Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
/ / e fc) a rb la c) H>"V
53
Guðmundur I. Bjömsson
deildarstjóri við Seðlabanka íslands verður 60 ára á morgun
Guðmundur I. Björnsson, viðskiptafræðingur og deild-
arstjóri við Seðlabanka íslands, Hléskógum 17, Reykja-
vík, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist i Reykjavík og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1963, viðskiptafræðiprófi frá
HÍ 1968, stundaði framhaldsnám í stjórnsýslu í Ósló
1970-71, er löggiltur verðbréfamiðlari frá 1986 og stund-
aði framhaldsnám við háskólann í Bath 1994.
Guðmundur var fulltrúi í hagdeild Póst- og símamála-
stofnunarinnar 1968-71, deildarstjóri hagdeildar Pósts og
síma 1971-80, framkvæmdastjóri fjármálasviðs stofnun-
arinnar 1981-96, aðstoðarpóst- og símamálastjóri 1986-96,
forstjóri Pósts og síma hf. 1997, forstjóri Landssíma ís-
lands hf. 1998-99 og hefur verið deildarstjóri hjá Seðla-
banka Islands frá 1. des. 2000.
Guðmundur var fulltrúi yfirstjórnar í starfsmanna-
ráði Pósts og síma 1981-96, sat í stjórn Frímerkja- og
póstsögusjóðs 1987-96, i frímerkjaútgáfunefnd 1988-97 og
formaður hennar 1997, í stjórn STS Telecom AB, fyrir-
tækis í eigu norrænu símafyrirtækjanna, 1988-89, í sam-
starfsnefnd banka, sparisjóða og póstþjónustunnar um
gíróþjónustu 1992-97, í stjórn Eurogiro AS, fyrirtækis í
eigu póststjórna Evrópu, 1994-97, í Almannavamarráði
1997-99, í stjórn Smartkorta hf. 1999, í stjórn Nordtel,
samstarfs Norðurlandanna á sviði fjarskipta 1997-99, í
stjórn Nordpost, samstarfs Norðurlandanna á sviði póst-
mála 1997, var fulltrúi á allsherjarþingi Alþjóða póst-
málastofnunarinnar (IPU) í Washington 1989 og Seoul
1994, og fulltrúi á allsherjarþingi Alþjóða íjarskiptastofn-
unarinnar (ITU) í Minneapolis 1998.
Guðmundur sat í stjórn Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga 1972-73, í launamálaráði BHM 1973-74, í
stjórn BHM 1974-80, í orlofsheimilanefnd BHM 1978-82
og formaður hennar 1978-80, var prófdómari i stjórnun
við viðskiptadeild HÍ 1976-94, í stjórn Stjórnunarfélags
íslands 1982-90, í stjórn Ferðamálasjóðs 1993-99, í stjórn
Golfklúbbs Reykjavíkur 1985-92 og formaður hans
1989-92 og sat í sambandsstjórn HSÍ 1988-89.
Guðmundur var sæmdur gullmerki ÍSÍ 1992, gullmerki
Golfsambands íslands 1992, og gullmerki Golfklúbbs
Reykjavíkur 1994.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Þorbjörg K. Kjartansdóttir,
f. 27.11. 1943, lyfjafræðingur, meinatæknir, sviðsstjóri
hjá LyQastofnun og aðjúnkt við læknadeild HÍ. Foreldr-
ar hennar voru Kjartan J. Jóhannsson, f. 19.4. 1907, d.
7.1. 1987, læknir og alþm., og Jóna B. Ingvarsdóttir, f.
28.12. 1907, d. 29.7. 1994, húsmóðir.
Börn Guðmundar og Þorbjargar eru Kjartan Ingi, f.
11.10. 1968, byggingarverkfræðingur, tekn. lic., við dokt-
orsnám í Stokkhólmi en kona hans er Tanja Leirvaag,
háskólanemi og er sonur þeirra Jónatan Björn; Ingibjörg
Jóna, f. 4.10. 1973, læknir, við framhaldsnám í Edinhorg
en maður hennar er Kristján Orri Helgason læknir og er
sonur þeirra Kjartan Þorri.
Bræður Guðmundar: Sveinn, f. 10.10.1928, d. 16.9.1991,
kaupmaður og forseti ÍSÍ; Jón, f. 20.8. 1930, d. 5.1. 1995,
prentari.
Foreldrar Guðmundar voru Björn G. Jónsson, f. 30.4.
1899, d. 26.7. 1970, framkvæmdastjóri, og Ingibjörg
Sveinsdóttir, f. 3.9. 1904, d. 10.1. 1959, húsmóðir.
Ætt
Björn var sonur Jóns, skipasmiðs í Reykjavík, Björns-
Guðmunda Guðrún
Bj örgvinsdóttir
Guðmunda Guðrún Björg-
vinsdóttir, matreiðslu- og
framreiðslukona, Njarðvíkur-
braut 56, Innri-Njarðvík,
verður sextug á morgun.
