Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
Fréttir
DV
Kristinn H. Gunnarsson kveður Byggðastofnun með söknuði:
Skilyrði til að friður nki
- sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Jón Sigurösson hagfræöingur
var kjörinn formaður stjórnar
Byggðastoftiunar á aðalfundi
stofnunarinnar sem haldinn var í
gær í Hnífsdal. Var létt yfir fund-
arfólki enda blíðskaparveður
vestra. í viðtali við DV sagði frá-
farandi formaður stjórnar stofnun-
arinnar, Kristinn H. Gunnarsson,
að fundurinn hefði gengið vel og
sér virtist staða byggðamála vera
tiltölulega öflug og að mikið væri
að gerast í málaflokknum, bæði af
hálfu ríkisstjórnarinnar og ann-
arra sem láta sig málin varða.
„Ég kveð þennan vettvang sann-
arlega með söknuði. Starfið gekk
vel og var ævinlega samstaða um
helstu mál á fundum stjórnar og
man ég varla eftir atkvæðagreiðsl-
um um einstök mál. Óska ég þeim
sem við taka við alls hins besta.“
Aðspurður um áform stofnunar-
innar um aðkomu að dreifingu
fjölmiðlaefnis sagði Kristinn að
hér væri um mikilvægt byggðamál
að ræða og stefna bæri að því að
tryggja sem flestum jafnt aðgengi
að sjónvarpsefni og öðru ftölmiðla-
efni.
DVA1YND VALDIMAR
Blíöalogn eftir aðalfund Byggöastofnunar
Valgeröur Sverrisdóttir, iönaöar- og viðskiptaráðherra, og Kristinn H. Gunnars-
son, fráfarandi formaöur stjórnar Byggöastofnunar, njóta blíðunnar eftir
kuldalega tíö undanfarið.
„Við höfum fengið erindi frá
nokkrum aðilum sem hafa áhuga á
að dreifa efni til fámennra byggða
og er unnið að því núna.“
Önnur mikilvæg verkefni
Byggðastofnunar undanfarin ár
taldi Kristinn meðal annars vera
uppbyggingu viðskiptaháskólans á
Bifröst, stuðning við loðdýrarækt
og sauðfjárslátrun.
„Hlutverk Byggðastofnunar er
skilgreint í lögum um hana og er
skýrt. Byggðastofnun hefur afar
mikilvægu hlutverki að gegna og
tel ég að stuðningur hennar við
uppbyggingu náms á háskólastigi
og dreifingu á fjölmiðlaefni stuðli
að breyttri og bættri ímynd stofn-
unarinnar," sagði Kristinn.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, lét vel af
fundinum. „Ég er ánægð með dag-
inn og ekki síst hvað umræðan
hefur verið málefnaleg og and-
rúmsloftið gott. Fólk er ákveðið i
því að spýta í lófana og hugsa um
byggðamálin og jákvæða þróun
byggðar. Nú eru öll skilyrði til
þess að friður ríki og menn ein-
beiti sér að málefhunum.“ -VH
Unnið að fornleifauppgrefti í gamla bænum í Skálholti:
Leirker, krítarpípur og
kínverskt drykkjarstell
- meðal þess sem hefur fimdist - fornminjamar vel varðveittar
Við fomleifauppgröft, sem nú fer
fram í Skálholti, hafa fundist ieirker,
gler, krítarpípur og hlutar úr kín-
versku drykkjarstelli.
Mokað hefur verið ofan af um
fimmtungi svæðisins þar sem bærinn
stóö áður en hann hrundi í Suður-
landsskjálftanum 1784. Biskupssetrið
var eftir það flutt til Reykjavikur.
Orri Vésteinsson, fornleifafræöing-
ur og verkefnisstjóri uppgraftarins,
sagði i samtali við DV að hann væri
hissa á hversu rústimar í Skálholti
væru vel varðveittar. Hann sagði ís-
land spennandi stað til fomleifaupp-
graftar vegna smæðar samfélagsins.
„Viðráðanleiki
fornleifanna, rit-
heimildir sem og
afmörkuð tíma-
lengd, um 1100 ár,
gera það að verk-
um að auövelt er
að greina hve
gamlar fornleif-
amar eru,“ sagði
Orri. Hann sagði
þó að þar sem samfélagið hefði verið
fátækt hefði arkitektúr verið af skom-
um skammti. I hópnum sem nú vinn-
ur aö uppgreftinum eru tíu manns.
