49/2
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
eftirfarandi verk: Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2002 -
útboð 2.
Helstu magntölur eru:
Útlögn yfirlagna og afréttinga: 27.200 m2
Útlögn með „Repave“-aðferð: 38.700 m2
Malbik: 5.2001
Lokaskiladagur verksins er 15. sept. 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar eftir kl. 9.00, 7. maí
2002. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 14. maí 2002, kl. 14.00 á sama stað.
GAT 50/2
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum i
eftirfarandi verk: Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2002 -
útboð 3.
Helstu magntölur eru:
Útlögn yfirlagna og afréttinga: 74.200 m2
Malbik: 7.4001
Lokaskiladagur verksins er 15. sept. 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar eftir kl. 9.00, 7. maí
2002, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 16. maí 2002, kl. 11.00 á sama stað.
GAT 51/2
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
smíði á ryðfríum hitaelementum í loftdreifibox í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Um er að ræða 116 element í fjórum mismu-
nandi stærðum. Verktími er tvískiptur: 16 stk. skulu afhen-
dast fyrir 15. júlí 2002 og 100 stk. fyrir 31. desember 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: 21. maí 2002, kl. 14.00 á sama stað.
FAS 52/2
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavfk-Sími 670 6800
Fax 662 2616 - Netfang: ierförhus.rvk.is
Umsátrið um Fæðingarkirkjuna:
Israelar stöðva
matarsendingar
Samningaviðræður til að binda
enda á umsátur ísraelsmanna um
Fæðingarkirkjuna i Betlehem fóru
enn einu sinni út um þúfur í gær
eftir að samkomulag hafði náðst um
að hjálparliðar fengju að færa svelt-
andi fólkinu, sem enn þá dvelur í
kirkjunni, matarbirgðir. Að sögn
Hanna Nasser, borgarstjóra i Betle-
hem, náðist þetta samkomulag eftir
fund Salahs E1 Tamari, samninga-
manns Palestínumanna á staðnum,
með fulltrúum ísraelshers í gærdag.
Þegar á reyndi voru hjálparliðarnir
stöðvaðir rétt áður en þeir komu
matvælunum inn fyrir kirkju-
dymar. Þá höfðu íjórir særðir Pal-
estinumenn þegar verið fluttir út úr
kirkjunni en matvælaflutningarnir
stöðvaðir nema Palestínumenn af-
hentu nafnalista yflr þá 170 menn
sem enn eru taldir dvelja í kirkj-
unni. Þetta gátu samningamenn
Palestínumanna ekki sætt sig við og
yfirgáfu því svæðið.
Ellefu erlendum friðarsinnum
tókst að læðast inn í kirkjuna með
eitthvað af matvælum í fyrradag og
mun það eini maturinn sem fólkinu
hefur borist síðustu daga. Friðar-
sinnamir dvelja enn þá í kirkjunni
ísraelskir hermenn flytja særöan
Palestínumann á brott frá
Fæöingarkirkjunni í Betlehem.
og sagði einn þeirra í símaviðtali í
gær að fólkið nærðist aðallega á
grasi og drykki rigningarvatn sem
einnig er af skomum skammti.
Þeir Ariel Sharon, forsætisráö-
herra ísraels, og Jasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, fögnuðu í gær
tillögu Bandarikjamanna um að-
þjóðlega friðarráðstefnu sem fyrir-
hugað er að halda í sumar.
REUTERSMYND
Nýfæddur Spánarprins
Cristina Spánarprinsessa og eiginmaöur hennar, handboltakappinn inaki Urdangarin,
eignuöust á dögunum þriöja son sinn og hefur hann þegar verið nefndur Miguel.
Fjögur ungmenni far-
ast í bílslysi í Noregi
Fjórir framhaldsskólanemendur
fómst í bílslysi í Váler í Noregi í gær-
morgun. Slysið varð með þeim hætti
að sjö drengir, sem flestir voru á síð-
asta ári í framhaldskóla, vom á ferð í
þrettán manna Chervolet Van bifreið.
Ökumaðurinn missti vald á bifreið-
inni er annað afturhjól hennar fór út
af í langri beygju með þeim afleiðing-
um að hún valt niður i skurð. Eldur
kom þegar upp í bílnum og þeir sem
létust komust ekki út áður en þeir
urðu eldinum að bráð.
Drengimir sem sluppu lifandi eru
allir mikið slasaðir og einn þeirra
liggm- enn í lífshættu á brunadeild
Haukelands-sjúkrahússins í Bergen
en þangað var hann fluttur eftir að
komið var með þremenningana á
sjúkrahúsið í Elverum sem er í ná-
grenni við slysstaðinn.
Drengimir í bílnum voru að koma
frá stúdentafagnaði ásamt mörgum
fleiri sem fylgdu eftir í bílalest. Því
fékk lögreglan tilkynningu um óhapp-
ið strax eftir að það varð. Hún, ásamt
sjúkraliði, komþvífljótt ástaðinnen
þá var bíllinn orðinn alelda og ekki
við það ráðið að bjarga neinum lifandi
úr flakinu. Óhappið átti sér stað
klukkan 5.30 að morgni en vegna mik-
ils hita í bílflakinu tókst ekki á ná síð-
asta líkinu út fyrr en eftir klukkan tíu
í gærmorgun.
