Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 22
H<2Igarbla<5 DV LAUGARDAGUR 22. J Ú N í 2002
Spuming
um heppni og kunnáttu
Siqurqeir Siqurqeirsson er sennileqa einn
okkar fremsti landslaqsljósmqndari oq ný-
i/erið kom út bókin Lost in lceland, eða Is-
landssýn sem hefur að qeqma safn Ijós-
mqnda sem hann hefur tekið af íslenskri
náttúru. Siqurqeir ræddi við blaðamann DV
um faqið oq Iqkilinn að qóðri Ijósmqnd.
ÞAÐ ER GRÁMYGLULEGUR fimmtudagsmorgunn
þegar ég hitti Sigurgeir á heimili hans. Hann afsakar
óreiðuna eins og menn gera oft þegar ókunnugan ber
aö garði en ég er ekkert að segja honum að ég er mjög
vanur slíkri óreiðu. Hann færir mér kaffi og áður en
honum gefst tækifæri til að koma sér fyrir í stólnum
andspænis mér spyr ég hann hvert leyndarmálið sé á
bak við góða ljósmynd.
„Æi, af hverju ertu með svona erfiðar spurningar,“
svarar hann um leið og hann sest niður. Hann hugs-
ar eitt augnablik en svarar svo spurningunni. „Við
getum sagt að góð mynd sé sambland af fagmennsku
og heppni. Góð mynd felst í því að fanga „momentið",
þetta augnablik sem skiptir öllu máli. Það getur ver-
ið heppni að fanga augnablikið en fagmennska að
koma því til skila.“
Er þetta kunnátta sem maöur lærir í skóla eða eru
menn fæddir Ijósmyndarar?
„Nei, nei. Það er enginn fæddur ljósmyndari. Mað-
ur lærir þetta bara eins og hvert annað fag og reynsl-
an kennir manni endalaust. í landslaginu finnur mað-
ur stundum að eitthvert augnablik er rétt og þá er
heilmikill spenningur að vinna úr þessu augnabliki.
En það er eitt að átta sig á því að augnablikið er rétt
og annað að festa það á mynd. Maður fmnur stundum
að eitthvert augnablik er rétt og þá er heilmikill
spenningur að ná þessu augnabliki. Maður áttar sig
stundum ekki á því fyrr en eftir á að mynd hefur
heppnast vel.“
Ég vil hafa hlutina einfalda
Sigurgeir er auðvitað þekktastur fyrir landslags-
ljósmyndir en hefur jafnframt mikla reynslu af aug-
lýsingaljósmyndun og mannamyndum. Hann sýnir
mér fyrstu bókina sína, Svip Myndir, sem hefur að
geyma myndir af fólki, bæði íslendingum en líka
frægum erlendum einstaklingum eins og Jimi
Hendrix. Myndirnar af Hendrix eru óvenjulegar, sér-
staklega fyrir þann sem eingöngu hefur séð myndir af
honum í fullum skrúða, brennandi gítar eða eitthvað
í þeim dúr. „Þessar myndir eru teknar nokkrum dög-
um áður en hann dó. Jimi var ekki mjög hress með
að ljósmyndari væri staddur baka til en þegar hann
vissi að ég var frá íslandi róaðist hann og setti sig í
fyrirsætustellingar," segir Sigurgeir og brosir þegar
hann rifjar þetta kvöld í Stokkhólmi upp fyrir rúmum