Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Blaðsíða 47
LAUCARDAGUR 4. MAÍ 2002
HelQctrblctð 33 "V
-4~7
Hvalir við landið
'l
meö fallega fjallasýn og fuglalífið allt um kring, vekur
unaðskennd sem sprettur af virðingu fyrir náttúrunni
og lífinu sjálfu.“
Þó að hvalaskoðunarferðir séu almennt afar jákvæð
og spennandi upplifun getur hegðun hvalanna verið
afar misjöfn. „Hvalirnir koma oft mjög á óvart. Stund-
um líta þeir ekki við bátunum, kafa og eru uppteknir
við fæðuöflun en svo eru stundir þar sem þeir leika á
als oddi, eru fullir af leik, synda um, snúa sér á allar
hliðar og stökkva jafnvel."
Viðbrögð þeirra sem fara í hvalaskoðunarferðir geta
verið mjög sterk. „Þetta eru yfirleitt mjög skemmtOegar
uppákomur og fólk er frá sér numið af hrifningu. Það
skýrir að miklu leyti vinsældir hvalaskoðunarferðanna.
Þær eru draumur hvers náttúruunnanda. Enda er
hvalaskoðun vinsælust í afþreyingarferðaþjónustunni
en almennt eru Gullfoss, Geysir og Bláa lónið á undan
hvað vinsældir snertir.“
Stærra safn
Ásbjörn er ekki einasta helsti hvalaskoðunarferða-
frömuður landsins heldur er hann í forsvari fyrir
Hvalamiðstöðina á Húsavík, heilmikið safn þar sem sjá
má beinagrindur hvala og annað er tengist þessum
stórkostlegu skepnum. í sumar mun safnið stækka
heilmikið, flytur í 1000 fermetra skemmu en hefur til
þessa verið í 200 fermetra húsnæði.
„í nýja safninu verða beinagrindur fimm stórhvela
sem hanga niður úr loftinu. Gestir safnsins geta geng-
ið undir beinagrindurnar og við hlið þeirra á pöllum.
Beinagrind úr búrhval verður þar stærst en þar verð-
ur einnig beinagrindin úr hnúfubak sem rak á land við
Höfn í Hornafirði á dögunum. Beinagrindin kom til
Húsavíkur sl. laugardag en eftir er að verka hana,
hreinsa og þurrka. Þetta ferli er tímafrekt og því fer sú
beinagrind ekki upp i safninu fyrr en eftir um ár.“
Sandreyðar halda sig allajafna á meira dýpi en aðrir
hvalir sem koma upp að ströndum landsins á sumrin.
Þeir geta orðið 15-20 metra langir og vegið 20-30
tonn. Sandreyðar geta lifað í allt að 80 ár en fæða
þeirra er fyrst og fremst svif, áta og alls kyns smá-
fiskur. Sandreyðar koma upp á yfirborðið þrisvar til
fjórum sinnum í röð til að anda.
Ásbjörn segir hvalaskoðunarferðir hér við land
vera skipulagðar á mjög faglegan hátt. Með í ferð eru
leiðsögumenn sem gjörþekkja svæðið, söguna og nátt-
úrulífið. Slíkar ferðir eru alvöru upplifun fyrir bæði
íslendinga og útlendinga.
Skynugar skepnur
- Hafa aldrei orðið óhöpp í þessum ferðum?
„Nei, reynslan hefur alltaf verið á annan veg og í
raun ótrúleg upplifun. Við fengum einu sinni dauö-
vona dreng í ferð norður á Skjálfanda, eins og frægt
var í sjónvarpsmynd. Það var heldur leiðinlegt veð-
ur þennan dag en veðurguöirnir brugðu sér í sitt
besta skap þegar við lögðum frá landi. Drengurinn
sat öðrum megin i bátunum og það merkilega er að
hvalirnir komu alltaf upp hans megin, hvernig sem
báturinn sneri. Þetta var mjög sterk upplifun og líð-
ur mér seint úr minni. Þarna sannaðist kannski að
hvalir eru skynugri skepnur en margir halda.“
Ásbjörn segir fjölgun hvalaskoðunarferða hafa
haft í för með sér að hvalirnir eru orðnir gæfari.
Þeir leika sér meira og virðast farnir að þekkja bát-
ana þegar þeir koma. Þess vegna séu ferðirnar nær
undantekningarlaust afar vel heppnaðar og allir
glaðir.
Auk beinagrindanna af hvölunum verða þama
ýmsir aðrir líffræðilegir hlutir til sýnis sem
tengjast hvölum. Fólk getur kynnst þjóðsög-
um um hvali og svo munu um 70 fermetrar
fara undir hvalveiðisögima. Þegar DV ræddi
við Ásbjöm var hann staddur í Sandefjord í Noregi í efn-
isöflun vegna hvalveiðihluta safnsins. Þar er stærsta
hvalveiðisafn í heimi og ógrynni upplýsinga að hafa.
„Ég var í Stokke þar sem Hans Ellefsen fæddist en
hann rak stærstu hvalveiðistöð í Evrópu á sínum tíma,
á Sólbakka við Önundarfjörð. Sólbakkastöðinni verða
einmitt gerð mjög góð skil í safninu. Þá verður fjallað
um hvalreka, nýtingu hvala og margt annað sem tengist
hvölum.“
Hvalaskoðunarferðir eru famar frá apríl og fram yfir
miðjan október sunnanlands, t.d. frá Reykjanesi en
standa yfirleitt frá maíbyrjun og fram í miðjan septem-
ber norðanlands.
„Tímabilið tengist því hvenær hvalurinn kemur upp
að landinu. Við erum mjög bjartsýn um aðsóknina í ár.
Bókanir benda til nokkurrar aukningar í ferðum þó hún
verði ekki jafn mikil milli ára og i fyrra. Þá var aukn-
ingin 27 prósent. Vð verðum mjög ánægð ef aukningin
verður um 10 prósent, að við fáum ríflega 70 þús-
und gesti í ferðimar í sumar.“
-hlh
Skidishvalir
Margar hvalategundir halda til viö heim-
skautin á sumrin og feröast langar leiðir
til hlýrri hafsvæöa um fengitímann. í byrj-
un sumars halda hvalirnir svo aftur norö-
ur og suður á heimskautasvæöin til aö
nýta sér ríkulegt fæöuframboð.
Langreyður
Grindhvalur
Háhyrningur
Hnýðingur
■