Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Page 46
- so
>
Helgarblað H>V LAUGARDAOUR 22. J Ú IM f 2002
: 5
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 2/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 870 þus.
Suzuki Jimny JLX, 4x4, bsk.
Skr. 7/99, ek. 76 þús.
Verð kr. 990 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 55 þús.
Verð kr. 1470 þús.
ra JLX,:
Skr. 7/98, ek. 75 þús.
Verð kr. 970 þus.
Suzuki Swift GLS, 3d., bsk.
Skr. 4/99, ek. 25 þús.
Verð kr. 750 þus.
Renault Mégane RT, 5 d.,
bsk.
Skr. 3/99, ek. 47 þús.
Opel Astra GL, 5 d., sjsk.
Skr. 7/97, ek. 52 þús.
Verðkr. 650 þus.
Ford Focus Itend, 5 d., sjsk.
Skr. 1/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1890 þús.
Hyundai Accent GLSi, 5d.,
bsk.
Skr. 7/98, ek. 45 þús.
Verð kr. 750 þus.
Tilboð kr. 600 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
“—✓///--------------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skelfunni17,s?tni 568-5100
Formúlal
Hálfnuð er leið
þá hafin er
Keppni þessarar helgar á Niirburgring-
kappakstursbrautinni í Þýskalandi er sú níunda
á keppnistímabilinu og markar miðju Formúlu 1
keppnistímabilsms í ár. Sumum þykir eflaust
tímabilið rétt hafið og lítið hafa gerst en því er nú
ekki þannig farið. Tímabilið hefur þróast ein-
kennilega og hefur einn ökumaður umfram aðra
verið í sviðsljósinu eftir ótrúlegan árangur það
sem af er ári. Það þykir jafnvel ólíklegt að annar
komi til með að veita Michael Schumacher ein-
hverja raunverulega keppni um meistaratitilinn
og þann fimmta á ferli hans. Það er ekki úr vegi
á þessum tímamótum þegar degi er tekið að halla
á ný að líta yfir farinn veg Formúlunnar eða öllu
heldur famar brautir, þegar farið er að síga á
seinni hlutann á keppnistímabilinu.
Michael Schumacher
Á síðasta ári voru hönnuðir og ökumenn Ferr-
ari á eitt sáttir um að bíll þeirra F2001 væri nærri
þvi fullkominn keppnisbíll og því beið þeirra
erfitt starf í vetur sem fólst í því að smíða betri
og hraðskreiðari bíl fyrir þetta ár. Ferrari og
Michael Schumacher, sem tryggðu sér meistara-
titilinn í fyrra þegar fjórar keppnir voru eftir,
gátu þakkað það geysilega jöfnum og áreiðanleg-
um bU, svo það var ekkert lítið verkefni sem beið
starfsmanna liðsins í Maranello. Af árangri Ferr-
ari í ár virðist sem þeim hafi tekist ætlunarverk
sitt fullkomlega. F2002 bíllinn hefur verið nær
ósigrandi síðan Schumacher gat fyrst notað hann
í þriðju keppni ársins og Rubens Barrichello ekki
fyrr en á Imola. Biðin eftir bUnum sem var ekki
tUbúinn í upphafi tímabUsins borgaði sig sannar-
lega og hefur akstur þeirra félaga oft á tíðum
minnt á leik kattarins að músinni. Michael
Schumacher hefur nú unnið sex af átta keppnum
tímabUsins og hefur sjötíu af áttatíu stigum
mögulegum. Það er besti árangur sem nokkur
ökumaður hefur náð í sögu kappakstursins og
aldrei hefur forskotið verið meira en eftir átta
keppnir er stigamunurinn á næstu menn er kom-
inn í 43 stig. Hann virðist æfla að halda áfram við
þá iðju sína að endurskrifa sögubækur Formúlu
1.
Skuggi hvílir yfir Ferrari
Þó hefur skugga borið á Ferrari og goðsögn
Schumachers því i næstu viku verður ljóst hvort
leikur Ferrari á A-1 hring i Austurriki þann 12.
maí, er Barricheflo var látinn víkja fyrir meistar-
anum, hafi borgað sig. Ef marka má fréttir frá
þýska bílablaðinu Auto und Motor Sport kemur
FLA til með að svipta Schumacher sigrinum í
refsingarskyni fyrir atvikið sem olli hneykslan
um allan heim. Hvort Barrichello verður dæmd-
ur sigurinn, sem hann átti sannarlega skilinn, á
ný kemur í ljós en hann hefur verið einstaklega
óheppinn í ár. Hann hefur aðeins sextán stig og
er í flmmta sæti á stigalistanum og hefur ein-
hverra hluta vegna krækt sér í allar þær bflanir
sem orðið hafa í Ferrari-bílunum i keppnum árs-
ins. Jafnvel Schumacher sjálfur hefur viðurkennt
að úr þessu verði sennilega erfitt að tapa meist-
aratitlinum, þeim fimmta á ferli hans. Ef hann
vinnur næstu tvær keppnir án þess að aðalkeppi-
nautar hans vinni stig getur hann tryggt sér titil-
inn í Frakklandi í júlí. Það er ólíklegt en allt get-
ur gerst og það ólíklegasta hefur gerst. Þetta er
einfaldlega besta ár Michaels Schumachers og
Ferrari til þessa og þeir virðast ósveigjanlegir af
sigurbrautinni.