Starfsferill
Guðmunda fæddist á Siglu-
firði en ólst upp hjá foður-
móður sinni í Sandgerði. Hún
starfaði á Hótel Sögu í fimm
ár, var sölumaður hjá heild-
Festi fimm ár og Vestu í þrjú ár, flutti til Svíþjóðar
1977 og var þar verkstjóri hjá Sydvenska Stad i fimm
ár, lærði matreiðslu, gerð kaldra borða, smurbrauðs-
gerð, framreiðslu, ferðamálafræði og fararstjórn.
Guðmunda starfaði lengst af á flugbátum og á bila-
ferju hjá Borholms Express. Hún kom aftur til íslands
1994, rak veitingahúsið Sigtún á Hofsósi 1998-99, sá
um mötuneyti ístaks vegna byggingar Leifsstöðvar,
vann á elliheimlinu Garðvangi í Garði, hjá Hagkaup
og starfar nú hjá veitingahúsinu Vör í Grindavík.
Fjölskylda
Guðmunda giftist 13.12. 1980 Vilhjálmi Ólafssyni, f.
19.1. 1930, sjómanni. Hann er sonur Ólafs Jónssonar
og Ingibjargar Eiríksdóttur.
Fyrri maður Guðmundu var Hafsteinn Sigurðsson
en þau skildu 1974.
Börn Guðmundu eru Sigurrós Petra Tafjord, f. 21.1.
1961, búsett í Sandgerði; Elín Magnea Hafsteinsdóttir,
f. 10.9.1963, búsett í Reykjavík; Ingi Örn Hafsteinsson,
f. 4.7. 1966, myndlistarmaður í Njarðvík; Bjarni Þór
Hafsteinsson, f. 8.11. 1971, nemi við Listaháskóla ís-
lands; Ólafur Vilhjálmsson, f. 7.9. 1981, nemi í hljóð-
upptöku við SAE College í London.
Foreldrar Guðmundu: Björgvin Helgi Guðmunds-
son, f. 24.4. 1917, vélstjóri i Reykjavík, og Anna Mál-
fríður Bjarnadóttir, f. 15.1. 1923, d. 28.5. 2002, húsmóð-
ir. Guðmunda tekur á móti gestum á sjómannastof-
unni Vör í Grindavík í kvöld kl. 21.00.
Sigríður
Sigurðardóttir
Sigríður Sigurðardóttir
húsmóðir, Faxastíg 5, Vest-
mannaeyjum, er áttræð í dag.
StarfsferiU
Sigríður fæddist í Nikhól í
Vestmannaeyjum en ólst upp
í Hruna. Hún og maður
hennar hófu búskap að Berja-
nesi við Faxastíg í Vest-
mannaeyjum, bjuggu síðan
að Staðarhóli við Kirkjuveg
1941 Óskari Elíasi Björnssyni,
f. 27.10.1917, bifreiðastjóra. Hann er sonur Bjöms Sæ-
mundssonar og Guðrúnar Jónsdóttur.
Börn Sigríðar og Óskars eru Ármann Halldór
Björnsson Óskarsson, f. 20.4. 1941, d. 23.11. 1984; Guð-
rún, f. 26.5.1945, var gift Jóhannesi Helga Jenssyni og
eru synir þeirra tveir; Margrét Sigríður, f. 14.5. 1948,
var gift Auðberg Óla Valtýssyni sem lést 1994 og eru
börn þeirra þrjú; Óskar Elías, 17.4. 1955 en kona hans
er Hildur H. Zoéga og eru synir þeirra tveir; Hannes
Kristinn, f. 19.12. 1957, fórst við björgunarstörf er tog-
arinn Pelagus fórst við Eyjar 21.1.1982; Guðný, f. 29.3.
1959 og á hún eina dóttur; Ármey, f. 19.8.1960, gift Sig-
urbirni A. Sigurðssyni og eru synir þeirra þrír.
Systkini Sigríðar: Gunnlaugur, f. 20.5.1920, d. 29.11.
1962; Una Guðríður Rósamunda, f. 6.8. 1923, d. 30.4.
1978; Margrét, f. 3.2. 1925; Fjóla, f. 17.8. 1928; Pálína, f.
22.10. 1929; Eiríkur, f. 31.1. 1931; Oddný Sigurrósa, f.
1.10. 1933; Einara, f. 17.1. 1936. Hálfbróðir Sigríðar,
sammæðra: Pétur Sveinsson, f. 16.5. 1918, d. 8.9. 1985.
Foreldrar Sigríðar voru Sigurður Þorleifsson, f.
16.8. 1886, d. 15.5. 1969, sjómaður og bóndi í Hruna í
Vestmannaeyjum, og k.h., Margrét Vigdís Gunnlaugs-
dóttir, f. 6.1. 1898, d. 19.7. 1965, húsmóðir.
