Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Side 11
b
11
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002_______________________________________
Skoðun
mett eftir góðan kvöldverð og svo
langt um liðið frá því að ég bauð
tengdadótturinni upp á þá félaga
Kris og Roy að hún treysti sér til
að hitta mig á ný. „Ekki Kris“,
hrökk upp úr ungu konunni. Upp-
hrópunin kom beint frá hjartanu.
Hún leit í örvæntingu á sambýlis-
manninn. Sá góði sonur glotti við
tönn.
„Nei, nei,“ sagði ég. „Þú þarft
ekkert að óttast. Ég er bara með
þá Kris, Roy og Bob í bílnum. Nú
býð ég þér og ykkur öllum allt
annað prógram. Samt fmnst mér
rétt að í byrjun fáir þú saman-
burð við Kris,“ sagði ég við
tengdadótturina um leið og Janis
Joplin hóf upp raustina. Þótt þrjá-
tíu ár séu liðin síðan hún söng sitt
síðasta fór enn ljúfur hrollur um
kroppinn. Hún túlkaði Me and
Bobby McGee betur en Kris sjálf-
ur og ekki var hún síðri er hún
bað guð sinn um Mercedes Benz
þar sem vinimir keyrðu allir á
Porsche. „Góð?“ sagði ég við
tengdadóttur mína og vísaði þar
til hinnar löngu látnu söngkonu.
Hún sagði ekki neitt en andvarp-
aði af feginleik þegar ég tók
diskinn úr spilaranum, í þeirri
veiku von að ástandið skánaði.
Sýra?
Crosby, Stills, Nash and Young
áttu næsta leik. Tengdadóttir mín
vissi ekki hvaðan á sig stóð veðr-
ið. Hún horfði bænaraugum á
sambýlismanninn, son minn.
Glottið á honum var komið í bæði
munnvikin og náði einnig til
augnanna. Ég sá hvar hann
hnippti í eldri bróður sinn. „Kall-
inn er orðinn snar,“ hvíslaði
hann gegnum tónaflóðið. Sá eldri
kinkaði kolli til samþykktar.
„Teach your children well“ hljóm-
aði í dásamlegri röddun þeirra
söngbræðra og það var einmitt
um.
„Samt finnst mér rétt
að í byrjun fáir þú
samanburð við Kris, “
sagði ég um leið ogjan-
is Joplin hóf upp
raustina. Þótt þrjátíu
ár séu liðin síðan hún
söng sitt síðasta fór
enn Ijúfur hrollur um
kroppinn. “
það sem ég hugsaði mér að gera.
Kenna börnum og tengdabömum
að njóta þess þegar popp og rokk
náði hátindi, nota hvert tækifæri
til þess, hvort sem þau sætu hjá
mér í bíl eða heima í stofu.
„Hvaða sýru grófstu upp, mað-
ur?“ sagði konan sem kaus að
blanda sér í málið á þessu augna-
bliki. Af hyggjuviti sá hún að ein-
ing fjölskyldunnar var í hættu.
Eiginmaðurinn var horfmn ára-
tugi aftur í tímann. Hún lét það
vera þótt hann væri sambands-
laus við umheiminn og staðnaður
í tónlistinni. Verra væri ef hann
missti öll tengsl við sína nánustu.
„Á ég að skipta, elskan," sagði ég
og dró niður í Crosby, Stills og fé-
lögum. Um leið greip ég James
Taylor og gerði mig líklegan til
þess að leika hann næst. „Róaðu
þig aðeins niður, góði minn,“
sagði konan. „Gakktu ekki alveg
fram af bömunum. Þú getur spil-
að þetta á hvaða styrkleika sem
er, þegar þú ert einn.“
Öllu má venjast
„Eitt lag enn,“ sagði ég og lagði
James Taylor frá mér og greip
disk með þeirri mögnuðu sveit
Credence Clearwater Revival.
Fjölskylda mín, eigin-
kona, börn og
tengdabörn, kom
engum vömum
við. Ég fékk mig
vart hamið und-
ir rafmögnuðum
gítarleik og söng
með og greip í loft-
gítar þegar sveitin
þrumaði „Up Around the
Band“. Ég hækkaði í botn. Dætur
og tengdadætur horfðu á tjúnað-
an föður og tengdafoður. Þær
höfðu engan skilning á stuð-
inu.
Konan tók af skarið. Hún
slökkti. Glimrandi gítar-
leikurinn hætti jafn-
snöggt og hann byrjaði.
Söngurinn hljóðnaði.
