Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Page 9
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
9
Sport
Þjóðverjar stálheppn-
ir að komast áfram
- mark Michaels Ballacks dugði til gegn Bandaríkjamönnum í Ulsan í gær
Þótt að skalli Michaels Ballacks
eftir aukaspyrnu Christians Ziege
skömmu fyrir leikhlé hafi gefið eina
mark leiks Þjóðverja og Bandaríkj-
anna var það fyrst og fremst
frammistaða þýska markvarðarins,
Oliver Kahn, sem tryggði Þjóðverj-
um sæti í undanúrslitum HM í
knattspymu i gær.
Það voru Bandarikjamenn sem
voru klárlega sterkari aðilinn í
leiknum og léku þýsku vömina oft
sundur og saman en aldrei tókst
þeim að koma knettinum fram hjá
Kahn sem staðfesti endanlega, hafi
einhver vafi verið þar á, að hann sé
besti markvörður heimsins um
þessar mundir.
Rudi Völler, þýski landsliðsþjálf-
arinn, var ekki ánægður með leik
sinna manna í gær. „Þeir þrýstu
mjög á okkur og okkar leikkerfi
gekk ekki upp. Þó svo að ég sé vita-
skuld ánægður með að vera kominn
í undanúrslitin er ég ekki ánægður
með leikinn í heild sinni. Við verð-
um að hæta okkur í næsta leik ætl-
um við okkur í úrslitin," sagði Völl-
er eftir leikinn.
Sterkir í loftinu
„Við vissum vel að þeir em sterk-
ir í loftinu og sér í lagi eftir fóst
leikatriði, eins og aukaspyrnur,"
sagði Brad Friedel, markvörður
Bandarikjanna, eftir leikinn. „Og
það kom á daginn að það dugði
þeim til. Við áttum reyndar fyllilega
skilið að vinna en þökk sé frábær-
um leik Olivers Kahns tókst okkur
ekki að jafna leikinn," sagði Friedel
sem stóð sig afar vel með banda-
ríska liðinu á HMog getur verið
fyllilega sáttur við sitt.
Sem og var Bruce Arena, þjálfari
liðsins, stoltur af leikmönnum sín-
um og sagði hann að með örlítilli
heppni hefði liðið getað tryggt sér
sæti í undanúrslitunum. „Við sköp-
uðum okkur mörg færi í leiknum -
þeir hins vegar sköpuðu tvö og tókst
að nýta eitt og þar lá munurinn."
Bandaríkjamenn voru betri
Eins og Völler og sjálfsagt flestir
aðrir Þjóðverjar taldi goðsögnin
Franz Beckenbauer sína menn afar
heppna að komast frá leiknum með
sigur í farteskinu. „Bandarikja-
menn voru klárlega betri aðilinn í
90 mínútur," sagði Beckenbauer.
„Vonandi verður lukkan okkur
áfram hliðholl i mótinu."
í eina skiptiö sem boltinn komst fram hjá Oliver Kahn (1) í þýska markinu var félagi hans Torsten Frings mættur til
aö bjarga knettinum á marklínu, þó meö hendinni, en þar sem dómarinn sá ekki nógu vel tii sluppu þeir meö skrekk-
inn og Bandaríkjamenn sátu eftir meö sárt enniö en Þjóöverjar halda í undanúrslit HM. Reuters
Dregið í Evrópukeppnum í knattspyrnu í gær:
Skagamenn óheppnir
- þurfa að ferðast til Bosníu og spila gegn Zeljeznicar
Skagamenn voru óheppnir þegar
dregið var í fyrstu urnferð forkeppni
meistaradeildar Evrópu í gær.
Þeir mæta ZK Zeljeznicar frá
Bosníu og má búast við mjög erfið-
um leik. ZK Zeljeznicar er lang-
sterkasta félagslið Bosníu og vann
deildina með yfirburðum á nýaf-
stöðnu keppnistímabili.