Sigríður tekur á móti gestum i húsi Kvenfélagsins
Líknar við Faxastíg í Eyjum í dag kl. 15.00-19.00.
en síðan á Faxastíg 5.
Fjölskylda
Sigríður giftist 27.10.
sonar, b. á Yxnalæk, bróður Valgerðar, langömmu Guð-
mundar H. Garðarssonar, fyrrv. alþm., og Vals Valsson-
ar bankastjóra. Björn var sonur Þorbjörns, b. á Yxnalæk,
Jónssonar, og Katrínar, systur Odds, langafa Salvarar,
ömmu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Oddur var
einnig langafi Steindórs á Bílastöð Steindórs, afa Geirs
Haarde fjármálaráðherra. Katrín var dóttir Björns, b. á
Þúfu, Oddssonar og Guðrúnar Eyjólfsdóttur, ættföður
Kröggólfsstaðaættar, Jónssonar. Móðir Björns kaup- t, -
manns var Ingibjörg Sigurðardóttir.
Bróðir Ingibjargar Sveinsdóttur var Jón, afi Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur, mannfræðings og fyrrv. alþm.
Annar bróðir Ingibjargar var Hallgrímur, faðir Sveins,
skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri. Ingibjörg var
dóttir Sveins, kennara á Hálsi, Sveinssonar, b. á Hálsi,
Jónssonar. Móðir Sveins kennara var Kristín Eggerts-
dóttir, b. í Miðgörðum, Guðmundssonar.
Móðir Ingibjargar var Guðný, systir Kristjáns, fóður
Eggerts, stórkaupmanns í Reykjavík. Guðný var dóttir
Eggerts, b. í Miðgörðum, bróður Kristínar á Vörðufelli
en Sveinn kennari og Guðný, kona hans, voru systkina-
börn.
Guðmundur verður að heiman á afmælisdaginn.
HoluAsI.it n
Allt hans tal var barlómsbölv,
brigzl og níð og vol og grenj;
í síðasta þætti var rætt um hringhenduna og sýnd
dæmi um hana auk þess sem tilfært var dæmi um það
þegar henni slær saman við oddhendu. Að þessu sinni
byrjum við á að skoða oddhendu sem er ekki hring-
henda. Höfundur er Hallgrímur Pétursson:
Hrindum móö úr hyggjuslóó,
hringa eikin skœra;
oddhent Ijóö, hiö unga fljóö,
œtla eg þér aö fœra.
Innrímið er aðeins í frumlínunum; þar rímar ris 2.
kveðu við lokaorðið. En algengara er að oddhendar
vísur séu jafnframt hringhendur. Þetta bragform, sem
Sveinbjöm Beinteinsson kallar reyndar bara oddhent,
hefur alla tíð verið vinsælt, enda afar fallegt. Svein-
björn yrkir svo í Háttatali sínu:
Maöur tjáir þessi þá
þegnum knáu hallar:
„Listir fáar", sagöi sá,
„sýna má ég snjallar
Skoðum næst vísu eftir Stein Steinarr:
Lífs um angurs víðan vang
víst ég ganginn heröi,
eikin spanga, í þitt fang
oft mig langa geröi.
Fræg draumvísa á sér þá sögu að fiskiskip úr
Gróttu á Seltjamarnesi fórst á heimleið undir Gróttu.
Sömu nóttina heyrði drengur einn þessa vísu kveðna
á glugganum:
Dauöinn sótti sjávardrótt;
sog var Ijótt í dröngum.
Ekki er rótt aó eiga nótt
undir Gróttu töngum.
Umsjón
Ragnar Ingi
Aðalstcinsson
ria@ismennt.is
Og enn er hægt að bæta við rímið. Ef vísan er sam-
henda eru allar braglínur jafnlangar og rímið eins í
þeim öllum. Næsta vísa er áttstikluð samhenda,
þetta kallast áttþættingur og er úr Odds rímum
sterka eftir Öm Arnarson:
Við endum á skemmtilegri vísu eftir El-
ias Mar. Tilefni vísunnar var það að þegar
Elías var i íslenskunámi hjá Freysteini Gunn-
arssyni fyrir margt löngu vakti Freysteinn at-
hygli nemenda sinna á því að til væri aöeins
eitt orð í íslensku sem endaði á j og eitt sem
endaði á v. þetta voru orðin grenj og bölv. Var
því af flestum talið að þau væru ótæk sem
rímorð. Hagyrðingar hafa hins vegar alltaf haft
gaman af að afsanna slíkar kenningar og því
orti Elias:
Allt hans tal var barlómsbölv,
brigzl og níö og vol og grenj;
haföi þó keypt hús viö Sölv-
hólsveg af amini. Benj-
Ein er, veit ég, uppi í sveit,
ekki þreyti neina leit,
œskuteit og hjartaheit,
hökufeit og undirleit.