Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Page 17
LAUCARDAGUR 22. JÚN! 2002
HelQarblctð 31>V
I ~7
Organistinn
úr sveitinni
Hörður Áskelsson er orqanisti íþriðja lið og situr við stærsta
orqel landsins íHallqrímskirkju. Hann talar um uppskeru og
erfiði, mótun popptónlistar, uppreisn oq sveitastörf en einniq
um það hverniq á að fá fólk til að synqja betur en almennt
qerist. Hörður var útnefndur borqarlistarmaður Reykjavíkur
og DV hitti hann yfir laxaslóqi oq hroqnum.
• Sjá næstu opnu
HÖRÐUR ÁSKELSSON ER ORGANISTI við höfuð
kirkju íslensku þjóðarinnar, Hallgrímskirkju, sem gnæf-
ir við loft á Skólavörðuholti. Það tók íslensku þjóðina
hartnær 40 ár að koma þessari kirkju upp úr jörðinni
sínu helsta sálmaskáldi til dýrðar. Lengi vel stóð styr
mikill um þessa kirkju sem þótti ljótt hús og ólögulegt og
helstu skáld þjóðarinnar ortu gegn byggingu hennar. Ný-
lega gerði DV skoðanakönnun á þvi hver mönnum þætti
vera fegursta bygging Reykjavíkur og lenti téð kirkja þar
í efsta sæti og má af ætla að nokkur sátt riki orðið um
hús þetta.
Þegar Hörður Áskelsson tók við starfi organista við
Hallgrímskirkju árið 1982 átti hún eitt orgelræksni lítið,
kirkjukór sem í voru um tveir tugir roskinna söngvara
og enn stóöu stillansar utan um lungann af byggingunni.
Síðan hafa liðið tuttugu ár uppbyggingarstarfs og rækt-
unarstarfs. Kirkjan státar af stærsta orgeli íslands og
þótt víðar væri leitað. Það er frá þýsku Klais-verksmiðj-
unum hannað sérstaklega fyrir kirkjuna og þykir hafa
tekist svo vel aö eftirsótt er af organistum heimsins að
koma og spila á það.