Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 50
50
Helqarblctð 33V LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
Sakamál
Umsjón
Páll Ásgeir
Asgeirsson
Engu var líkara en að Orr vildi storka
örlögunum. Hann tefldi á tæpasta vað þegar
hann gaf nánast vísvitandi færi á sér. Hann
vildi sgna að hann væri klókari en lögreglan
og njóta þeirrar athygli sem hann átti skilið
sem brennuvargur án þess þó að gefa færi á
sér. Bókin sem hann kallaði skáldsögu er
vitnisburður um brenglað hugarfar. Hvergi
er að finna neina samúð með þeim sem
brunnu inni.
Orr slökkviliðsstjóri og sérfræðingur í íkveikjuin er hér á miðri mynd að rannsaka brunarústir.
Slökkviliðsstjóri
og brennuvargur
EFTIR ÞRIÐJA ÞURRKASUMARIÐ um 1990 var
Kalifornía nær skrælnuð og gróðursnauð. Rigning
var nokkuð sem heyrði minningunni til. 1 úthverfum
kjarri vaxinna dala óttuðust menn skógarelda meira
en nokkuð annað. Sífellt var varað við að ekki væri
farið ógætilega með eld og þorði fólk varla að kveikja
í sígarettu utan dyra af ótta við að kveikja í heilu
bæjunum.
Þá var þaö á sólríkum degi í júnímánuði að hið
óttalega gerðist. Eldur kviknaði í Glendale sem er út-
hverfi norðaustur af Los Angeles. 70 ibúðarhús
brunnu til kaldra kola. Enginn vafi lék á að um
íkveikju var að ræða. En brennuvargur var það síð-
asta sem Kalifomía þurfti á að halda eins og á stóö og
bauð ríkisstjórinn þegar í stað 50 þúsund dollara
verðlaunafé þeim sem bent gæti á þann sem kveikti í.
Fréttamenn allra fjölmiðla sneru sér til formanns
rannsóknarnefndarinnar sem hafði það hlutverk að
komast aö hvernig eldurinn kviknaði. Sá heitir John
Orr, þá 43 ára gamall slökkviliðsstjóri í Glendale, og
víðþekktur á sínu sviði sem sérfræðingur og kennari.
Hann var eftirsóttur fyrirlesari og fór viða til að
miðla af þekkingu sinni á sviði brunavarna. Hann
varaði við brennuvörgum og var vel að sér í þeirri
sérgrein. Orr kenndi að til séu tvær tegundir brennu-
varga. Það eru þeir sem kveikja í af hégómaskap og
langar til að sjá hvað þeir geta afrekað. Þá tegundina
langar að gerast slökkviliðsmenn. Hinir eru þeir eig-
inlegu brennuvargar sem fá einhvers konar fullnæg-
ingu, jafnvel kynferðislega, af þvi að horfa á bruna
sem þeir hafa sjálfir komið af stað.
í Glendale minnti hann fréttamenn á að bruni af
völdum íkveikjufíkils sé eina afbrotið sem heldur
glæpamanninum á staðnum til að virða fyrir sér af-
leiðingar gjörða sinna. Ef einhver gat trútt um talað
var það Orr slökkviliðsstjóri sem búinn var að vera
20 ár í liöinu og haföi getið sér gott orð, ekki aðeins
sem glöggur rannsóknarmaður húsa sem kveikt var í
heldur kenndi hann einnig hvernig greina mætti
brennuvarga og koma upp um þá.
En hann var jafnvel enn betur að sér um íkveikjur
og ónáttúru brennuvarga en aðrir slökkviliðsmenn.
Orr var einmitt maðurinn sem kveikti í. Sá sem rann-
sakaði íkveikjur var sjálfur brennuvargur.
Brunar eltu slökkviliðsstjórann
Um það leyti sem Orr var handtekinn var hann bú-
inn að valda margra milljóna dollara tjóni. Á áratug
var hann búinn að koma af stað skógareldum, kveikja
í íbúðarhúsum, verslunum og öðru atvinnuhúsnæði.
Það var fingrafarasamanburður sem gerður var fyrir
tilviljun sem varpaði grun á slökkviliösstjórann.
Þegar það gerðist tóku rannsóknarmenn, sem hann
hafði sjálfur þjálfað, eftir greinilegu mynstri. Þegar
Orr slökkviliðsstjóri fór í fyrirlestraferðir til að
fræða aðra um íkveikjur og slökkvistörf brást varla
að stórbrunar urðu í námunda við þá staði þar sem
hann sótti ráðstefnur.