Veröur erfitt
„Það er alveg ljóst að við eigum
erfitt verkefni fyrir höndum. Þessi
lið frá gömlu Júgóslavíu eru flest
mjög sterk þannig aö við verðum
heldur betur að bretta upp ermarn-
ar. Það er þó huggun harmi gegn að
við eigum fyrri leikinn úti,“ sagði
Ólafur Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, í samtali við DV-Sport í
gær. Leikimir fara fram 17. júlí í
Sarajevo og 24. júlí á Laugardals-
velli. Sigurvegarinn í þessum
leikjum mætir norska liðinu Lil-
lestrom en þar leika íslendingamir
Indriði Sigurðsson, Gylfi Einarsson
og Davíð Þór Viðarsson auk þess
sem Logi Ólafsson er aðstoðarþjálf-
ari liðsins.
Eyjamenn mæta sænska liðinu
AIK og Fylkismenn spila gegn
belgíska liðinu Excelsior Mouscron
í fyrstu umferð forkeppni Evrópu-
keppni félagsliða. AIK hafnaði í
þriðja sæti sænsku úrvalsdeildar-
innar á síðasta keppnistímabili og
er í tólfta sæti í deildinni eftir sjö
leiki nú. Mouscron hafnaði í sjötta
sæti belgísku deildarinnar í vetur
og komst í bikarúrslit. Leikimir
fara fram 15. og 29. ágúst en
Knattspymusamband Evrópu mun
snúa heimaleikjunum hjá öðru
hvoru liðinu.
-ósk
Sérstaklega var áberandi Banda-
ríkjamaðurinn Landon Donovan, 21
árs gamall miðherji sem leikur með
Bayer Leverkusen í Þýskalandi en
hann skapaði mörg færi fyrir sig og
félaga sína sem þeim tókst þó ekki
að nýta. Þá var fyrirliðinn, Claudio
Reyna, sem leikur með Sunderland
á Englandi, afar þýðingarmikill á
miðjunni og gerði oft afar lítið úr
mótherjum sínum sem eiga að vera
með bestu leikmönnum heimsins.
Aldrei aö afskrifa Þjóðverja
En Þjóðverjar eru nú komnir í
undanúrslit keppninnar, sama hvað
tautar og raular, og hefur ýmislegt
gengið á á leiðinni þangað. Meiðsli
og mikil gagnrýni er meðal þess
sem liðið hefur mátt þola og viður-
kenndi meira að segja Beckenbauer
fyrir mót að nú væru Þjóðverjar í
fyrsta sinn að senda lið á mót sem
gæti ekki unnið titilinn. Hann af öll-
um ætti að vita að það þýðir aldrei
að afskrifa Þjóðverja.
Tilvonandi stórveldi?
En Bandaríkjamenn eru meðal
þeirra sem fara heim með bros á
vör enda bjóst enginn við neinu sér-
stöku af liðinu. Sigur í fyrsta leik á
mótinu gaf fyrirheit um það sem
koma skyldi og jafn vel mun hann
reynast vera vendipunktur á fram-
gangi íþróttarinnar í sínu heima-
landi. Þeir staðfestu að þeir eru á
góðri leið með að móta afar sterkt
landslið sem glæðir þær vonir að
knattspyrnan nái að skjóta rótum í
landinu og úr verði tilvonandi stór-
veldi i knattspymu. -esá
Framleiðum brettakanta, sólskyggni og
boddíhluti á flestar gerðir jeppa,
einnigboddíhluti í vörubíla og vanbíla.
Sérsmíði og viðgerðir.
(1)
Allt Plast
Kænuvogi 17 • sími 588 6740
Síðustu 11 sætin
Stökktu til
Benidorm
3. júlí
trá 39.865
Nú getur þú valið um 1 eða 2 vikur á ótrúlegum kjörum
á einum vinsælasta áfangastað íslendinga í sólinni,
Benidorm. Þú bókar núna og tryggir þér síðustu sætin.
Fjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig og
tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð: 39.865 Verð: 49.950 Verð: 49.865
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Flug, gisting, skattar, 3. júlí, vikuferfi. Staðgreitt Alm. verð kr. 41.860. M.v. 2 í íbúð, 3. júní, vikuíerð. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450. M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Flug, gisting, skattar, 3.júlíí2vikur. StaðgreiU. Alm. verð kr. 52.360.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 sími 595 1000. www.heimsferdir.is