Sérstakur sjóður var stofnaður tO
Orri Vésteinsson.
að minnast þess að 1000 ár eru liðin
frá því kristni var lögtekin á íslandi.
Meðal hlutverka sjóðsins er að kosta
fornleifarannsóknir á helstu sögustöð-
um þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í
Skáiholti og á Hólum. Starfstími sjóðs-
ins er fimm ár eða til ársloka 2005.
Næsta verkefnið sem ráðist verður
í em Hólar í Hjaltadal og hefst upp-
gröftur þann 1. júlí næstkomandi en
hæstu fjárframlögin fengu Hólar, eða
11 milljónir. Skálholt mun klárast i
þessari viku en til þess verks
fengust 9 milljónir. Langt er komið
með Þingvelli en úthlutað var 5
milljónum í það verkefni. Byrjað
DVWYND: HARI
Fornleifauppgröftur í Skálholti
Margt getur leynst í moldinni.
verður að grafa i Gásum í júlí en 4
milijónum er varið til þess verks.
Kirkjubæjarklaustur sem og
Skriöuklaustur fengu hvort sínar 7
milljónimar. -ss
Vífilsstaðaspítali hefur lokið áratuga hlutverki sínu:
Síðustu sjúklingarnir útskrifaðir
- hugmyndir um að reka öldrunarþjónustu á staðnum
Vífilsstaðir hafa nú lokið uppruna-
legu hlutverki sínu sem spitali fyrir
lungnasjúklinga og hafa síðustu legu-
sjúklingamir verið útskrifaðir þaðan.
Þar með er allri sjúklingastarfsemi á
Vífllsstöðum að ljúka.
Miklir flutningar deilda hafa átt sér
stað að undanfómu vegna þessara
breytinga. Lungnadeildin var flutt á
Landspítalann í Fossvogi í janúar sl.
Hjúkrunardeildin hafði þá þegar verið
flutt á Landakot. Geðsviðið, sem starf-
rækt var á Vífilsstöðum, var flutt á
Kleppsspítala. Eftir heföbundna sumar-
lokun göngudeildarinnar verður hún
til húsa í byggingum Landspítala í
Kópavogi. Húðdeildin verður einnig
flutt af staönum eftir sumarlokun. Enn
er eftir að koma fyrir örfáum legurúm-
um sem verða flutt á Landspítala.
Magnús Pétursson, forstjóri Land-
spítala Háskólasjúkrahúss, sagði að
húsnæði það sem kailað væri Hóllinn
og hefði hýst geðdeildina á Vífilsstöð-
um yrði auglýst til leigu á næstunni.
Framtíð gamla spítaians hefði verið
rædd milh Landspítala og heilbrigðis-
ráðuneytis. Þar væri á borðinu sú hug-
mynd hvort nýta mætti hann fyrir
hjúkrunarsjúklinga. Hugmyndin væri
til athugunar hjá ráöuneytinu en Land-
spítali hefði þegar skilað húsinu af sér
til þess.
Nýtt hlutverk?
f athugun er hvort nýta megi Vífilsstaöaspítala fyrir hjúkrunarsjúklinga.
Góð lausn
Við höfúm sagt sem svo að gæti það
orðið til aðstoðar í þessum híúkrunar-
málum að Landspítalinn sæi um eign-
ina en heilbrigðisráðuneytið legði ffarn
fé til þess að reka einhvers konar þjón-
ustu við aldraða, þá væri það feiknar-
lega gott,“ sagði Magnús. „Það em
alltof margir inni á spítalanum sem
em ekki best settir þar. Það væri góð
lausn sem allir myndu fagna ef þama
yrði hjúkrunarþjónusta fyrir aldraða."
Magnús sagði að kosta myndi tölu-
verða peninga að vera með slíkan
rekstur á Vífilsstöðum. Húsið hefði
bæði kosti og galla. Hins vegar væri
staðsetningin góð.
„Ég býst við að það yrði ódýrara
hjúkrunarrými sem fengist með því að
gera einhverjar breytingar þama held-
ur en að smíða alveg frá grunni," sagði
Magnús. „Við metum það þannig að
inni á spítalanum séu um 120 manns
sem væm betur komnir annars staðar,
á hjúkrunarheimilum, meðferðarheim-
ilum, vistheimilum eða þ.h. en ekki í
þessum dýra rúmum á Landspítala.
