Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Qupperneq 30
Hehga rblaö 33‘V" l_A.UGARDA.GUR 22. J Ú N f 2002
Hættulegustu
vopn hryðjuverkamanna
Tjónið af sóðasprenqju er fyrst ístað ekki
meira en af venjuleqri bombu oq fer sprenqi-
krafturinn eftir þvíhvaða efni er notað oq í
hve miklu maqni. £n með tíð oq tíma veldur
qeislavirknin heilsutjóni þeim sem fqrir
verða oq er krabbamein helstu afleiðinqarn-
ar á mannslíkamann. £f sóðasprenqja
sprinqur íbqqqinqu verður hún ónothæf í
lanqan tímajafnvel aldir. Borqarhverfi sem
verða fqrir þanniq qeislun verður að rqma
oq má qeta nærri hvílíkt eiqnatjón verður ef
heilu miðborqirnar verða ónothæfar veqna
qeislavirkni um fqrirsjáanleqa framtíð.
AÐ SKAPA ÓTTA OG ÖRYGGISLEYSI er helsta
takmark hryðjuverkamanna. Það er ekki endilega
fjöldi þeirra sem myrtur er í ofbeldisverkum þeirra
sem máli skiptir heldur hitt að sýna að þeir hafa
vald á lífi og dauða og að enginn getur verið örugg-
ur um að verða ekki næsta fórnarlamb eða þar
næsta. Hryðjuverkamenn hafa aldrei sprengt kjarn-
orkusprengju og ekki hefur þeim enn tekist að
bombardera þéttbýli með geislavirkri sprengju og
ekki er vitað til að þeir hafi valdið heilsutjóni með
sýklavopnum og eiturefni hafa þeir ekki notað að
neinu marki. En óttinn við hryðjuverk með þeim
vopnum eða aðferðum sem hér eru nefndar hefur
grafið undan öryggiskennd almennra borgara og
valdið miklu efnahagslegu tjóni.
Hræðslan við stórfelld hryðjuverk er ekki
ástæðulaus og dæmin sanna að þeir sem þau vinna
svífast einskis til að ná takmarki sínu og spara þá
hvorki eigið líf né annarra. Þeir sem best til þekkja
og fylgjast með tiltektum stríðsmanna hatursins
staðhæfa að það sé aðeins tímaspursmál hvenær
árásir með geislavirkum sprengjum, eða sóðabomb-
um, verða gerðar í borgum ríkja sem öfgasamtök
heittrúarmanna telja til óvinasvæða.
Ameríkaninn sem handtekinn var í Chicago fyr-
ir skemmstu og er ásakaður um föðurlandssvik er
grunaður um að hafa ætlað að sprengja sóða-
sprengju, helst í Washington. Þótt hann hafi verið
handtekinn og komið i veg fyrir að honum tækist
ætlunarverkið er næsta víst að hann átti sér vit-
orðsmenn á heimaslóð og munu aðrir reiðubúnir
að vinna skítverkin.
Víðtækar varúðarráðstafanir vegna geislavirkrar
sprengju eru ekki ástæðulausar. Ekki þarf mikla
kunnáttu til að búa sóðasprengju til og efnin í hana
eru hvarvetna, jafnvel á glámbekk. Geislavirk
sprengja er í raun ekki annað en venjulegt sprengi-
efni, svo sem dínamít eða TNT, sem fjölmargir hafa
aðgang að og oft eru geymd á stöðum þar sem jafn-
vel krakkar geta hirt þau. í sprengjuna er sett
geislavirkt efni eða því vafið um hana eftir því í
hvaða formi það er. Þegar sprengt er dreifast
geislavirkar agnir um umhverfið og setjast fast í
byggingar eða hvaðeina sem sprengt er í eða við.
Tjónið af sóðasprengju er fyrst i stað ekki meira
en af venjulegri bombu og fer sprengikrafturinn
eftir því hvaða efni er notað og í hve miklu magni.
En með tíð og tíma veldur geislavirknin heilsutjóni
þeim sem fyrir verða og er krabbamein helstu af-
leiðingarnar á mannslíkamann. Ef sóðasprengja
springur í byggingu verður hún ónothæf í langan
tíma, jafnvel aldir. Borgarhverfi sem verða fyrir
y|| W§Tm
Þinghúsið í Washington er talið líklegt skotmark hryöjuverkamanna. Geislavirk sprengja þarf ekki að valda
beinum skemmdum á byggingunni en verði hún geislavirk er ekki hægt að nota hana um langa framtíð. Sania
er að segja um borgarhverfi sem verða fyrir sóðasprengju.
þannig geislun verður að rýma og má geta nærri
hvílíkt eignatjón verður ef heilu miðborgirnar
verða ónothæfar vegna geislavirkni um fyrirsjáan-
lega framtíð.
Efnin víða til
Spurnir eru af svartamarkaðsviðskiptum með úran
og plútóníum sem nothæft er i atómsprengjur en
álitið er að lítið sé af þeim efnum í umferð. Hins
vegar ganga önnur geislavirk efni kaupum og söl-
um og dæmi eru um að þau finnist á brotajárns-
haugum. Það er ekki lengra síðan en í mars sl. að
nokkurt magn af sesíum fannst á sorphaugi í Norð-
ur-Karólínufylki. Þar hafði geislavirku efni verið
hent af kæruleysi eða misgáningi.
Lítið geislavirk úrgangsefni úr kjarnorkurverum