Leif A. Ellevset, framkvæmdastjóri
samtakanna Örugg umferð, segir að
hin tíðu slys hjá framhaldskólanem-
endum sem fagna lokum skólagöngu
sinnar sé engin tilviljun. Hann vill að
fundin verði önnur leið fyrir nemend-
ur til að fagna þessum áfanga sínum
en með eins mánaðar veisluhöldum
fyrir próf. Það er nefnilega siður hjá
norskum framhaldsskólanemum að
halda upp á lokaprófln í framhalds-
skólunum með mikilli gleði sem hefst
með upplestrarfríi 17. apríl og lýkur á
þjóðhátíðardaginn, 17. maí. -GÞÖ
mmim
Rugova vitnaöi í Haag
Ibrahim Rugova,
forseti Kosovo, vitn-
aði í gær gegn Slobod-
an Milosevic, fyrrum
forseta Júgóslavíu,
við stríðglæparéttar-
höldin i Haag og sak-
aði hann um kúgun
gegn Kosovo-Albönum og að hafa átt
upptökin að stríðinu í landinu á árun-
um 1989 til 1999. Rugova er háttsett-
asti stjórnmálamaðurinn sem hingað
til hefur vitnað gegn Milosevic og las
hann yflrlýsingu sína án þess að virða
Milosevic viðlits.
Minningarathöfn í Erfurt
Þeir Gerhard
Schröder, kanslari
Þýskalands, og Jo-
hannes Rau, forseti
landsins, tóku í
gær þátt i minning-
arathöfn vegna
fórnarlambanna
sextán í Gutenberg-
skólanum í Erfurt
sem 19 ára fyrrverandi nemandi skól-
ans, Robert Steinhaeuser, skaut til
bana fyrir viku. Athöfnin fór fram
undir beru lofti framan við dómkirkj-
una í Erfurt að viðstöddum þúsund-
um syrgjenda og var hún send út
beint í þýska sjónvarpinu.
Tuttugu létust í Nígeríu
Að minnsta kosti tuttugu manns
munu hafa látið lífið þegar til óeirða
kom á pólitískum útifundi sem Lýð-
ræðisbandalag Oluseguns Obasanjos,
forseta Nígeríu, stóð fyrir i borginni
Jos í fyrrakvöld. Að sögn sjónarvotta
var gripið til ýmissa vopna og sást
fólk liggja í valnum með örvar í mag-
anum en aðrir höfðu verið brenndir
til bana. Varasveitir lögreglu og hers
voru kallaðar út til að bæla niður
óeirðimar en óttast var að þær
breiddust út til fleiri borga. Þingkosn-
ingar fara fram í landinu tftir um það
bil mánuð.
Lady Bird á sjúkrahús
Lady Bird John-
son, fyrrum forseta-
frú Bandaríkjanna,
var I fyrrakvöld
flutt í skyndi á
sjúkrahús í Austin í
Texas og liggur þar
nú á gjörgæsludeild.
Að sögn talsmanna
sjúkrahússins er ekki vitað hvað am-
ar að frúnni en hún mun hafa kvart-
að yfir eymslum í hálsi og því flutt
strax á sjúkrahús þar sem hún er til
rannsóknar. Lady Bird, sem er á
nítugasta aldursári, er að öðru leyti
hin hressasta.
Aukið atvinnuleysi í BNA
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum
mældist 6% í apríl sem er það mesta
síðan árið 1994 þegar það náði 5,8%.
Þetta er verri útkoma en fyrir fram
var búist við en í mars mældist at-
vinnuleysi 5,7% og var vænst batn-
andi ástands í apríl. Þrátt fyrir allt
virðist efnahagsástandið í Bandaríkj-
unum á bataleið eftir hryðjuverka-
árásimar i september sl. en í kjölfar
þeirra misstu um 250 þúsimd manns
atvinnu í þjónustuiðnaðinum. Bata-
merkin sjást, að sögn stjómvalda, í 43
þúsund nýjum störfum og að í fyrsta
skipi á níu mánaða tímabili hafi fleiri
fengið vinnu en misst hana.
Hrapaöi á bankabyggingu
Að minnsta
kosti sjö mannst
fómst þegar ind-
versk orrustu-
þota af gerðinni
MIG-21 hrapaði
á bankabyggingu
í bænum
Jalandhar i norð-
urhluta Punjab-
héraðs á Indlandi
í gær. Þotan var á venjubundnu æf-
ingaflugi frá herstöð indverska hers-
ins í Adampur þegar slysið varð en
taliö er að tæknibilum í stjómbúnaði
hafi orsakað það. Sex hinna látnu
voru starfsmenn bankans en flug-
mönnunum, sem voru tveir, tókst að
stökkva út í fallhlífum áður en þotan
féll niður á bygginguna.