Þess vegna erum við á spítalanum
mjög mikið áhugafólk um hjúkrunar-
rými, því okkur skortir rúmin til aö
vinna á biðlistum."
Saga Vífilsstaða
Heilsuhæhð á Vífilsstöðum hóf starf-
semi 5. september 1910 en þá var tekið
á móti fyrstu sjúklingunum. Það var
rekið af Heilsuhælisféiaginu til 1. janú-
ar 1916 en þá tók ríkið viö rekstrinum
Tilgangur með heilsuhælinu var ein
göngu að vista og lækna berklasjúk-
linga. Vífilsstaðir voru berklahæli
fram undir 1970 en þá var nafriinu
breytt í Vífilsstaðaspítala og komið þar
upp lungnadeild. Vífilsstaöir eru hluti
af Landspítala háskólasjúkrahúsi. Þar
hefur verið lungnadeild, langlegudeild
fyrir lungnasjúklinga, húðlækninga-
deild, göngudeild fyrir lungnasjúklinga
og göngudeild fyrir oftiæmissjúklinga,
sú eina á landinu. Einnig hefúr farið
ffarn á Vífilsstöðum greining og með-
ferð öndunartruflana I sveftii.
Saga Vífilsstaða í 90 ár er vörðuð
mörgum viðburðum og merkum. Til
dæmis var Samband íslenskra berkla-
sjúklinga stoftiað þar en SÍBS kom upp
vinnuheimilinu að Reykjalundi. Helsti
hvatamaður að því var Oddur Ólafsson
en hann var um tíma aðstoðarlæknir á
Vífilsstöðum. -JSS
■ sjíiysif/iJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 24.05
Sólarupprás á morgun 02.55
Síódegisflóö 16.38
Árdegisflóð á morgun 04.56
Hafgola og hlýtt víðast hvar
Hæg breytlileg átt eða hafgola.
Skýjað með köflum eða léttskýjað
um mestallt landið en stöku skúrir.
Hætt viö næturþoku við vestur- og
noröurströndina en hiti verður á
bilinu 3-17 stig, hlýjast
suðvestanlands.
Hæglætisveður
Hæglætisveður með suðaustan-
kalda og rigningu suðaustan- og
austanlands þegar líöur á kvöldið.
Annars hlýtt í veöri, skýjað með
köflum og hægur vindur.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
Hitl 9°
Hiti 10”
Hrti 9"
«118° «116' til 16'
Vindur: Vindun Vindur:
3-10 ms 3-10 m/« 88 "V8
Noröanátt og Noröanátt og Sunnan átt og
smáskúrir úrkoma norðan síðar
noröan og og austan til en suövestlægar
austan tii. annars skýjaö meö köflum. eöa breytiiegar áttJr meö vætu sunnan og vestan tii.
* 4» t
Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassviðri Stormur Rok Ofsaveður Fárvlðri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
-i'j í^-f
AKUREYRI BERGSSTAÐIR skýjaö 10
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 10
EGILSSTAÐIR skýjaö 8
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 9
KEFLAVÍK hálfskýjaö 10
RAUFARHÖFN léttskýjaö 5
REYKJAVÍK hálfskýjaö 11
STÓRHÖFÐI BERGEN léttskýjaö 9
HELSINKI KAUPMANNAHÖFN skúrir 16
ÓSLÓ STOKKHÓLMUR skýjaö 18 16
ÞÓRSHÖFN þoka 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 17
ALGARVE heiöskírt 25
AMSTERDAM skýjaö 18
BARCELONA hálfskýjað 26
BERLÍN skýjað 22
CHICAGO mistur 24
DUBUN rigning 14
HAUFAX skýjaö 15
FRANKFURT alskýjaö 22
HAMBORG skýjaö 20
JAN MAYEN skýjaö 4
LONDON hálfskýjaö 20
LÚXEMBORG skýjað 21
MALLORCA mistur 25
MONTREAL NARSSARSSUAQ léttskýjað 19
NEW YORK heiöskírt 21
ORLANDO alskýjaö 23
PARÍS skýjaö 23
VÍN léttskýjaö 30
WASHINGTON heiöskírt 19
WINNIPEG heiöskírt 15