Hann var til dæmis valdur að bruna verslunarhúss
í Pasadena þar sem fjórar manneskjur fórust, þeirra
á meðal þriggja ára gamall drengur. Brennuvargur-
inn hafði því líka morð á samviskunni.
Þeir sem rannsökuðu málið fengu ágætar vísbend-
ingar frá glæpamanninum. Hann var ekki aðeins sér-
fræðingur í íkveikjum, slökkviliðsstjóri og brennu-
vargur, hann var líka rithöfundur. Ári áður en hann
var handtekinn sendi hann útgefanda 350 blaðsíðna
handrit af bók þar sem höfundurinn lýsti nákvæm-
lega íkveikjum og afleiðingum þeirra og fer ekki á
milli mála að þarna var hann aö lýsa eigin athöfnum
og þeirri þörf sem rak hann áfram til illra verka.
Orr skrifaði að bókin væri byggð á raunverulegum
atburðum og lýsti hvemig brennuvargur hafði komið
af stað fjölda eldsvoða í Kaliforníu síðustu átta árin.
Ekki hefði tekist að koma upp um hann og mundi
hann leika lausum hala enn um sinn. Á sama hátt og
bókin er byggð á sönnum atburðum er brennuvargur-
inn í skáldsögunni raunverulegur slökkviliðsmaður.
Raunsönn skáldsaga
Meðal þeirra sem fengu að lesa handritið var Matt-
hew Troidl, faðir litla drengsins sem fórst í verslunar-
brunanum í Pasadena, ásamt ömmu sinni og tveimur
ungum afgreiðslumönnum. Foreldrarnir og afinn biðu
fyrir utan meðan amma skrapp inn að kaupa smáræði
og tók litla strákinn með sér. Eldurinn magnaðist svo
skyndilega aö þau sem voru fyrir utan gátu ekkert að
gert þótt þau vissu af sínum nánustu inni i brennandi
vítinu.
Amman og barnið voru jarðsett í sömu kistu.
Troidl varð meira en lítiö hissa þagar hann las í
kafla sex í skáldsögu Orrs að þriggja ára gamall dreng-
ur hefði dáið ásamt ömmu sinni í verslunarbrunanum.
Hann fór rétt með nafn barnsins og kallaði hann Matt-
hew og lýsti dauðastríði þeirra langmæðgina í smáat-
riðum.
En hvers vegna gerist yfirmaður í slökkviliði
brennuvargur? Þrátt fyrir tvenn viðamikil réttarhöld
fæst lítill skilningur á atferli Orrs. En víst er að
slökkviliðsmenn eiga þess kost að vera viðstaddir
bruna án þess að grunur falli á þá eins og nánast alla
áhorfendur að vel lukkuöum eldsvoða. Víða eru
slökkviliösmenn sjálfboðaliðar og þarf aö hafa eftirlit
með hvort meðal þeirra kunni að leynast menn sem
fórna tíma sínum af annarlegum hvötum. í Bandaríkj-
unum er vitað um fjölda dæma þess að slökkviliðs-
menn eru jafnframt brennuvargar. Árið 1993 voru níu
sjálfboðaliðar í slökkviliði kærðir. Þeir voru allir illa
haldnir af íkveikjufýsn. Einn þeirra slasaðist illa í
bruna sem hann átti sjálfur upptökin að.
En Orr, atvinnumaður með glæstan 20 ára feril að
baki, stöðuhækkanir og einn fremsti sérfræðingur
Kaliforníu í íkveikjum og hvernig koma ætti upp um
brennuvarga, var af öðru sauðarhúsi en ruglaðir sjálf-
boðaliðar.
Mistök
Rannsóknarlögreglumaðurinn Steve Patterson var
einn þeirra sem Orr hafði kennt að rannsaka íkveikj-
ur. Hann var farinn að gruna margt löngu áður en
fingrafaratilviljunin kom upp á yfirborðið. Vel
heppnaðar íkveikjur virtust fylgja Orr. Lögreglumað-
urinn rifjaði upp að þegar sölubúð hersins brann
hálftima akstursleið frá heimili slökkviliðsstjórans,
var hann mættur á undan brunaliðinu og myndaði
brunann með vídeóvél.