Enginn sagði neitt
uns tengdadóttirin
rauf þögnina. Hún
var tilbúin til að
milda ástandið og
lagði sitt fram
til sáttargerð-
arinnar: „Þú
mátt spila
Kris ef þú
vilt. Við
hljótum
að venj-
ast hon-
Samkeppnisvæðing kerfisins
Óli Björn
Kárason
Ritstjórnarbréf
Nær eitt þúsund aldraðir einstak-
lingar eru á biðlistum eftir þjónustu-
húsnæði eða hjúkrunarrými, þar af
eru liðlega 600 í brýnni þörf fyrir úr-
lausn sinna mála. Undir lok maí
greindi DV frá því að alls hefðu um
2.500 manns verið á biðlistum eftir
læknisverkum hjá Landspítala Há-
skólasjúkrahúsi lengur en þrjá mán-
uði. í byrjun júní birtist frétt í Morg-
unblaðinu þar sem fram kom að um
3.300 manns bíði eftir skurðlækning-
um á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
og að meðalbiðtími væri allt að tvö
ár. Blaðið hafði eftir Jónasi Magnús-
syni, sviðsstjóra lækninga á skurð-
lækningasviði, að getan væri fyrir
hendi til að láta þessa lista hverfa ef
til þess væri pólitískur vilji og spítal-
anum útvegað nægOegt rekstrarfé.
Nær 30 þúsund íbúar höfuðborgar-
svæðisins eru án heimilislæknis og
þeir sem eru svo heppnir að hafa
lækni þurfa á stundum að bíða í
margar vikur eftir viðtalstíma.
Á undanfórnum árum hafa fjöl-
miðlar stöðugt flutt fréttir af krónísk-
um vandamálum sem herja á ís-
lenskt heilbrigðiskerfi. Flestir hafa
sögur að segja af eigin reynslu eða
sinna nánustu - af þrautagöngu í
gegnum kerfi sem er smátt og smátt
að molna að innan.
Breytt viðhorf
Ég hef á undanfómum ámm skrif-
að töluvert um heilbrigðismál al-
mennt og fengið að kynnast því
hvemig viðhorf heObrigðisstétta tO
rekstrarforms og skipulags heObrigð-
iskerfisins hefur verið að gjörbreyt-
ast. Þeir sem vinna innan heObrigðis-
kerfisins vita af eigin raun í hvaða
ógöngum kerfið hefur lent en hafa
um leið orðið vitni að því að lítOl eða
enginn pólitískur vOji er tO að leita
nýrra leiða. Hægt en öragglega er
verið að grafa undan hæfOeikaríku
fólki sem sér sitt óvænna og leitar
annað. Atgervisflótti úr heObrigðis-
kerfinu er fyrst og fremst heimatilbú-
ið vandamál - dæmi um það hvemig
ótrúlegur mannauður er Ola nýttur
og eyðOagður.
Staðreyndin er sú að þær smá-
skammtalækningar sem hafa verið
stundaðar á liðnum áram og áratug-
um hafa engu skOað og raunar aðeins
fært okkur íslendinga fiær því marki
að viðhalda og byggja upp góða heO-
brigðisþjónustu sem er öUum að-
gengOeg. Enginn stjórnmálaflokkur
hefur reynt að glíma við vandann af
hreinskilni. Sjúklingar og þeir sem
þmfa á þjónustu að halda standa ber-
skjaldaðir gagnvart kerfinu. Kostnað-
urinn heldur áfram að hækka, biðlist-
ar lengjast, þjónustan verður lakari,
og lokun einstakra deOda sjúkrahús-
anna er árviss atburður.
Styrkur og veikleiki
HeObrigðiskerfið er því úr sér
gengið og þjónar ekki þeim sem því
er ætlað. Á komandi áram mun
vandinn vaxa - skortur á læknum og
öðram heUbrigðisstarfsmönnum
mun aukast, sjúklingar þurfa að
bíða lengur. Að lokum mun kerfið
hrynja. Um þetta era margir sam-
mála, ekki síst þeir sem vinna innan
heObrigðiskerfisins.
Ólafur Örn Amarson læknir hefur
í gegnum tíðina ritað fiölmargar
greinar um þann vanda sem við er
að glíma í íslensku heObrigðiskerfi. í
athyglisverðri grein í Morgunblað-
inu í aprfi síðastliðnum benti hann
réttOega á að meginstyrkur íslenska
heObrigðiskerfisins væri vel mennt-
að og gott starfsfólk sem væri tObúið
að leggja mikið á sig tO að halda
uppi viðunandi þjónustu: „Megin-
veikleiki kerfisins er fiármögnun
þess og stjómun. Ríkisstjómir und-
anfarins áratugar hafa komið fram
mörgum umbótum í efnahagslegu
tilliti og dregið úr miðstýringu og
opinberam rekstri. Það hefur verið
mjög í takt við það sem er að gerast
í Evrópu.“ Og Ólafur Örn bætir við:
„AOt annað er uppi á teningnum
þegar kemur að heObrigðiskerfinu.
