Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2002, Side 46
50
Helqctrblað DV LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002
Ógæfusamur
sveitasöngvari
Lengi bgr að fgrstu gerð segir alþekkt máltæki og
annað máltæki segir að það þurfi sterk bein til þess
að þola góða daga. Þessir málshættir sönnuðust báðir
á Johnng Rodriguez sem þótti afar efnileg
unglingastjarna og uarspáð frægð á borð i/ið Ehis
Presleg. En þegar sviðsljósið dofnaði þoldi hann ekki
álagið og endaði með þvíað fremja morð.
Hversu mikinn rétt hefur íbúðareigandi til að
vernda sjálfan sig fyrir ágangi annarra? Hefur
hann til dæmis rétt til að drepa mann sem
ræðst inn á heimili hans? Þetta voru spurning-
ar sem kviðdómur leitaði svara við árið 1998 í
máli Johnny Rodriquez. Laugardaginn 29. ágúst
1998 hafði hann skotið og drepið Israel Borrego,
26 ára gamlan góðkunningja lögreglunnar.
Rodriquez hélt því fram að Borrego hefði ráðist
inn á heimili gamallar móður hans. Rodriquez
átti yfir höfði sér 99 ára fangelsisdóm yrði hann
dæmdur sekur.
Rodriquez var áttunda barn foreldra sinna,
sem eignuðust alls níu börn. Sem barn var
hann afar lítill námsmaður og tólf ára gamall
var hann illa læs. Á þeim tima keypti systir
hans handa honum gítar. Það var ást við fyrstu
sýn. Fjórtán ára tók hann þátt í hæfileika-
keppni og stofnaði fyrstu hljómsveitina sextán
ára. Hann komst í kast við lögin átján ára gam-
all þegar hann gerðist sekur um ítrekað hnupl
ásamt vinum sínum. Hann hélt síðan til Nas-
CD
Þar skall hurd
nærri hælum
Full búd af nýjum ECCO skóm
á alla í fjölskyldunni.
Verid velkomin á Laugaveg 38
á löngum laugardegi.
CCCG
SHófiúflin
Laugavegi 38 • sími 551 0765
hville og með fyrstu smáskífu sinni Pass Me By
komst hann á vinsældalista. „Ég hélt að hann
myndi verða annar Elvis Presley,“ sagði
Johnny Cash seinna. „Strákurinn hafði allt til
að bera.“
Fallin stjama
Rodriquez ferðaðist um með Waylon Jenn-
ings og Tönju Tucker og var vinur Tammy Wy-
nette. „En frægðin kom of hratt fyrir hann,“
sagði systir hans Antonia. „Hann kunni ekki að
taka á henni. Engum virtist þykja vænt um
hann og hann svaf með byssu undir koddanum
á hverri nóttu." Rodriquez var hræddur við að
sofa einn í ókunnum hótelbergjum en leysti
vandann með því að safna að sér kvenfólki.
Hann átti kvenkyns aödáendur sem hentu nær-
buxum sínum upp á svið til hans ásamt her-
bergislyklum. Hann eyddi stórfé í kókaín en
sagðist hafa fengið mikið af eiturlyfum gefins
frá fólki sem sóttist eftir félagsskap hans. Hann
viðurkenndi sjálfur að hafa verið -einmana og
haldinn sviðs-
hræðslu. Á þremur
áratugum kom
hann tuttugu dæg-
urlögum á vin-
sældalista áður en
hann sigldi ferli
sínum í strand með
dópi og drykkju.
Fyrsta hjónaband
hans með flugfreyju
stóð í tæp þrjú ár
og þann tima var
hann að mestu á
ferðalögum. Þegar
hann skemmti við
innsetningarhátið
Bush eldri árið 1989
var hann ekki svip-
ur hjá sjón vegna
eiturlyfjaneyslu.
Sex árum síðar
kvæntist hann
Lönu Nelson, dótt-
ur Willie Nelson, en
það hjónaband ent-
ist aðeins i sjö mán-
uði. Árið 1998
kvæntist hann hár-
greiðslukonu,
Debbie. Þremur
mánuðum seinna,
eftir hjónarifrildi,
sneri Rodriquez aft-
ur til heimabæjar
síns Sabinal í Texas
þar sem hann
dvaldist hjá móður
sinni. Þar hugðist
hann semja lög í
þeirri von að öðlast
aftur fyrri frægð.
Óboðinn gestur
Víkur nú sögunni
að Israel Borrego.
Hann var kvæntur
og átti tvö börn, ell-
efu og átta ára.
Hann var smiður að
atvinnu en gat ekki
séð fyrir sér meö
vinnu sinni og fór
að stela. Á þessum
tíma var hann á reynslulausn eftir fjögur inn-
brot. Hann hafði eitt sinnn unnið fyrir móður
Rodriquez en hún hafði verið óánægð með
vinnu hans og neitaði í fyrstu að borga honum
en gaf sig eftir að hann hafði farið yfir verk sitt
og lagað það. Eftir það leit hann nokkrum sinn-
um við hjá henni. Rodriquez hitti Borrego
nokkrum sinnum á heimili móður sinnar og
kunni ekki við að hann væri að sniglast þar.
Föstudaginn 28. ágúst hafði Rodriquez verið
að skemmta sér ásamt vini sínum Carlosi.
Rodriquez sofnaði í sófanum á heimili Carlosar
og sneri ekki heim til sín fyrr en liðið var á
morgun. Þegar hann gekk inn í myrkvað húsið
sá hann manni bregða fyrir I eldhúsdyrunum.
Hann sagði seinna að sér hefði sýnst maðurinn
vera tilbúinn til að ráðast á sig. Rodriquez þreif
byssu sína og skaut á manninn. Hávaðinn vakti
móður hans sem kom hlaupandi úr svefnher-
bergi sinu og sá son sinn krjúpa yfir Borrego
sem engdist um af kvölum en missti síðan með-
vitund. Rodriquez hringdi á sjúkrabíl en þegar
á sjúkrahús var komið var Borrego úrskurðað-
ur látinn.
„Skjótum fyrst og spyrjum svo“
Rodriquez hélt því staðfastlega fram að hann
hefði verið að koma í veg fyrir innbrot og hefði
ekki haft hugmynd um að Borrego væri árás-
armaðurinn. Hann sagðist hafa óttast um líf sitt
og móður sinnar og eina ráðið hefði verið að
gripa til vopna, því annars hefði árásarmaður-
inn orðið fyrri til.
Ekki leið á löngu þar til Rodriquez var
ákærður um morð. En ekki einungis var hann
ákærður heldur einnig vinur hans Carlos.
Rodriquez hafði hringt í Carlos þegar lögreglan
kom að húsinu og Carlos sem bjó þar skammt
frá kom strax á vettvang. Réttarhöldin stóðu í
sex daga og eftir tveggja tlma unhugsun komst
kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Carlos væri
saklaus og það væri Rodriquez einnig. Lögfræð-
ingur Rodriquez sagði eftir réttarhöldin: „Ef
innbrotsþjófur er á heimili manns um miðja
nótt þá stendur maður ekki í viðræðu við hann.
í Texas skjótum við fyrst og spyrjum svo. Ef
Borrego hefði ekki brotist inn í húsið væri
hann lifandi í dag.“
Johnny Rodriquez. Á þreinur áratugum kom hann
tuttugu dægurlögum á vinsældaiista. Þegar hann
var ákærður fyrir morð var hann fyrir löngu orð-
inn fallin stjarna.