Síðar afhenti Orr lögreglumanninum spóluna. Það
voru mistök. Þegar Patterson skoðaði myndirnar sem
teknar voru af brunanum tók hann eftir að sérfræð-
ingurinn og kennarinn fór ekki eftir þeim reglum
sem hann lagði mikla áherslu á að kenna nemendum
sínum. Hann myndaði brunann í fimmtán mínútur
áður en hann beindi vélinni að mannsöfnuðinum sem
fylgdist með af venjulegum áhuga. Samkvæmt bók-
inni á að byrja á að mynda áhorfendur að bruna, því
ef um íkveikju er að ræða er brennuvargurinn áreið-
anlega á meðal þeirra sem gerst fylgjast með hvernig
þeim hefur tekist að láta loga glatt.
Á myndbandinu kom í ljós að sá sem tók upp
myndirnar hafði meiri áhuga á sjálfum brunanum en
að rannsaka uppruna hans.
Árið 1990 kom kaupmaður auga á eld í búnti af
þurrkuðum blómum sem stillt var upp sem skreyt-
ingu. Hann slökkti eldinn áður en hann náði að breið-
ast út um verslunina. I vasanum fannst tæki sem olli
íkveikjunni. Var það kunnáttusamlega saman sett.
Lögreglunni var gert viðvart og fundust fingraför á
tækinu. En þar sem enginn skaði var skeður fór eng-
in nánari rannsókn fram.
Ári síðar varð bruni á öðrum stað í Los Angeles og
var kveikt í með sams konar tæki, sem útbúið var
eins og tímasprengja sem springur eftir að sá sem
kemur henni fyrir er farinn af hættusvæðinu. Þar rak
annar rannóknarlögreglumaður minni til fingrafars-
ins sem fannst í blómaknippinu. Var nú fingrafarið
sett í fullkomna tölvu og borið saman við fingrafór 1,2
milljóna glæpamanna og lögreglumanna sem rann-
saka glæpi, þeirra fingraför er oft að fmna á vett-
vangi sem þeir rannsaka. Fingrafarið á íkveikjutæk-
inu reyndist vera eftir fingur Johns Orrs.
Einfalt íkveikjutæki
Nú hófst rannsókn sem fór leynt. Lögreglumenn fóru
að spyrja spurninga og fylgjast með slökkviliðsstjóran-
um í þeirri von að standa hann að verki. Vara-
slökkiliðsstjórinn í Glendale fékk að vita frá ritara
deildarinnar að hún hefði verið beðin aö vélrita bréf til
útgefandans sem var með handritið að skáldsögunni
um brennuvarginn undir höndum.
Lögreglumennirnir lásu handritið og sáu strax að
það var nákvæm lýsing á upptökum fjölda bruna sem
brennuvargar eða vargur hafði valdið á svæðinu.
Ikveikjutækinu sem fannst í þurrkuðu blómunum var
lýst vel. Það var einfalt en geröi sitt gagn. Það var búið
til úr eldspýtnabréfi sem brotið var á tiltekinn hátt og
logandi sígaretta fest við það með teygju. Þaö tók glóð-
ina þrjár mínútur að ná brennisteinunum og kveikja í
bréfinu sem komið var fyrir á stað þar sem loginn
breiddist auðveldlega út frá.
Engu var likara en að Orr vildi storka örlögunum.
Hann tefldi á tæpasta vað þegar hann gaf nánast vísvit-
andi færi á sér. Hann vildi sýna að hann væri klókari
en lögreglan og njóta þeirrar athygli sem hann átti skil-
ið sem brennuvargur án þess þó að gefa færi á sér. Bók-
in, sem hann kallaði skáldsögu, er vitnisburður um
brenglað hugarfar. Hvergi er að finna neina samúð með
þeim sem brunnu inni. Hann kennir því fólki aðeins
um að hafa verið að þvælast á stöðum þar sem það átti
ekki að vera þegar honum þóknaðist að kveikja í.
Orr var dæmur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa valdið
24 stórbrunum. Síöar kom í ljós að slökkviliðsstjórinn
var sekur um að kveikja í versluninni í Pasadena þar
sem fjórar manneskjur fórust. Fyrir það fékk hann 20
ár til viöbótar.
Að mörgu leyti var brennuvargurinn Orr fyrirmynd-
arborgari. Honum gekk vel í skóla og var stilltur og
prúöur unglingur. Hann gekk í flugherinn sem sjálf-
boðaliði og hóf síðan störf í slökkviliðinu og þar var
frami hans skjótur og hann þótti afburðakennari á sínu
sviði og eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum. En eitt-
hvað gengu ástarmálin brösuglega því hann var fjór-
kvæntur og sinnti börnum sínum slælega. Sálkönnuðir
reyna að velta persónueinkennum þessa undarlega
manns fyrir sér en niðurstöður þeirra eru í ólíkar átt-
ir eins og skapferli mannsins virðist vera.