Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 44
Helgarblaö H>V LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
Hi/að kemur 19 ára qömlum pilti til að
fremja fjöldamorð? Þýska þjóðin er aqndofa
oq finnur enqin i/iðhlítandi si/ör i/ið spurn-
inqunni sem er á allra vörum. Morðin í fram-
haldsskólanum íErfurt fqrir rúmri viku
voru vel skipulöqð oq framin með köldu
blóði unqlinqs íhefndarhuq. Robert Stein-
haeuser réðst inn ískólann þeqar próf
stóðu qfir oq skaut 13 kennara til bana, tvo
nemendur oq löqreqlumann sem kom að til
að skakka leikinn. Að þessum verkum lokn-
um réð hann sjálfum sér bana.
Hvers vegna? Það
er spurning sem
margir Þjóðverjar
spyrja sig.
Daginn eftir morðin var hinna látnu minnst í öllum
skólum Þýskalands með einnar mínútu þögn.
og sá aðeins í augun, en annars var andlitið hulið, og
hóf skothríð í þeim tilgangi að fella sem flesta.
Lítill vafi leikur þó á að um vel skipulagða hefndar-
árás var að ræða.
Robert féll á lokaprófi í fyrra, árið 2001. Honum var
meinað að sækja skólann aftur það skólaár sem nú er
að líða vegna þess að hann falsaði mætingaskýrslur
þegar hann skrópaði úr tímum.
Skipulagt og hnitmiðað
Fjöldamorðinginn kom í sinn gamla skóla kl. 11
fyrir hádegi, þegar hann vissi að fyrrverandi skóla-
systkini hans sátu yfir prófum sem honum var
meinað að taka þátt í. Vikuritið Der Spiegel getur
sér þess til að það að honum var meinað að ljúka
framhaldsskólaprófi hafi ýtt undir þau örþrifaráð
sem hann greip til í þeim tilgangi að ná sér niðri á
kerfinu sem hafnaði honum.
Brottreksturinn var skömm sem hann leyndi
aðra, jafnvel sína eigin fjölskyldu. Það fékk piltinn
til að leita hefnda með fjöldaaftökum kennara. Hin
sem féllu voru fyrir honum þegar hann æddi um og
myrti fólk með hnitmiðuðum hætti.
Rudolf Steinhaeuser bjó hjá móður sinni, sem er
hjúkrunarfræðingur, og afa í þrifalegri íbúð í nokk-
ur hundruð metra fjarlægð frá skólanum. Móðirin
sagði lögreglunni að hún hefði ekki séð neitt
óvenjulegt í fari sonar síns morguninn sem hann
hélt i hinn afdrifaríkan leiðangur í gamla skólann
sinn.
Nágannar Steinhaeuserfjölskyldunnar bera henni
vel söguna og segja hana vingjarnlegt fólk og hvers-
dagslegt og góða granna.
Robert var búinn að vera meðlimur í tveim skot-
félögum I rúmt ár og var nýbúinn að fá byssuleyfi
þegar hann hélt á blóðvöllinn. Lögreglumenn sem
rannsaka málið komust fljótlega að því að pilturinn
varði miklu af tíma sínum og athafnaþrá til að gæla
við vopn. Hann var mjög góð skytta.
Fjöldamorðinginn ungi var með leyfi fyrir háðum
byssunum sem hann notaði. Þegar hann ruddist dul-
búinn inn í skólann hélt hann á austurrískri Glock-
skammbyssu sem hlaðin var 18 skothylkjum. Á bak-
inu bar hann margskota haglabyssu sem hann
pumpaði úr á kennarana og fataðist hvergi í skot-
fiminni. Þegar leitað var á honum eftir sjálfsmorðið
fundust enn fleiri skot en sem betur fer ónotuð.
Stórpólitískar afleiðingar
í Þýskalandi er málið orðið stórpólitískt og aliir
málsmetandi stjórnmálamenn láta það til sín taka.
Dómsmálaráðherrann segir að menn verði að spyrja
sjálfa sig alvarlegra spurninga og reyna að komast aö
því hvernig svona voðaatburður getur átt sér stað í
þýsku nútímasamfélagi og lýsir yflr áhyggjum af að
ungur maður skuli vera valdur að slíku hervirki.
Búast má við að blóðbaðið í Erfurt hafi áhrif á
þingkosningarnar sem fara fram í sepember nk. Jafn-
aðarmannaflokkur Schröders stendur höllum fæti og
kristilegir sækja á. Forsætisráðherrann og Fischer
utanrikisráðherra, leiðtogi græningja, sóttu báðir
Hvað gerir
skólapilt að fjöldamorðingja?
HVAÐ KEMUR 19 ÁRA gömlum pilti til að fremja
fjöldamorð? Þýska þjóðin er agndofa og finnur engin
viðhlítandi svör við spurningunni sem er á allra vör-
um. Morðin í framhaldsskólanum í Erfurt fyrir rúmri
viku voru vel skipulögð og framin með köldu blóði ung-
lings í hefndarhug. Robert Steinhaeuser réðst inn í
skólann þegar próf stóðu yfir og skaut 13 kennara til
bana, tvo nemendur og lögreglumann sem kom aö til að
skakka leikinn. Að þessum verkum loknum réö hann
sjálfum sér bana.
Skólasystkini lýsa Róbert á þann veg að hann hafi
verið innhverfur og dulur en vel gefinn og faUið öllum
vel í geð. Sumir lýsa honum þannig að hann hafi verið
skapbráður en farið vel með það og ekki látið mikið á
þvi bera ef hann reiddist. Hann var prúður í framgöngu
og ég gat aldrei ímyndað mér að hann væri ofbeldis-
sinnaður, segir einn skólabræðra hans.
Önnur skólasystkini minnast hans sem ákafs aðdá-
anda þungarokks og ofbeldisfullra tölvuleikja. Þykir
það benda til að undir viðkunnanlegu yfirbagði hafi
leynst voveiflegar tilhneigingar. Fyrrverandi skólsystir
rifjar upp að einu sinni hafi Róbert trúað henni fyrir
því að sá dagur myndi renna upp að allir þekktu nafn
hans og fór ekki dult með að hann þráði að verða fræg-
ur. Það tókst honum sannarlega á sínu dánardægri.
Eftirlifandi kennarar í framhaldsskólanum í Erfurt,
sem kenndur er við Johann Gutenberg, eru eins undr-
andi og allir aðrir og hafa engar fullnægjandi skýring-
ar á hvers vegna fyrrverandi nemandi þeirra ruddist
inn í skólann, dökkklæddur, með svarta hettu á höfði