Miðstýring hefur aukist veralega.
Réttur sjúklinga tO þjónustu án
óeðlOegrar tafar hefur ekki verið
viðm-kenndur. Markmiðið hefur ver-
ið að takmarka fiárveitingar tO
reksturs heObrigðisþjónustu með tO-
Heilbrigðiskerfið er því
úr sér gengið og þjónar
ekki þeim sem því er œtl-
að. Á komandi árum
mun vandinn vaxa -
skortur á læknum og öðr-
um heilbrigðisstarfs-
mönnum mun aukast,
sjúklingar þurfa að bíða
lengur. Að lokum mun
kerfið hrynja.
liti tO hagsmuna ríkissjóðs. Mark-
miðið hefur ekki verið að nýta fiár-
magnið þannig að sem flestir geti
notið þjónustunnar og að uppfyUa
þarfir fólks. Fjármögnunarleiðir eru
úreltar og í sumum tilfeUum beinlín-
is skaðlegar, t.d. föst fiárlög."
Einfalt markmið
Markmiðið er í sjálfu sér einfalt; að
tryggja öUum, óháð efnahag og stétt,
aðgang að góðri og öflugri heObrigðis-
þjónustu, en um leið að virkja að fullu
þá miklu hæfileika sem starfsfólk
heUbrigðiskerfisins býr yfir. Þessu
markmiði er hægt að ná en um leið
tryggja aðhald og sparsemi.
Lögmál samkeppninnar gUda á
sviði heUbrigðisþjónustu eins og aUs
staðar. Að leyfa einstaklingum og
samtökum þeirra að keppa við ríkið á
grunni jafnræðis hefur ekkert með
það að gera hver greiðir reUminginn
á endanum.
Andstæðingar samkeppnisvæðing-
ar á sviði heUbrigðisþjónustu hafa
aldrei komið fram með haldbær rök
gegn þessari fuUyrðingu en þess í stað
gripið tU klisjukenndra hugmynda og
frasa. Þeir segjast ekki vUja „þessa
amerísku martröð, þar sem óheft sam-
keppni ræður för,“ eins og forveri nú-
verandi heUbrigðisráðherra sagði í
blaðagrein.
Með klisjum sem þessum er reynt
að kasta ryki í augu fólks. Hvorki ég
né flestir aðrir sem telja nauðsynlegt
að samkeppnisvæða íslenskt heO-
brigðiskerfi hafa nokkru sinni talið
rétt að innleiða bandarískt heObrigð-
iskerfi hér á landi, þó margt megi
læra af Bandaríkjamönnum í þeim
efnum. Frá Bandaríkjunum koma
Uestar nýjungar og framfarir í lækna-
vísindunum og samfélag sem býr tU
jarðveg fyrir framfarir getur ekki ver-
ið alslæmt.
Langflestir landsmanna vUja
standa þannig að málum að sameigin-
legur sjóður greiði fyrir stærsta hluta
heUbrigðiskerfisins, eins og nú er, tU
að tryggja öUum aðgang að góðri og
nauðsynlegri þjónustu. Ágreiningur-
inn snýst aðeins um það hvemig fiár-
munimir verða best nýttir.
Vandinn er hins vegar sá að núver-
andi kerfi er smátt og smátt að fiar-
lægjast þau markmið sem flestir eru
sammála um. Því verður að leita
nýrra leiða og þær liggja í gegnum
samkeppnisvæðingu heUbrigðiskerf-
isins þar sem einstaklingum er gert
kleift að njóta sín. Einokun og höml-
ur á samkeppni hafa skaðvænleg
áhrif í þessari grein líkt og á öðrum
sviðum atvinnulífsins. Afleiðingin er
hærri kostnaður, minni framleiðni og
litlar framfarir enda mikOhæfir
starfsmenn hraktir í burtu eða komið
í veg fyrir að þeir geti notið sín.
Verkefni stjórnmálamanna er ekki
að koma í veg fyrir samkeppni innan
heUbrigðiskerfisins heldur að tryggja
landsmönnum aðgang að góðri þjón-
ustu óháð efhahag eða stétt, en um
leið að vel sé farið með almannafé.
Með öðram orðum sameiginlegur
sjóður á að greiða stærsta hluta kostn-
aöarins en reksturinn á að vera í
höndum einkaaðila og samtaka
þeirra.