Juan Pablo Montoya
Einn harðasti keppinautur heimsmeistarans
fjórfalda er undradrengurinn frá Kólumbíu á
Williams-bílnum en hann er hvorki nægilega
reyndur ökumaður né bíllinn í því formi sem
þarf til að Montoya takist að veita Schumacher
einhverja keppni. Montoya hóf keppnistímabflið
með látum er hann sýndi Michael strax í tvo
heimana er þeir rákust saman á fyrsta hring,
bæði í Brasilíu og Malasíu. Hann hefur lært af
þeirri bitru reynslu og hefur hamið sig að undan-
fornu. Hann hefur verið undraverður í tímatök-
um í síðustu keppnum og ráspóll hans í Mónakó
var gulls ígildi fyrir sjálfstraust hans og virðingu
annarra ökumanna. Hann hefur verið óheppinn
undanfarið og það fer að styttast í fyrsta sigur
hans á árinu. Léttgeggjaður ökumaður sem gerði
í síðustu viku samning við lið sitt til næstu
tveggja ára og mun því að öllum líkindum aka
við hlið félaga síns Ralfs Schumachers út 2004.
Ralf hefur ekki verið eins glansandi flottur og
Montoya í ár en hefur þó jafnmörg stig eftir hálft
tímabilið. Hann getur þakkað það sigri sínum í
Malasíu en Ralf er agaður ökumaður og mjög
hraður. Montoya er bara hraðari og langtum
kaldari. Williams hefur í síðustu tveim keppnum
verið að saxa verulega á það svakalega forskot
sem Ferrari hafði á Imola og Spáni og má þakka
það gífurlegri þróunarvinnu Michelins. En BMW-
vélamar hafa ekki haldið það út og hafa þrjár vél-
arbilanir hrjáð þá síðustu tvær keppnir og rænt
þá dýrmætum úrslitum. Keppnin á morgun verð-
ur önnur heimakeppni BMW og Ralfs
Schumachers á árinu og þvi mikið í húfl fyrir
BMW. Wifliams þarf að láta allt smella saman
það sem eftir er ársins ef takast á að snúa við
blaðinu og stöðva sigurgöngu Ferrari.
Bestir af þeim sem á eftir koma
Baráttan um það hverjir séu bestir af þeim sem
koma á eftir Ferrari og Williams ætti að verða
McLaren auöveld en framan af ári var raunin alls
ekki sú. Lítið vélarafl og tíðar vélarbilanir hafa
gert árið 2002 það lélegasta í sögu liðsins síðan
Árangur ökumanna á fyrri hluta keppnistímabils
Astralia Malasía Bratllia San Marlno Spánn Austurrikl Mónnkó Kanatla Stlg
Tt. K Tt. K Tt. K Tt. K Tt. K Tt. K Tt. K Tt. K
M ic£)asJ*Íchumacher 2 1 1 3 2 1 1 1 f 'j *""■ "1., ; 3 1 3 2 2 1 70
Juan 1*ablo MoW*íé 6 2 2 2 1 5 4 4 4 2;: 4 3 1 1 j - \ 27
RalJ^áéach^r '\ 3 1. - ; . 3 1 3 2 3 3 4 . 3 ii 2 4 4 3 4 7 27
David 'Coulthaöl • ’ | 4 6 ! % 4 3 6 0 7 3 8 $ : 2 1 8 2 26
Rubéhs’garricftaÍÍo 1 - 3 j - 8 - 2 2 2- 1 2 . .. 5 7 3 3 16
Jensofi 'puttoC^W ! 11 - ' 8 4 7 4 9 5 ■6>-; ■ - 12 | „13 7 8 13 15 8
KimtSÍip§ionen 5 3 5 5 12 5 5. 6 'v\'- 6 - 5 4 7
Giancarip RsióBátó. 8 9 13 14 15 12 11 5 u 5 6 • 5 6
Nicfryei^eid 10 7 5 9 n ..i jé 7 10 8 4 5 j - ( 17 8 7 .. 12 5
lam^fíMm 7 12 6 8 9 9 10 16 , j 7 4 10 : J r 6 4
Edtflg|áne 19 4 20 1 - 13 7 18 - : 20 \ 20 21 9 14 3
Feliijl*Mpssa £J8#L 9 - 14 6 12 11 8 11 5 7 13 12 9 3
MarFtM^pber 18 5 21 - 20 11 19 ii HEK 21 12 19 ii 21 11 2
Mi)m& T'jjfj 14 6 10 12 10 6 16 * 17 9 10 8 9 8 >18 - 2
Heiöíijfrentzen 15 OH 11 11 18 13 - 10 6 11 11 12 6 119 13 2
AltóífÍ|jiSh Sgfj/ 16 r. - ■ 19 7 16 17 19 8 14 9 10 9 1 20 0
En*uel|emoI<F" 17 OH 16 21 20 Fl4 12 15 12 17 j - j 0
Alexlí^ng 21 7 22 ! - 22 13 j - j DÚK HEK 22 - 22 • 22 14 0
Olkpgg&is 12 18 17 12 13 9 18 11 8 0
JaqcuasýillengUPé 1 13 - 13 8 15 10 10 7 15 7 ' 17 10 14 9 ; - 0
Peuof de lo Rosa 20 8 17 10 11 8 21 16 19 20 10 16 0
Takumá Sato Sstfj 22 - 15 9 19 9 14 - 18 18 i - 1 16 15 10 0
Tt. = Tímataka K = Keppni DÚK = Dæmdur úr keppni HEK = Hóf ekki keppni OH = Of hægur í tímatökum